Pressan - 11.03.1993, Page 2
FYRST & FREMST
2 PBESSAN
Fimmtudagurinn 1 l.mars 1993
í ÞESSU BLAÐI
4
Bensínstöðvarstríð
i Grafarvogi
Svanhildur Kaaber í de-
bet/kredit
6
Kærður fyrir að stela
3 milljónum frá kókos-
bollufyrirtæki
Guðrún Kvaran svarar fyrir
nafnabannið
8
Heimir Steinsson
var ríkisforstjórinn
9
BHI-Vallá missir
Borgarkringluna
Lánardrottnar taka hanayfir
10
Efraim Zuroff svarar
greinargerð Miksons
Bogi svarar Ingva Hrafni
Már Jónsson skammast
út í Hannes Hólmstein
11
125 milljóna hagnaður
breyttist í 400 milljóna
króna tap
Dœmi um vanþroskuð til-
boðsgögn á hlutabréfamark-
aði
12-13
Eriend lán til að auka
atvinnu?
Hannes skammar
Moggann
Örnólfur skammar Hannes
Mörður fjallar
um Kvennalistann
Sturla Böðvarsson skýrir
hvers vegna sjálfstæðis-
menn vilja ekki frelsi
í lyfsölu
Uppleið og niðurleið
14
Flottasti ársfundar-
fulltrúinn
Bláa lóníð komið
Reykjavíkur
15
Tíska
16
Villtar, trylitar
18
Matur, drykkur og kynlíf
Leyniþrœðir milli matarlystar
ogkynnautnar
20-21
Spiiltir
pólitíkusar
Hneykslið
ítalskra
matina er orðið
svo stórt að eina úrrœðið er að
veita þeim sakaruppgjöf
Emma Thompson
22-23
Leitin að frægð Kristjáns
ítarleg úttekt á dómum um
Kristján í erlendum blöðum
og umsagnir kunnugra um
hœfdeika hans ogfrœgð
24-25
Skáld fyrir dómstólum
Nokkur dcemi af
rithöfundum
sem kœrðir hafa
veriðfyrir meið-
yrði
Þór Tulinius
Stund gaupunnar fær ©
26-27
Of stórir fyrir ísland
Tilraunir íslenskra poppara
til að öðlast heimsfrœgð
28
Sjónvarpið
29
NBA-æði
31
Gula Pressan
HÖRÐUR SlGURGESTSSON. Raunverulegt rekstrartap Eimskips
var ekki 40 milljónir, heldur 270. HALLDÓR BLÖNDAL. Fer ekki
til Kína að smakka lakkrísinn.
Fyrir nokkrum vikum var
Fjórmenningi hf., eignarhalds-
félagi innan fslenska útvarpsfé-
lagsins, skipt upp á meðal hlut-
hafanna. Þá kom í ljós að íjór-
menningarnir sem áttu félagið,
þeir Jón Ólafsson í Skífunni,
UMMÆLI VIKUNNAR
„Ég lítþannig á að hið
svonefnda Hafskipsmál
hafi verið hrein dellafrá
upphafi ogsé svartur
blettur á íslensku réttar-
fari. “
Helgi Magnússon þolandi.
í Hæstarétt
með þá
„Það hljómar ótrú-
lega, en í nánast öll-
um leikjum okkar er-
lendis hefur ekki að-
eins allt gengið upp
heldur höfum við
dæmt yfir getu.“
Stefán Arnaldsson
dómari.
270 en ekki 40
I ársreikningum stórfyrir-
tækja, sem streyma nú út af að-
alfundum þeirra, er sakleysis-
legur liður sem kallast „tekju-
skattsskuldbinding“. Talan,
sem þar er skráð, er áætlaður
tekjuskattur sem fyrirtækið
þyrfti að greiða af væntanlegum
söluhagnaði ef eignir þess væru
seldar og er þarna burtséð frá
því hvort það gerist eða ekki.
Við lækkun tekjuskatts fyrir-
tækja úr 45 prósentum í 39 pró-
sent á þessu ári lækkar þessi tala
verulega og getur það haft um-
talsverð áhrif á niðurstöðutölur
rekstarreikningsins. Á nýliðn-
um aðalfundi Eimskipafélagsins
kynntu þannig Hörður Sigur-
gestsson og félagar 40 milljóna
króna rekstrartap, en inni í
þeirri tölu er lækkun „tekju-
skattsskuldbindingar“ upp á
tæpar 230 milljónir, sem þýðir
að raunverulegt tap Eimskips
var um 270 milljónir, en ekki
40, á síðasta ári. Þessi reiknings-
skilavenja hálffelur því raun-
verulegt tap og mun það vera
raunin hjá flestum öðrum stór-
fyrirtækjum sem eiga umtals-
verðar eignir, svo sem Flugleið-
um og olíufélögunum, þar sem
þessi liður skiptir tugum millj-
óna. Þess má vænta að sama
verði upp á teningnum að ári,
því á næsta ári er gert ráð fyrir
að tekjuskattur fyrirtækja lækki
aftur um sex prósentustig, úr 39
prósentum í 33.
