Pressan


Pressan - 30.05.1991, Qupperneq 26

Pressan - 30.05.1991, Qupperneq 26
2b LISTAPÓSTURINN Skúlptúrgarður í Hafnarfirði Nú líður að Listahátíð í Hafnarfirði. Af fádæma myndarskap hefur bæjar- félagið gengist fyrir stór- fenglegri dagskrá sem mun gleðja ekki bara Hafnfirðinga. Eitt það athyglisverð- asta við hátíðina er þó uppsetning svonefnds skúlptúrgarðs þar sem heimsþekktir listamenn munu ánafna garðinum verk sín svo að verðmæti hans mun eflaust verða talið í svimandi fjárhæð- um. Þessir sömu lista- menn munu þiggja hús- næði og vinnuaðstöðu í boði bæjarfélagsins en Listamiðstöðin i Straumi mun leika þar stórt hlut- verk. Það væri kannski umhugsunarefni fyrir hugmyndafræðinga borg- armeirihlutans í Reykja- vík að æði lengi hafa ís- lenskir myndlistarmenn notið gistivináttu í öðrum löndum en ekki hefur þótt ástæða til að koma upp viðlíka aðstöðu fyrir erlenda listamenn hér. Það er kannski von til að monthalamenningin láti þetta til sín taka ef borg- aryfirvöld sjá sér ein- hverja gróðavon í því. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Söngskólinn flytur tvö óperuverk A föstudaginn flytur Söng- skólinn í Reykjavík tvö óperu- verk í Islensku óperunni: Ráðskonuríki eftir Pergolesi og Rita eftir Donizetti. Tveir söngvarar þau Þóra Einars- dóttir og Loftur Erlingsson syngja í Ráðskonuríki og þrír í Ritu þau: Hanna Dóra Sturludóttir, Jón Rúnar Ara- son og Ragnar Davíðsson. Það er Halldór E. Laxness sem leikstýrir verkunum. FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1991 Listahátíð og alþjóðleg vinnu- stofa í Hafnarfirði í júní Þorgeir Ólafsson listfrœöingur í spjalli ..Hugmyndin ad listahútíö kviknadi í sambandi við fyrir- hugada alþjódlega vinnu- stofu íStraumi," sagdi Porgeir Ólafsson listfrœdingur og rit- ari framkvœmdanefndar um Listahátíð í Hafnarfirði í sam- tali við PRESSUNA. Á hátíð- inni mun koma fram fjöldi listamanna og af tónlistar- fólki má nefna Sigrúnu Eð- valdsdóttur fiðluleikara sem mun halda tónleika í Hafnar- borg 30. júní og Óperusmiðj- una sem mun flytja Ijóðadag- skrá á Jónsmessu í Hafnar- borg. „Þetta er þriðja alþjóðlega vinnustofan sem haldin verð- ur í heiminum," sagði Þorgeir. Hinar tvær voru í Svíþjóð og Mexíkó. Næsta ár mun hún verða starfrækt í Frakklandi en þarnæst í Finnlandi." Nú hafa liinir erlendu þátt- takendur í vinnustofunni ákveðið að gefa verk stn en verðmæti þeirra er metið á um 250 milljónir. Er fordœmi fyrir því? „Nei, í Mexíkó til dæmis voru verkin seld fyrir háar fjárhæðir. Listamönnunum þótti bara svo sniðugt og spennandi að koma til íslands að þeir buðust til aö gefa verkin strax og hugmyndina um höggmyndagarðinn bar á góma. Það má kannski hugsa sér að nær útilokað hefði ver- ið að selja verkin hér heima á |)ví verði sem listamönnun- um býðst erlendis. Við feng- um út verðmæti garðsins með |)ví að kanna verð sam- bærilegra listaverka þeirra listamanna sem hérna munu starfa á vinnustofunni. Meðal þeirra erlendu listamanna sem taka þátt eru: Sebastian og Rowena Morales frá Mexí- kó, Sonia Renard frá Frakk- landi og Jesus Beutista Moro- les frá Bandaríkjunum. Sá frægasti er án efa Seb- astian en á listahátíðinni verður mjög stórt verk eftir hann og væntanlega það stærsta á sýningunni. Verkið er mjög dæmigert fyrir stíl hans en flest verk hans eru samansett úr mörgum eining- um, kassalaga hlutum sem hann raðar saman. Verk Seb- astians verður einnig verð- mætasta verkið á sýning- unni. Nokkrir íslenskir lista- menn hafa einnig ákveðið að gefa verk sín. Þar má nefna þau: Brynhildi Þorgeirsdótt- ur, Magnús Kjartansson, Kristján Guðmundsson og Steinunni Þórarinsdóttur. Sverrir Ólafsson mun síðan’ gera verk þar sem allir lista- mennirnir munu greypa nöfn sín. Höggmyndagarðurinn sem mun verða vígður í lok lista- hátíðar verður á svokölluðu Víðistaðatúni. Hér er um að rœöa fyrsta höggmyndagarð sinnar tegundar á fslandi þ.e. sem ekki er í tengslum við einstök listamannasöfn. AF menningi mun gefast kostur á að fylgjast með starfinu á hinni alþjóðlegu vinnustofu og verður hún opnuð með pompi og pragt I. júní klukk- an 15. „Við fengum fjöldann allan af fyrirspurnum víðsvegar að úr heiminum um þátttöku í vinnustofunni," sagði Þorgeir. „Tónleikadagskráin verður einnig mun veglegri en við Víðistaðatún. áætluðum í upphafi og við ákváðum strax í byrjun að slá í engu af kröfunum. Það verð- ur semsagt topptónlistar- fólk.“ Er þessi hátíð ekki svolítið stór biti að kyngja fyrir lítiö bœjarfélag eins og Hafnar- fjörö? „Stærsti þátturinn í þvi aö gera þessa hátíð að veruleika er dugnaður og áhugi lista- mannanna í Straumi. Svo vilja hlutirnir ganga snurðu- lausara fyrir sig í smærri bæj- um en til dæmis i Reykjavík þar sem allt er mun þyngra í vöfum. Það hefur veriðannar skilningur og áhugi í Hafnarfirði svo einfalt sem það er. Mér finnst Höggmyndagarðurinn stórkostleg hugmynd og frábært að skuli verða að veruleika. Ég held líka að Höggmyndagarður inn sem slíkur muni hafá mun meiri áhrif á ímynd Hafnarfjarðar þegar fram í sækir en fólk almennt gerir sér gre. fyrir nuna.“ Er œtlunin að endurtaka þetta ef vel tekst til? „Ef þetta gengur vel núna höfum við fullan áhuga á að endurtaka þetta. Það yrði þá væntanlega eftir tvö ár. Við höfum einnig verið að velta fyrir okkur möguleikunum á því að taka þátt í verkefni á vegum Unesco. Um er að ræða alþjóðlega vinnustofu barna þar sem börn víðsveg- ar að úr heiminum taka þátt," sagði Þorgeir að lokum. Listahátíðin verður form- lega sett í menningarmið- stöðinni Hafnarborg, laugar- daginn 15. júní kl. 14. að við- staddri Vigdísi Finnbogadótt- ur forseta íslands. Eitt verka Sebastians

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.