Pressan - 30.05.1991, Page 7

Pressan - 30.05.1991, Page 7
F1MMTUDAGUR PRESSAN 30, MAf 1991 7 Mikil oanægja er innan kaþólska safnaðarins hér á landi með fjármáIaumsýsluy4//recfs./o/son biskups. Harð- ast er hann gagnrýndur fyrir sölu á húseigninni Torfufelli 42 sem hann seldi vinafólki sínu skömmu eftir að hann kom til starfa hér á landi. bykir ljóst að eignin hafi verið seld langt undir markaðsvirði en hún var seld á 3 milljón- ir króna 7. júní 1988. Þá var brunabótamat hússins um 6 milljónir. Eignin hefur nú verið seld aftur á 11,5 milljón- ir króna. Sú sala hefur vakið upp fyrri gagnrýni innan safnaðarins. Torfufell 42 er 140 fermetra rað- hús sem byggt var 1974. Nokkrum árum seinna keypti kaþólska kirkj- an á íslandi húsið og var það notað undir írska presta sem hér dvöldust. t>ar sem allar tekjur kirkjunnar koma af gjafafé þá má líta svo á að hún hafi verið keypt fyrir gjafafé á sínum tíma. Þegar húsið var keypt var greitt fyrir það fullt markaðsverð og gerðu safnaðarmeðlimir ráð fyrir að það verð myndi endurheimtast þegar húsið var sett á sölu 1988. Þá voru prestarnir horfnir af landi brott og um leið hafði kirkjan byggt ann- ars staðar þannig að ekki voru talin not fyrir húsið. VERÐIÐ HÆKKAÐI UM 7 MILLJÓNIR Það mun síðan hafa verið eitt af fyrstu embættisverkum Alfreds Jol- son biskups eftir að hann kom hing- að að undirrita kaupsamning um sölu á húsinu. Kaupendur voru hjónin Ásta Hansen Scobie og Grif- fith Scobie. Griffith. sem lést skömmu eftir að kaupin fóru fram, var bandarískur eins og Jolson og mun þeirra vinfengi hafa hafist áður en Jolson varð biskup hér. Sco- bie-hjónin voru bæði í kaþólska söfnuðinum. Söluverðið var 3 miiljónir króna en brunabótamat var þá um 6 millj- ónir. Nú hefur eignin verið endur- seld á 11.535.000 krónur. Fram- reiknað söluverð frá 1988 er hins vegar 4,5 milljónirkróna. Söluhagn- aður Ástu virðist því vera um 7 millj- ónir króna en einhverjar endurbæt- ur munu þó hafa farið fram á hús- inu. Á sínum tíma urðu miklar deilur út af sölunni og vildu sumir meðlim- ir safnaðarins að kaupin gengju til baka. Aldrei kom þó tii þess. Það er í sjálfu sér ekkert vafamál að biskupinn hefur vald til að selja eignir kirkjunnar en vanalega hefur hann samráð við fjögurra manna fjárhagsnefnd kirkjunnar. Það mun hann ekki hafa gert á sínum tíma. FÉKK AFSAL ÁN ÞESS AÐ HAFA GREITT ALLT KAUPVERÐIÐ Óánægjan út af sölunni hefur nú blossað upp aftur meðal annars vegna augljóss söluhagnaðar Ástu Scobie nú þegar hún hefur selt hús- ið. Kaupendur eru Baldur Árnason og Kristín Fridleifsdóttir. Torfufell 42: Fasteignamat lóðar og húss er um 7,8 milljónir króna í dag. Það sem hefur einnig vakið furðu manna er að kaupverð hússins var ekki að fullu greitt þegar afsaliö fyr- ir húsinu var gefið út. Ásta fékk afsal fyrir húsinu 22. maí en tveim dög- um síðar, 24. maí, undirritaði hún sölu á húsinu. PRESSAN hefur heim- ildir fyrir því að Ásta hafi aðeins greitt sem svaraði tveim milljónum króna þegar hún fékk afsalið. Eftir að hún hafði hins vegar selt húsið greiddi hún lokagreiðslu til kaþ- ólsku kirkjunnar. Kaupsamningur- inn frá 1988 finnst hins vegar ekki þannig að erfitt er að sjá dagsetn- ingar á greiðslum vegna sölunnar. VALD BISKUPSINS SKERT í KJÖLFAR MÁLSINS „Þetta er leiðindamál og við vilj- um sem minnst um þetta tala. Við fjölluðum um þetta á sínum tíma og gerðum okkar athugasemdir," sagði einn fjárhagsnefndarmanna þegar hann var spurður um hvort þetta hefði orðið tilefni athugasemdar af þeirra hálfu. Samkvæmt því sem næst verður komist var fjárhagslegt vald biskupsins minnkað í kjölfar þessa máls. Hefur verið bundið þannig um hnúta að ekki verði hreyft við eignum kirkjunnar án heimildar frá fjárhagsnefnd kaþ- ólsku kirkjunnar. Jolson hefur hins vegar oft veriö legið á hálsi fyrir eyðslusemi og meðal annars verið gagnrýndur fyr- ir háan kostnað við rekstur biskups- setursins, tíðar utanlandsferðir og háa símreikninga. „Það er nú orðið langt um liðið síðan eignin var seld og ég hef ekki heyrt neinar kvartanir út af því ný- lega," sagði Alfred Jolson þegar haft var samband við hann og hann spurður um söluna á Torfufelli 42. — En þú uarst gagnrýndur fyrir söluna á sínum tíma? „Þaö er langt síðan.“ — Huerjar eru þínar skýringar á Fjarmalaumsysla biskupsins hefur oróiö tilefni haröra deilna innan kaþ- nklfA ctafnarSarinc; sölunni? „Ég vil síður tjá mig um það.“ Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR mun biskup hafa borið fyrir sig ókunnugleika varöandi íslensk- an fasteignamarkað á sínum tíma. Úr því ekki var hægt að breyta neinu um kaupin þá voru þær skýr- ingar látnar duga. Salan mun hafa verið skráð í reikninga kirkjunnar sem mannúðarmál. Sigurdur Már Jónsson

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.