Pressan - 20.06.1991, Side 2

Pressan - 20.06.1991, Side 2
2 ;w\VíVíw*VíV»v»ViV^s\v»\\\\va\\vava\\\\\v. FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. JÚNÍ1991 Kvikmyndafélagið Út í hött innimyndir, í eigu GUÐMUNDAR ÞÓRARINS- SONAR og GUÐRÚNAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, sem stofnað var upp úr leif- um af Þrjú bíó hópnum, sem gerði stuttmyndina Raunasögu, er þessa dagana að leggja síð- ustu hönd á fræðslu- mynd um kynsjúkdóma. Myndin er unnin í sam- vinnu við Landssam- band um alnæmisvarnir og Námsgagnastofnun og verður sýnd í skólum landsins næsta vetur. Ungdomurinn ætti að verða vel upplýstur eftir áhorfið, því það er ekki verið að fela neitt og sýkt kynfæri fá að njóta sín í aúri sinni nekt. GUÐMUNDUR ÞÓRARINS- SON hefur ekki í hyggju að snúa sér alfarið að gerð fræðslumynda og gengur þessa dagana með kvikmynd í magan- um. Myndin á að fjalla um íslendinga sem dög- uðu uppi í Portúgal eftir sólarlandaferð. Guð- mundur ætlar út í ágúst að kanna aðstæður fyrir kvikmyndatökurnar, en ekki hefur verið ákveðið ennþá hvenær þær hefj- ast. íslenskir fyrrverandi og núverandi nemendur viö kvikmyndaskólann London International i Bretlandi hafa undanfar- ið unnið að upptökum hér á landi á stuttmynd, sem á að vera útskriftar- verkefni STEINGRIMS „DÚA" MÁSSONAR. Myndin er vísindaskáld- saga og fer GÍSLI RÚNAR JÓNSSON meö stærsta Ykkur hefur ekki dottið í hug að setja eldislax aftan á nýju 100 krónu myntina, Tómas? y**« ,,Laxinn er fallegur fiskur." Tómas Arnason er bankastjóri Seðlabanka Islands, og ákvedur i samvlnnu við aöra bankastjóra með samþykki viðskiptaráðuneytisins hvaða fiskur er aftan á islensku myntinni. Búið er að slá mótin fyrir 100 krónu myntina, en ekki verður gefið upp strax hvað verður aftan á henni eða hvenær hún verður tekin i notkun. sundfötum í Casablanca Sólin skín og skín á suð- vesturhorninu. Það hefur vist ekki farið framhjá neinum eða hvaö. Þetta kallar maður ekta sumar. Meira að segja hægt að liggja í sólbaði á hverjum degi í sundlaugun- um. Tískusýningin í Casa- blanca um síðustu helgi tók mið af veðurfarinu og sýndi nýjustu sundfatatískuna. Það er líka alltaf vinsælt þegar stelpurnar koma fram fá- klæddar. Við fengum nokkrar þeirra til aö koma út í solina í baðfötum sem þær sýndu og tókum af þeim þessa Það hefur ekki farið mik- iö fyrir Svövu Haraldsdótt- ur í fjölmiðlum frá því hún vann titilinn Ungfrú ísland í vor. Svava hefur engu að síður haft nóg að gera. Hún stundar sýningarstörf af fullum krafti með lce- landic Models, leikur í aug- lýsingum og hefur verið fengin til að afhenda verð- laun í körfubolta. Þessu sinnir hún með sumar- vinnunni, afgreiðslustörf- um í versluninni Sautján í Kringlunni. Svava verður þó langt frá því innilokuð þar í allt sumar, því meðal þeirra gjafa sem fylgdu titlinum voru tvær utan- landsferðir. Fyrri ferðina fer hún til New York í lok júní, þar sem hún dvelur á hót- eli í eina viku. Síðan ætlar hún til föður síns og fjöl- skyldu hans sem býr á Rhode Island og dvelja með þeim i tvær vikur. I ágúst bíður hennar önnur utanlandsferð. Að þessu sinni til Spánar. í þá ferð ætlar hún að taka með kærastann, Einar Örn Birg- isson, en hvert