Pressan - 25.02.1993, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRIÍAR 1993
13
HVERS VEGNA
Mega útlendingar
ekki eiga í íslenskum
sjávarútvegi?
ÞRÖSTUR ÓLAFSSON, AÐSTOÐARMAÐUR UTANRlKISRÁÐHERRA, SVARAR:
Um áratuga skeið hefur verið
um það góð samstaða meðal Is-
lendinga að við ættum að sitja ein-
ir að auðlindum okkar. Þessi af-
staða var hluti af þeirri stefnumót-
un sem sjálfstæðisbarátta okkar
markaði í atvinnumálum. Póli-
tísku sjálfstæði þyrfti að fylgja
efnahagslegt sjálfstæði, og á með-
an við værum að byggja upp eigin
atvinnuvegi og móta samskipta-
reglur við umheiminn, þá var inn-
lent eignarhald í atvinnulífinu
grundvallaratriði.
Þá má ekki gleyma því að
heimsviðskiptin áttu sér á þessum
tíma stað milli sjálfstæðra þjóð-
landa á grundvelli tvíhliða samn-
inga þar sem fjármagnshreyfingar
voru með öllu undanþegnar.
Spurningin um erlenda eignarað-
ild var einfaldlega ekki á dagskrá.
Mikið hefur breyst á sviði al-
þjóðaviðskipta frá tímum þessara
mótunarára. í kjölfar víðtækara
frelsis í vöruviðskiptum hafa fleiri
svið verið að bætast við. Nú eru
ffjáls viðskipti bæði með fjármagn
og þjónustu komin í sama flokk
og venjulegar iðnaðarvörur og
það styttist í að landbúnaðarvörur
verði einnig viðfangsefni frjálsari
viðskiptahátta.
Þá hefur það orðið í mun ríkara
mæli eðlilegur hluti af efnahags-
stefhu einstakra ríkja að fá erlent
fjármagn til þátttöku í innlendu
atvinnulífi.
Við íslendingar höfum talið
okkur hafa sérstöðu hér sem og á
fleiri sviðum. Vegna smæðar oWc-
ar verði fyrirvarar okkar á þessum
sviðum að vera með öðrum og
ákveðnari hætti en annarra. Þetta
er sjónarmið sem allvíðtæk sam-
staða er um meðal þjóðarinnar.
Við megum þó ekki vera svo
óttaslegin og varkár að við sköð-
um eigin atvinnulíf. Við höfum
samþykkt lög sem opna mjög fyrir
fjármagnsflutninga milli Islands
og annarra landa.
Samningurinn um EES kemur
á frelsi á þessum sviðum þótt þar
sé sjávarútvegur undanskilinn.
Fjármögnun fyrirtækja hefur
breyst. Nú er aðaláhersla lögð á
eigin fjármögnun í gegnum hluta-
fé, en áður fyrr var aðaláherslan
lögð á lánsfjármagn sem var að
meirihluta erlent. Þá lánuðu út-
lendingar okkur fé sem var án
áhættu af þeirra hálfu en hafði
ágætis ávöxtun. Nú bæði vilja
menn og þurfa áhættufjármögnun
því menn geta ekki tryggt ávöxtun
án áhættu.
Ef íslenskur hlutabréfasjóður
hefur fengið erlenda aðila með
áhættufjármagn til að taka þátt í
starfsemi sjóðsins, þá er þessum
íslenska sjóði, jafnvel þótt hann sé
að 90% í eigu íslenskra aðila,
óheimilt að gerast eignaraðili í ís-
lensku sjávarútvegsfyrirtæki.
Hér erum við farin að skaða
okkur sjálf. Við erum að takmarka
aðgang íslenskra sjávarútvegsfyr-
irtækja að íslensku fjármagni.
Menn sjá í hendi sér að það er
ekki aðferð til að styrkja íslenskan
sjávarútveg.
