Pressan - 30.05.1991, Síða 4

Pressan - 30.05.1991, Síða 4
I FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. MAÍ 1991 rEIMAd >SF|R0INGUR Kani frá Kansas og œvintýri hans í Reykjavík Árum saman hefur fólk farið þess á leit að ég láti skrásetja ævisögu mína. Hvers vegna auglýsirðu ekki í blöðunum, hefur fólk sagt. Bókaútgefendur. Verð til viðræðu á heimili mínu á morgun frá kl. 3—5 um rétt- inn á ævisögu minni. En ég hef svarað: Hvernig ætti ég að fara að því að undirrita slíka auglýsingu? Hlýddu á sorgarsögu mína lesandi góður. Sannleikann um uppruna minn. Nei, saga mín er ekki saga hins dæmigerða íslendings. Ég er ekki kominn af Ulfi Oarga sem nam land í Raumsdal í Noregi og hvers eftirkomandi Skallagrímur Kveldúlfsson fluttist til ís- lands og var öllum til ama á Borg á Mýrum. Nei, vinir mínir. Faðerni mitt var ann- að en ég hafði haldið. Hann Öni fornsali var ekki pabbi minn. Stelpurnar voru að dást að Reimari og skiptast á um að fá að halda á Lóló. Þá gekk Eiki Strandamaður allt í einu inn í hópinn. Skelfilegt var að sjá hann. Hann var ber- fættur og lappirnar bláar af kulda. — Reimar, sagði hann rámur. — Geturðu lánað mér sí svona tvö til þrjú- hundruð krónur? Ég skal reka þetta framan í þig strax eftir helgi. Hann tók yfir um axlirnar á Reimari og sagði við stelpurnar. — Þessi drengur er sonur minn. — Já, það hefur alltaf ver- ið gott milli mín og karlsins, sagði Reimar stoltur. — En áttu pening kæri sonur, spurði hinn berlapp- aði. — Betra en það elsku pabbi minn, sagði Reimar. Við Nasi erum að djúsa. Og nóg er nú vændið. Hann benti á Kötlu og Tinnu. Þær voru báðar stórkostlegar að sjá. Katla þeldökk og ítölsk í yfirbragði. Tinna Ijóshærð, þvengmjó og föl. — Til að sinna þess háttar vændi þarf karlmennsku, sagði Katla kuldalega. — Eða með öðrum orð- um, sagði Reimar.Viö Nasi eigum hálfpott af sjenna. Kondu inn hjá Svölu að ylja þér elsku pabbi minn. Hún er ekki heima breddan sem betur fer svo þú þarft ekkert aö óttast. Svala fór til Eyja með tíunda kærastanum á árinu að kíkja á bát. Hún trú- lofast örugglega kokknum áður en kærastinn kemur henni aftur upp á bryggju. — Mamma lúlla Ijótan kall, sagði Lóló. Afi Eiki gó. Fólk var fariö úr gluggum á Bergþórugötunni. Við fór- um öll inn. Strandamaður- inn settist við nýja stofu- borðið og drakk sjennann af stút. Hann hafði betlað síga- rettu af Kötlu. Lúkan á hon- um var svo stór að rettan sýndist stubbur áður en hann tendraði. — Sé það nú sjálfsagt að pabbi fái sér sjúss hjá mér, hvíslaði Reim- ar stoltur. Strandamaðurinn var fyndinn í byrjun en eftir því sem dalaöi i flöskunni döpr- uöust sögurnar. Loks leit hann á mig og lagði hramm yfir lúku mína á eldhúsborð- inu. — Nasi minn, sagði Eiki. Ég er kominn á sannleika- stigið. Hún mamma þín sagði einu sinni að þú værir svo ljótur að þú líktist frekar veru frá öðrum hnetti en mennskum manni. Ég kink- aði kolli. Stelpurnar flissuðu. Reimar glotti. — Ég hef oft sagt við hana Gúttu systur. Segðu drengn- um sannleikann Gútta mín. Það er öllum fyrir bestu. Hvenær ertu fæddur Nasi minn, spurði hann svo. — 17. mars 1946, svaraði ég- — Reiknaðu aftur í tímann og þá sérðu hvenær þú komst undir. Á þjóðhátíðar- daginn 1945. Þann sautj- ánda júní. Ég ætti að muna það vegna þess að mér var falið að passa hana mömmu þína. Við komum í fyrsta sinn til Reykjavíkur af Ströndum bæði tvö daginn áður með steiktar lunda- lappir i bréfpoka því ekki átti að eyða og spenna í sælgæti. Já, drengurinn minn, sagði Eiki. En hún Gútta systir laumaðist frá mér. Enginn ís- lendingur gæti verið jafn Ijótur og þú Nasi minn. Hvenær kom hann Öni pabbi þinn til íslands? — Hautið 1945. — En ég hélt að ég væri fyrirburður. — Þú ert ekki fyrirburöur frekar en ég, sagði Stranda- maðurinn. — Þú ert Amerík- anasonur. Pabbi þinn var Ferðalag franska þjónsins 09 ifinar hans bakarans EINHVER ÞESSARA VERÐUR ÞOKKADÍS ÍSLANDS Á morgun verður kynnt seinna hollið af fegurðar- drottningunum sem taka þátt í samkeppni skemmtistaðar- ins Moulin Rouge um Þokka- dís íslands. Eins og PRESSAN skýrði frá fyrir viku eru þarna á ferð ungir drengir í hlutverkum fegurðardrottn- inga og af myndunum að dæma standa þeir fyrirmynd- unum ekki langt að baki' Úr- slitakeppnin fer síðan fram um næstu helgi. ári“. PRESSAN stöðvaði hann á göngu í miðbænum með fé- laga sinum