þau fara nákvæmlega er enn óákveðið. Kveöju- kossinn Jón Ársæll Þórðarson út- varpsmaður, sem í vetur hef- ur séð um þáttinn ísland í dag á Bylgjunni ásamt Bjarna Degi Jónssyni, sagði skilið við útvarpsstöðina og þáttinn á föstudaginn. Jón Ársæli var að sjálfsögðu kvaddur með pompi og prakt af samstarfsmönnum sínum, en innilegustu kveðjurnar komu þó frá nánasta sam- starfsmanni Jóns Ársæls í vetur, honum Bjarna Degi. LÍTILRÆÐI af aldurtila Stundum hefur það flökr- að að mér og mínum að ef til vill sé ég í þybbnara lagi. Þegar eitthvað slíkt kemur uppá set ég mig gjarnan í rökhyggjustellingarnar og hugsa sem svo: — Nú úr því ég er svona þá hlýt ég að eiga að vera svona, annars væri ég ekki svona. Þetta finnst flestum hundalógík, en þá segi ég bara sem svo: — Nú maður er bara jaki af guðsnáð. Undirniðri er ég auðvitað alveg að drepast, því ég hef lengi litið á það sem mína mestu ógæfu að vera stuttur og feitur en ekki langur og mjór. Og til að stappa í mig stál- inu hugsa ég sem svo: — Ég er þó ekki sköllóttur eða að norðan. Og þá líður mér strax miklu skár. Stundum hugsa ég ekki um það dögum saman hvernig ég er í laginu. Kjaga bara um ósköp sáttur við líf- ið og tilveruna. En fyrr en varir kemur að því að einhver andskotinn verður til að minna mig á sköpulagið. Ekkert er líklegra til að steypa mér í hyldýpi örvænt- ingarinnar í þessum efnum en litteratúrinn á biðstofum tannlækna. Það var einmitt í fyrradag að ég var að bíða eftir tann- lækninum mínum og greip eitt af glanstímaritunum sem þar lágu frammi, og viti menn, fyrsta sem ég rek aug- un í er hávísindaleg grein með kúrfum og tilbehör undir yfirskriftinni: DAUÐSFÖLL HELMINGI ALGENGARI HJÁ FEITUM MÖNNUM EN GRANN- HOLDA. Auðvitað hrekkur maður í kút þegar maður rekst á svonalagað og það á prenti. Það er ónotaleg tilfinning að mega eiga von á því að enda lífið með því að deyja og það vegna þess að ekki verði feitum forðað. Og ég hugsa sem svo: — Guð gefðu mér æðru- leysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt. Svo legg ég blaðið frá mér og fer að kíkja í „News- week". Og viti menn. Undir undir- skriftinni „Medicine" eru birtar niðurstöður á rann- sókn dauðsfalia í Hollandi. Skýrt er frá því að afdrif sexhundruð karla og kvenna fæddra á árunum 1840—1850 hafi verið rann- sökuð með hliðsjón af holda- fari og styrkur til þess veittur úr félagsvísindasjóði Sam- einuðu þjóðanna. Og ég fæ ekki betur séð en mergurinn þessa máls sé sá að rannsóknin hafi leitt í ljós að af þessum sexhundruð manna hópi fæddum á árun- um 1840—1850 séu allir látn- ir. Dánartíðni 100%. Allir „allir", einsog stund- um er sagt um látið fólk. Og ég tek gleði mína aftur þarna á tannlæknastofunni, því ég hef öðlast vísindalega fullvissu fyrir því að dauðs- föll séu ekkert algengari hjá feitum mönnum en grann- holda. Og ég hugsa sem svo: — Mér kemur ekki til hug- ar að breyta um mataræði fyrr en búið er að sanna það óyggjandi með læknis og fé- lagsvísindalégum aðferðum að ég deyi síður ef ég er hor- aður helduren feitur. Ég heimta samsagt að fá það á hreint hvort ég get lif- að dauðann af með því að fara í megrun. Flosi Ólafsson

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.