Pressan - 25.07.1991, Side 6

Pressan - 25.07.1991, Side 6
6 PRESSAN - FERDABLAÐ Nv og betri hugmvnd um hringkevrslu í stað Þingvallahringsins enn einu sinni Við ökum Reykjaneshríngínn - skoðum fornar verstöðvar, borðum góðan mat, klifrum upp í vita, krunkum í fugla og æðum um fjörur, en endum daginn með því að skola af okkur ferðarykið í Bláa Lóninu REYKJANESHRINGUR ístaðinn fyrir hinn hefðbundna Þingvallahring um verslunarmannahelgina? Hvemig væri það? Við hringdum í Jóhann D. Jónsson, sem stýrir uppbyggingu ferðamála á Suðumesjum. Jóhann er reyndur ferðamálamaður sem starfs- maður Flugleiða um árabil. Hann hafði ákveðna tillögur fram að færa um vel heppnaða og eftirminnilega dags ku- og gönguferð um Reykja- nesið. Við byrjum á að aka suður í Kefla- vík. skoðum minjasafnið þar og fáum okkur góðan hádcgisverð í einhverju veitingahúsa bæjarins. Þaðan liggur leiðin suður á Garðskaga. Þar er fuglalíf fjölbreytt og fjörurnar falleg- ar. Stundum er hægt að komast upp í nýja vitann, þaðan sem mikið og frítt útsýni er. Á Garðskaga eru merkar fomminjar, sem þykja sanna að til forna hafi Reyknesingar stundað ak- uryrku. Leifar eru af háum garði. sem menn hafa reist til varnar komi sínu. Hann nær frá Kirkjubóli að Loftskál- um, drjúglangur garður, þar sem tveir áttu að geta farið um ríðandi samsíða. Ekkert smámannvirki á sinni tíð!- Ur Garðinum em haldið að Hafur- bjamarstöðum og síðan í Sandgerði og plássið skoðað, þar er mikil og at- hafnasöm höfn. sem gaman er að skoða. Frá Sandgerði í Hvalsnes, en kirkjan þar mun opin fyrir þá sem hana vilja skoða. I kór kirkjunnar stendur legsteinn Steinunnar. dóttur Hallgríms Péturssonar, sálmaskálds- ins góða. Sagt er að séra Hallgrímur hafi sjálfur höggið í steininn. Kirkjan er hlaðin steinkirkja og sérstæð mjög. Upplagt er að leggja leiðina næst í Stafnes. Þangað og í Básenda er sæmileg ganga frá þjóðveginum. í Stafnesi var í eina tíð fjölmenn verstöð. Þann 9. janúar 1799 eyddist byggð í Básenda með öllu í einhverri mestu flóðbylgju sem vitað er til að hafi skollið á þessu landi. í Básenda var fyrr á öldum ein fjölmennasta verstöð landsins. og þangað sóttu vinnu sjómenn og verkamenn víða að af landinu. Næst kum við um Sandgerði. framhjá hinni nýtískulegu Flugstöð Leifs Eiríkssonar. sem sannarlega stingur í stúf við rústir hinna miklu fornu verstöðva. Við höldum í Hafnir þar sem er lítið útgerðarþorp á fallegu bæjarstæði og falleg kirkja. Hafnarberg er í ca. háltíma göngu- færi. Þar er stórbrotið um að litast. björgin eru sannarlega hrikaleg með iðandi fuglalífi. en fyrir neðan hamast sjórinn og lemur æðislega á berginu. Þessu næst höldum við í Reykja- nes, skoðum e.t.v. vitann. Gamli vitinn er að eyðast af sjávar- gangi. stendur núorðið yst á bjarg- brún. Hann var byggður 1878 og stóðst veður og vinda í aðeins 10 ár. Nýrri vitinn. myndarleg bygging, er byggð 1908 og hefur staðist tímans tönn. Nú er haldið af stað til Grindavík- ur. framhjá fiskeldisstöðvunum og Gjánni. þeirri lengstu á landi hér. djúpri og varhugaverðri. Grindavík er þróttmikið útgerðarpláss. Upplagt að fá sér kaffisopa í Sjómannastofunni Vör. Þar eru sérkennilegar myndir af innsiglingu báta inn á Grindavíkur- höfn. krókótta og torfama siglingar- leið. Deginum á Reykjaneshringvegi Ijúkum við í einni af náttúmperlum Islands. nýuppfundinni. Bláa Lóninu við Grindavík. Þar er upplagt að skola af sér ferða- rykið og hvíla lúin bein. Eflaust teygist eitthvað úr verunni þar. svo gott er að vera í hinu sér- kennilega vatni Lónsins og því um- hverfi sem það er í. Margt fieira mætti tína til um ferðamöguleika á Suðumesjum. Þeir syðra hafa á sfðari árum gert stón átak í þá átt að geta sinnt ferða- fólki og er það vel. Á Suðurnesjum eru til að mynda komin ágæt hótel. sem mælst hafa vel fyrir. Golfdellu- menn eiga kost á þrem prýðisgóðum golfvöllum. Þeir sem vilja renna fyrir lax geta gert það án vemlegs tilkostn- aðar í lóninu í Grindavík. Sennilega em möguleikar á að fiska mun meiri þar en í margri dýrri laxveiðiánni á fisklevsissumri. Landakort í ferðalaginu er álíka nauðsvnlegt og Að þekkja viðmælandann með nafni Ferðalag um landið án almenni- legs landakorts og góðrar leiðarlýs- ingar, t.d. Vegahandbókarinnar. kemur ekki að hálfu gagni. Einn góður ferðamaður sagði að það að vera kortlaus í ókunnu landslagi væri álíka og vera í góðu boði þar sem maður þekkti engan með nafni! Landmælingar íslands er opinbert fyrirtæki sem að miklu leyti sér um sig sjálft. Fyrirtækið hefur á undan- fömum ámm sýnt vemlega góða þjónustu við ferðafólk með hverri útgáfunni annarri betri. Fyrir nokkmm ámm fóm Land- mælingar að gefa út stað- fræðikort eftir nýjum. íslenskum kortastaðli. Staðfræðikortin em í mælikvarða 1:25 000. Þau ná yfir allt Suðvestur- hom landsins og em orðin 17 tals- ins. Þetta em góð kort til að hafa í höndunum á ferðalagi um þetta svæði. Þá bjóðast geysigóð stað- fræðikort af miðnorðurlandi, mið- hálendi og miðsuðurlandi, kort í kvarðanunt 1: 500 000. Ótal nnur kort bjóðast hjá kortabúð Landmæl- inganna að Laugavegi 178. og kort- in fást í góðum bókabúðum. mörg- um viðkomustöðum við þjóðvegina og víðar. Ágúst Guðmundsson. forstjóri Landmælinga íslands. sagði að kortasalan færi stöðugt vaxandi. og það í mun meira mæli en nemur auknum ferðalögum um landið. Ág- úst sagði að í fyrra hefðu verið selt 70 þúsund kort af ýmsurn gerðum. Það væri hlutfallslega meira magn en starfsbræður þeirra í nágranna- löndunum gætu státað af að selja.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.