Halldór fer
ekki til Kína
Fyrir skömmu birtust fréttir
af því í Morgunblaðinu að
Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra væri hugsanlega á leið-
inni til Kína að vígja íslenska
lakkrísverksmiðju. Nú er ljóst
að Halldór fer ekki. Ferðin var
hugsuð sem vináttugreiði við
nokkra aðstandendur verk-
smiðjunnar sem eru úr kjör-
dæmi Halldórs, þá Pétur
Bjarnason og Halldór Krist-
jánsson. Þeir komu sem kunn-
ugt er inn í fyrirtækið með Stef-
áni Jóhannssyni viðskipta-
fræðingi eftir að slitnað hafði
upp úr samstarfi hans og Guð-
mundar Viðars Friðriksson-
ar. Ekki er vitað hvort vígslunni
seinkar út af þessu eða hvort
staðgengill fæst fyrir Halldór.
Eftir því sem komist verður
næst eru einhverjar hugmyndir
uppi um að efla frekar sam-
skiptin austur eftir, en hins veg-
ar var ekki alveg ljóst af hverju
samgöngurdðherra íslands átti
að fara til Kína — nema þá
vegna þess að einhvern tíma
stóð til að reisa járnbrautarstöð
þar sem lakkrísverksmiðjan
stendur.
Fjórmenninqarn-
ir skiljq
Nú virðist útséð um að Hrafh Gunnlaugsson fái langþráð
tækifæri til að úthluta styrkjum úr Menningarsjóði útvarps-
stöðva. Ástæðan er sú að í gær kom Hrafn aftur til starfa sem
yfirmaður innlendrar dagskrárgerðar á Sjónvarpinu, en styrkir
úr sjóðnum eru einmitt til dagskrárgerðar í sjónvarpi og út-
varpi. Við heyrum að í menntamálaráðuneytinu teljist það ekki
samrýmast lögum og góðum siðum að Hrafh gegni samhliða
stjórnarformennsku í sjóðnum og því er þess vænst að honum
verði vikið úr stjórninni áður en útíflutun fer ffarn á allra næstu
dögum. Það var enda umrætt þegar Hrafn tók sæti í stjórninni
fyrir ári að hann viki þegar hann hæfi störf hjá Sjónvarpinu, að
sögn Þórunnar Hafstein deildarstjóra. Samkvæmt
öðrum heimildum hefur Ólafur G. Einarsson þó
ekki tekið formlega ákvörðun um þetta enn,
enda munu vandfundnir ásættanlegir arffakar
Hrafhs meðal sjálfstæðismanna í menningar-
geiranum.
Úthlutun styrkja úr Menning-
arsjóði hefur dregist á lang-
inn, meðal annars vegna
fjölda umsókna, dvalar
Hrafns erlendis og anna
annarra stjórnarmanna.
Samkvæmt upplýsingum
PRESSUNNAR hugðist
Hrafn ákveða úthlutanir á
stjórnarfundi síðasta mánu-
dag, tveimur dögum áður
en hann tæki við á Sjón
varpinu, en þeim fundi
og öðrum var frestað
ffam að helgi. Stjórn
armönnum mun
hafa verið tilkynnt
að ekki þýði að
taka neinar
ákvarðanir um út-
hlutanir með Hrafn
Já, berjum þá
með lýðræðinu
„Ég vil einnig taka ff am að
því fer fjarri að ég útiloki aðra
atkvæðagreiðslu um verkfall
ef á þarf að halda.“
Ögmundur Jónasson
verkfallafræðingur.
Hin eini sanni
norræni óvinur
„Ég er á móti norrænu samstarfi. Það
er skelfilegt og alveg gagnslaust."
Indriði G. Þorsteinsson þverhaus.
Það er ekki
nema von
að löggan
vill skjóta
hann!
„Sameinumst ein-
um guði, einum
sannleika, einu
guðs lambi, einum
anda og tökum við
umbun hinna rétt-
látu.“
David Koresh guðslíki.
hausverkjatöflur og kók
ó sama stað
„Við munum lækka lyfjaverðið ef lyf-
sala verður gefin frjáls.“
Jóhannes Jónsson bónuskóngur.
Jóhann J. Ólafsson í sam-
nefndu fyrirtæki, Haraldur
Haraldsson sem kenndur er
við Andra hf. og Guðjón
Oddsson í málningarvöru-
versluninni Litnum, réðu allir
yfir jafnstórum hlut. Áður
höfðu ýmsar hugmyndir verið
uppi um eignaskiptinguna þar á
bæ, en við uppskiptin fékk hver
þeirra um sig hlutabréf í Stöð 2
og Bylgjunni að markaðsvirði
tæpar 19 milljónir króna. Það er
ekki lítil upphæð þegar horft er
til þess að Fjórmenningar hf.
starfaði aðeins í tvö og hálft ár
og að hlutabréfin eru að stórum
hluta til komin vegna launa sem
þeir þáðu fyrir stjórnarsetu og
ábyrgðaþóknanir.
