Pressan - 30.05.1991, Síða 29

Pressan - 30.05.1991, Síða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. MAÍ 1991 29 Jón Gunnarsson gröfumaður er Is- landsmeistari í sjómanni — meóal annars vegna þ^s að ekki hefur vei jö keppt um titilinn síðan Jón vann hann 1983. Jón, sem borið hefur við- urnefnið Túrbó, varð reyndar íslands- meistari á hægri hönd því vinstri hönd hans lét undan í úrslitaviður- eign við bróður hans Konráð Gunn- Hjalti „Úrsus" Árnason er eitt af tröllum nútímans. Hann varð fyrstur íslend- inga til að lyfta tonni í kraft- lyftingakeppni. Reynir Örn Leósson er hér færður í hlekki af lögreglunni á Keflavíkur- flugvelli undir ströngu eftirliti fjöl- miðla. Reynir reif sig lausan og braust síðan út úr fangaklefanum — áður hafði hann fengið leyfi Ólafs Jó- hannessonar, þáverandi dómsmála- ráðherra, til þess. handstyrk hans. Reynir gat þó ým- islegt og reyndi fyrir sér í Houdini brögðum. „Reynir var sterkur í fingrum og handleggjum en réði lítið við lóð,“ sagði Magnús Gísla- son hjá Verslunarmannafélagi Suðurnesja en hann fylgdist vel með Reyni á sínum tíma. ,,Hann var handsterkur og hafði gríðar- lega þykka hönd og fingur. í raun fannst manni ótrúlegt hvernig hann gat leikið á harmonikku en hann lék listavel á hana,“ bætti Magnús við. Eins og áður sagði gerði Reynir tilraun til þess að kynna sig sem kraftaskemmtikraft. Hann var að lyfta og draga vörubíla. Drógu margir í efa að allt væri sem sýnd- ist og hefði Reynir verið leikinn í að nýta sér vogaraflið enda upp- finningamaður í aðra röndina. Það verður hins vegar ekki af honum tekið að hann snéri í sundur hand- járn og sagðist til dæmis Magnús hafa verið vitni að slíku. Sagði Magnús að Reynir hefði sýnt af Víkingur Traustason er líklega sterk- astur þeirra sem fundust „á götunni" en hann lyfti 240 kilóum í réttstöðu- lyftu á sinni fyrstu æfingu. Hann fékk að sjálfsögðu nafngiftina „heim- skautsbangsinn". sér ótrúlega einbeitingu meðan á því stóð. TRÖLL NÚTÍMANS „Auðvitað skiptir máli hve sterk- ir menn eru að upplagi en ofurafl- ið kemur aldrei til sögunnar nema menn æfi vísindalega og hugi vel að mataræðinu," sagði Olafur Sig- urgeirsson. Hann sagðist ekki vera í vafa um að kraftatröll nútímans væru sterkustu menn sem til hefðu verið á íslandi. Þar eru auð- vitað fremstir Jón Páll Sigmarsson, Magnús Ver Magnússon og Hjalti Úrsus Arnason. „Þessir menn eru ekki mennskir enda segir það sig sjálft þegar menn eru orðnir um og yfir 190 sm á hæð með þennan vöðvamassa," sagði Ólafur. En fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla. Löngum hafa heyrst sögur af sterkum mönnum úti í bæ sem allt geta. Einnig eru frægar sögur af fyrri tíma átökum. Oft hefur samanburðurinn ruglast í gegnum tíðina eins og sögur af olíutunnulyftum fyrr á öldinni. Það var nefnilega ekki nema von að menn ættu auðvelt með að lyfta þeim þá því þær voru 100 kg léttari en í dag! Lyftingamenn hafa verið iðnir við að þefa upp hina og þessa kraftamenn og setja þá undir lóð. Fræg er til dæmis sagan af því þegar Víkingur Traustason lyfti 240 kg eins og við höfum áður nefnt. Víkingur er Norðlendingur og segir sagan að hann hafi fyrst vak- ið athygli á skemmtistaðnum H-100 þar sem hann dundaði sér við að beygja túkalla. Arthúr Bogason, sem kallaður var „norð- urhjaratröllið", og vann þar að sjálfsögðu sem útkastari, sá þar til Víkings og fékk hann á æfingar. En þrátt fyrir óumdeilanlegan náttúrustyrk Víkings hefur hann aldrei fullkomlega staðið undir því í keppni. Hann fór reyndar í eitt ár til Bandaríkjanna og gekk þar undir nafninu King en það er önn- ur saga. Sigurður Már Jónsson. Meðal annars byggt á Allt önnur Ella eftir Ingólf Margeirsson, Þorgeir í Gufunesi eftir Atla Magnússon og Öldinni okkar. för á Olympíuleikana og kom ekki heim fyrr en 17 árum síðar eftir aö hafa sýnt krafta sína víða um lönd. Með þessari exi molaði Pétur Hoff- mann Salóm- onsson skall- ann á einum svertingja í Selsvararor- ustunni 11. nóvember 1943. Öxin er nú geymd í bakherbergi í gullsmíða- verslun við Hverfisgötu. einnig mark sitt á þjóðaríþróttina glímuna. VILDU RÆKTA SJÁLFSVARNARGILDI GLÍMUNNAR „Við í KR vildum meina að glím- an væri slagsmál undir ákveðnum reglum. Við héldum því'fram að þettá mætti ekki verða eins og dans. Um leið vorum við að berj- ast fyrir því að fá að rækta sjálfs- varnargildi glímunnar," sagði Ólaf- ur Sigurgeirsson lögfræðingur og lyftingapáfi en hann var í hringiðu óvenjulegra átaka um stefnu og