Pressan - 25.02.1993, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRUAR 1993
F Y R S T
DAVfÐ ODDSSON. Með aðstoð Steingríms Hermannssonar tókst
honum að slá risnumet Óla Jó. í forsætisráðuneytinu. HALLDÓR
BLÖNDAL. Risna í landbúnaðarráðuneytinu hefur aldrei verið meiri
en árið sem hann tók við af Steingrími J. Sigfússyni.
HALLDÓR, DAVÍÐ OG
SIGHVATUR SLÁ RISNU-
MET
Fregnir hafa borist af háum
risnu- og ferðakostnaði ríkisins
1991 og hann meira að segja orðið
leiðaraefni í Morgunblaðinu.
Fyrstu íjóra mánuðina og það í
miðri kosningabaráttu ríkti ríkis-
stjórn Steingríms Hermanns-
sonar en síðustu átta mánuðina
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar.
Báðar ríkisstjórnir eiga því hlut að
máli, sú síðari væntanlega stærri
hlut. Athyglisverðar tölur koma í
ljós þegar risna aðalskrifstofa ein-
stakra ráðherra er skoðuð. Árið
1991 hljóðaði risnukostnaður rík-
isstjórnar og aðalskrifstofa ráðu-
neytanna alls upp á 82,2 milljónir
að núvirði og hefur þrisvar áður
orðið hærri.
Ný met í risnukostnaði voru
slegin á aðalskrifstofum þriggja
ráðuneyta þetta ár, miðað við
raungildi risnu síðustu tuttugu ár-
in.
Risna aðalskrifstofu forsætis-
ráðuneytisins var 10,5 milljónir að
núvirði. Eldra metið var frá 1973, í
tíð Ólafs Jóhannessonar heitins,
9.3 milljónir, og kostnaðurinn var
8,8 milljónir hjá Steingrími Her-
mannssyni 1990. Á metárinu ríkti
Steingrímur í fjóra mánuði en
Davíð Oddsson í átta.
Risna aðalskrifstofu landbún-
aðarráðuneytisins var 5,1 milljón.
Þar rfkti í fjóra mánuði Steingrím-
ur J. Sigfiísson en Halldór Blön-
dal það sem eftir lifði árs. Eldri
met voru slegin allhressilega af
þeim Steingrími og Halldóri; áður
átti Steingrímur Hermannsson
metið frá 1979,2,8 milljónir.
Risna aðalskrifstofu heilbrigð-
is- og tryggingaráðuneytisins var
7.3 milljónir, en þar ríkti fyrstu
fjóra mánuðina Guðmundur
Bjarnason áður en Sighvatur
Björgvinsson tók við. Guðmundur
átti eldra metið, 7,2 milljónir,
1988.
Risnukostnaður ríkissjóðs í
heild, A- og B-hluta, reyndist 1991
alls 222 milljónir, en 195 milljónir
1990.
HASSMÁLIÐ NÁLGAST
FYRNINGU
Enn er engin hreyfmg í
ódæmdu fíkniefnamáli tálbeit-
unnar í kókaínmálinu, Jóhanns J.
Ingólfssonar. Hann var handtek-
inn í febrúar 1990 fyrir aðild að
smygli á þremur kílóum af hassi
og fór fram á það við fíkniefnalög-
regluna í fyrra að fá ívilnun í því
máli gegn því að leggja gildruna
fyrir Stein Ármann Stefánsson.
Lögreglan sendi málið fyrst frá sér
í desember 1990, saksóknari gaf út
kæru í ágúst 1991 og ítrekaði hana
við dómara síðastliðið vor. Málið
er eitt af mörgum sem Héraðs-
dómur erfði frá dómstóli í ávana-
og fíkniefnamálum og liggur enn
óhreyft. Það er „í bunkanum“ hjá
Guðjóni SL Marteinssyni dóm-
ara, sem kveðst ekki vita hvenær
það verður tekið fyrir. Nú eru lið-
in þrjú ár frá því Jóhann var hand-
tekinn og fer töfin því að nálgast
þá lengd sem dómarar hafa nefiit
óásættanlega með tilliti til mann-
réttinda sakbomings.
KOSNINGASKIP TIL
GRÆNHÖFÐA?
