Pressan - 25.02.1993, Side 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRÚAR 1993
27
P O P P
VEITINGAHÚS
B A R I R
B í Ó
Fimm fiottustu
leigubílamir
Nýjasti Benzinn í leigubílaflotanum er í eigu
ÓLAFS GUNNARSSONAR. Þessi glæsilegi
Benz 200 D kom hingað til lands í sept-
ember og kostar svona bíll rúmlega
fjórar milljónir króna í umboð-
inu. Ólafur hefur ekið um
á Benz í aldarfjórðung
og stöðvarnúmer
hans hjá Bæjarleiðum
er 18.
Mercedes BenzÁSGEIRS KJARTANSSAONAR kom hingaðtil lands í
september síðastliðnum. Enginn íslendingur hefur keypt
jafnmarga fólksbíla af Ræsi, umboðsaðila Benz,
og Ásgeir en þessi er sá tíundi í röðinni.
Ásgeir hóf að aka um á Benz fyrir þrjá-
tíu árum og segist ekki geta hugsað
sér að notast við aðra bifreiðateg-
und, enda vilji hann láta fara
vel um sig og farþega
sína. Ásgeir er á Bæj-
arleiðum og er núm-
er 23.
Boaomil tf-out
/
a
Bogomil Font og hljómsveit hans Milljónamær-
ingarnir eru nú að búa sig undir gerð fyrstu hljóm-
plötu sinnar. Platan verður tekin upp á tónleikum í j
Hlégarði í mars og hefur hún hlotið vinnuheitið
Costa del Mosfellsbœr. Nafn plötunnar vekur |
óneitanlega spurningar, en Sigtryggur Baldursson,
Bogomil Font sjálfur, segir skýringuna sáraein-
falda.
„Við ætlum að útbúa sólarströnd í Hlégarði í I
Mosfellsbæ og halda þar tónleika 19. og 20. mars.
Það verður mikil mambóstemmning á staðnum og I
skylduklæðnaðurinn að sjálfsögðu stuttbuxur og
Hawaii-skyrta. Við ætlum að flytja suðræna slagara, bæði frumsamda og eins stælda og stolna
ffá Kúbu. Við lítum á okkur sem tónleikaband og því kom ekki annað til greina en taka plötuna
upp á tónleikum. Það er engin tilviljun að Hlégarður varð fyrir valinu, þetta er gott hús og
hljómburður afburðagóður."
Á tónleikunum í mars heldur Sigtryggur uppteknum hætti og tekur gömlu suðrænu slagar-
ana sem Haukur Morthens heitinn gerði ffæga hér á árum áður. Mambóplatan Costa del Mos-
fellsbœr kemur svo út í sumar og er Sigtryggur handviss um að hún verði mesta stuðplata sum-
Þar sem neytendur greiða sama verð fyrir þjónustu allra leigubfla, burtséð ffá gæð-
um þeirra, kostar jafnmikið að láta aka sér um á lítilli og þröngri japanskri blikk-
dós og margra milljóna krória lúxusútgáfu af Mercedes Benz. Þrátt fyrir að leigu-
bflstjórar séu nú blessunarlega hættir að aka um á Volgum, Lödum og pólskum Fí-
at hafa gæði leigubfla minnkað mjög á síðustu árum. Það má meðal annars merkja
á því að nú er meðalaldur bflanna kominn yfir fjögur ár en var tæplega tvö ár fyrir
tíu árum. Erfiðleikar í stéttinni og niðurfelling á ffíðindum, sem leigubflstjórar
nutu við kaup á nýjum bflum, valda því að þeir eiga sífellt erfiðara með að endur-
nýja bfla sína og keyptar eru ódýrari gerðir þegar bílarnir eru endurnýjaðir. Þetta á
þó sem betur fer ekki við um alla og hér að neðan eru alþægilegustu og bestu bfl-
arnir í flotanum að mati þeirra fjölmörgu sérffæðinga sem PRESSAN leitaði til.
Þessi glæsilegi snjóhvíti Oldsmobile Regency Broughan árgerð 1984er íeigu
HRÓLFS SMÁRA JÓNSSONAR á Bæjarleiðum og er einn al-
þægilegasti leigubíll sem fyrirfinnst hér á landi.
Hrólfur, sem fékk bílinn fyrir þremur vikum,
segist þegar vera orðinn var við að vera
pantaður sérstaklega vegna bílsins.
Þrátt fyrir að bíllinn sé nú níu
ára er hann sem nýr,
hann er lítið ekinn og
varfluttur hingað til
í fyrra. Hrólfur
er hjá Bæjarleiðum
og er númer hans 33.
