Pressan - 13.06.1991, Blaðsíða 2

Pressan - 13.06.1991, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 13.JÚNl'l991 Þokkadís íslands var val- in meö pompi og prakt á Rauöu myllunni siöast- liðið laugardagskvöld af sérstakri dómnefnd og :: gestum. Helsta sérfræö- ingi iandsins í feguröar- drottningum HEIÐARI JÓNSSYNI var boðið sæti í dómnefndinni en þáöi | það ekki. Það gerðu aftur || á móti Egill Ólafsson, Jóka í Skaparanum, Katý Hafsteins, Ingibjörg í Sautján og danshöfund- urinn Sylvia von Kos- poth. Grínistinn LADDI, sem hingað til hefur ekki komið fram öðruvísi en i gerfum þeirra persóna sem hann hefur skapað, er nú að æfa annarskon- ar skemmtidagskrá. Hann ætlar að sitja í eig- in persónu á stól og ryðja út úr sér bröndur- um fyrir áhorfendur líkt og sjónvarpsstjarnan Dave Allen. Skemmtanastjórinn i Casablanca, Sigurjón Sigurðsson, betur þekktur sem DlDDI er horfinn af landi brott til árlegra sumarstarfa sem fararstjóri á Spánar- ströndum. Diddi verður úti í allt sumar, en LAUF- EY JOHANSEN hefur ver- iö ráðin skemmtana- stjóri í fjarveru hans. Hún hefur ekki komið nálægt slíku áður, en hefur þó tengst skemmtanalífinu sem einn af f jórum eigendum icelandic Models. Skemmtanastjórastarf- ið er þó ekki eina starf Laufeyjar, hún vinnur líka sem flugfreyja hjá Atlantsflugi. Finnst þér gaman að bíða eftir strætó, Sveinn Andri? ,,Mér þótti gaman ad bíöa eftir strœtó." Sveinn Andri Sveinsson er formad- ur stjórnar Strætisvagna Reykjavik- ur. en stjórnin hefurákveðið að leiðir sem áður óku á 15 minútna fresti verði á 20 minútna fresti i framtið- inni. Ester Ósk Erlingsdóttir verður 18 ára þann 29. júlí. Hún tók þátt í keppninni Ungfrú Reykjavík og er í Módel 79, en módelstörf eru eitt helsta áhugamál hennar. Gætirðu hugsað þér að reykja hass? Nei. Finnast þér Islendingasögurnar skemmtilegar? Nei, það finnst mér ekki. Ertu í líkamsrækt? Nei, ekkert upp á síðkastið. Ég fer aðallega í sund. Hvað borðar þú í morgunmat? Jarðarberjajógúrt. Ertu í Ijósum? Nei. Hugsarðu mikið um í hverju þú ert? Já, mér finnst það skipta miklu máli. Hvaða ilmvatn notarðu? Boucheron. Hvernig strákar eru mest kynæsandi? ^Dökkhærðir, frekar ,brúnir með græn augu. Hvað gerir þú á sunnudögum? Er með kærastanum þegar hann er heima. Við förum oft í bíó á sunnudagskvöldum. Svo finnst mér ofsalega gaman að fara út að k Við hvað ertu Að vera ein á nótt- unni. Ég er rosalega myrkfælin. Kanntu að elda? Já. Sefurðu í náttfötum? Já. Stundum. Hvað ætli það sé sem dregur toppana hjá sjón- varpsstöðinni MTV í Evr- ópu og Bandaríkjunum tii íslands? Jú, flótti frá dag- legu amstri á meðan lagt er á ráðin og bornar sam- an bækur um framtíð stöðvarinnar. Áður en sjálfar fundaseturnar hóf- ust á mánudag fékk starfsfólkið tíma til að slaka á, ríða út og skoða landið. Auk þess sen\ far- ið var á ball á Hótel Is- landi. Staður sem sannast sagna vakti ekki mikla lukku. Of alþjóðlegur: „Ég gæti verið hvar sem er,“ var viðkvæðið. Stjórnarformaðurinn Tom Freston, sá sem er pott- urinn og pannan á bakvið velgengni stöðvarinnar, lét þó þau orð falla að hann hefði sjaldan séð eins mikið af fallegu kvenfólki saman komið á einum stað. Og ég sem hélt þetta væri klisja sem við Islendingar hefðum fundið upp ... Nú í viku- lok er svo von á upptöku- og þáttagerðarmönnum frá sömu sjónvarpsstöð til að taka upp efni á tón- leikunum í Kaplakrika á mánudaginn. Spilar púkó tónlist og liðið fær kast Gótfid ó efri hœdinni dú ar, flöskur eru uid þad að detta úr hillum á nedri hœðinni og fyrir utan treðst fólk í fáránlega biðröð og vill komast inn. Við erum á 22ur við Laugaveginn þar sem gestir staðarins á þrí- tugsaldri hafa undanfarnar helgar stigið trylltan dans við lög eins og Ryksugan á fullu og Tröllið og Gríma. Það er skífuþeytaranum Margréti Gústavsdóttur sem hefur tekist að ná upp góðri partýstemmningu á efri hœðinni með fáránlegu lagavali. Og það virkar. Eða eins og hún segir sjálf: „Ég spila svo hallœrislega mús- ík. Gamlar