Pressan - 20.06.1991, Blaðsíða 13

Pressan - 20.06.1991, Blaðsíða 13
13 VATNSVIRKINN HF. ~ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 MMH LYNGHÁLSI 3 SlMAR 673415 — 673416 Hafskipsmálið og Helgarpésturinn í síðasta tölublaði Pressunnar er viðtal við fyrrverandi ritstjóra Helg- arpóstsins, Halldór Halldórsson. Manninn sem ber höfuðábyrgð á skrifum þess blaðs um Hafskipsmál- ið á sínum tíma. Viðtal þetta er sjálf- sagt tengt nýuppkveðnum dómi Hæstaréttar í máli þriggja forsvars- manna félagsins og endurskoðanda þess. I upphafi viðtalsins er vikið að ummælum sem ég lét falla bæði í málflutningi fyrir Sakadómi Reykja- víkur og Hæstarétti um skrif Helgar- póstsins um Hafskipsmálið. Um- mæli mín voru þannig orðrétt; ,,Um málefni Hafskips var skrifað með Helgarpóstshætti í um 55 tölublöð hjá Helgarpóstinum. Þessi umfjöll- un tók yfir 85 efnissíður og á þess- um 85 efnissíðum eru um 200 rekj- anleg ósannindi og hrekjanlegar rangályktanir." fimmtUdagur PRESSAN 20. júní 1991 Um þessar staðhæfingar segir rit- stjórinn fyrrverandi, að þetta geri rúmlega tvær villur á síðu og það sé hreint ekki svo slæmt ef tekið sé með í reikninginn við hvaða skilyrði hafi verið unnið. Hér er vert að vekja athygli á því, að ritstjórinn fyrrverandi treystir sér ekki til að mótmæla staðhæfingum mínum um að í Helgarpóstinum hafi gróflega verið hallað réttu máli í umfjöllun blaðsins um Hafskips- málið. Afsökunarástæða ritstjórans, jú efnismagnið var svo mikið að það réttlætir lygarnar. Að mínu mati er aldrei réttlætan- legt fyrir blaðamenn að skýra rangt frá staðreyndum. Hann kann að hafa afsökunarástæður, sem draga úr sök hans,-en það er samt sem áð- ur aidrei réttlætanlegt. Komi það fyrir og liggi fyrir, að skýrt hafi verið rangt frá staðreyndum er það ótví- ræð skylda blaðamanns að biðjast velvirðingar á mistökum sínum og freista þess að leiðrétta þau. Hefði Halldór Halldórsson verið heiðarlegur blaða- og fréttamaður, mundi hann hafa beðist afsökunar í nefndu viðtali á þeim rangfærslum og lygum sem hann birti á síðum blaðs síns um Hafskipsmálið. Hall- dóri finnst hins vegar ekki ástæða til þess þar sem iygarnar miðað við efnismagn voru ekki svo stór prós- enta. Hér talar varaformaður siða- nefndar Blaðamannafélags íslar.ds. A öörum stað í viðtalinu víkur Halldór að því, að sá sem þetta ritar hafi komið sjálfur við sögu við gjald- þrot Helgarpóstsins sáluga. Þetta er rangt hjá Halldóri. Ég kom ekkert nálægt þeim málum nema sem lög- maður þegar ákveðnir starfsmenn og hluthafar leituðu til mín sem lög- manns til að kanna réttarstöðu sína. En það er aukaatriði hér. Dómur meirihluta Hæstaréttar sýnir það ótvírætt, að Hafskipsmál- ið svokallaða er hrunið til grunna. Ekkert stendur eftir af æsifregnum Helgarpóstsins undir stjórn Hall- dórs Halldórssonar um málið. Rann- sókn Hafskipsmálsins fyrir Saka- dómi Reykjavíkur, dómur Saka- dóms og síðar Hæstaréttar sýna, að í skrifum Helgarpósts Halldórs Hall- dórssonar var farið með staðiausa Síaíi, lygar og rangfærslur. Ég vænti þess, að Halldór Hall- dórsson beri það mikla virðingu fyr- ir sjálfum sér sem blaða- og frétta- manni, áð hann biðjist opinberlega afsökunar á þessum skrifum og axli ábyrgð með því að segja sig úr Siða- nefnd Blaðamannafélags lslands. Jón Magnússon hrl. Skipstjórinn á Kambaröst beðinn afsökunar í PRESSUNNi í síðustu viku birtist órökstutt slúður um hvarf á hákarla- bitum í eigu áhafnarinnar á togaran- um Kambaröst frá Stöðvaríirði. Til að forðast misskilning er rétt að taka fram að Jens Albertsson skip- stjóri hafði lykil að geymslunni og mun sjálfur hafa tekið þátt í að verka hákarlinn. Eru Jens og aðrir' hlutaðeigandi beðnir afsökunar á misskilningi sem þessi skrif kunna að hafa valdið. Ritstj. LITLA BÓNSTÖÐIN SF. Síðumúla 25 (ekið niðurfyrir) Sími 82628 Alhliöa þrif á bílum komum inn bílum af öllum stærðum Opið 8:00—19:00 alla daga nema sunnudaga f Panasonic VHS MOVIE UVEL Nýja Panasonic NV-Gl videotökuvélin færir þig nær raunveruleikanum bæði hvað varðar myndgæði og verð, hún er einföld í notkun, með fullkomnum sjálfvirkum fókus og vegur aðeins um 900 grömm. Komið og kynnist þessari nýju og frábæru vél því sjón er jú sögu ríkari. Sx/om öngtrm-. M (Sf ^cPivff’Á-eW ll £ím 1 B.-T.l«gKW!gFI 69.600 stgr JAPIS BRAUTARHOLTI 2 OG KRINGLUNNI SÍMI 625200

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.