Pressan - 30.05.1991, Page 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. MAI 1991
Gjaldþrota
vödvabuntí
skaðabótamál
Hann Pétur Pétursson
lœknir ú Akureyri er ekki öf-
undsverdur um þessur mund-
ir. Hann er búinn ad fú öll
uödvabúnt landsins ú móti
sér. 35 þeirra hafa stefnt hon-
um fyrir aö segja ad þau séu
eistarýr hormónasprautu-
frík.
Vöðvabúntin 35 krefjast
þess að Pétur greiði þeim
10,5 milljónir króna eða 300
þúsund krónur á búnt, auk
kostnaðar og vaxta.
Pétur viðhafði meint óvið-
urkvæmileg og skaðleg um-
mæli í útvarpsþætti 10. apríl
og mun reyndar aðallega
hafa átt við vaxtarræktar-
menn, en margir þeirra eru
sem kunnugt er um leið kraft-
lyftingamenn. Það er því
kannski kaldhæðni örlag-
anna að liðlega tveimur vik-
um eftir að Pétur gerðist op-
inskár um vöðvabúntin hafði
skiptaráðandinn í Kópavogi
úrskurðað að Kraftlyftinga-
samband íslands skyldi tekið
til gjaldþrotaskipta. Kannski
voru vöðvabúntin heppin að
búa ekki í umdæmi sýslu-
manns Reykjaness og bæjar-
fógetans í Hafnarfirði, Mús
Péturssonar, bróður Péturs
læknis (og Púls Péturssonar
þingmanns og skuggaráð-
herra).
Kraftlyftingasambandið
var svo óheppið að lenda í
þroti eftir að hafa haldið Evr-
ópumeistaramót í fyrrasum-
ar. Það hélt veislu í húsnæði
Flugleiða, sem kostaði 400
þúsund krónur. Þennan
kostnað átti að dekka auglýs-
ingasamningur við Grunda-
kjör og gæsla á tónleikum
sem tvö hlutafélög efndu til.
En Grundakjör fór á hausinn
og hlutafélögin tvö voru guf-
uð upp þegar þeir sterku
komu til að rukka. Hart er í
heimi, hvat.
Hið eina og
sanna skugga-
ráðuneyti
Framsóknarmenn eru sem
kunnugt er búnir aö mynda
svokallaö skuggarúöuneyti,
aö hœtti Engilsaxa. En hiö
eina sanna skuggarúöuneyti
er hins vegar til og í því eru
aöeins þrír rúöherrar, Davíð
Oddsson, Halldór H. Jónsson
og lndriði Pálsson.
Halldór H. Jónsson er for-
sætisráðherra skuggaráðu-
neytisins og fer að auki með
samgöngumál (málefni
skipafélaga, flugfélaga og
þess háttar), iðnaðarmál, fjár-
mál og sjávarútvegsmál. Hall-
dór hefur mikla reynslu að
baki í Eimskip, Flugleiðum,
Islenskum aðalverktökum,
Sameinuðum verktökum,
Sjóvá, Skeljungi, ÍSAL,
Steypustöðinni, Áburðar-
verksmiðjunni og fleiri fyrir-
tækjum.
indriði Pálsson fer með við-
skiptamál (olíuinnkaup,
bankamál og fleira), dóms- og
kirkjumál, landbúnaðarmál,
félagsmál og innanríkismál.
Indriði hefur eins og Halldör'
mikla reynslu á sviði atvinnu-
mála, t.d. í Skeljungi, Eim-
skip, Flugleiðum, íslands-
banka, Úrval-Útsýn og fleiri
fyrirtækjum. Hann er líka
stórmeistari Frímúrarareglu
íslands.
Davíð er með í skuggaráðu-
neytinu af því að það er ein-
faldlega ekki hægt að horfa
framhjá honum og betra að
hafa hann með sér en gegn
sér. Hann sér um afganginn
af ráðuneytunum, meðal
annars menntamálaráðu-
neytið, af því að hann lék
einu sinni Bubba kóng og
heilbrigðisráðuneytið, af því
að hann var einu sinni for-
stjóri Sjúkrasamlags Reykja-
víkur. Og af því að þetta eru
einu ráðuneytin þar sem
hægt er að beita niðurskurð-
arhnífnum.
Meðfylgjandi mynd úr
Frjálsri verslun sýnir skugga-
ráðuneytið að störfum.
