Pressan - 13.06.1991, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 13. JÚNl 1991
Umboðsmaður FlekkeQord Slipp á íslandi telur að Simek a/s hafi
haft vel staðsettan en leynilegan umboðsmann hér á landi til að
hyggja Simek a/s smíði feijunnar. Grunur leikur á að Simek hafi
fengið að lækka lokaboð sitt um 40 til 50 milljónir til að komast
niður fyrir FlekkeQord.
norsx^^B
SKIPASMHMSTOB
0 LEWIWL VIO
ISLENSKA RIKIO
Skipasmíðafyrirtækið Flekkefjord Slipp og Maskinfa-
brikk A/S (FSM) í Noregi íhugar nú að fara í mál við ríkið
og Herjólf hf. vegna vinnubragða við mat á tilboðum í
nýja ferju Herjólfs. Samkvæmt heimildum PRESSUNN-
AR virðist sem Simek A/S hafi fengið tækifæri til að
lækka tilboð sitt um 40 til 50 milljónir íslenskra króna. Þá
reiknuðu smíðanefndarmenn og ráðgjafar hennar mis-
mun á útfærslu tilboða FSM og Simek ríflega 30 milljónir
Simek í hag. Með þessu móti lækkaði tilboð Simek eftir
opnun lokatilboða um nálægt 80 milljónir íslenskra
króna, en tölur þar um hafa aldrei verið gerðar opinber-
ar.
FSM hefur ítrekað leitað eftir
skýringum hjá Herjólfi hf. um út-
reikninga á endanlegum tilboðum
og út frá hvaða forsendum var geng-
ið þegar Herjólfur hf. komst að
þeirri niðurstöðu að lægra tilboð
FSM væri í raun hærra en tilboð
Simek A/S. Fyrirtækið hefur fengið
svör sem það telur ekki fullnægj-
andi. „Við sættum okkur ekki við
meðferð málsins og höfum nú þegar
afhent öll gögn varðandi málið til
lögfræðinga," segir Sigmund Krosl-
id, talsmaður FSM.
SÍFELLDAR BREYTINGAR Á
FORSENDUM ÚTBOÐSINS
Forsaga málsins er að fyrir rúmu
ári stóð Skipatækni fyrir alþjóðlegu
útboði vegna smíði nýrrar Vest-
mannaeyjaferju, sem fyrirtækið
hafði sjálft hannað. Tilboð voru opn-
uð 20. júlí 1990 og buðu um 20 aðil-
ar í smíði hinnar 70,5 metra löngu
ferju. í þessari umferð var FSM með
fjórða lægsta tilboðið, 126 milljónir
norskra króna eða 1.174 milljónir
ísl. króna á þáverandi gengi. Tilboð
Simek var sjötta lægst, 133,4 millj-
ónir norskra króna eða 1.243 millj-
ónir íslenskar. Þrjú lægstu tilboðin
komu frá aðilum í Taiwan, Banda-
ríkjunum og Júgóslavíu.
Fram að þessu var ferjumálið í
höndum nefndar undir forsæti Hall-
dórs Kristjánssonar í samgöngu-
ráðuneytinu, en ráðgjafi nefndar-
innar var Skipatækni. Eftir opnun
tilboðanna var stofnuð ný nefnd til
að ganga til samninga. Formaður
hennar var Ragnar Oskarsson for-
maður Herjólfs hf., en fulltrúi fjár-
málaráðuneytis Sveinbjörn Óskars-
son.
Ákveðið var að biðja um ný tilboð
frá þeim sem uppfylltu öll skilyrði,
vegna breytinga á hönnun skipsins,
þar sem meðal annars var gert ráð
fyrir breikkun ferjunnar. Fimm
skipasmíðastöðvum var gefinn
kostur á að bjóða í verkið. Enn urðu
þó breytingar á forsendum, því í
nóvember 1990 kom, samkvæmt
Ragnari Óskarssyni, í Ijós að gera
þurfti nokkrar breytingar á skipinu,
það var létt og einnig voru gerðar
breytingar í samræmi við ábending-
ar t.d. frá áhöfn Herjólfs.
„SAMRÆMINGAR“ EFTIR
LÆGSTA TILBOÐIÐ
FRÁ FLEKKEFJORD
Tilboð að svo breyttu voru opnuð
19. febrúar sL, en tölur og skilmálar
þar um hafa aldrei verið gerðar op-
inberar og ekki er einu sinni ljóst
hvort tiiboðin voru tvö eða fimm. Þó
mun hafa verið upplýst og það stað-
fest síðar að lægsta tilboðið í krón-
um talið hafi komið frá FSM. Frétta-
tilkynning þar um var gefin út og
greint frá því að efnt yrði til samn-
ingaviðræðna við FSM.
A þessu stigi málsins kom upp
ágreiningur milli Skipatækni og
smíðanefndarinnar um meðferð af-
greiðslu málsins, sem leiddi til þess
að Skipatækni var ekki lengur form-
legur ráðgjafi nefndarinnar, heldur
Jón B. Hafsteinsson skipaverkfræð-
ingur og Ólafur Friöriksson tækni-
fræðingur. Eftir þessar breytingar
ber svo við að aðeins FSM og Simek
var boðið að breyta tilboðum sínum
með tilliti til þessa.