JÓNAS TRYGGVI GUNNARSSON á þennan 5,5 metra langa
Chevrolet Caprice Classic árgerð 1991. Tryggvi, sem flutti
þennan fallega grip inn sjálfur, segist alltaf hafa
haft gaman af amerískum bílum og að
það fari sérlega vel um bæði sig og
farþegana í þessum, enda sé
hann vel rúmur. Tryggvi ek-
ur hjá Bæjarleiðum
og er númer 119.
tölublaði tímaritsins „0“ ætl-
ar sveitin að spila á Tveimur
vinum á sunnudagskvöld.
Hún andar er skipuð þeim
Sigga „pönk“ sem spilar á
gítar, Rögnvaldi „gáfaða“
sem slær bassann, trommar-
anum Magnúsi og söngtví-
eykinu Kikkó og Kristjáni
Pétri. Samstarf þessara pilta
nær langt aftur — í hljóm-
sveitir eins og Parror og
Hrafna — en Hún andar
varð til síðasta haust upp úr
rústum hljómsveitarinnar
Losts.
PRESSAN náði sambandi
norður við Kristján Pétur
rokkbolta, sem virðist ódrep-
andi í rokkfíkninni og var á
ámm áður framvörður Kam-
arorghestanna í Kristjaníu.
Hvað er Hún andar að gera?
„Það er að vanda erfitt að
skilgreina tónlistina,“ segir
Kristján Pétur. „Þetta er ein-
hvers konar kröftug rokk-
tónlist, afsprengi af pönki,
þunga- og hipparokki, og í
sífelldri þróun.“
Er hœgt að tala utn ein-
hvern sérstakan „Akureyr-
arhljóm“?
„Það væri þá helst að
bylgjurnar haidast lengur hér
í bænum. Við erum lengur
að tileinka okkur tískusveifl-
ur og þess vegna gerjast tón-
listin lengur og betur hér.“
Hvernig gengur að út-
breiða rokktrúna ífámenn-
inu?
„Hún andar hefur spilað
þónokkuð oft, svona tvisvar í
mánuði, sem er sæmilegt
miðað við markaðinn. Við
fórum til Skagastrandar um
daginn og var vel tekið. Þetta
var líklega í fyrsta skipti sem
rokktónleikar voru haldnir
þar.“
Mœtti meistari Hall-
bjöm?
„Nei, hann gerði það nú
ekki, en við fómm í spjall við
hann á útvarpsstöðinni hans.
Það var vægast sagt skraut-
legt viðtal. Hann kallaði
hljómsveitina alltaf „Loftið“
og þegar við leiðréttúm hann
og sögðum að hljómsveitin
héti „Hún andar“ tók hann
kipp og sagði „Já, alveg rétt,
hér er komin hijómsveitin
„Loftið sem hún andar“!“
Hvað er það sem rekur
ykkur endalaust áfram í
rokkinu?
„Þetta er bara svo gaman.
Ekki eru það stelpurnar eða
sexið, heldur einfaldlega
rokkið sjálft. Sú tilfinning að
standa á sviði og þenja sig er
ólýsanleg."
Einmitt. Rokkarar og ann-
að gleðifólk: Almennilegt
Akureyrarrokk á Tveimur
vinum á sunnudaginn og til
að fúllkomna kvöldið verður
hljómsveitin Reptilicus einn-
ig á svæðinu og fremur sinn
magnaða seið.
Gunnar Hjálmarsson
BALDUR SIGURÐSSON ekur um á þessum glæsiiega Chevrolet Caprice Classic ár-
gerð 1991. Bíllinn er búinn öilum aukabúnaði sem verksmiðj-
urnar bjóða upp á og er með 175 hestafla V8-vél.
Svona bíll kostar nýr um 3,6 milljónir króna.
Baldur segist hafa talsvert að gera á .
sumrin við að aka útlendingum um
landið vegna stærðar bílsins,
sem tekurfimm farþega.
Baldurekurhjá
Hreyfli og stöðv-
arnúmer hans er
6.
Eitt heitasta bandið á Ak-
ureyri — ef ekki það allra
heitasta — er hljómsveitin
Hún andar. Þeir hafa spilað
á ótal tónleikum fyrir norðan
en nú halda þeim engin
bönd lengur og þeir eru
komnir í bæinn. Auk þess að
taka upp lag fyrir safngeisla-
plötu sem fylgir með næsta
Madonna í myndinni
Body of Evidence.