Gérard Cep, tví- tugum bakara frá borginni Dijon. Marc og vinur hans voru dáltið slæptir á föstu- dagseftirmiðdegi, enda búnir að vaka í 48 tíma samfleytt, harðákveðnir í því að láta ekkert framhjá sér fara í land- legunni. Skoðunarferð ,,um- eyjuna" og skemmtun á (,,stærsta skemmtistað í Evr- ópu“, voru meðal þess, sem þeir voru búnir að sjá og gera. Hlógu bara þegar þeir þeim hefði stelpu og það hefði gengið ,,trés bien“. Svo vildu þelrVrta hvað menn fengju í kaup á Is- fannst mesta furða að Nekki skyldi vera kaldara ogkvörtuðu dálítið yfir óreglulegum vinnutíma um borð. Hlökkuðu til að koma aftur til Frakklands, en voru líka hæstánægðir með að hafa fengið að ferðast um hálfan hnöttinn. Tækifæri sem á varla eftir að bjóðast þeim Marc og Gérard aftur í bráð. Já, og eitt enn. Af hverju er- um við hætt að byggja torfbæi? Það fór víst ekki framhjá neinum í Reykjavík að þar lögðust að bryggju tvö frönsk herskip, því bærinn var fullur af dátum þá þrjá daga sem þau lágu í höfn. Einn þeirra var Marc Ball, 22 ára þjónn frá Auberville í Savoy-héraði, ,,þar sem vetrarólympíuleik- arnir verða haldnir á næsta Jason Ólafsson er einn af okkar ungu og upprennandi handknattleiksmönnum, sem mikils er vœnst aft fram- tídinni, svo madur noti orda- lag íþróttafréttamannanna. Þegar PRESSAN rœddi vid Jason í fyrri viku var hann rétt ad koma nidur á jördina eftir ad hafa unnid frœkileg- an sigur á Nordurlandameist- aramótinu í handknattleik, ásamt félögum sínum í ís- lenska landsliðinu, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, og var að vonum hress með árangurinn. Jason hefur sýnt hæfileika á fleiri sviðum en því að handleika knött. Hann var lengi í golfi og reyndar valinn í unglingalandsliðið í þeirri íþrótt fyrir nokkrum árum. Golfið stundar hann ekki lengur, nema sér til ánægju í sumarbústaðaferðum upp í Þrastarskóg á sumrin. Þar hafa tónlistarhæfileikar hans líka komið í góðar þarfir. Jason lærði á píanó í mörg ár, en gaf það einnig upp á bát- inn þegar námið í Versló og handboltinn fóru að taka mestan hans tíma. En hann hefur ekki sagt skilið við tón- listina heldur spilar áfram á píanóið, fyrir sjálfan sig og hefur reyndar bætt um betur, með því að læra gítargrip af föður sínum. Gítarinn tekur hann svo með í sumarbústað- inn og hann hefur jafnvel fengið að fljóta með í keppn- isferðum í handboltanum. En skyldu ungu handknattleiks- mennirnir okkar vera músík- alskir? Jason gefur lítið út á það. ,,Við syngjum aðallega sigurlög," segir hann. Jason æfir þessa dagana með landliði 21 árs og sem stefnir á heimsmeistara- mót unglinga í Grikklandi í haust, og byrjar svo ' vinnunni eftir helgi. að aka brúðubílnum þriðja sumarið í röð," segir Jason. „Það er bæði lifandi skemmtilegt starf, sem pass ar auk þess vel með hand boltanum." hermaður. Offíser frá Kans- as. Hann hét Ken Jones. Þú heitir réttu nafni Jónas Jones. hann Önundur forn- sali á ekkert í þér. Það er nú helber sannleikurinn. Ó, Öni pabbi, hugsaði ég sorgmæddur. Mér fannst sem svart tjald væri dregið fyrir augu mín. Ég var ekki Islendingur. Aldrei gæti ég raupað af Úlfi Óarga í fyrstu köflum ævisögu minnar sama hvað ég væri hispurs- laus og hreinskiptinn. Móðir mín hafði búið svo um hnút- ana. Hræðilegur hefndar- hugur greip mig. Ég ákvað að gera eitthvað í málinu strax. í næstu Pressu. Ólafur Gunnarsson DRAUMA DINNER PRESSAN bað HELGA BJÖRNSSON leikara og söngvara að vera gestgjafa í ímynduðu kvöldverðarboði með alls átta gestum. Gestirnir máttu vera hverjir sem er, látnir, lifandi, frægir, skáldsagnapersónur, teiknimyndafígúrur eða bara vinir og vandamenn Helga. Eina skilyrðið var að þeir væru honum þóknanlegir. Eftirfarandi gestir urðu fyrir valinu hjá Helga: Oscar Wilde: Hann er svo mikill sælkeri og samkvæmisljón. John Lennon: Alltaf langað til að hitta hann. Hörður Ingólfsson: Lífskúnstner og æskufé- lagi sem er of langt siðan ég hef setið með. Sir Laurence Olivier: Gaman að vita hvort hann gæti ekki hvíslað að mér einhverju leikhúsbragði. Stefán Baldursson: Hann hefði gott af þvi að slaka á i góðum félags- skap. Sara Bernhard: Oscar kemur ekki nema hún komi lika. Kolbeinn kafteinn: Ef þetta færi að verða eitt- hvað leiðinlegt gæti hann rifið það upp. Emilí Loyd: Mætti gjarnan taka smá- kökurnar með sér.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.