Íón Gunnar
túinn aö borga
til baka
sem formann að svo komnu —
þær muni ráðherra ógilda í ljósi
meintra hagsmunaárekstra
Hrafns. Með Hrafhi í stjórninni
eru Guðni Guðmundsson
rektor, tilnefndur af útvarps-
ráði, og Björg Einarsdóttir,
tilnefnd af frjálsu stöðvunum.
Stjórninni bárust tugir um-
sókna, að upphæð hundruð
milljóna króna, en að líkindum
hefur sjóðurinn um fimmtíu millj-
ónir til ráðstöfunar þetta ár-
ið. Það er það sem eftir
stendur handa dagskrár-
gerðarmönnum þegar Sin-
fóníuhljómsveit Islands
hefur fengið sinn skerf af
fjármunum sjóðsins.
Hrafn
Gunnlaugsson.
Fær ekki að úthluta
styrkjum til dag-
skrárgerðar-
manna.
Ef einhver skyldi muna eftir
Mógilsárdeilunni frá árinu 1990
má rifja upp að í kjölfar hennar
gerði Ríkisendurskoðun bók-
haldsrannsókn á ársreikningum
Rannsóknastöðvarinnar á Mó-
gilsá. Niðurstöður þeirrar rann-
sóknar voru þær að Jón Gunn-
ar Ottósson, sem er núna
skrifstofustjóri í umhverfis-
ráðuneytinu, ætti að endur-
greiða um 170 þúsund krónur.
Það var rökstutt með því að Jón
Gunnar hefði greitt sér ýmsan
kostnað sem honum ekki bar.
Þar á meðal má nefna síma-
kostnað, stöðumælasektir, rit-
laun og hótelkostnað. Eftir
málaferli náðist við Jón Gunnar
dómssátt, sem fólst í því að
hann greiddi 100 þúsund krón-
ur auk 48 þúsund króna í máls-
kostnað. Jón Gunnar hóf að
greiða þetta 5. desember síðast-
liðinn og lokagreiðsla barst nú í
byrjun mars.
Linda P.
truflar æfingar
Valsmanna______________
Alheimsfegurðardrottningin
Linda Pétursdóttir kann að
meta hæfileika þeldökkra
körfuknattleiksmanna og hefur
fengið tvo þeirra, Valsmennina
Franc Booker og John Taft, til
að koma fr am sem módel á sýn-
ingum hjá sér. Þetta hefur lukk-
ast ágætlega, en um daginn
runnu reyndar tvær grímur á
Valsmenn um mikilvægi þess-
ara manna í tískuheiminum. Þá
mun Linda hafa hringt í Svala
Björgvinsson, þjálfara Vals-
manna, og tilkynnt honum að
John Taft kæmist ekki á æfingu
um kvöldið vegna þess að hann
yrði upptekinn við sýningar.
Þjálfarinn varð hálfldumsa,
enda Taft launaður starfsmaður
Vals. Þegar hann benti fegurð-
ardrottningunni á þetta spurði
hún pent hvort Taft gæti ekki
bara farið snemma, áður en æf-
ingu væri lokið, vegna þess að
hans biði jú mikilvæg tískusýn-
ing.
Steingrímur í
Seölabankann
í vangaveltum um stöðu
seðlabankastjóra hefur nafn
Steingríms Hermannssonar
ítrekað komið upp. Nú heyrum
við að alvara sé komin í málið
og framsóknarmenn hafi látið
verða af því að kanna meðal
sjálfstæðismanna og krata
stuðning við að Steingrímur
taki við af Tómasi Árnasyni,
sem lætur af störfum seint á ár-
inu. Ekki hefur frést af við-
brögðum enn, en stóll Tómasar
er „eign“ Framsóknarflokksins
og þyrfti mikið út af að bera til
að það breyttist, úr því Stein-
grímur virðist hafa áhuga á
starfinu á annað borð.
Ólafur G. Einarsson.
Víkur Hrafni úr stjórninni,
en á eftir að finna ásættan-
legan arftaka úrröðum
sjálfstæðismanna.
JÓHANN J. ÓLAFSS0N, JÓN ÓLAFSS0N og HARALDUR HARALD^SON. „Fjórmenningaklíkan"erleyst upp og hver fær tæpar tuttugu milljónirísinn hlut. LlNDA PÉT-
URSDÓTTIR. Sækir liðstyrk íkörfuboltalið Vals. TÓMAS ARNAS0N. Rýmir framsóknarstólinn seinna á árinu. STEINGRÍMUR HÉRMANNSSON. Framsóknarmenn
Sækir liðstyrk
kanna stuðning við að hann verði seðlabankastjóri.