Þess vegna er ég hlynntur því
að rýmkað verði um gildandi regl-
ur þannig að íslenskum fyrirtækj-
um, sem e.t.v. hafa erlenda eign-
araðild að hluta, verði heimilað að
leggja fram áhættufjármuni í ís-
lenskan sjávarútveg.
„Efíslenskur hlutabréfasjóður hefur
fengið erlenda aðila með áhœttufjár-
magn til að taka þátt í starfsemi sjóðs-
ins, þá erþessum íslenska sjóði, jafnvel
þótt hann sé að 90% í eigu íslenskra
aðila, óheimilt að gerast
eignaraðili í íslensku sjáv-
arútvegsfyrirtœki. Hér er-
um viðfarin að skaða okkur
sjálf(C
STJÓRNMÁL
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
Steingrímur og
fréttamennirnir
Hafa má litla ffétt, sem birtist í
nokkrum fjölmiðlum á dögunum,
til marks um gagnrýnisleysi þeirra
á stjórnarandstöðuna. Steingrím-
ur Hermannsson lét hafa það eff ir
sér í Bylgjunni og víðar, að erlend-
ar skuldir hefðu aukist hraðar í tíð
núverandi stjórnar en á meðan
hann var sjálfur forsætisráðherra.
í beinu framhaldi af því birtist stór
ffétt í DV um það 18. febrúar, að
erlendar skuldir væru að aukast.
Sýnt var línurit með myndum af
íslenskum forsætisráðherrum og
fjármálaráðherrum þar sem línan
tók stefnu upp á við yfir ásjónum
Davíðs Oddssonar og Friðriks
Sophussonar.
Stephan G. Stephansson orti,
að hálfsannleikur væri oftast
óhrekjandi lygi. Tölur Steingríms,
Bylgjunnar og DV voru einmitt
villandi. Erlendar skuldir höfðu
vissulega aukist hratt sem hlutfall
af landsframleiðslu. En megin-
ástæðan til aukningarinnar var sú,
að landsframleiðslan hafði snar-
minnkað, — ekki hin, að erlendar
skuldir hefðu skyndilega tekið
upp á því að stóraukast. Menn
þurfa ekki langt nám í bamaskóla
til þess að vita það, að hlutfallstala
getur hækkað, ef nefnari hennar
minnkar, þótt teljarinn aukist lítið
sem ekkert. Hér var nefnarinn
landsframleiðslan, en teljarinn er-
lendar skuldir.
Þegar ræða skal um erlendar
skuldir er landsframleiðsla ekki
besta viðmiðunin, ef hún tekur
eins miklum breytingum og hin
síðustu ár. Við slík skilyrði kann
eðlilegri viðmiðun að vera skuldir
næstu ára á undan. Þá eru skuldir
eins árs bornar saman við skuldir
einhvers tímabils á undan, ekki
við landsffamleiðslu. (Allar verða
tölurnar auðvitað að vera á sam-
ræmdu verðlagi, svo að gengis-
breytingar raski ekki samanburð-
inum.) f frétt DV var að vísu getið
um breytingar á erlendum skuld-
um á milli ára, en línuritið var
„Fyrstu tvö ár ríkis-
stjórnar Steingríms
Hermannssonar
jukust erlendar
skuldir miklu hrað-
ar enfyrstu tvö ár
ríkisstjórnar Dav-
íðs Oddssonar. “
ekki dregið effir þeim.
Þegar tölur blaðsins eru skoð-
aðar nánar, en litið framhjá lands-
framleiðslunni, kemur í ljós, að
fyrstu tvö ár ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar jukust er-
lendar skuldir miklu hraðar en
fyrstu tvö ár ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar. Árin 1988-1989 juk-
ust erlendar skuldir úr 192,2 millj-
örðum kr. í 208,8 milljarða kr.,
um 8,6%. Árin 1991-1992 jukust
erlendar skuldir hins vegar úr
208,8 milljörðum kr. í 220,9 millj-
arða kr., um 5,8%.