Madonna
berar siq í bíó
Bandaríska myndin Body of
Evidence, með söngkonuna
Madonnu í aðalhlutverki,
verður frumsýnd í Bíóhöllinni
á morgun, föstudag. Myndin
hefur fengið misjafna dóma
og gaf hið virta tímrit Enterta-
inment Weekly henni miður
góða einkunn, eða C. f Body of
Evidence má sjá feiknin öll af
beru holdi og ótalmargar kyn-
lifssenur, þar sem sadómasók-
isma er gert hátt undir höfði.
Madonna leikur eiganda lista-
gallerís sem verður fyrir þvi að
missa roskinn elskhuga sinn úr
hjartaáfalli, eftir annasama
nótt í rúminu. Hún finnur sér
nýjan elskhuga, leikinn af
Willem Dafoe, og kennir hon-
um eitt og annað um kynlíf.
Umsátrið UnderSiege irk-k
Töffaramynd. Eins konar
þjófnaður á Die Hard. Þrátt
fyrir að Steven Seagal eigi all-
an heiður skilinn stelur
Tommy Lee Jones senunni
(það gera vondu mennirnir
reyndar oftast í svona mynd-
um).
Háskaleg kynni Consenting
Adults kk Þráttfyrir undir-
förult samsæri vantar allan
neista í myndina.
Lífvörðurinn The Bodyguard
k
Aleinn heima 2 - Týndur í
New York Home Alone 2 -
Lost in New York kkkk
3 ninjar★
Fríða og dýrið The Beauty
and the Beast kkk
Umsátrið UnderSiege kkk
Betra framhald af Die hard en
Die Harder. Tommy Lee Jo-
nes stelursenunni.
Háskalegkynni Consenting
Adults kk Vondur maður
rústar lífi ótrúlega venjulegs
fólks.
Farþegi 57 Passenger 57 kk
3 ninjar k
Systragervi SisterAct kk
Aleinn heima 2 - Týndur í
New York Home Alone 2 -
Lost in New York kkkk
32353=1
Elskhuginn TheLoverkkk
Hugljúf saga um ást og losta.
Þeir sem fara í bíó til að sjá
hin margrómuðu djörfu atriði
í myndinni verða fýrir von-
brigðum þar sem þau falla
svo Ijúflega að sögunni að
áhorfandanum finnst þau
eðlilegasti hluturíheimi.
Laumuspil Sneakers kk
Hæg í gang og heldur
ómerkileg þegar upp er stað-
ið.
Baðdagurinn mikli kk
Forboðin spor Strictly
Ballroorn kkk
Howards End kkkk
Karlakórinn Hekla k
Geðklofinn Raising Cain H
Brian de Palma er sjálfsagt of-
metnasti leikstjóri Hollywood.
Hér er hann hrár, óblandaður
og óþolandi.
Rauði þráðurinn Traces of
Red kk Þokkalegur þriller
fyrír þá sem vilja horfa á fleiri
en einn á viku. Nemo litli
kkk
REGNBOGIN N
Svikahrappurinn Man
Trouble k Sönnun þess að
það verður ekki allt að gulli
sem Nicholson snertir.
Síðasti móhíkaninn The
Last of the Mohicans kkk
Svikráð Reservoir Dogs
kkk (raun er þessi mynd
bölvað ógeð, en frábær día-
lógur og ágætur leikur gera
hana að sérstæðri upplifun.
Rithöfundur á ystu nöf
Naked Lunch kkk
Miðjarðarhafið Mediterr-
aneo kkk
Leikmaðurinn The Player
kkkk
Tommi og Jenni ★★★
Sódóma Reykjavík ★★★
Prinsessan og durtarnir
★ ★★
Drakúla Bram Stoker’s Drac-
ula k Góð mynd fyrir áhuga-
menn um förðun, búninga
og umbúðamikla framsetn-
ingu. Aðrir finna fátt við sitt
hæfi.
Hjónabandssæla Husbands
and Wives kkkk Woody
Allen upp á sitt besta — að
minnsta kosti næstbesta.
Þrumuhjarta Thunderheart
kk
Heiðursmenn A Few Good
Men kkk
Á lausu Singles kkk
Casablanca ★★★★ meist-
araverk sem b’atnar með aldr-
inum og verður betra og
betra því oftar sem maður sér
það.
Fríða og dýrið The Beauty
and theBeast kkk
Jólasaga Rrúðuleikaranna
Tlte Muppat Christmas Carol
kkk ■,