Pressan - 25.02.1993, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRÚAR 1993
21
E R L E N T
Grátið í beinni
útsendingu
Bandaríkjamenn hafa löngum
verið þekktir fyrir ómenningu í
sjónvarpi og hefur lágkúrulegt af-
þreyingarefnið sem þjóðin húkir
yfir ffá morgni til kvölds þótt slá
flestu öðru við. Evrópubúar hafa
séð ástæðu til að taka bandarískt
sjónvarp sér til fyrirmyndar og því
hafa frjálsu sjónvarpsstöðvarnar
verið að færa sig upp á skaftið í
ómenningunni hin síðari ár.
ítalir hafa til dæmis markað sér
ákveðna sérstöðu með skemmti-
þáttum sínum í djarfari kantin-
um, þar sem kvenstjórnendur
sýna sig klæðlitlir og þátttakendur
kasta af sér dulunum í hita leiks-
ins. ítölsku barnatímarnir eru
sömuleiðis sér á báti, en þættirnir
eru afspymu frjálslegir og afar
ólíklegir til að ná vinsældum
nema stjórnandinn sé kona, með
ljóst (litað) hár, gerðarleg brjóst
og íklædd efnislitium, örstuttum
kjólgopa.
BÁGBORIÐ SÁLARLI'F HAFT
AÐFÉÞÚFU
Nokkuð er síðan „Reality-TV“
hélt innreið sína í evrópskt sjón-
varp, en sú nýjung hefur átt geysi-
miklurn vinsældum að fagna
beggja vegna Atlantsála. I' þáttum
þessum eru það raunverulegir
hörmulegir atburðir sem sýndir
eru, oft í beinni útsendingu.
Þannig fara sjónvarpsáhorfendur
til dæmis með lögreglunni á vakt-
ina og fylgjast með eltingaleikjum,
handtökum, skothríðum og jafn-
vel morðum.
Þýskaland og Lúxemborg eru
meðal þeirra landa Evrópu þar
sem bæði „Reality-TV“ og djarfir
þættir að ítölskum sið hafa notið
mikilla vinsælda hjá notendum
frjálsu sjónvarpsstöðvanna. Hjá
því varð þó ekki komist að áhorf-
endur yrðu um síðir leiðir á ber-
um brjóstum og eltingaleikjum
við glæpamenn og vildu eitthvað
Lágkúrulegt afþreyingarefni í sjónvarpi á æ meiri vin-
sældum að fagna í Evrópu og virðast engin takmörk
vera fyrir ómenningunni. Nýjum þáttuin hefur nú
verið hleypt af stokkunum þar sem fólk grætur út
sorgir sínar, svarnir óvinir ná sáttum og afbrotamenn
játa syndir sínar í beinni útsendingu.
Kynferðlsafbrotamaður
játar syndir slþar í beinni
útsendingu. *
Kona sættist við bróður sinn (
síma eftir fimmtán ára þögn.
nýtt. Þarlendir sjónvarpsstjórar
neyddust því til að leggja höfuðið í
bleyti og upphugsa nýjar leiðir til
að halda áhorfendum við efnið,
eða öllu heldur skjáinn. Og nú er
allra nýjasta lágkúruhugmyndin
orðin að veruleika, þar sem bág-
borið sálarlíf fólks er haft að fé-
þúfu og það í beinni útsendingu.
SÆTTUST EFTIR FIMMTÁN
ÁRAÞÖGN
Lúxemborgar-sjónvarpsstöðin
RTL, sem sendir út víða um Evr-
ópu, fór nýverið af stað með af-
þreyingarþátt af sálræum toga og
af vinsældunum að dæma virðist
stöðin enn eina ferðina hafa hitt í
mark með metnaðarlausu vali
sínu á sjónvarpsefni. Þátturinn
nefnist Fyrirgefðu mér og er
byggður þannig upp að fólk sem
lengi heíur átt í illdeilum nær sátt-
um frammi fyrir alþjóð. Spennan
er látin magnast á dramatískan
hátt, hinn sáttfusi fenginn í sjón-
varpssal, forsaga málsins rakin og
loks hringt í óvininn, sem búinn
hefur verið undir sýninguna. Sá
mætir í sjónvarpssal, „öllum að
óvörum“, og þátttakendur fyrir-
gefa hvor öðrum, oftast með til-
heyrandi táraflóði.
f einum þættinum var kona á
fimmtugsaldri mætt í sjónvarpssal
þeirra erinda að ná sáttum við
bróður sinn, en þau höfðu ekki
talast við í fimmtán ár eftir riffildi.
