Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRUAR 1993
N Æ R M Y N D
FERILL
TÓMASAR
1949
Fæddur Tómas Andrés Tómasson.
1972
Annast veislustjórn fyrir Oansskóla Hermanns
Ragnarssonar. Gengur vel.
1973
Kaupir Matarbúðina i Hafnarfirði. Gengur illa.
1974
Framkvæmdastjóri Festar i Grindavik í þrjú og
hálft ár.Gengurvel.
1977
Hættir hjá Festi í árslok.
1978
Fer til Flórída í tvö ár og útskrifast með BA-gráðu í
Hotel Management.
1979
Síðari hluta árs kemur Tómas heim. Á næstu mán-
uðum ræðst hann í þrjú störf, en gengur illa.
Skilnaður við þáverandi eiginkonu.
1980
Um mitt sumar ferTómas í áfengismeðferð.
Næstu mánuði vinnur hann m.a. við að steikja
hamborgara og aðstoða Þóri Gunnarsson við að
koma upp Winney's.
1981
Fyrsti Tomma-hamborgarastaðurinn opnaður 14.
mars við Grensásveg. Fyrsta árið eru seldir þar
360 þúsund hamborgarar, einn og hálfur á hvern
íslending.
1982
Opnar Pottinn og pönnuna í mars ásamt Úlfari Ey-
steinssyni og Sigurði Sumarliðasyni. Selur sinn
hlutárisíðar.
1982
Opnar Villta tryllta Viila, sem síðar breytist í Saf-
arí. Hugsjónin um áfengislausan skemmtistað
fyrir unglinga gengur ekki. Tapar stórfé.
1983
Meðstofnandi GGS hf., kjötvinnsla og rekstur
fimm Tomma-hamborgarastaða. Meðstofnend-
urnir, Jónas Þór Jónasson, Helgi Gestsson og Giss-
ur Kristinsson, kaupa síðar Tomma-hamborgara
af Tómasi, sem stofnar þá Bakhús hf.
1983
Fertil Bandarikjanna i eitt ár, aðallega af heilsu-
farsástæðum, þ.e. til að byggja sig upp líkam-
lega.
1985
Stofnarsameignarfélagið Sprengisand sf. ásamt
Úlfari Eysteinssyni og inn í dæmið koma Ásgeir
Hannes Eiríksson „pylsusali" og Sverrir Hermanns-
son fasteignasali. Húsið reist á 100 dögum og
Tómas nær gjaldþrota vegna himinhás fram-
kvæmdakostnaðar.
1986
Tómas kaupir á nýársdag þá Úlfar, Ásgeir og
Sverri út úr Sprengisandi.
1986
Uppbygging Hard Rock Cafés hefst.
1987
Tómas opnar Hard Rotk Café í Kringlunni i júlí.
1987
GGS hf. kaupir rekstur Sprengisands í september,
en eigandi fasteignarinnar áfram og enn Ingvi
TýrTómasson.
1987
Tómas meðstofnandi Lækjarveitinga hf. ásamt
Vilhjálmi Svan Jóhannssyni og fleirum.
1987
Meðstofnandi Lækjarniðs hf. ásamt Vilhjálmi
Svan. Þessi tvö hlutafélög eru vegna rekstrar
Tunglsins.
1988
Tómas gengur út úr Lækjarveitingum og Lækjarn-
ið. í kjölfar gjaldþrots þeirra síðar tapar Tómas
talsverðum fjárhæðum vegna ábyrgða.
1989
Tómas, Helga og Bakhús stofna fsrokk hf. i maí,
sem tekur við rekstri Hard Rock af Bakhúsi.
1990
Tómas opnar Ömmu Lú.
1990
Tómas opnar Glaumbarinn. Helga fyrrum
eiginkona hans á staðinn i dag.
1992
Reykjavikurborg tekur 172 milljóna króna tilboði
Tómasar um kaup á Hótel Borg i september.
1993
f janúar kaupa Tómas og Ingibjörg Pálmadóttir
Sóleyjargötu S.
Tómas Andrés Tómasson, eigandi Hótels Borgar með meiru
MISTÆKUR
BRASKARIEÐA
SNILLINGUR?
Ferill Tomma hefur einkennst af velgengni og áföllum á víxl. Hann hefur tekið
ævintýralega áhættu; stundum sigrað, stundum tapað, en alltaf komið niður á
báða fætur. Háværar efasemdaraddir heyrast vegna kaupanna og framkvæmd-
anna á Hótel Borg upp á 272 milljónir króna, en Tómas er hvergi banginn.
Þótt Tómas A.
