Pressan


Pressan - 11.03.1993, Qupperneq 24

Pressan - 11.03.1993, Qupperneq 24
SKALDIN SKOMMUÐ 24 PBESSAN Fimmtudagurinn 11. mars 1993 FIMMTU DAGU R 11. MARS Leikhúsin • Dauöinn og stúlkan. Frumsýning á verki Chilebú- ans Ariels Dorfman. Leikstjóri er Páll Baldvin Baldvinsson. Leikendur eru Valdimar Örn Flygenring, Þorsteinn Gunn- arsson og Guðrún Gísladóttir. Borgarleikhúsið, litla svið, kl. 20. • My fair lady. Stefán Bald- ursson leikstjóri hefurskilið nauðsyn góðrar útfærslu vel og kostar miklu til. Úrvalsfólk er á hverjum pósti undir styrkri stjórn Stefáns. Þjóð- ieikhúsið kl. 20. • Stræti. Þessi sýning er gott dæmi um það hve stíl- færður og stór leikur fer vel á sviði. Þjóðleikhúsið, Smíða- verkstæði, kl. 20. Leikhúsin • Tartuffe. Frumsýning á hinum fræga gamanleik Moliéres. Leikstjóri er Þór Tul- inius. Aðalhlutverkið er í höndum Þrastar Leós Gunn- arssonar en meðal annarra leikenda má nefna Pétur Ein- arsson, Eddu Fleiðrúnu Back- man, Stein Ármann Magnús- son, Helgu Brögu Jónsdóttur og Guðrúnu Ásmundsdóttur. Borgarleikhúsið kl. 20. • Sardasfurstynjan. ★★★ Kjartan Ragnarsson gerir sitt besta til að setja upp hressa sýningu, en jafnvel Kjartan getur lítið gert við söngvara sem finnst leiklist aðeins vera uppfyllingarefni. Islenska óperan kl. 20. • Stund gaupunnar. I þess- ari sérstæðu glæpasögu er fjallað um himnaríki og hel- víti, sjálfseyðingarhvöt og guð. Leikstjóri er Bríet Fléð- insdóttir. Leikendur eru Ing- var E. Sigurðsson, Guðrún Þ. Stephensen og Lilja Þóris- dóttir. Þjóðleikhúsið, litla svið, kl. 20.30 • My fair lady. Þjóðleikhúsið kl. 20. LAUGARDAGU R~| 1 3. MARS Leikhúsin • Hafið. Þaðerskemmstfrá því að segja að áhorfandans bíða mikil átök og líka húm- or. Þjóðleikhúsið kl. 20. • Dýrin í Hálsaskógi. Hlut- verkaskipan er að því leyti sérkennileg að Mikki refur hefði komist tvöfaldur fyrir inni í Lilla klifurmús. Þjóðleik- húsiðkl. 14. • Stræti. Þjóðleikhúsið, Smiðaverkstæði, kl. 20. • Ronja ræningjadóttir. Það er mikill styrkur fyrir sýn- inguna að svo snjöll leikkona sem Sigrún Edda Björnsdóttir skuli geta leikið hina tólf ára gömlu Ronju án þess að maður hugsi mikið út í ald- ursmuninn. Borgarieikhúsið kl. 14. Rithöfundar og þjóðfélagsumræðan Skáld frammi fyrir dómurum /síðasta blaði varfjallað um þátttöku rithöfunda í opinberri umrœðu og sýndist sitt hverjum um hversu nauðsynleg eða œskileg hún vœri. Hér að neðan eru rifjuð upp dœmi um inn- legg rithöfunda í umrœðuna ísamfélaginu áfyrri árum, sem eiga það sameiginlegt að hafa endað inni í réttarsal. • Blóðbræður. Væri maður tilneyddur að segja eitthvað yrði það líklega að fáum þeirra sem stóðu að þessari sýningu virðist hafa þótt til- takanlega vænt um verkefni sitt. Það var eins og sýningin væri gerð meira með höfðinu en hjartanu. Borgarleikhúsið kl. 20. • Dauðinn og stúlkan. Borgarleikhúsið, litla svið, kl. 20. • Sardasfurstynjan. ★★★ íslenska óperan kl. 20. Klassíkin • Tríó Reykjavíkur heldur tónleika. Á efnisskrá eru verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Ludwig van Beethoven og Felix Mendelssohn. Hafnar- borg kl. 20. • Passíusálmadagskrá í samantekt Heimis Pálssonar í samvinnu við Ríkisútvarpið. Lestur, söngur og hljóðfæra- leikur. Hallgrímskirkja kl. 17. • Annika Hoydal & Gary Snider halda söng- og gítar- tónleika. Norræna húsið kl. 20.30. • Minningartónleikar um dr. Pál ísólfsson á 100. ártíð hans. Flytjendur eru Ingi- björg Marteinsdóttirsópran, Þorgeir J. Andrésson tenór og Lára S. Rafnsdóttir píanó. Á efnisskrá eru 22 sönglög og þrjú píanóverk eftir dr. Pál. Árnes, Gnúpverjahreppikl. 