Konan hringdi í bróðurinn, sem
var þurr á manninn og spurði
hvað hún væri að vilja eftir öll
þessi ár. í því brotnaði konan
saman og þáttarstjómandin
neyddist til að að taka við símtól-
inu um stund, á meðan hún var
að jafna sig. Samtalið hélt áfram
og loks stundi konan upp ósk
sinni; að bróðirinn kæmi og sækti
hana svo þau gætu farið saman að
gröf móður sinnar. í því birtist
bróðirinu, sem hafði beðið með
þráðlausan síma á bak við þilið,
og þau systkinin féllust í faðma
með tilheyrandi lófaklappi við-
Gyðingar gagnrýna Spielberg
Leikstjórinn Steven Spielberg
vinnur um þessar mundir að
gerð kvikmyndar um nasista
og voðaverk þeirra isiðari
heimsstyrjöldinni. Spielberg
hafði ráðgert að upptökur
færu að hluta til fram á sögu-
slóðum, iAuschwitz íPól-
landi, þar sem er að finna
minjar um illræmdustu út-
rýmingarbúðir Adolfs Hitler. Hafði leikstjórinn fengið eittþúsund statista til liðs við sig og
áttu þeir að leika gyðinga á leið i fangabúðir. Varaforseti heimsþings gyðinga, Kalman
Sultanik, sá sig þó tilneyddan að grípa í taumana og meina Spielberg upptökur íAu-
schwitz, þar sem búðirnar lægju undir skemmdum og þyldu ekki með nokkru móti slíkan
átroðning. ikjölfarið lét Ignatz Bubis, forseti aðalráðs gyðinga í Þýskalandi, í sér heyra.
Hann lýsti opinberlega yfir þeirri skoðun sinni, að það væru hrein helgispjöll, að Spielberg
skyldi hafa látið byggja eftirlikingu af fangabúðum nasista fyrir nokkrar senur myndar
sinnar. Að ekki væri talað um þá fyrirætlun hans að taka hluta myndarinnar upp á sögu-
slóðum; upphaflega í Auschwitz ognúef til vill i Krakau i Póllandi.
staddra áhorfenda.
VIÐURKENNDIKYNFERÐ-
ISLEGA MISNOTKUN
STÚLKUBARNS
Annað feiknavinsælt afþreying-
arefni af svipuðum toga er þáttur
þýsku sjónvarpsstöðvarinnar SAT
1, Geföu þig fram. í þættinum
kemur örvinglað fólk fram í
beinni útsendingu og grátbiður
fjölskyidumeðlimi og ástvini, sem
af einhveijum ástæðum hafa látið
sig hverfa sporlaust, að snúa aftur
heim. Þáttur þessi er feikivinsæll
og einkum foreldrar nota tækifær-
ið og freista þess að endurheimta
böm sín sem hlaupist hafa á brott.
Eins og gefur að skilja er tilfinn-
ingaflóðið í þættinum mikið og
gráturinn sár og komast áhorf-
endur í sjónvarpssal oft ekki hjá
því að verða tárvotir um augun af
meðaumkun, að ekki sé talað um
alla þá er heima sitja.
Einn vafasamasti nýi sálarlífs-
þátturinn er að öllum líkindum
þáttur þýsku stöðvarinnar SAT 1,
Égjáta, en þar fá morðingjar og
kynferðisafbrotamenn tækifæri til
að grátbiðja um fýrirgefningu
syndanna, allt í beinni útsend-
ingu. Nýlegur gestur þáttarins var
maður nokkur sem um árabil hef-
ur misnotað stúlkubörn við gerð
klámmynda. f útsendingunni sat
maðurinn á bak við skilrúm sem
huldi andlit hans. Stjórnandinn
gekk hart að honum og spurði
hann spjörunum úr: „Hvað gerð-
irðu börnunum? Láttu ekki svona
maður, hvað er það sem þú gerðir
eiginlega við þau?“ Maðurinn
neyddist til að skýra frá voðaverk-
um sínum og rifja grátklökkur
upp Ijóta fortíðina og stóðu áhorf-
endur á öndinni á meðan. Gestir
þáttarins Égjáta losna ekki við að
svara óþægilegum spurningum,
en þeim er gefrnn kostur á að
biðja fórnarlömb sín og aðstand-
endur þeirra fyrirgefhingar og það
tækifæri hafa margir afbrotamenn
gripið fegins hendi, enda þótt
vafasamt sé að uppátækið beri til-
ætlaðan árangur.