íslenskar plötur og gamalt korný diskó. Allt sem fellur undir það aö vera púkó, en samt svolítið skemmtilegt. Þetta eru lög frá áttunda áratugnum sem fólki fannst ferlega púkaleg fyrir nokkrum árum, en fœr kast þegar það heyrir þau núna." Og það eru víst eng- ar ýkjur. Magga hefur ekki fengist mikið við það að þeyta skíf- um áður, en hefur þó skoð- un á því hvernig góðir plötusnúðar eigi að vera. „Annað hvort verða þeir að spila hard core hip hop, þar sem fólk fellur í trans og dansar þangað til svitinn lekur af þvi, eða fullt af lög- um sem fólk getur sungið með og farið í halarófu og dansað hringdans." Magga stefnir þó ekki að neinum frama sem plötusnúður. Hún hœttir um mánaðamót- in á 22ur til að fara að leika í kvikmyndinni Sód- óma í Reykjavík. LÍTILRÆÐI af miðbæjargæfu Mér þykir afskaplega vænt um miðbæinn, sem er ekki nema von því ég er þar fæddur og uppalinn og hef raunar í miðbænum i Reykjavík alið allan minn aldur. Það er víst háttur skrif- glaðra manna að drepa helst niður penna um það sem þeim er kærast, enda hef ég skrifað margar greinar um miðbæinn og einhverntím- ann heila bók um Kvosina. Mér hefur alltaf fundist Austurstræti ákaflega merkilegt því það hefur löngum, fyrir utan að vera gata, verið nokkurskonar spegilmynd af árstíðum, veðurfari, sálarástandi og mannlífinu í Reykjavík. Þegar loftvogin fellur hverfur fólkið úr götunni og þegar kólnar í veðri leggst hún í dvala. En um leið og sér til sólar er einsog lífsanda sé blásið í Austurstrætið af þeim fítons- krafti að mannlíf kviknar á hraða ljóssins í þessari furðulegu göngugötu. Flagarar við iðju sína, dað- urdrósir að gafa falskar von- ir, ungt fólk að draga sig saman, eða segja hvert öðru upp, ósofnir bankamenn að skunda í vinnuna, útsofnir mangarar að opna búðir sín- ar og skransalar með kaup- mann í maganum að breiða úr glingri sínu til að selja kaupglöðum vegfarendum óþarfa, Ijóðelskir reikunar- menn með furðulega kokk- teila á ennþá furðulegri flöskum, blómarósir, trúba- dúrar, drukknir ofbeldis- menn og frelsaðir bindindis- menn á bleiku skýi. Allir að njóta þess að spás- séra um Austurstrætið í góða veðrinu einsog raunar hefur verið gert frá því það hét Langastétt og seinna á ,,Rúntinuin“. Og nú á síðustú árum hafa ungir og gamlir, fallegir og Ijótir, blankir og ríkir, góðir og vondir fyllt Austurstrætið ásamt með líf- gjafa sínum, blessaðri sól- inni, og notið þess að losna við bílana, tækniundur og guðblessun samtíðarinnar, úr augunum, eyrunum og nefinu rétt sem snöggvast. Austurstrætið er nefnilega göngugata. En það er fleirum en mér sem þykir vænt um Austur- strætið. Kaupmenn elska það líka útaf lífinu, eða í bókstaflegri merkingu, sjá ekki sólina fyrir því. I kringum ást sína á Aust- urstræti, og raunar miðbæn- um öllum, stofnuðu fjárafla- menn á árunum „Miðbæjar- samtökin" til eflingar á far- sæld „Kvosarinnar" en gæfa þessa bæjarhluta virðist, að þeirra dónii, helst byggjast á því að greiðfært sé fyrir bíla um göngugötuna og sem mest geymslurými fyrir bif- reiðar í miðbænum. í hinni vikunni héldu „Kaupmannasamtökin" fund á Borginni og var meg- inefni fundarins að afleggja Austurstræti sem göngugötu og „efla“ miðbæinn með aukinni bílaumferð, opna áfengisútsölu og stytta gjald- skyldu stöðumæla en um- fram allt að hraða uppbygg- ingu á bílastæðum og þó sér- staklega undir Austurvellin- um. Ef farsælt gamla miðbæj- arins byggist á því að auka þar bílalíf á kostnað mann- lífs þá legg ég til að asfalter- að verði yfir allt draslið fyrir bíla og bísness og þeir sem hafa rómantíska væmni að leiðarljósi komi sér bara eitt- hvað annað til að njóta lífs- ins. Enda er ég fluttur úr gamla góða miðbænum mínum og mun, ef að líkum lætur, verða að láta mér nægja að njóta hans í minn- ingunni. Ég á mér nefnilega þann draum að eyða ellinni ein- hversstaðar þar sem mann- eskjan er rétthærri en mask- ínan. .. fA: Wm ■: ■ ' Flosi Ólafsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.