15. Leikhúsin • Dansað á haustvöku. ★ Það voru ekki leikararnir sem brugðust heldur verkið sjálft. Þjóðleikhúsið kl. 20. • Dýrin í Hálsaskógi. Þjóðleikhúsið kl. 14. • Stund gaupunnar. Þjóðleikhúsið, litla svið, kl. 20. • Ronja ræningjadóttir. Borgarleikhúsið kl. 14. • Tartuffe. Borgarleikhúsið kl. 20. • Húsvörðurinn. ★★ Það er margt gott í þessari sýn- ingu, en hún er of löng og vantar hraða. Það mætti skera tuttugu til þrjátíu mín- útur af henni (með ýmsum aðgerðum), en fyrst og fremst ætti að kippa temp- óinu í lag. Islenska óperan kl. 20. • Þrusk. Góð auglýsing fyrir aðstandendur. CaféSólon Is- landus kl. 20.30. Það er gnægð af mönnum sem ljúga opinberlega en eru ekki sóttir til saka. Svo eru aðrir sem segja það sem þeim finnst réttast og sannast og eru dæmd- ir fyrir meiðyrði. Það kann að virðast einkennileg árátta að vilja tukthúsa þá menn sem segja hug sinn fremur en hina sem ljúga, en það kann að vera að löggjafinn nenni ekki að elt- ast við lygarana, þeir eru jú svo margir. Skáld hafa oft verið með munninn opinn þegar aðrir þögðu. Nokkur skáld hafa verið dregin fyrir dómstóla hér á landi fyrir að segja það sem ekki mátti segja og dæmd sek um meiðyrði. En hvað sögðu skáld- in og um hvem? ÞÓBERGUR OG HITLER Fyrst víkur sögunni að Þór- bergi Þórðarsyni, sem snemma á fjórða áratugnum tók að sér að segja það sem segja þurfti um Hitler. Greinar Þórbergs um fólskuverk nasista birtust í Al- þýðublaðinu og vöktu mikla at- hygli. Á einum stað kallaði Þór- bergur Hitler ómenntaðan ösk- urapa og í sömu grein voru kanslarinn þýski og kumpánar hans nefndir „heilaleysinginn Hitler, morfinistinn Goering og þessi Goebbels, sem á myndum lítur út eins og glæpamaður". Þegar Þórbergur birti síðan fyrsta hluta greinarinnar Kvala- þorsti nasista, þar sem hann lýsti mjög nákvæmlega pynt- ingaraðferðum Gestapó, þá var þýsku stjórninni nóg boðið. Þýski konsúllinn á íslandi krafðist þess að íslenska ríkis- stjórnin kæmi í veg fyrir að Al- þýðublaðið birti framhaid greinarinnar. íslenska ríkis- stjórnin tók kæruna til greina. Dómsmálaráðherra fyrirskipaði rannsókn á málinu og sendi lögreglustjóra bréf þar sem fram kom að dómsmálaráðu- neytið gerði ráð fyrir að lög- reglustjóri hindraði útkomu Al- þýðublaðsins með framhalds- grein Þórbergs. Alþýðublaðið neitaði hins vegar að hætta við birtingu greinarinnar og í fram- haldi af því höfðaði þýska ríkið mál gegn Þórbergi og Alþýðu- blaðinu. Sú grein hegningarlaga sem sögð var hafa verið brotin hljóðar svo: „... meiði maður útlendar þjóðir, sem eru í vin- fengi við konung með orðum, bendingum eða mynduppdrátt- um... án þess að tilgreina heimildarmann sinn, þá varðar það fangelsi." Nefnd voru sér- staklega ummæli Þórbergs um Hitler, en í greininni nefndi Þórbergur hann „sadistann í kanslarastólnum þýska“. í undirrétti var Þórbergur sýknaður, en málinu var vísað til Hæstaréttar. Þórbergur íhug- aði um tíma að veija sig sjálfur og til er grein sem hann hafði hugsað sem eins konar varnar- ræðu í Hæstarétti. Þar er hann enn sem fyrr ómyrkur í máli í garð Hitlers: „Hann gargar og skekur sig framan í áhorfend- urna eins og sjúklingur sem hefur brotist út af vitfirringa- hæli... mikill hluti hinnar þýsku þjóðar finnur innilegustu óskir hjartans anda í þessu órökstudda öskri hins sálsjúka manns.“ í greininni spáði Þór- bergur blóðugu stríði og falli nasismans. ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON Hann lýsti æðstu ráða- mönnum Þjóðverja svo: „Heilaleysinginn Hitler, morfínistinn Goering og þessi Goebbels, sem á myndum lítur út eins og glæpamaður." Hæstiréttur íslands sakfelldi Þórberg og gerði honum skylt að greiða þýska ríkinu einhverja aura og hlýtur það að teljast með eymdarlegri dómum í ís- lenskri réttarsögu. Sagt er að mörgum árum seinna hafi Þor- bergur sagt að einhverju sinni hefði hann verið dæmdur fyrir ærumeiðandi ummæli, en sér væri ómögulegt að muna hver fyrir þeim hefði orðið. THOR OG KRISTMANN í maí 1963 birtist grein í tímaritinu Birtingi eftir Thor Vilhjálmsson þar sem höfundur fór hörðum orðum um þá ákvörðun alþingis að veita Kristmanni Guðmundssyni hæstu listamannalaun ásamt Laxness, Kjarval, Gunnari Gunnarssyni og fleirum. í um- mælum sem hljóta að teljast með þeim hressilegri sem rit- höfundur hefur viðhaft um annan sagði Thor: „Það er óaf- máanleg svívirðing frá hendi stjórnmálamanna í garð ís- lenskrar menningar að láta mann eins og Kristmann Guð- mundsson hafa hæstu lista- mannalaun. Það jafngildir því að hrækja í andlitið á hverjum einasta raunverulegum lista- manni þessa lands og spræna yfir alla þjóðina.“ Thor hæddist síðan að þeim starfa Krist- manns að ganga milli skóla og kynna bókmenntir fyrir ung- lingum, en það starf hafði ís- lenska ríkið veitt honum. Kristmann hafði fengið á sig margar gusur á ferli sínum en nú var þolinmæði hans á þrot- um, hann stefndi Thor og fór ffam á skaðabætur. Thor ákvað að veija sig sjálf- ur og beitti bæði háði og hörku í málsvörn sinni. Hann benti á að sér hefði ekki verið birt stefnan fyrr en rúmum sex mánuðum MYNDLIST Líksneiðar og aldinmauk MEDÚSUHÓPURINN GERÐUBERGI GUNNAR J. ÁRNASON h n e i g ð Medúsu- h ó p s i n s . Van Hou- tens Kókó (Matthías, Ólafur, Þór og Einar) og aðrar mús- í k s e 11 u r s p r u 11 u fr am úr bílskúrum borgarinnar og hristu upp í tónelskum ung- mennum. Það er umhugsunarefni að hópurinn skyldi leita fyrir- mynda svo langt aftur, til Lau- tréamonts og súrrealistahóps millistríðsáranna frekar en þeirra sem stóðu þeim nær í tíma, eins og t.d. Williams Burroughs og J.G. Ballard, sem áttu sér víða aðdáendur um þær mundir. Kannski var það framandleikinn sem heillaði, auk þess sem súrrealistarnir voru aðgengilegri og nutu nokkuð almennrar hylli, þrátt fyrir lítt dulinn áhuga á anat- „Það er umhugsunarefni að hópurinn skyldi leita fyrirmynda svo langt aftur, til Lautréamonts og súrrealistahóps millistríðsáranna frekar en þeirra sem stóðu þeim ncer í tíma. “ ómíu getnaðarfæranna. En ég held að Medúsa hafi varla of- boðið velsæmi samborgara sinna, því þetta voru prúðir piltar sem hættu sér ekki lengra en þrjú skref frá öruggri höfn og voru ávallt reiðubúnir að sópa upp eftir sig. Ég sleppi því að lýsa sýning- unni en þar kennir litríkra grasa, eins og t.d. bréfaskrifta vinanna, sem eru til sýnis í kaffistofunni. Það nægir að segja að hún er skemmtileg og ber með sér minningu um góða tíma og fjöruga æsku. Ég er ekki viss um að ég sé rétti maðurinn til að tala um Medúsu, eða hvort verkefnið ætti að falla í hlut kollega míns og nafna hér á blaðinu Hjálm- arssonar. Það er nefnilega mun eðlilegra að líta á athafnasemi Medúsustráka í samhengi við ungdómskúltúr og bílskúrs- músík en að stilla þeim upp andspænis forhertum skæru- liðum evrópskrar gallerímenn- ingar. Sagan er þessi: Hugmynda- ríkir og ffakkir unglingar, full- saddir á ritskýrðum sýnisbók- um