Pressan - 11.03.1993, Side 5
SK I LA BOÐ
Fimmtudagurinn 11. mars 1993
PBESSAN 5
Heimildamynd um
íslendinga í
Los Angeles...
[Bráðlega halda dagskrár-
gerðarmennirnir Þorsteinn
J. Vilhjálmsson og Jón
Kaldal til Los Angeles í þeim erinda-
gjörðum að búa til heimildamynd.
Myndin, sem hefiir hlotið vinnuheitið
f Englaborginni, er um íslendinga
sem búa í kvikmyndaborginni og á að
segja firá lífi þeirra þar. Verður án efa
fróðlegt að sjá hvað landinn er að
bralla þarna, en margir eru í námi,
aðrir stunda svarta vinnu og svo eru
víst sumir þama sem hugsa bara um
að skemmta sér. Myndin verður sýnd
á Stöð 2 í maí.
Páll Magnússon
næsti formaður
Stúdentaráðs...
Eftir mikið japl, jaml og fuður komust
\ Röskvumenn, sem nú eru í
I meirihluta innan Háskólans,
að þeirri niðurstöðu að
framsóknarmaðurinn Páll Magn-
ússson yrði næsti formaður Stúd-
entaráðs. Páll er sonur Magnúsar
Bjamfreðssonar, hins kunna sjón-
varpsmanns, og þarafleiðandi bróðir
Árna, fyrrum fréttamanns Sjón-
varpsins og núverandi dagskrárgerð-
armanns á FM-957. Þrátt fyrir ungan
aldur, en Páll er á 22. aldursári, er
hann Kópavogsbúum að góðu kunn-
ur fyrir óþrjótandi félagsmálaáhuga
sinn, Þar í bæ skipaði hann meðal
annars þriðjá sætið á lista Framsókn-
arflokksins í síðustu bæjarstjómar-
kosningum og þar áður var hann for-
maður nemendafélags Menntaskól-
ans í Kópavogi hartnær tvö kjörtíma-
bil. Sannkallað félagsmálatröll þar á
ferð.
Guðrúnu líst ekki
á dómshús
Ingimundar...
>Sem kunnugt er eru uppi
I ráðagerðir um að reisa nýtt
dómshús að forskrift Ingi-
mundar Sveinssonar arkitekts á
lóðinni fyrir aftan Landsbókasafnið,
við hliðina á Þjóðleikhúsinu. Guðrún
Jónsdóttir, kollega Ingimundar, sit-
ur í skipulagsnefnd borgarinnar og
hún hefur látið bóka á fundi þar að
hún hafi miklar efasemdir um að lóð-
in sé nógu stór fyrir þetta mannvirki.
Finnst henni að verið sé að stilla
nefndinni upp við vegg og bendir á
þrjú önnur svæði til skoðunar. Það
eru lóðin Skúlagata 20, reitur milli
Ingólfsstrætis, Lindargötu, Skugga-
sunds og Sölvhólsgötu eða reitur milli
Skólavörðustígs, Vegamótastígs,
Laugavegar og Bergstaðastrætis.
Mótmæli Ingva Hrafns og félaga til einskis...
Fyrir allnokkru var talsvert
fjallað um mótmæli vegna fyr-
irhugaðrar byggingar fjölbýl-
ishúss við Bogahlíð 2 til 6 í samræmi við
samþykkt byggingarnefndar borgar-
innar. Mótmælendur vildu ekki una úr-
skurði nefndarinnar og áfrýjuðu til um-
hverfismálaráðuneytis. Hávaðasamastir
mótmælenda voru þeir Ingvi Hrafn
Jónsson, fréttastjóri Stöðvar tvö,
Margeir Pétursson, stórmeistari og
lögfræðingur, Sigurbjörn Magnús-
son, lögfræðingur og fyrrum forystu-
maður ungra sjálfstæðismanna, og
doktor Sveinbjöm Rafrtsson. Nýlega
felldu Eiður Guðnason og félagar
hans í umhverfismálaráðuneytinu þann
úrskurð að leyfið skyldi standa.
Skrifstofuherbergi á leigu
Nýinnréttaðar, bjartar og rúmgóðar
skrifstofur (parket) með aðgangi að
fundarherbergi, kaffistofu, símkerfi, faxi
snyrtingu og sturtu.
Upplýsingar í síma: 985-35566
Reglurnar hans Ólafs Ragnars hækkuðu
tekjurnar um 500 prósent...
»Á sínum tíma varð mikil
breyting á sértekjum ríkis-
sjóðs af réttarkerfinu, sem Ól-
afur Ragnar Grímsson, fyrrverandi
fjármálaráðherra, stóð fyrir. Var þar
meðal annars um að ræða tekjur af alls-
kyns kostnaði við málflutning og réttar-
farsaðgerðir. Eftir því sem komist verð-
ur næst mun þetta að jafnaði hafa fært
ríkissjóði um 500 prósentum hærri
tekjur en áður var. Þama er um að ræða
gjöld vegna fjárnámsbeiðna og upp
boðsbeiðna, svo dæmi séu tekin,
ig að að endingu eru það
sem greiða. Það má segja að þetta hafi
hitt þá fyrir sem veikastir voru. Menn
eru sammála um að í raun hafi aðgerð-
in aukið vanskil ef eitthvað er.
SP^
T?
Árshátíð Heimdallar
Laugardaginn 13. mars 1993
1
Heiðursgestir:
Sigríður Dúna Knstmundsdóttir
og Friðrik Sophusson
Veislustjóri: Viktor Borgar Kjartansson
Bundið mál um stjómmál: Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Undirleikur á píanó; Illugi Gunnarsson
Söngur: Éinar Öm Einarsson
19:00 Fordrykkur að hætti víkinga
20:00 Hátíðarkvöldverður:
Hlaöborð að hætti meistarans
Eftirréttur á köldum nótum
Kaffi og konfekt
Vegna sérstaklega hagstæðra samninga er verð á fordrykk
og hátíðarkvóldverði aðeins 900.- krónur
fyrir Heimdellinga en 1.400.- fyrir aðra gesti.
Verði a öðmm veitingum verður einnig mjög stillt í hóf.
Tekið er a móti miðapöntunum
í síma 68 29 00 á skrifstofutíma
og frá kl. 12:00 til 17:00 á laugardag
22:30 Fagnaður í kjallara Valhallar
Áðgangur ókeypis
18 ára aldurstakmark
Verið velkomin
i-s
Ji
ÞU LEST
PRESSUNA
MEB MURG-
UNMATNUM
• Áskrifendurfá
blaðið í bítið á
fimmtudags-
morgni, ná að
lesaþað áður en
þeirfara í vinn-
una og eru
manna best inni
í málum í morg-
unkaffínu.
Viltu gera góð kaup?
Hefur þú skoðað
afsláttarstandinn
í Pelsinum?
/0
afsláttur
DÆMI UM ÞESSA VIKU:
Minkapelskápur og jakkar,
pelsfóðurkápur og jakkar,
kasmírkápur, ullarkápur,
leðurkápur og jakkar.
Greiðslu-
allra hæfi
Fallegur fatnaöur fra
PEISINN
Kirkjuhvoh • simi 20160