Tölur DV (sem eru raunar aðr-
ar en ég hef undir höndum, þótt
það breyti ekki niðurstöðum stór-
kostlega) sýna, að núverandi rík-
isstjórn hefur snarhægt á skulda-
söfnun íslendinga erlendis, þótt
henni hafi ekki tekist að stöðva
hana með öllu, enda óhægt um
vik í miðri kreppu. Því er við að
bæta, að fréttamenn Bylgjunnar
og blaðamenn DV mættu spyrja
Steingrím Hermannsson þeirrar
spurningar, hvernig hann geti í
senn mælt með því að taka ffekari
lán erlendis og ráðist á ríkisstjórn-
ina fyrir að auka erlendar skuldir
of hratt. Getur skýringin á full-
komnu gagnrýnisleysi þessara
fjölmiðla verið sú, að þeir séu í
stjórnarandstöðu með Steingrími
Hermannssyni?
Hötundur er dósent við Hl.
STJÓRNMÁL
Úr tengslum við veruleikann
Forystumenn kennara og BSRB
leita nú til umbjóðenda sinna eftir
heimild til að boða verkföll síðari
hluta mars næstkomandi. Með
verkfallsvopnið í höndum telja
þeir mögulegt að þvinga fram
launahækkun í deilum sínum við
ríkisvaldið. Það er með hreinum
ólíkindum að forystumenn verka-
lýðssamtaka skuli vera eins gjör-
samlega úr takt við raunveruleik-
ann, sem við blasir í íslensku efna-
hagslífi, og raun ber vitni. Hitt er
svo annað, að sagan kennir verka-
lýðsforystunni, ekki síst þeim sem
eru í fararbroddi opinberra starfs-
manna, að hægt er að ná nokkr-
um árangri í baráttu við ríkis-
stjórnir. Arangurínn hefur reynd-
ar alltaf verið skammvinnur, enda
samið um það sem ekki er til, en
forystumennirnir geta þó hreykt
sér af „vel“ unnu starfi þegar næst
er kosið í trúnaðarstöður, og ríkis-
stjórn er ánægð með að „friður“
skuli ríkja á vinnumarkaði.
Á sama tíma og þúsundir fs-
lendinga ganga um atvinnulausar
þykir þeim sem leiða BSRB og
kennara rétt að boða til verkfalla.
Krafan er að fá stærri sneið af
köku sem hefur orðið æ minni á
undanförnum árum vegna óráð-
síu og óstjómar í efhahagsmálum
undanfarna áratugi. Þeir sem við
mesta atvinnuöryggið búa telja
best að sækja aukinn hlut úr
minna búi þegar aðrir eru án at-
vinnu. F\Tr eða síðar lendir reikn-
ingurinn á borði skattgreiðenda,
ef ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
stendur ekki af sér fyrirhugað
áhlaup opinberra starfsmanna.
Það skal dregið í efa að forystu-
menn umræddra samtaka fái um-
boð til verkfalls, enda því ekki trú-
að að óreyndu að umbjóðendur
þeirra séu jafnmikið úr takt við
raunveruleikann og þeir. (Sú
spurning vaknar hvaða afleiðingar
það hefur fyrir forystumenn BSRB
og kennara, fái þeir ekki leyfi fé-
lagsmanna sinna til að boða verk-
fall. Og það hlýtur að vera um-
hugsunarefni hve ólík vinnu-
brögðin eru innan verkalýðshreyf-
ingarinnar, annars vegar meðal
BSRB og hins vegar annarra félaga
í ASÍ.) En það er engu að síður
mjög mikilvægt að ríkisstjórnin
taki af öll tvímæli um að staðið
verði gegn nauðasamningum lík-
um þeim sem gerðir hafa verið
alltof off. Hér skiptir engu hvort
opinberir starfsmenn og þá sér-
staklega kennarar eigi sldlið að fá
hærri laun eða ekki. Það versta
sem maður gerir með allt niður
um sig í fjármálum - með gjald-
fallna víxla og óreiðuskuldir út
„Á sama tíma ogþúsundir íslendinga
ganga um atvinnulausarþykirþeim sem
leiða BSRB og kennara rétt að boða til
verkfalla. Krafan er aðfá stœrri sneið af
köku sem hefur orðið œ minni á undan-
förnum árum vegna óráðsíu og óstjórnar
í efnahagsmálum undanfarna áratugi.
