Pressan - 30.05.1991, Síða 31
31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. MAÍ 1991
K
ynningarbók Flugleiða „Út í
heim“ hefur vakið töluverða athygli
og munu sumir í auglýsingabrans-
anum jafnvel hafa
haldið að bækling-
urinn væri hannað-
ur erlendis. Svo mun
þó ekki vera, því Is-
lenska auglýsin-
gastofan annaðist
verkið með dyggri
aðstoð Sigmars B. Haukssonar
sem skrifaði textann . . .
aðalfundi Skáksambands ís-
lands sem haldinn var fyrir skömmu
urðu þær breytingar að Þröstur
Þórhallsson al-
þjóðlegur skák-
meistari felldi Mar-
geir Pétursson
stórmeistara úr
varastjórn félagsins.
Margeir var á skák-
móti erlendis þegar
þetta átti sér stað og var ekki
ánægður þegar hann frétti að hann
hefði verið felldur úr stjórninni. Var
eitt hans fyrsta verk þegar hann
kom heim að segja sig úr Taflfélagi
Reykjavíkur en hann hafði setið
sem fulltrúi þeirra í stjórninni. Mun
því Margeir tæpast tefla meira undir
þeirra merkjum í bráð . . .
■iftir að EUert B. Schram bauð
sjálfan sig fram í prófkjör um val á
borgarstjóranum i Reykjavík er
nokkuð ljóst að af
slíku prófkjöri verð-
ur ekki. Enginn í
borgarstjórnar-
flokknum myndi
hafa Ellert í opnu
prófkjöri og því er
ótrúlegt að þeir
samþykki slíkt.. .
s
"tjórn Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri mun öðru hvoru megin
við næstu helgi taka ákvörðun
vegna deilunnar um Gauta Arn-
þórsson yfirlækni. Sem kunnugt er
þá sagði hjúkrunarfólk upp í stórum
stíl vegna endurkomu Gauta en
hann á að hefja störf 1. júní. Upp-
sagnirnar voru miðaðar við það en
stjórnin ákvað að framlengja upp-
sagnarfrestinn til 1. september á
meðan lausn fengist. Ólíklegt er tal-
ið að starfsfólkið sætti sig við að
Gauti hefji störf aftur . . .
I
Innan Birtingar, málfundafélags-
ins í Alþýðubandalaginu, er jafnvel
talinn meirihluti fyrir því að yfirgefa
Alþýðubandalagið
og ganga til liðs við
Alþýðuflokkinn. Þar
munu vega þungt
vegtyllur þær sem
Birtingarmaðurinn
Ossur Skarphéð-
insson hefur fengið
innan Alþýðuflokksins, en oft hefur
verið talað um Össur sem guðföður
Birtingar. ..
1991 útgdfan of mest lesnu bóli
landsins er homín út
Nú getur þú fengið símaskrána inn-
bundna fyrir aðeins 175 kr. aukagjaid.
Tryggðu þér eintak á meðan upplag endist.
Símaskráin er aflient á póst- og símstöðvum
um land allt gegn afhendingarseðlum, sem
póstlagðir hafa verið til símnotenda.
Númerabreytingar sem ákveðnar hafa verið
í tengslum við útgáfu símaskrárinnar og tif-
kynntar hafa verið símnotendum fara fram
aðfaranótt 30. maí. Að þeim breytingum
loknum hefur símaskráin að fullu tekið gildi,
þ.e. frá og með 30. mai n.k.
í tilraunaskyni verður tekið við gömlum
símaskrám til endurvinnslu á póst- og
símstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og á
Suðurnesjum.
Sérstök athygli er vakin á því að öll síma-
númer í Reykjavík sem byrja á 8 breytast.
í stað fyrsta stafs sem nú er 8 kemur 81 og
verða þessi númer því öll 6 - stafa eftir
breytingunna.
OGSIMI
Viö spörutn þér sporiti
TV GAME - leikiatölvan
Ekki tveir leikir, ekki tíu leikir, heldur
ÍSO IdJzir
fylgja með tölvunni og verðið er aðeins kr. 12.800
HKJ umboðs- og söluskrifstofa
Skeifunni 8, sími 679655
Tölvur í takt við tímann
Útsölustaðir um land allt
Hvammstangi Kaupfélag Húnvetninga
Akranes P.C. Tölvan
Patreksfjörður Rafbúð Jónasar
ísafjörður Straumur hf.
Hólmavík Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Blönduós Kaupfélag Húnvetninga
Siglufjörður Verslun Gests Fanndals
Akureyri Rafland, Sunnuvegi
Húsavík Kaupfélag Þingeyinga
Þórshöfn Kaupfélag Langnesinga
Vopnafjörður Kaupfélag Vopnfirðinga
Egilsstaðir Rafmagnsverkstæði Sveins
Eskifjörður Pöntunarfélag Eskifjarðar
Neskaupstaður Tónspil
Djúpivogur KASK Djúpavogi
Hella Mosfell
Selfoss Vöruhús KÁ
Keflavík Ljósboginn
Vestmannaeyjar Neisti hf.
Flateyri Félagskaup