VIÐSÝNN LÖGMAÐUR Á SÝNINGU YOKO Haldi einhver því fram að Haraldur Blöndal lögmaður
sé þröngsýnn maður, jafnvel einsýnn eða blindur á vinstra auganu, þá er það misskilningur. Har-
aldur er í höpi þeirra þúsunda sem hafa litið inn á sýningu Yoko Ono á Kjarvalsstööum og þaö var
einkum sjónauki sem vakti athygli hans. Haraldur skoðaði hann í bak og fyrir áður en hann kikti
í gegnum linsuna. Þeim sem enn hafa ekki kíkt á sýninguna skal bent á að henni lýkur á sunnudag.
Kennsla í
greiðslukorta
notkun
/ blaöi kennarafélagunna
er greint frú því aö nú þyki
tímabœrt aö kenna börnum
og ung/ingum meöferö tékku
og greiöslukortu. f fréttinni
segir m.a.:,,Paö vilja sjúlfsagt
allir koma í veg fyrir aö ung-
um þrotamönnum fjölgi en
uö ýmsu þarf uö gú úöur en
skólakerfiö er lútiö bjargu
hlutunum og draga mú í efa
aö þaö séyfirleitt ú valdi skól-
ans aö bœta þar úr."
Hingað til hefur ekki þurft
langan tíma né flókið náms-
efni til að kenna fólki hvernig
á aö nota tékka og greiðslu-
kort og hugsanlega mætti
hanna hermilíkan sem sýnir
skólabörnum hvað gerist ef
þau kunna ekki að nota kort-
in sín rétt. Það verður bara að
passa upp á að gera hlutina
ekki svo flókna að blessuö
börnin haldi að greiðslukort
séu peningar.
TENGSL
Hallur Hallsson frétta-
maður vann einu sinni á
Morgunblaðinu eins og
Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra sem bjó
einu sinni á Selfossi eins og
Jón B. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri hjá Eimskip
sem einu sinni var íþrótta-
fréttamaður á Sjónvarpinu
eins og
Steingrímur J. Sigfússon
alþingismaður sem lék i
fyrstu deild í blaki eins og
Samúel Orn Erlingsson
íþróttafréttamaður sem er
Þróttari eins og
Magnús V. Pétursson dóm-
ari sem rekur heildverslun
eins og
Rolf Johansen forstjóri
sem er Reyðfirðingur eins og •
Helgi Seljan fyrrverandi
alþingismaður sem er bar-
áttumaður gegn áfengisböl-
inu eins og
Pétur A. Maack forstöðu-
maður sem lokið hefur emb-
ættisprófi í guðfræði eins og
Herra Olíifur Skúlason
biskup sem er Víkingur eins
<>g
Hallur Hallsson frétta-
maður.
KYNLÍF
Vinakórar og kynlíf í fjölmiðlum
Þegar ég var lítill stelpu-
hnokki var mikið fjör aö
vera úti á kvöldin, fara í
ýmsa leiki, fá roða í kinnar
og syngja með krökkunum
ýmsar þjóðlegar vísur, þar
á meöal heilmikinn bálk
sem hófst svona: ,,Ég fór á
ball, séra, séra — það var
nú rall, séra, séra — halel-
úja, séra, séra, halalúja."
Þetta voru magnaðar klám-
vísur svo ekki sé meira sagt
og ætli það hafi ekki verið
mín fyrsta vitneskja um
samfarir milli karls og
konu. í vísunni „stakk hann
honum inn" og svo kyrjuð-
um við halelúja a/ öllum lífs
og sálarkröftum: Ó, hve
glöð er vor æska! Að sjálf-
sögðu ekki orð um ein-
hverjar smokkalufsur í
halelúja söngnum.
Óformleg fræðsla um
kynlíf, þar á meðal í áður-
nefndum gleðivísum, er
gegnumgangandi í daglegu
lífi ekki hvað síst í fjölmiðl-
um. Menn eru ekki á eitt
sáttir um það hvaða áhrif
fjölmiðlar hafi á hegðun og
viðhorf fólks. Niðurstöður
erlendra kannana, sem
framkvæmdar hafa veriö
um áhrif fjölmiðla á kyn-
liegöun unglinga, hafa til
dæmis verið mótsagna-
kenndar. Þrátt fyrir það
dregur enginn í efa að ungl-
ingar, jafnt sem aðrir, læri
heilmikið um kynlíf í gegn-
um fjölmiðla og þá er ég aö
tala um sjónvarp, útvarp,
dægurlög, auglýsingar og
kvikmyndir. Fyrir stuttu
síðan sá ég auglýsingu þar
sem talað er um að hún (vel
klædd, ung . kona með
framayfirbragð) sé „hrifin
af þeim ungu og spræku"
en hún var að auglýsa
ákveðna bíltegund. Ég hef
heyrt talað um spræka
stráka en ekki spræka bíla.