Þeir sem við mesta atvinnuöryggið búa
telja best að sœkja aukinn hlut úr minna
búiþegar aðrir eru án atvinnu. “
um allan bæ — er að grípa til
framlengingar og slá ný lán og
halda óhófinu áffam.
Eina leið okkar íslendinga út úr
efnahagsvandanum er að fá hjól
atvinnulífsins til að snúast aftur,
auka bjartsýni á framtíðina og
draga úr eyðslunni, meðal annars
með því að færa hluta vinnuafls-
ins frá hinu opinbera til einkaað-
ila.
Launahækkanir (og skiptir
engu hver á í hlut) stefha í þveröf-
uga átt.
Ríkisstjórnum hefur oft verið
svo mjög í mun að koma á ein-
hverjum samningum og skapa
frið á vinnumarkaði að þær hafa
tekið fullan þátt í gerð óraunhæffa
kjarasamninga og raunar hvatt
sérstaklega til þeirra. Með þessu
hafa stjórnarherrar keypt sér dýr-
an stundarfrið, en ýtt vandanum á
undan sér yfir á næstu ríkisstjórn
og svo koll af kolli. Margt bendir
til að ríkisstjórn Davíðs Oddsson-
ar ætli sér ekki að falla í freistni
heldur standa fast gegn hvers
konar þrýstingi. Það vekur góðar
vonir um að raunverulegur árang-
ur náist á síðari hluta kjörtíma-
bilsins.
Hötundur er tramkvæmdastjóri
Atmenna bókafélagsins.
f
Á UPPLEIÐ
Ólína Þor-
varöardóttir.
Það hefur
ekkert heyrst
af henni
þessa vik-
una. Og þeg-
ar Ólína á í
hlut eru eng-
ar fréttir
góðarfréttir.
Davíð Sche-
ving Thor-
steinsson.
Þjóðin elskar
hann og fyrir-
tækið hans
samkvæmt
könnun Frjálsrar verslunar. Á
einu ári hefur honum tekist
að skjóta Hagkaup, Flugleið-
um, Bónus og Eimskip aftur
fyrir sig.
Kristján Jóhannsson. Og þó.
Hann er í raun ekki á uppleið.
Hann erá
toppnum.
Og kemst
því ekki
hærra. Krist-
ján ersem-
sagt i kyrr-
stöðu.
4
Á NIÐURLEID
Matthías Mathiesen. Það
passar einhvern veginn ekki
fyrir þennan Kennedy Hafn-
arfjarðar að standa í deilum
við bæinn um einhverjar
milljónir. Hann hefði átt að
láta ein-
hverju
ættmenni
sínu eftir
að vera í
forsvari
fyrir Einar
Þorgils-
son og co.
Heimir Steinsson. Ríkisút-
varpið hans er í þrettánda
sæti yfir óvinsælustu fyrir-
tækin á lista Frjálsrar verslun-
ar en kemst ekki á lista yfir
þau vinsælu — öfugt við flest
önnur óvinsæl fyrirtæki.
Heimirget-
ureftil vill
huggað sig
við að Stöð
2 kemst
ekki ofaren
í 33. sæti á
vinsælda-
listanum.
Friðrik Sop-
husson. Jó-
hannes Nor-
dal er búinn
að svipta
hann yfir-
dráttarheim-
ildinni.