Þótt tilboð FSM væri þannig lægst
var nokkur munur á tilboðunum eft-
ir afstöðu þeirra til ábyrgða og sekta
og fleira. Samkvæmt Ragnari Ósk-
arssyni formanni smíðanefndarinn-
ar var þá ákveðið ,,að gera ýmsar
samræmingar og senda báðum
stöðvunum uppkast að samningi og
óska eftir lokatilboðum í smíðina
miðað við þessar forsendur. Báðar
stöðvarnar skiluðu tilboðum, reynd-
ar aðeins önnur miðað við þær for-
sendur sem smíðanefndin hafði lagt
fram. Var nú rætt við báðar stöðv-
arnar og eftir nokkra fundi með
þeim kom í Ijós að tilboð Simek A/S
var hagstæðara og því var sú
ákvörðun tekin að ganga til samn-
inga við þá stöð um smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju."
„VEL STAÐSETTUR“
HULDUMAÐUR SIMEK
Á ÍSLANDI?
Umboðsaðili FSM, forstjóri Véla-
sölunnar, Fridrik Gunnarsson, held-
ur því fram að smíðanefndarmenn
hafi gripið til eigin forsenda og ein-
hverra óskilgreindra reikniformúla
til að fá út þá niðurstöðu sem nefnd-
armenn óskuðu eftir. Hann segir að
vegna frágangs á lokatilboðum hafi
FSM og Simek verið uppálagt að
ganga út frá fyrri tilboðstölum. Það
hafi FSM gert, en Simek hafi skyndi-
lega verið komið með ailt aðrar og
lægri tilboðstölur. PRESSAN hefur
fengið staðfest að við þessa „sam-
ræmingu" hafi tilboðstölur Simek
lækkað um 40 til 50 milljónir ís-
lenskra króna.
Sem fyrr segir virðist Simek ekki
hafa sérstakan umboðsaðila hér á
landi. Friðrik Gunnarsson umboðs-
maður FSM heldur því hins vegar
fram að hann hafi heimildir fyrir því
að annað sé uppi á teningnum. „Ég
hef góðar heimildir fyrir þvi að for-
stjóri Simek hafi sagt á fundi með
verkstjórum sínum að þeir skyldu
ekki hafa áhyggjur af málinu, því
stöðin myndi fá verkefnið. „Vel stað-
settur" umboðsmaður myndi sjá til
þess. Hver þessi huldumaður er veit
ég ekki, né heldur hvað felst í orð-
unum vel staðsettur. Og ég leiði eng-
um getum að því hver hann geti ver-
ið. Aðalatriðið er þetta: Við erum að
reyna að fá fram tölurnar á borðið.
Við höfum skrifað Herjólfi hf. marg-
oft og beðið um upplýsingar um töl-
ur úr útboðinu 19. febrúar og einnig
endanlegar samningstölur við Sim-
ek, en ekki fengið. Það læðist óneit-
anlega að manni sá grunur að þeir
hafi haft rangt við, ef þeir leggja
ekki fram þessar upplýsingar, sem
þeim ber að gera, samanber ís-
lenska staðla og reglur fjármála-
ráðuneytisins."
ENGIN KVÖRTUN,
ENGU HALDIÐ LEYNDU,
SEGIR RÁÐUNEYTIÐ
Sveinbjörn Óskarsson í fjármála-
ráðuneytinu sagði aðspurður að það
væri mál Herjólfs hf. en ekki ráðu-
neytisins að opinbera tölur í þessu
sambandi. „En staðreyndin er sú að
tölurnar frá 19. febrúar voru ekki
samanburðarhæfar og ekki í sam-
ræmi við setta skilmála, fyrst og
fremst af hálfu Flekkefjord. Þegar
samanburðargrundvöllur fékkst
með ákveðnum útreikningum blasti
við, að það var Simek sem átti hag-
stæðara tilboðið, það fer ekkert á
milli mála. Lokatilboð Simek er í
grundvallaratriðum hið sama og
samkvæmt tilboðinu sem opnað var
19. febrúar, með leiðréttingum, þar
sem tillit er tekið m.a. til ábyrgða og
afborgana. Það er búið að gera
Flekkefjord grein fyrir okkar niður-
stöðum, við höfum engu haldið
leyndu í því sambandi og ráðuneyt-
inu hefur ekki borist nein kvörtun,"
sagði Sveinbjörn.
Friðrik Þór Guðmundsson
Vestmannaeyjaferja Herjólfs hf. Simek
A/S fékk samninginn og stjórnarformað-
ur Herjólfs segir samningsverðiö 132,6
milljónir norskra króna eða tæplega
1.200 milljónir króna. í bréfi til Flekke-
fjord Slipp kemur hins vegar fram talan
130,6 milljonir NOKR og í norskum fjöl-
miðlum talan 135 milljónir NOKR.
F\
W" ^ --isdn^s
LlJH'WTlLlJmfr
ÍSLAND
/
, þlenskf
fonlistarsumar
^ounveruíegi „U , - GCD
■ >uni' ° geisladiski, plölu on ,
’ P°,u°g kasseltu 17. jún!
3°00eSJo?o&TVÖUF
'i°ri5 er rétt oðby^6"1"' Vik,J- °9
20i°9^aáJ°U*SAMLEIÐ
V°nto5' Ú»góhjlg° f r,e90 hah
°9 slæl. útgáfa 275 lénl. SlM
MTUR m FORTÍÐAR '60
20,63 r^XZfÁ'A
°9 blomobörnum. Úlgófo27 'jfay' b'',Um
v;5°"vöii.úœo;.^rvar5ú,um
S**^!S***>*totr
t°mas r. einarsson
Gki’“^fes—
'""“-ssSfe-..................................
2 Æbsfriádí' 5KáHSfBER
bi/omle.kum, GæSober ó ^°J’anle9 °l
a g®oaprí$.
íí T E
N A R
O i
hornste
9 ‘denskrí *-*o tónUst Ó?Z?:°°'4'
uf,d og fortíb.
inn íslenskrar tónlistar!