UMDEILDAR SKOÐANIR
Skoðanir á sálarlífsþáttunum
nýju sem skotið hafa upp kollin-
um að undanförnu eru afar um-
deildar. Ekki skortir áhugann á
meðal þeirra sem aðhyllast af-
þreyingu og lágkúrulegt sjón-
varpsefni. Þættimir hafa að með-
taltali náð til rúmlega fimm millj-
óna áhorfenda og hjá sjónvarps-
stöðinni RTL sækja til dæmis dag
hvem milli 300 og 400 manns um
þátttöku í þættinum Fyrirgeföu
mér. Og á meðan áhorfendur
nenna í stórum stíl að velta sér
upp úr vandmálum annarra og
liggja yfir þáttunum eru sjón-
varpsstjórar og auglýsendur hæst-
ánægðir.
Hinir, sem líta lágkúruna horn-
auga og gera kröfur um metnað-
arfyllra sjónvarpsefni, hafa þó
ekki getað dulið óánægju sína.
Mönnum þykja þættirnir lítils-
verðir og ganga langt út fyrir öll
velsæmismörk. Það geti vart talist
eðlilegt lengur á hvaða stig sýni-
hneigð almennings er komin.
Umsjónarmenn þáttanna hafa
verið gagnrýndir harðlega fyrir að
notfæra sér bágborið sálarástand
fólks og hafa ekkert nema gróða-
vonina í huga, enda þótt þeir þyk-
ist vera að hjálpa fólkinu út úr
ógöngum sínum. Stjórnendurnir
hafa svarað gagnrýninni á þann
veg að þættirnir séu fjarri því að
vera yfirborðskenndir. Þeir starfi
sjálfir af sannfæringu og hafi
djúpa samúð með þátttakendum,
sem séu í mikilli sálarangist og séu
þeim „eilíflega þakklátir fyrir
hjálpina11.
Bergljót Friöriksdóttir
Kynlífsbylting á
Indlandi
Indverska fegurðardísin Mehr
Jesia, ein af eftirsóttustu fýrirsæt-
um í heimi, er í hópi þeirra sem
nú beita sér af öllu afli fýrir frjáls-
um ástum á Indlandi. Hafin er
mikil herferð um allt landið fýrir
frjálslyndi í ástamálum, en hingað
til hefiir allt er lýtur að nekt, kyn-
þokka og kynlífi skilyrðislaust
flokkast undir tabú. Viðhorf
hinna frjálslyndu er svo ólíkt því
sem tíðkast hefur á Indlandi að
ekki er annað hægt en tala um
kynlífsbyltingu. AUt á að verða
kynþokkafýllra en áður, meira að
segja hinn hefðbundni klæðnaður
indverskra kvenna, „sari“, sem
færður hefur verið í nútímalegra
horf af ffamsæknum fatahönnuð-
um. Fyrirsætan Jesia er fremst í
flokki „byltingarsinnna" og hafa
myndir af henni, djarfar á ind-
verska vísu, birst á forsíðu allra
helstu tímarita og á veggspjöldum
sem hengd hafa verið upp í borg-
um og bæjum um alit land. Eitt
gat fýrirsætan þó ekki, enda þótt
himinháar upphæðir væru í boði,
en það var að auglýsa smokkinn.
Sjálf hafði hún ekkert á móti því.
Hins vegar voru það hreintrúaðir
foreldrar hennar, sem töldu að
þar með gengi hún einum of
langt.
Frjálslyndur
bingmaflur
ítalska klámdrottningin og
fyrrum þingkonan Cicciolina
vakti bæði undrun og hneykslan
um allan heim þegar hún tók upp
á því að bera á sér brjóstin, jafnt
innan þingsala sem utan. Vittorio
Sgarbi, þingmaður Frjálslynda
flokksins ítalska, hefur nú fetað í
fótspor klámdrottningarinnar og
opinberað nekt sína, með öðrum
hætti þó. Hugmynd þingmanns-
ins er ekki úr lausu lofti gripin. Ný
auglýsingaherferð Benetton-stór-
veldisins, þar sem sjálfur eigand-
inn, Luciano Bentton, birtist sjón-
um almennings nakinn, hefur
vakið gífurlega athygli um allan
heim, þó einkum á Italíu þar sem
vart hefur verið um annað talað. í
síðustu viku birtist svo öllum að
óvörum samskonar nektarmynd
afþingmanninn Sgarbi á forsíðu
ítalska tímaritsins L’Espresso.
Rétt eins og Benetton hylur Sgarbi
kynfæri sín með höndunum á for-
síðumyndinni, en undir henni
stendur: „Ég er líka nakinn".