Kynlíf er notað grimmt til
að selja auglýsingar og í
þessu dæmi sem ég nefndi
er bara búið að snúa hefð-
bundna dæminu við. Nú er
það konan sem óbeint líkir
saman sprækum karl-
mannsgæðingum og bílfák-
um — hér áður fyrr lá hún
uppi á húddinu í ögrandi
stellingu. Óðruvísi mér áð-
ur brá. En ein besta auglýs-
ingin sem ég hef séð og
sem fjallar beint um kynlíf
er erlend sjónvarpsauglýs-
ing um smokkinn. Þar eru
smókkar settir í hóp hluta
sem allir stuðla að forvörn-
um hvað heisluna varðar.
Fyrst kemur bútur um
öryggishjálma, síðan sólar-
krem og svo loks smokk-
inn.
Eins og einhver sagði þá
lærum við heilmikið um
hvað sé sexý en lítið um að
vera ábyrgur í sínu kynlífi.
Það er óþarfi að fara í fýlu
þótt minnst sé á ábyrgð í
sambandi við kynlíf.
Ábyrgt kynlíf þarf ekki að
vera neitt lejðinlegt,
óspennandi og óróman-
tískt. Það er til að mynda
ekkerl rómantískt að fá
kynsjúkdóm af því hún
þorði ekki að biðja hann
um að nota smokkinn af
því að þá héldi hann að hún
væri lauslát gella. Það er
ekkert sexý við það að fara
í fóstureyðingu af því hún
hélt að stelpur gætu ekki
orðið ófrískar við fyrstu
samfarir.
Fjölmiðlar sýna ýmislegt
sem viðkemur kynlífi og
ekki alltaf á neitt sérstak-
lega raunsæjan eöa upp-
byggilegan hátt fyrir kyn-
ferðislega velferð okkar. Af
þeim sökum hefur banda-
rísk stofnun á sviði fjöl-
skylduáætlunar unnið að
því um nokkurt skeið að
kynlíf sé sýnt á heilbrigðan
og ábyrgan máta í fjölmiðl-
um. Síðan 1986 hefur stofn-
unin veitt verðlaun, í formi
háskólastyrks, til aðila í
fjölmiðlabransanum sem
skara fram úr hvað þessi
mál varðar. Þessi stofnun
hefur gefið út leiðbeiningar
sem eiga að stuðla að því
að heilsteyptari mynd sé
gefin af kynlífi en hingað til
hefur verið gert. í þeim eru
. . . það er til að
mynda ekkert
rómántískt að fá
kynsjúkdóm af
því að hún þorði
ekki að biðja
hann um að nota
smokkinn af því
að þá héldi hann
að hún væri
lauslát gella.
framleiðendur fjölmiðla-
efnis hvattir til að sýna að
ekki einungis unga, fallega
og ógifta fólkið sé kynver-
ur. Sömuleiðis að snerting
og væntumþykja þurfi ekki
alltaf að enda á samförum.
Sýna verði fram á að um-
ræða á milli foreldra og
barna um kynferðismál er
mikilvæg og að hún geti
verið jafn eðlileg og sjálf-
sögð og önnur umræða
inni á heimilinu. Sýna ætti
fram á afleiðingar þess að
notá ekki getnaðarvarnir
eða kynsjúkdómavarnir
(smokkinn) við kynmök.
Það ætti að forðast að
tengja saman ást of öfbeldi.
Til dæmis ætti að sýna að
nauðgun sé ofbeldisglæpur
en ekki ástríðuglæpur eins
og margir halda. Notkun
getnaðarvarna ætti að sýn-
ast vera sjálfsagður þáttur í
nánum samböndum. Margt
fleira tína þeir til í leiðbein-
ingunum sem of langt mál
er að fara út í hér. Það væri
fróðlegt verkefni fyrir nem-
endur í félagsfræðum —
eða þá sem áhuga hafa —
að gera úttekt á viku-
skammti fjölmiðlaefnis
með tilliti til kynferðis-
mála. Hvernig er ástandið
hér á landi? Hvað lærum
við um kynlíf? Gleypum við
það hrátt í okkur? Berum
við okkur saman við
ímyndirnar? Trúum við öllu
sem þar kemur fram?
Spyrjiö Jónu um kynlífiö. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík