Pressan - 11.03.1993, Side 4
TEYGT A SKIPULAGINU
4 PRESSAN
Fimmtudagurinn 71. mars 1993
fyrir að vera hóflega
bjartsýnn á árangur
íslenska handbolta-
landsliðsins á heims-
meistaramótinu íSvi-
þjóð. Ólíkt mörgum
stefnir Þorbergur ís-
lendingum i áttunda
Kóngulær,
krókódílar
og f roskar
„Nu á dögunum voru tveir
menn stöðvaðir í tollinum á
Kcjlavíkurflugvellijyrir það
eitt að hafa keypt sérgœludýr
erlendis til eignar. Hvaða rétt-
lœti er íþvíað dýrin voru tek-
in umsvijalaust afþeim og
þau aflífuð án nokkursjýrir-
vara? Vegna sérstöðu dýr-
anna, sem voru krókódíll,
jroskar ogkóngulœr, voru
mennirnir dœmdir og sektað-
ir. Smygl er ekki réttlœtanlegt
en vegna óbreytanlegra og
staðnaðra lagaástœða gripu
þeir til örþrifaráða.
Er ekki kominn tími til að
mœta kröfumfólksins oggera
breytingar á lögum um gœlu-
dýrahald og -eign?‘
Doddi dýravinur í DV.
Ólafur Valsson, fulltrúi
yfirdýralæknis: „Hugsuniná
bak við þessi lög er fyrst og
fremst sú að lífnki Islands er
mjög viðkvæmt. Það er alltaf
viss hætta á að sjúkdómar ber-
ist til landsins með dýrum sem
þessum. Það hefur þó verið
leyfður innflutningur á hund-
um, köttum og fleiri gæludýr-
um sem fólk hefúr fengið að
flytja með sér búferlaflutning-
um. En lögin eru síður en svo
gömul; þau eru ffá 1990. Þar
stendur að allur innflutningur
á lifandi dýrum og erfðaefnum
þeirra sé bannaður. Þó má
sækja um undanþágu. Það
verður hins vegar að gerast
fyrirfram. Það þýðir ekki bara
að koma með dýrin og ætlast
til þess að þeim verði hleypt í
gegn. Ég leyfi mér þó að efast
stórlega um að kóngulóm,
froskum og krókódílum yrði
hleypt inn í landið, af fyrr-
greindri sjúkdómshættu. Ég
leyfi mér einnig að efast um að
náttúruverndarráð tæki já-
kvætt á því, því það er mikið í
húfi.“
Tyggi-
gúmmí-
bann
„Fáttfinnst Víkverkjajafn
ógeðfellt, þegar hann þarfað
nýta sérþjónustu opinberra
stofnana og banka, ogað af-
greiðslufólkiðjórtri tyggi-
gúmmí ígríð ogergá sama
tíma ogþað veitir umbeðna
þjónustu. Víkverji á tiokkuð
oft leið í íslandsbankann og
Landsbanka íslands. íþeim
fyrrnefnda sést þaðyfirleitt
ekki að starfsfólkið sitji og
tyggi gútnmí sitt afstakri
áfergju, þarsem það vinnur
stötf sítt, en sötnu sögu er ekki
aðsegja úr Landsbattkanum,
að minnsta kosti ekki úraf-
greiðslustað battkans við
Austurstrœti. Vœri ekki tilval-
ið að opinberar stofnanir og
hverskonar þjónustufyrirtœki
bœttu við eins ogeinni starfs-
reglu, sem beinlínis bannaði
notkun tyggigúmmís?'
Víkverji Morgunblaðsins
Amdís Sigurðardóttir, for-
stöðumaður og staðgengill
starfsmannastjóra Lands-
banka íslands: „Það eru regl-
ur hér sem banna notkun
tyggigúmmís í afgreiðslu
bankans; í afgreiðslunni má
ekki tyggja tyggigúmmí og
hvorki reykja né borða. Þetta
eru skýrar reglur. Það er hins
vegar svolítið erfitt fyrir okkur
starfsmannastjórana að fylgj-
ast með því hvort einhver er
lengi með morgunmatinn
sinn. Með þessu eiga deildar-
stjóri og fúlltrúi á hverjum stað
að fylgjast og biðja viðkom-
andi að láta af ósiðunum."
Okkar á
milli, í
hita...
„Fyrir mér er málið því ein-
falt; Bubbi á eftir að gera eina
plötu vegttafyrsta samnings-
ins ogBubbi ogRúnar eiga
eftir að gera tvœr plötur vegna
þess sem síðar varð hljóm-
sveitin GCD.“
Steinar Berg Isleifsson, Morgunblað-
Bubbi Morthens tónlistar-
maðun „Mín skoðun er mín
skoðun, hans skoðun er hans
skoðun. Þar liggur ágreining-
urinn. Ég tók hins vegar þann
pól í hæðina í byrjun ferÚs
míns að svara aldrei neinu sem
um mig yrði skrifað í blöðin.
Honum finnst þetta rétt og
hann hefur fúlla heimild tU að
finnast hann hafa rétt fyrir sér.
Annars finnst mér þetta mál
ekkert erindi eiga í blöðin.
Þetta er bara okkar á milli.“
Gagnvegur í GRAFARVOGI
7/7 hægri er íþróttasvæði Fjölnis,
ert á grærtu svæði vinstra megin
vilja Gústaf Níelsson, kona hans
Sólrún Árnadóttir og Skeljungur
fá bensínstöð og söluskála.
Skipulagsnefnd borgarinnar
hefur vísað til borgarráðs beiðni
hjónanna Sólrúnar Ámadóttur
og Gústafs Níelssonar, fram-
kvæmdastjóra þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, og svo olíufé-
lagsins Skeljungs um leyfi fýrir
bensínsölu á grænu svæði við
Gagnveg í Grafarvogi. Þessir að-
ilar hafa gert með sér samstarfs-
samning og eru samkvæmt
heimildum PRESSUNNAR að
reyna að þrýsta fram bensín-
stöð á svæðinu þvert gegn sam-
Gústaf Níelsson,
FRAMKVÆMDASTJÓRIÞING-
FLOKKS SJÁLFSTÆÐISMANNA
Hanrt og eiginkonan fengu
litla lóð undir litla sjoppu,
en vilja nú stóra lóð með
bensínafgreiðslu á grænu
svæði.
þykktu skipulagi.
Sólrún og Gústaf fengu leyfi
fyrir söluskála á lóðinni, en hafa
tekið höndum saman við Skelj-
ung um að fá lóðina stækkaða
um 600 fermetra og reisa þar
bensínstöð. Þessu hefúr Olíufé-
lagið (Essó) mótmælt harðlega
og bent á að félagið hafi lagt út í
mikinn kostnað við að reisa
bensínstöð við sömu götu,
reyndar aðeins um 900 metnim
ffá hinni umdeildu lóð.
Samþykkt skipulag í Grafar-
Kristinn Björnsson,
F0RSTJÓR! SKEUUNGS
Þrátt fyrir samþykkt skipu-
lag er bakdyramegin reynt
að knýja fram bensínstöð
aðeins 900 metrum frá stöð
Essó.
vogi gerir ráð fyrir þremur
bensínstöðvum í Grafarvogs-
hverfmu, Olís er með stöð við
Gullinbrú í Foldahverfi, Essó
við Gagnveg í Húsahverfi, en
ekki hefur verið úthlutað vegna
Borgarholtshverfis. Essó bauð á
sínum tíma best í lóðina við
Gagnveg, 8,5 milljónir að nú-
virði, og hefur reist þar 45 til 50
milljóna króna stöð.
900 metrum frá, gegnt
íþróttasvæði Fjölnis, fékk Sól-
rún síðan úthlutað lóð á grænu
GeirMagnússon,
FORSTJÓRIESSÓ
Mótmælti fyrirætlunum
lóðarhafa og Skeljungs og
benti á forsendur þess að
Essó reisti bensínstöð
skammt frá með ærnum til-
kostnaði.
svæði við Gagnveg. Sam-
þykktin miðaði við að þar
yrði 50 fermetra söluskáli
og biðstæði fyrir BSR. í
desember síðastliðnum
lagði Sólrún fram urn-
sókn um 600 fermetra
stækkun lóðarinnar með í
huga 200 til 300 fermetra
söluskála og bensínaf-
greiðslu og hefúr Gústaf,
samkvæmt heimildum
blaðsins, sótt það hart að
leyfið verði veitt. Um-
sókninni fylgdi y'firlýsing
Sólrúnar, Skeljungs og
BSR þar sem greint var
frá gerð samstarfssamn-
ings vegna þessa. Urn
miðjan janúar sendi Geir
Magnússon, forstjóri Es-
só, Borgarskipulagi bréf,
fór fram á að hugmynd-
um um bensínafgreiðslu
á vegum Skeljungs yrði
hafhað og benti á þær for-
sendur sem fyrir lágu
þegar félagið keypti sína
lóð af borginni.
Skipulagsnefnd borg-
arinnar og Umhverfis-
málaráð afgreiddu málið
á þann hátt að fallast á
stækkun lóðarinnar út af
fyrir sig, en vísuðu óskum
um bensínsölu til borgar-
ráðs, þar sem málið er nú
óafgreitt.
Bjarni Dagur smyglaði
sérinná hersvæðið...
Bjarni Dagur Jónsson,
| dagskrárgerðarmaður á Bylgj-
unni, gerði sér lítið fyrir þar-
síðasta miðvikudag og smyglaði sér inn
á hersvæði Bandaríkjamanna við
Keflavíkurflugvöll. Þar ferðaðist hann
um með upptökutæki sem hann talaði
sífellt í á meðan hann fór um svæðið.
Síðar um daginn lék hann spjallið í
þættinum Þessari þjóð á Bylgjunni og
virtist þá yfirmönnum vallarins og öðr-
um hlustendum sem um beina útsend-
ingu væri að ræða. Varð talsvert fát á
vellinum, en yfirmenn þar á bæ líta at-
burði sem þennan mjög alvarlegum
augum, enda hefði allt eins getað verið
hryðjuverkamaður á ferð. Vörðurinn í
vallarhliðinu hefur því örugglega feng-
ið tiltal og rúm-
lega það hjáj
yfirmönnum
sínum, og gera
má ráð fyrir að
Bjami Dagur sé
ekki í miklu
uppáhaldi hjá
þessum ógæfu-
sama einstak-
lingi sem varð
það eitt á að
hleypa hon-
um inn á her-
svæðið...
debet_________svanhildur kaaber kredit
„Hún er hreinskiptin, heiðarleg og áreiðanleg.
Hún er mjög góð í samstarfi, vinnur skipulega og
tekur málefnalega afstöðu og er reiðubúin að
fylgja sannfæringu sinni effir, þó ekki með yfir-
gangi,“ segir ögmundur Jónasson, formaður
BSRB.
„Hún er mjög hreinskilin, opin og segir ávallt
skoðanir sínar á málum,“ segir Indriði H. Þor-
láksson, fýrrum formaður samninganefndar
ríkisins. „Svanhildur er ákaflega fylgin sér og
fylgir málum mjög vel eftir,“ segir Haukur
Helgason, skólastjóri Öldutúnsskóla. „Hún er
skýr, með mikla samstarfshæfileika, á auðvelt
með að einfalda hlutina og síðast en ekki síst er
hún mjög geðgóð,“ segir Guðmundur H. Guð-
mundsson í samninganefhd ríkisins. „Hún er
skipulögð og vill hafa góða yfirsýn yfir þau mál
sem hún fæst við hverju sinni. Henni nægir ekki
að vita sumt um málin, heldur vill hún hafa alla
hluti á hreinu,“ segir Eiríkur Jónsson, varafor-
maðurKÍ.
Geðgóð - eða stíf
og treg samningakona?
Svanhildur Kaaber er formaður Kennarasambands ís-
lands. Nýverið lagði hún til að kennarar færu í verkfall en
meirihluti þeirra lagðist gegn hugmyndinni.
„Varðandi gallana, þá hef ég ekki kynnst
því í fari Svanhildar Kaaber sem ég get sett
undir það mæliker,“ segir Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, sem unnið hefúr náið með Svan-
hildi í samningamálum. „Hún á til dálitla stífni
og er treg til að fallast á málamiðlanir,“ segir
Indriði H. Þorláksson, fyrrum formaður samn-
inganefndar ríkisins. „Svanhildur á það til að
vera of ákveðin í samningaviðræðum, það er
helsti galli hennar frá mínum bæjardyrum
séð,“ segir Guðmundur H. Guðmundsson, sem
situr í samninganefnd ríkisins og hefur átt sam-
skipti við hana á þeim vettvangi. „Hún tekur
ekkert tillit til mín þegar ég vil slíta fúndi til
að horfa á beina útsendingu frá íþróttavið-
burði. Það finnst mér stærsti gallinn í fari
hennar,“ segir Eiríkur Jónsson, varaformaður
Kennarasambands íslands og nánasti samstarfs-
maður Svanhildar.