fagurbókmennta sem þeir voru skyldugir til að lesa í menntaskóla, höfðu hver uppi á öðrum, þökk sé forsjóninni. Þeir sáu að við svo búið mátti ekki standa og espuðu hver annan til ódáða. Úr bókahillun- um bárust til þeirra fagurskap- aðir glæpir ffanskra súrrealista. Frjóvgvun lukkaðist, enda voru þeir þrútnir af frjósemi. Á ára- bilinu 1979 til 1986 gátu þeir af sér kynstrin öll af andlegum verkum og athöfnum, svo sem ljóð, bækur, myndir, ásamt uppákomum ýmiskonar, fyrir augu, eyru, heila og jafrivel aðra líkamsparta. Ýmsir komu við sögu; Einar Melax, Matthías Magnússon, Ólafur Engilberts- son, Þór Eldon og Jóhamar, að ógleymdum Sjón. Um skeið voru höfuðstöðvar hópsins í Skruggubúð, skúr við Suður- götu sem stóð við hliðina á Kastalanum, þar sem var með- al annars staðið fyrir „alþjóð- legri sýningu á guðlastsgrip- um“. Tónlistin fékk líka að finna fyrir ástleitinni ofbeldis- THOR VILHJÁLMSSON Hann var ósáttur við Heimsbókmenntasögu Kristmanns Guðmundsson- ar:„Það er óafmáanleg sví- virðing frá hendi stjórn- málamanna I garð íslenskr- ar menningar að láta mann eins og Kristmann Guð- mundsson hafa hæstu lista- mannalaun. Það jafngildir því að hrækja í andlitið á hverjum einasta raunveru- legum listamanni þessa lands og spræna yfir alla þjóðina." eftir útkomu tímaritsins en heimild til að höfða einkamál fellur niður sex mánuðum eftir að sá sem heimildina hefur fékk vitneskjuna um þann sem hann ætlar sekan. Thor benti á að Kristmann gegndi því ábyrgð- arstarfi að lcynna bókmenntir í skólum og þyrfti vegna þess starfa að kynna sér það hvað væri að gerast hverju sinni í bókmenntaheiminum. Það að hann skyldi ekki hafa lesið eitt virtasta bókmenntatímarit landsins fyrr en sex mánuðum eftir útkomu þess benti til van- rækslu í starfi, en slfkt varðaði sekt samkvæmt hegningarlög- um. Thor gaf einnig í skyn að hann ætti jafnauðvelt með að stefna Kristmanni og Krist- mann sér og sagði að ummæli Kristmanns í ritdómi um bók sína væru þess eðlis að þau hlytu að falla undir meiðyrði. í bæjarþingi Reykjavíkur lagði Thor fram greinargerð sína um Heimsbókmenntasögu Kristmanns, en Thor sagði verkið „svo meingallað að það má beinlínis teljast skaðlegt ófróðum lesendum11 og: „í þessu verki ríkir undarlegur óvildarhugur til þeirra manna sem hefur borið hæst í bók- menntunum. Einhver gæti haldið að stefnanda væri bara hreint ekkert vel við bókmennt- ir. Bara að ríkisvaldið hefði nú athugað þann möguleika í tæka tíð... í þessa Heimsbók- menntasögu stefnanda vantar heilar heimsálfur.11 Thor sagði að fyrst verið væri að tala um glæp á annað borð mætti víkja að ritstuldi sem sannast hefði á Kristmann þeg- ar hann vann að bókmennta- sögu sinni: „Ég veit að það eru til menn sem ftnnst ritþjófnaður vera bara eðlilegur þáttur í sjálfsbjargarviðleitni en hins- vegar hef ég þá trú að dómstól- arnir eigi ekki að verja þá sem slíkt stunda né aðra afbrota- menn.“ Meðal þess sem Thor var sakaður um var að hafa brotið gegn lögum um uppljóstrun einkamála. Þar kom Thor af fjöllum: „Ég hef nákvæmlega engan áhuga á einkamálum stefnandans, kannski mér verði nú næst stefnt fyrir það tóm- læti.11 Thor vék svo að þeim um- mælum sem álitin voru æru- meiðandi: „... með leyfi dóm- arans vildi ég aðeins mega víkja að hinu litla orði að spræna. Eg leyfi mér að fullyrða að það var hið kurteislegasta orð sem völ var á í þessu sambandi. Stefn- andi kallar þetta eitt af sóðaleg-

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.