leiðir í íslensku glímunni á sjöunda áratugnum. Ólafur var um Ieið í lyftingum og fékk félaga sína í glímudeild KR til að æfa með sér. Sagði Ólafur að glímu- menn hefðu margir hverjir haft ótrú á innrás lyftingamannanna og honum var til dæmis líkt við rótarhnyðju og rekaviðardrumb. Með Ólafi í liði var meðal annars glimumaðurinn frægi Sigtryggur Sigurðsson sem þekktur var fyrir kraftmikinn stíl. Annar þekktur kraftamaður úr glímunni var Jón Unndórsson sem lyfti yfir 200 kílóum í réttstöðulyftu á sinni fyrstu lyftingaæfingu. Á móti KR-ingum stóðu fyrst og fremst Víkverjar og Þingeyingar. Þeir börðust fyrir fegurðarglímu eða dansi eins og Ólafur kallaði það. Frægasti glímumaður lands- ins í dag Ólafur H. Ólafsson er reyndar úr KR þó hann glími alls ekki eins og KR-ingur eins og gamall glímumaður orðaði það. DEILUR UM HULDA KRAFTA REYNIS En metingur er kraftakörlum í Jón Páll Sigmarsson — sterkastur Is- lendinga fyrr og síðar enda orðiö sterkasti maður heims fjórum sinn- um. blóði borinn og í kringum 1970 varð veldi þeirra fyrir óvæntri árás. Fram á sjónarsviðið kom maður sem virtist hafa ótrúlega krafta. Hér er að sjálfsögðu átt við Reyni Örn Leósson sem nú er látinn. Reynir framkvæmdi ýmislegtsem erfitt var að útskýra en það vafðist 'iins vegar fyrir mönnum hve sterkur.hann var. Lyftingamönnum gramdist frægðarsól Reynis og skoruðu á hann. Mun Reynir ?inu sinni hafa látið til leiðast og mætt á lyftingaæfingu í Keflavík — sagan segir að það hafi verið í skjóli nætur. Engum sögum fer af afrekum héuis þar en síðar sagðist Reynir hafa verið með flensu! Lyftingamenn sögðust hins vegar hafa þurft að bjarga honum undan fremur litlum þyngdum og tóku gleði sína aftur. Líklega var Reynir ekki Ikraftamaður á við sterka lyftingamenn. Má fullvíst lítið í þá að segja þó þeir hafi síðar farið lofsamlegum orðum um u mskipti Svavars Gestsson- ar eftir að hann komst í stjórnarand- stöðu hafa vakið athygli. Það er eins og hann hafi stokkið ein tíu ár aftur í tím- ann eða aftur til 1978 eða þar um bil. Merki um þetta mátti sjá þegar gerð- ardómslögin frá 1942 poppuðu upp í leiðara hjá honum en þau eru gam- all húsdraugur í leiðurum Þjóðvilj- ans. Þá bar þar svar hans við hug- myndinni um tengingu krónunar við ECU, sem meðal annars á sér fylgismenn innan Alþýðubanda- lagsins, vott um fornt hugarfar. Svavar varaði við því að myndin af Jóni Sigurðssyrú yrði tekin af hundraðkallinum. . . að hefur ávallt verið vinsælt meðal bæjarráðsmanna á íslandi að rækta vinabæjarsamkomur í öðrum löndum. Þar eru Selfyssingar engin undantekning sem betur fer. Fram- undan er vinabæjarmót í Silkiborg í Danmörku og stefnir í að Selfoss- bær verði fremur tómlegur á meðan því til Silkiborgar fer 16 manna sveit. Allir bæjarráðsmenn nema tveir munu fara og að sjálfsögðu með maka. Ferðalagið kostar bæjar- sjóð um eina milljón króna í far- seðla. Og til gamans má geta þess að sjálfsagt koma nákvæmar fréttir af ferðalaginu í DV og Morgunbað- inu því fréttaritarar blaðanna, þeir Kristján Einarsson og Sigurður Jónsson, verða með í för . . . R ■míkisstjórnin hans Davíðs Oddssonar hefur nú mælst sem óvinsælasta nýja ríkisstjórnin í sög- unni. I skoðana- könnun DV fékk hún minna fylgi en nokkur önnur stjórn hefur fengið í upp- hafi ferils síns. Þetta er nokkuð í takt við þá litlu stemmningu sem er í kringum stjórnina. Jafnvel kratar og sjálfstæðismenn eiga erfitt með að viðurkenna að þeir hafi trú á henni. En þetta er líka dálítið vill- andi. Það hefur sýnt sig að þessar fyrstu mælingar á vinsældum ríkis- stjórna sýna einna helst hversu óánægt fólk er með að stjórnar- myndunarviðræðum skuli vera lok- ið. Ríkisstjórn Gunnars Thorodd- sen tók við eftir langa stjórnar- kreppu og mældist með 90 prósent fylgi. Ríkisstjórn Davíðs var hins vegar mynduð á fjórum dögum . .. að var ekki bara Skáksam- band íslands sem hélt aðalfund sinn nú í maí því Taflfélag Reykjavíkur gerði það einnig. Þar kom fram að fjárhagsstaða TR er svört eins og menn vissu reyndar fyrir. Er það meðal annars vegna kaupa á hús- næðinu í Faxafeni. Er nú rætt um að skera niður og meðal annars hætta við þátttöku í Evrópukeppni félags- liða en síðast komst sveit TR í und- anúrslit þar. Jón Briem lögfræðing- ur var endurkjörinn formaður fé- lagsins og mun hann hafa gefið í skyn að ef ætti að bjarga stöðu fé- lagsins yrði Reykjavíkurborg að kaupa einhvern hluta í Faxafenshús- inu . . .

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.