Tótnasson sé ekki á
meðal hinna stærstu í
íslensku athafnalífi er
hann samt margra
manna maki hvað
framkvæmdagleði
varðar. Sagt er að þeg-
ar hann er kominn af
stað með verkefni
stöðvi hann ekkert, en
þegar uppbyggingu er
lokið fái hann leið á
verkefninu og snúi sér
að öðru. Ferill hans
einkennist einmitt af
því að hann hefur far-
ið úr einu í annað,
stundum með glæsi-
legum árangri, en þó
ekki alltaf.
MEÐ PRÓF-
GRÁÐU í HÓTEL-
STJÓRNENANN-
ALUÐBYTTA
Tómas fæddist árið
1949 og ólst upp hjá
afa sínum og ömmu í
móðurætt, en faðir
hans var bandarískur.
Hann lærði matreiðslu
í flugeldhúsi Loftleiða
frá 1967, vann í ýms-
um eldhúsum alls í sjö
ár og öðlaðist meist-
araréttindi. Að eigin
sögn kann hann þó lítt
að elda. „Það er varla
Þórarinn Tyrfingsson
yflrlæknir
á Vogi
„Tómas er
gríðarlega
hugmynda-
ríkur og sér
möguleika
þar sem aðrir
sjá þá ekki.
Það er
kannski aðalkostur hans. Hann
er mjög laginn við fólk og fær
sitt lipurlega fram. En það er
ekki allra að fylgja Tómasi.
Hann fer oft hratt og glanna-
lega, enda nærist hann nokkuð
á því að taka áhættu. Ég veit
ekki hvort ég væri rólegur ef ég
ætti mikið undir því sem hann
erað gera."
að ég geti soðið mér rakvatn öðru-
vísi en brenna það við. Ég er með
fimmtán þumalputta og þrjár
vinstrihendur."
Arið 1972 útskrifaðist hann
með verslunarpróf og vann um
skeið sem veislustjóri fyrir Dans-
skóla Hermanns Ragnars Stefáns-
sonar, en 24 ára gamall eignaðist
hann verslun í Hafnarfirði. Það
varði stutt því reksturinn gekk illa.
Fyrstu kynni landsmanna af Tóm-
asi sem veitingahúsamanni urðu
vorið 1974, þegar hann tók að sér
að reka félagsheimilið Festi í
Grindavík. Festi rak hann í þrjú og
hálft ár með góðum árangri.
Upp úr því hélt Tómas til
Bandaríkjanna og þar lauk hann
BS- prófi í alþjóðlegri hótelstjórn.
Þegar heim kom tóku við nokkrar
misheppnaðar tilraunir við rekstr-
arráðgjöf, meðal annars fyrir
Bjarna I. Árnason í Brauðbæ,
sem studdi hann í náminu ytra.
Einnig aðstoðaði Tómas Þóri
Gunnarsson við að koma upp
Winney’s-hamborgarastað, en í
dag rekur Þórir veitingastað í
Prag. En Tómasi gekk illa, hann
skildi við eiginkonu sína og 1980
tók við áfengismeðferð og allar
götur síðan hefur Tómas verið
óvirkur alki.
TOMMISLÓ í GEGN EN
VILLTITRYLLTIVILLIKOL-
FÉLL
Fyrsta Tomma-hamborgara-
staðinn opnaði Tómas með þá-
verandi sambýliskonu sinni,
Helgu Bjarnadóttur, á Grensás-
vegi í mars 1981. Á fyrsta starfsár-
inu seldust 360 þúsund hamborg-
arar eða sem nemur einum og
hálfum hamborgara á hvern
landsmann. „Þegar Tommaævin-
týrið hófst áttum við ekkert og
tókum bara sénsinn. Við skulduð-
um alla framkvæmdina, sem var
miklu dýrari en áætlað var. Einu
peningarnir sem ég hafði á milli
handanna voru 16.400 krónur
Hótel Borg. Atta ára draumurTómas-
ar um að fá hótelið í sínar hendur
hefur ræst. Kaupverðið var 172
milljónir og endurbæturnar komn-
ar í 100 milljónir. Herbergin eru að-
eins 35 og kostnaður því nær 8
á hvert herbergi. Viðmæl-
PRESSUNNAR áttu flestir erf-
með að trúa því að dæmið gæti
sem ég fékk í fyrirframgreidda
húsaleigu fyrir íbúð sem ég hafði
keypt og vissi ekki hvernig ég ætl-
aði að borga. Fyrstu tíu mánuðina
bjuggum við á skrifstofunni inn af
eldhúsinu, sem var rétt rúmir tíu
fermetrar," segir Tómas.
Uppreiknuð velta fyrsta ársins
var í námunda við 200 milljónir
króna. Boltinn rúllaði og fyrr en
varði voru fimm Tomma-ham-
borgarastaðir komnir á legg. Árið
1982 tók Tómas þátt í stofnun
veitingahússins Pottsins og pönn-
unnar við Brautarholt, ásamt Úlf-
ari Eysteinssyni og Sigurði Sutn-
arliðasyni. Sá staður átti góðu
gengi að fagna, en í janúar 1983
seldi Tómas meðeigendunum
hlut sinn í staðnum.
