Pressan - 25.07.1991, Page 10
10
PRESSAN - FERÐABLAD
einhver þeirra. Og þeir sem hugsa
hærra og ætla í lax, eiga kost á í það
minnsta 11 laxveiðiám á nesinu. Ein-
hver skemmtilegasta sjóferð sem
hægt er að hugsa sér er sigling með
Eyjaferðum frá Stykkishólmi um
Suðureyjar Breiðafjarðar. Einstæð
upplifun, fuglalífið skoðað í nær-
mynd, rennt fyrir gómsætan skelfisk
og hann borðaður á eftir, og siglt um
sollinn sæ. Tryggvi Gunnarsson í
Hólminum býður líka upp á skoðun-
arferðir af svipuðum toga. Og frá
Hólminum fer Baldur í Flatey og yfir
til Vestfjarðakjálkans.
Á ferð um landið er gráupplagt að
kíkja um stund inn á söfnin sem verða
á vegi manns. Á Snæfellsnesi einu
eru 3 skemmtileg, lítil söfn. Skoðið
Sjómannagarðinn á Hellissandi, þar
er þurrabúð og þar er varðveitt sjó-
minjasafn, eða Gamla pakkhúsið í
Ólafsvík, þar er upplýsingamiðstöð
fyrir ferðafólk og safn í uppbyggingu.
Loks er það gamla og góða Norska
húsið í Stykkishólmi, byggt 1828, nú
friðað og er safn gamalla muna Snæ-
fellinga.
íþróttahetjur eiga kost á hestaferð-
um á fjórum stöðum á nesinu, þær
geta leigt sér reiðhjól í Stykkishólmi,
sundlaugar á nesinu eru á sex stöðum.
Loks er hægt að taka fram golfgræj-
umar í Ólafsvík og í Stykkishólmi.
Perla Snæfellsness er að sjálfsögðu
Snæfellsjökull, eitt frægasta fjall
lands okkar, dulúðugt og fagurt í
senn.
Snæfellingar bjóða leiðsögn á fjall-
inu frá Ólafsvík og Amarstapa, m.a. á
vélsleðum.
Ekki má gleyma því sem ókeypis
er í ferðalagi um svæðið.
Snæfellsnes er víða mjög fagurt
landsvæði og náttúra þess ógleyman-
leg þeim sem kunna siíkt að meta.
Tjaldborg Ægis
Úti í Örfirisey mætti ætla að fram færi útimót þessa dagana. Svo er þó ekki, fólk kýs að halda lengra frá höfuð-
borginni. Hér em á ferðinni þeir Ægismenn, sem um áratuga skeið hafa framleitt tjöldin sem duga í íslenskum
veðmm, jafnvel þeim verstu. Þessi iðnaður hefður staðið af sér mikla erlenda samkeppni. Gæðin skipta höfuð-
máli og þeir í Ægi vita nákvæmlega hvemig tjöldin eiga að vera fyrir íslenskt útilegufólk. Myndin var tekin í
fyrradag. - Ljósmynd E.Ól.
Skelfiskurinn á Breiðafírði smakkast
ferðafólkinu yfirleitt vel.
Á ferðalagi
um Snæfellsnes
Komiö við
í hákarlS'
hjallí og
þeyst á
jökul með
vélsleða
Hefurðu komið í hákarlshjall?
Ef ekki, þá gefst kostur á því hjá
honum Hildibrandi Bjamasyni f
Bjamarhöfn í Helgafellssveit.
Gestir sem þangað koma eiga kost
á að fylgjast með hvemig hákarl er
verkaðúr, og eflaust fá þeir líka að
smakká og kaupa sér bita.
Víðaí um land em skemmtilegir
kostir í boði fyrir ferðafólk.
Blaðjð kannaði málið á Snæfells-
nesi. Framboðið af slakandi og mann-
bætandi skemmtan var meiri en við
áttum Von á á ekki stærra svæði. En
lítum a,ðeins nánar á málið.
Fyrif þá sem heillast af sjómennsku
geta menn fengið litla og trausta ára-
báta á leigu hjá Silfurlaxi í Hrauns-
fjarðarlóni við Hraunsfjörð. Þar em
líka seld veiðileyfi. f Ólafsvík er líka
hægt að komast í sjóstangaveiði, talið
við Upplýsingamiðstöðina í Gamla
pakkhúsinu. Svo em margir brjálaðir
í veiði í vötnum. Ekki færri en 13
ágæt silungsvötn standa ferðafólki til
boða á Snæfellsnesi, veiðileyfi má
t.d. fá að Vegamótum á Snæfellsnesi í
Þ
eir sem ekki hafa komið í
Jökulsárgljúfur ættu að gera sér ferð
þangað. Þama em einhver allra sér-
stæðustu náttúmundur landsins, feg-
urð sem engu er lík. Trúlega em þeir
margir, íslendingamir sem eiga eftir
að upplifa þessi undur, Dettifoss,
Ásbyrgi, Hljóðakletta og Hólma-
tungur.
Dettifoss er 44 metra hár, mikil-
úðlegur og vatnsmikill foss í Jökulsá
á Fjöllum. Hægt er að aka að fossin-
um frá þjóðveg- inum að austan, en
jeppafært að vestan, en þaðan að sjá
er föss- inn e.t.v. enn hrikalegri og
stórfenglegri. Meðalrennslið í foss-
inum er 193 rúmmetrar vatns á sek-
úndu, ekki lítið það og ekki undar-
legt þótt stundum sé minnst á virkj-
un hans, því með slfku reginafli
mætti framleiða 300-400 þúsund
kílóvött. Jökulsárgljúfur em fyrir
neðan Dettifoss, hyldjúp og stór-
brotin. Þama ættu menn að fara var-
lega. Danskur maður féll eitt sinn 80
metra fall niður í gljúfrið, en hafði
heppnina með sér, kom fyrst niður á
grasflesju, meiddist furðu lítið, en
náðist ekki úr gljúfrinu fyrr en eftir
margar klukkustundir. Náði hann
sér eftir fallið og var síðast þegar
fréttist læknir í Svíþjóð.
Hólmatungur er hlíð í gljúfri Jök-
ulsár að vestan, vaxin miklum
gróðri, bæði kjarr- og grasgróðri, og
þar em fallegar stuðlabergsmyndan-
ir í klettum. Mikið og fagurt sjónar-
spil. í Hólmatungum er Gloppuhell-
ir, skemmtileg smíð náttúmnnar.
Ásbyrgi er stórkostlegt náttúm-
fyrirbæri, skeifulaga jarðfall rétt fyr-
ir vestan Jökulsá. Hamraveggimir
em allt að 100 metra háir, lægstir
fremst en fara síðan hækkandi eftir
því sem innar dregur. Inni í skeif-
unni er tjöm sem heitir Botnstjöm
og umhverfis hana mikill birkigróð-
ur. í miðri hamrakvínni, sem er allt
að 4 kílómetrar að þvermáli, rís mik-
ið bjarg, sem kallast Eyjan. Skiptir
hún byrginu í tvennt.
í Ásbyrgi hafa fundist sjávarminj-
ar frá löngu liðnum tímum. Menn
hafa oft komið fram með kenningar
um hvemig svo reglulega lagað
skeifufar myndaðist á þessum stað.
Sagan segir að þama haft Sleipnir,
hestur Óðins, tyllt niður fæti. Áðrir
telja raunar líklegra að þama hafi
verið árfarvegur Jökulsár.
í Ásbyrgi er gott tjaldstæði og þar
er sannarlega gott að vera, margt
sem ber fyrir augu og veðursæld
mikil.
Aðstandendur skyndihjálpar- og öryggisdaga í Bíianausti, Birgir Omarsson tra
Landsambandi Hjálparsveita skáta, Hannes Hauksson frá Rauðakrossi íslands,
Apton Angantýsson, Þráinn Þorvaldsson og Reynir Matthíasson frá Bíianausti hf.
BILANAUST
ORYGGISDAGAR
HJÁ BÍLANAUSTI
Viðskiptavinir Bílanausts. sem
koma í hina miklu verslun fyrirtækis-
ins, stærstu bílavarahlutaverslun
landsins, þessa dagana fá þar fræðslu
sem er til fyrirmyndar. Fyrirtækið vill
gjaman að viðskiptavinir verði með-
vitaðir um ábyrgð sína bak við stýrið.
en kannski skortir svolítið á að svo sé
hjá ærið mörgum.
Umferðarslys hafa verið óhugnan-
lega tíð að undanfömu og hafa vakið
óhug meðal almennings. I mesta blíð-
viðri í mannaminnum rekur hven
umferðarslysið annað óhugnanlegra.
Framundan er verslunarmannahelgi
og veitir ekki af að kumenn séu
áminntir hressilega um þá ábyrgð
sem þeir bera.
Til viðbótar áróðri fyrir öruggum
akstri og bættri umferðarmenningu er
mikilvægt að búa kumenn og annað
ferðafólk undir það hvemig bregðast
skuli við. ef komið er að umferðar-
slysi. Hver eiga fyrstu viðbrögð og
aðhlynning að vera?
Einmitt þessi fyrstu viðbrögð geta
skipt sköpum Bflanaust hf. hefur
fengið til liðs við sig Landsamband
hjálparsveita skáta og Rauðakross ís-
lands. Bilanaust mun legaja áherslu á
hverskonar öryggistæki fyrir bifreið-
ar á þessum skyndihjálpar og örygg-
isdögum í versluninni.
.Tökulsárgljúfur
NÁTTÚRU'
PARADÍS
SEM
ENGINN
ÆTTI AÐ
MISSA AF