Á mánudag voru opnuð útboð í
smíði skips sem Þróunarsam-
vinnustofnun hyggst gefa til
Grænhöfðaeyja. Lægsta boð áttu
Þorgeir og Ellert á Akranesi, en
málið bíður endanlegrar af-
greiðslu. Tíminn skiptir þó máli,
því í útboðinu var gert ráð fyrir að
skipið yrði tilbúið til afhendingar í
nóvember á þessu ári. Einhverjir
halda því fram að þessi asi sé eng-
in tilviljun, þar sem rætt er um að
halda kosningar á Grænhöfðaeyj-
um snemma á næsta ári. Björn
Dagbjartsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarsamvinnustofnun-
ar, vill ekki gera þessu skóna, en
viðurkennir þó að stjórnmála-
menn eyjaskeggja þurfi eins og
aðrir að sýna kjósendum sínum
fram á árangur. Málið komst á
skrið eftir að sjávarútvegsráðherra
eyjanna, Helena Semedo, kom
til íslands í sumar. Hún sá Malaví-
skipið fræga á Akureyri og sagðist
gjarna vilja eintak. Það varð úr;
hún fær skip af sömu gerð og
Hastings Banda, aðeins fáeinum
metrum lengra.
BJÖRN ENN í HÍÐI SÍNU
Nokkuð er síðan kom til um-
ræðu að Björn Friðfinnssson,
ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðu-
neytinu, tæki við starfi hjá effirlits-
stofnun EFTA, sem verður til þeg-
ar og ef EES verður einhvem tíma
til. Þessi ráðagerð er nú í mjög
lausu lofti, ef ekki farin alveg út
um þúfur, vegna þess hversu EES
ætlar að dragast á langinn. EFTA-
löndin eru hvert af öðru í viðræð-
um um aðild að EB og þar með
getur fjarað hratt undan effirlits-
stofnuninni eins og öðru sem
EFTA tengist. Að minnsta kosti
heyrum við úr viðskiptaráðuneyt-
inu að Björn sé hættur við að taka
1
I stjórnkerfinu er nú verið að vandræðast'
með drög að frumvarpi til Iaga um tóbaksvam-
ir. Frumvarpið var kynnt í ríkisstjórn, sem vildi
ekki leggja það ffarn sem stjórnarfrumvarp, svo
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra
sendirþað til meðferðar heilbrigðisnefridar
þingsins, þar sem situr í forsæti Sigbjöm
Gunnarsson. Nefndin á að kanna hvort og
hver leggur málið ffarn.
Meðal nýmæla í ffumvarpinu er að heil-
brigðisráðherra skuh ákveða hæstu leyfileg
mörk skaðlegra efna í tóbaki. I greinargerð er
vísað í hugmyndir innan EB um að takmarka
tjöm í sígarettum fyrst við 15 milligrömm og
síðar við 12. f Finnlandi er þegar miðað við 15
og landlæknir Islands hefur lagt til við ráðherra
að sama verði gert hér.
Þetta þýddi í reynd að á íslandi fengist ekki
lengur þorri þeirra sígarettutegunda sem vin-
sælastar eru. Fyrir ofan 15 milligramma mörkin
eru til dæmis (í styrkleikaröð); Gauloises síu-
laus, Camel síulaus, Prince, Wlnston, Pall
Mall, Winston af lengri gerð, Camel með síu,
More og More Menthol, Kool, Salem, Dun-
hill, Viceroy, Lucky Strike og Gold Coast af báðum gerðum.
Ofan 12 milligramma markanna em til dæmis: Royale af báð-
um gerðum, Prince Lights og Kent. Neðan markanna er fátt
annað en „lights“-útgáfúmar af Winston, Gold Coast, Viceroy,
Camel og Salem.
Ef ffumvarpið yrði samþykkt óbreytt þyrfti leyfi heilbrigðis-
nefndar (gegn gjaldi) til að selja tóbak og það mætti ekki sjást á
sölustöðum. Ekki eru ákvæði um nákvæmlega hvar kaupmenn
skuli fela það. Þá yrði bannað að reykja í hléi í bíó og leikhús-
um, en krár fengju undanþágu frá banni sem gildir að nokkm
um önnur veitingahús. Þó yrðu kráargestir að drepa í áður en
farið væri á klósettið, enda á undanþágan „ekki við ganga, sal-
erni og því um líkt“.