Nokkru fyrr eða um haustið
1982 opnaði Tómas unglinga-
skemmtistaðinn Villta tryllta Villa
við Skúlagötu. Hann var staðráð-
inn í að reka áfengislausan
skemmtistað fyrir 16 til 20 ára
ungmenni og lagði mikla peninga
og fyrirhöfn í dæmið. Það tókst
ekki sem skyldi. Nafni staðarins
var eftir sex mánuði breytt í Safarí
og í kjölfar þess hófúst vínveiting-
ar. Tilraunin hafði mistekist,
Tómas seldi staðinn í ágúst 1983
og hann tapaði á ævintýrinu.
„Villti tryllti Villi var mín prívat
Kröfluvirkjun. Það kostaði jafn-
mikið að innrétta hann og alla
fimm Tomma- hamborgarastað-
ina til samans," segir Tómas í dag.
Sóleyjargata 5. Þessa fasteign
eru Tómas og núverandi sam-
býliskona hans, Ingibjörg
Pálmadóttir Jónssonar, að
kaupa af Gísla Erni Lárussyni,
fyrrum forstjóra Skandía á ís-
landi.
Katrín Fjeldsted
læknir, borgarfulltrúi
og frænka
„Að lýsa
Tomma er í
raun eins og
að lýsa systk-
ini sinu. Ég
hef til dæmis
ekki tekið
þátt í at-
kvæðagreiðslunum í borgar-
stjórn vegna Hótels Borgar út af
frændseminni.
Tómas er alinn upp hjá afa okk-
ar og ömmu, — ömmu Lovísu
sem Amma Lú er kennd við. Ég
man fyrst og fremst eftir honum
hjá þeim, því móðir hans flutti
til Bandaríkjanna þegar hann
var ungur. Við eyddum mörg-
um sumrunum saman og hann
var mikið hjá foreldrum mínum
á sumrin. Hann var strax mjög
laginn við að umgangast fólk,
enda var mikið um lipurt fólk í
okkar ætt. Það var alltaf mjög
gott á milli Tomma og föður
míns, sem einnig stundaði við-
skipti. Tommi leitaði oft til hans
með márga hluti."
TÆKNILEGT GJALDÞROT
ÞEGAR SPRENGISANDUR
REIS Á 100 DÖGUM
Sumarið 1983 stofnuðu Tómas,
Gissur Kristinsson, Jónas Þór
Jónasson og fleiri hlutafélagið
Gæði, góða þjónustu og stöðug-
leika (GGS). Samhliða var rekin
Kjötvinnsla Jónasar Þórs og
keypti þetta félag flesta Tomma-
hamborgarastaðina. GGS rak veit-
ingastaðina en Kjötvinnslan vann
og útvegaði hráefnið. í september
1984 keyptu meðeigendurnir
Tómas og Helgu út úr GGS og við
það tækifæri breytti hann nafni
Tomma-hamborgara hf. í Bakhús
hf.
Á sama tfma og GGS var að
yfirtaka Tomma-hamborgara fór
Tómas til Bandaríkjamr' ið nýju,
í þetta sinn til að byggja sig upp
líkamlega. Úti var hann meira og
minna allt árið 1984 og út úr þeirri
ferð kom meðal annars nafnleigu-
samningur við Hard Rock Café,
undirritaður í september. „Þar
sem IsaacB. Tygrett, stofnandi og
eigandi Hard Rock, taldi engan
annan stað en hina væntanlegu
Kringlu koma til greina fýrir veit-
Sprengisandur var rekinn á Bústaðavegi 153. Húsið
reisti Tómas á 100 dögum árið 1985 og byggingar-
kostnaður fór úr áætluðum 20 til 25 milljónum í 50
milljónir. Sprengisandur varð Tómasi nær að falli, hann
reri lífróðurog seldi síðan reksturinn. Sonurinn Ingvi
Týr er þó enn skráður eigandi fasteignarinnar.
Amma Lú, sem Tómas opnaði 1990, sama ár og
Glaumbar var opnaður. Báðir staðirnir voru
skráðir á soninn Ingva Tý, í Ijósi fyrri reynslu. f
upphafi stílaði Tómas upp á fína liðið og verð-
lagði dýrt, en í samdrættinum minnkaði að-
Hard Rock Café. Framkvæmdakostnaður var áætlaður
60 til 80 milljónir, en hann endaði f 160 milljónum.
Samt hefur dæmið gengið upp, enda ótrúlega mikil
viðskipti á degi hverjum. Frá upphafi hefur því verið
haldið fram að raunverulegir eigendur séu Vífilfell
(Kók) og Hagkaup. Þvf neitar Tómas staðfastlega.