Hert yrði reykingabann í almenningi ff á því sem nú er, en
ekki dygði tóbaksunnendum að flýja í notkun á reyklausu tób-
aki. Það yrði bannað samkvæmt ffumvarpinu — allt nema
svarta taðið sem ÁTVR ffamleiðir og æ færri vilja kaupa.
Ástæðan? „Til að vemda íslenska neytendur fyrir tilraunum
tóbaksffamleiðenda“, sem loksins em farnir að framleiða tóbak
semfólkvillnota.
Sighvatur vill ekki leggja
tóbaksfrumvarpið fram
sjálfur.
saman á skrifborðinu sínu alveg á
næstunni.
REGNBCXjlNN SKIPTIR LIT-
UM
Kvikmyndahúsið Regnboginn
er þessa dagana að fá nýjan mann
í starf markaðsstjóra, engan ann-
an en Ingvar Þórðarson, fyrrum
skemmtanastjóra Hollý og höfund
frægrar bókar um hvernig á ekki
að ffemja bankarán. Hann er ekki
alveg óvanur bíóinu, var meðal
annars framleiðandi Sódómu
Reykjavíkur, og lætur spyrjast að
vænta sé þáttaskila hjá Regnbog-
anum, sem verði effir breytinguna
besta bíó í Evrópu. Fráfarandi
markaðsstjóri er Andri Þór
Guðmundsson.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN í
BÍLASÖLU
Undanfarið hafa bílasalar sett
mikið af tilboðum á markaðinn,
þar á meðal Sigftís Sigfússon og
félagar hjá Heklu, sem bjóða með-
al annars vaxtalaust lán í bíla-
kaupum, allt upp í hálfa milljón
króna. Lánin eru þó ekki alveg
laus við skilyrði. Viðkomandi
verður nefnilega að tryggja bílinn
hjá Tryggingamiðstöðinni hf.
Þegar bílakaupendur grennslast
fyrir um hverju þetta sætir kemur
skýringin: að það sé sem sagt
Tryggingamiðstöðin sem lánar
fyrir bílakaupunum. Við heyrum
að svipaður samningur sé í gildi á
milli Toyota-umboðsins og Sjó-
vár-Almennra.
SIGHVATUR BJÖRGVINSSON. Ekki aldeilis skorið niður í risnukostnaði. JÓHANN J. INGÓLFSSON. Töfin á afgreiðslu hassmálsins farin að nálgast hættumörk. BJÖRN DAGBJARTS-
SON. Grænhöfðeyingum liggur á að fá sams konar skip og harðstjórinn í Malaví. BJÖRN FRIÐFINNSSON. EES dregst á langinn og þar með ferðin hans til Evrópu. INGVAR ÞÓRÐ-
ARSON. Tekinn við stöðu markaðsstjóra Regnbogans. SIGFÚS SIGFÚSSON. Góð lánakjör með aðstoð Tryggingamiðstöðvarinnar.
„Egsá raunar margar
fagrar konur í Páfa-
garði og kom mérþað
gleðilega á óvart. “
í^z
Yfir sig hvfldir
„Sumir hafa ekki unnið
mjög lengi og eiga erfitt með
að fara strax í mjög harða
vinnu.“
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarð-
vík.
Fara af varamannabekkn-
um á námsbekkinn
„Ef ekkert gerist í málum mínum
fyrir vorið liggur beinast við að
pakka saman, koma sér heim og
taka upp þráðinn við námið að
nýju.“
Guöni Bergsson atvinnuvaramaöur.
| ÞORSTEINN KÁRIBJARNASON
Á SAUÐSKINNSSKÓNUMIRÓM
Það kemur þó á óvart
„Ég er mjög ánægður með sýninguna og eigin ffammistöðu.“
Kristján Jóhannsson stórsöngvari.
„Það er erfitt að beijast við
tréhesta ár eftir ár.“
Halldór Gunnarsson, formaöurFé-
lags hrossabænda.
Nema tékk-
heftið hafi
verið skilið
eftir opið
„Ég held nú að byggða-
vandi Bolungarvíkur sé
meira og stærra mál en
það hver ræstir skrifstof-
una mína.“
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri.