Pressan - 11.03.1993, Síða 27

Pressan - 11.03.1993, Síða 27
BROT UR POPPSOGUNN Fimmtudagurinn ll.mars 1993 PRESSAN 27 Þótt flestir sætti sig við sudd- ann, kuldann og okrið á bjórn- um langar flesta inn við beinið að flytja af skerinu. Þessi útþrá sýður upp úr í harðæri. Hjá ís- lenskum poppurum virðist allt- af ríkja harðæri, því á öllum tímum hefur einn helsti draum- ur þeirra verið að reyna fyrir sér í útlöndum. Þótt fæstir fáist til að viðurkenna það hlýtur blái draumurinn um erlenda stór- markaði að vera ein megin- ástæðan fyrir endalausu úthaldi sumra poppara. Og er það nema von: fátt er leiðinlegra en þræða krummaskuðin, spila ár eftir ár fyrir sömu drukknu bail- gestina, á sömu þreyttu pöbb- unum í bænum, og gefa út plöt- ur sem útgefandinn græðir á ef vel fer, en popparinn pungar út fyrir ef lítið selst. Er nema von að risastórir erlendir markaðir og endalausir möguleikar freisti þegar toppnum á íslensku rokk- tilverunni er náð og menn búnir að koma fram hjá Hemma Gunn? Til þessa hafa aðeins Mezzo- forte og Sykurmolarnir náð einhverjum árangri í útlöndum. Molarnir hafa náð lengst allra íslenskra hljómsveita og er óhætt að fifllyrða að langt verði þar til önnur íslensk hljómsveit verður viðlíka risavaxin á .ak" þjóðavísu. En hvað með alla hina? Hér segir af nokkrum hljómsveitum sem ætluðu sér stóra hluti. Af erlendum soðgreifum sem slógu um sig og lofuðu gulli og grænum skógum, og poppur- um sem féllu fyrir gylliboðun- um í hrönnum, eins og hverjir aðrir ráðherrar með álglýju. Hér segir einnig af böndum dagsins í dag og frægðaráætlunum þeirra. Thor's Hammer kynna skinnsokka Erlendu stórdraumarnir eru rótgrónir í íslenskum popp- heimi. Sjálfir bítlakóngarnir í Hljómum voru ekki fyrr búnir að gera allt brjálað með „Fyrsta kossinum" en þeir voru farnir að leggja drögin að heimsfrægð- inni. Nú vildu þeir fá enskar smápíur til að grenja úr geðs- hræringu og héldu því til bítla- landsins. Fyrst fóru Hljómamir í stuttan túr haustið 1964 og spiluðu m.a. í bítlabælinu The Cavem í Liverpool. Aðaltilgang- ur ferðarinnar var þó að verða vitni að bítlaæðinu og biðu Keflvíkingarnir m.a. á Heat- hrow-flugvelli ásamt öðrum trylltum aðdáendum Bítlanna Change Félagarnir lögðust i æfingar og upptökur í London og urðu brátt þekktir hjá breskum upptöku- ogsessjónmönnum sem„The giris from lceland"afaugljósum ástæðum. GuðlaugurBergmann, TÍSKUKÓNGUR í KARNABÆ Vildi nota frægð Hljóma í Skandinavíu til að kynna ís- lenskan tískuvarning: gæruvesti og skinnsokka. til að sjá goðin snúa heim úr sinni fyrstu og frægustu Banda- ríkjaför. Með spiliríi á vellinum kynntust Hljómarnir nokkrum veraldarvönum Könum. Þeirra á meðal var Dan nokkur Ste- vens, sem tók við sem umboðs- maður sveitarinnar af Ámunda Ámundasyni. Dan kom Hljómunum í samband við EMI-hljómplötusamsteypuna og í framhaldi af því gerði sveit- in samning við Parlophone. I annarri ferð sinni til Lundúna 1966 tók sveitin, sem nú kallaði sig Thor’s Hammer, upp átta lög sem seinna komu út á þremur smáskífum. Um þetta leyti höfðu Hljómar lagt í gerð bítlamyndarinnar „Umbarum- bamba“ með Reyni Oddssyni. Fyrirhugað var að myndin yrði um hálftími á lengd og áttu lög- in átta að vera í henni. Þegar til kom varð myndin aðeins 13 mínútur og að flestu leyti út í hött, og gekk aðeins sem auka- mynd í Austurbæjarbíói í tvo daga. Smáskífumar þrjár komu seint og um síðir á markaðinn og gerðu sig illa. Hér heima þótti tónlistin tormelt og ensku textarnir fráhrindandi og úti hurfu plöturnar í bítlaflóðinu. Því verður þó ekki neitað að þetta efni Hljómanna er fram- sæknasta og rokkaðasta tónlist sem frá íslenskri hljómsveit kom á sjöunda áratugnum. Nokkru síðar kom Dan Hljómum í samband við CBS- fyrirtækið í New York og þar kom út smáskífa 1967. Hljóm- amir héldu utan og seinna sagði Gunnar Þórðarson um Dan og plötuna: „Hann borgaði fyrir mig allt uppihald og tók þátt í ferðakostnaði. Síðan höfum við ekkert heyrt frá honum og aldrei fengið grænan túkall fyrir plötuna." Þær sögur gengu hér á meðal tónlistaráhugamanna að platan hefði komist í 6. sæti á vin- sældalista í Michigan, en þar var víst bara um að ræða eina út- varpsstöð í fylkinu. Snemma árs 1968 gerðist Þráinn Kristjánsson umbi Hljómanna og vildi ólmur gera þá stóra í Skandinavíu, þar sem hann hafði sambönd. Hljómar héldu til Svíþjóðar í samráði við Guðlaug Bergmann í Karna- bæ, sem hugðist láta sveitina kynna íslenska tískufram- leiðslu; gæruvesti og skinn- sokka. Hljómsveitin vakti lukku á norrænni popphátfð í Stokk- hólmi og lék nokkur kvöld á Cirkeln-klúbbnum. „Við hefð- um getað komist að sem önnur eða þriðja hljómsveit með Spencer Davis Group, en okkur /tfannst það ekki nógu gott,“ var haft eftir Erlingi gítarleikara sem bætti við: „Okkur líkaði annars vel í Svíþjóð og Cirkeln- klúbburinn var mjög skemmti- legur — en allir í dópinu.“ Enn eru því Hljómar óþekkt stærð í Skandinavíu, eins og skinn- sokkarnir hans Guðlaugs. Síðasta frægðartilraun Hljómanna varð jafnendaslepp og hinar fyrri. Hljómsveitin kynntist „glansgæjunum" John Yeact og Gene Maas á vellin- um og þeir gerðu sveitinni til- boð um þriggja mánuða tón- leikaferð um Bandaríkin. Hljómar slógu til að vandlega athuguðu máli, en þegar til kom varð lítið úr framkvæmdum. ÓmarValdimarsson, þá BLAÐAMAÐUR Á MOGGA „Hér gerast hlutirnir hratt og óvænt. Dag einn kom hingað maður, Freddie Scott að nafni. Hann er um stjarna hér ílandi, raunar meiriháttar stjarna, söng m.a. „Hey girl" eftir Carole King einhvern tímauppúr 1960." Yeact og Maas luku herþjón- ustu og fóru heim, en Hljóm- arnir biðu vongóðir eftir ex- press-sendingu með samningn- um. Þegar þeim fór að leiðast þófið var hringt út og kom þá í ljós að glansóþokkarnir voru farnir í frí til Flórída og löngu búnir að gleyma saklausu Hljómastrákunum á Islandi. Change sigra heim- inn — ekki Árið 1973 fóru Jakob Magn- ússon, Tómas Tómasson og Þórður Árnason til London og ætluðu að reyna fýrir sér með hljómsveitina Rifsberja. Um sama leyti fóru fóstbræðurnir ús og jóhann til Englands, svo úr varð hópur íslenskra popp- ara í Lundúnum. Magnús og Jó- hann höfðu fengið samning hjá Orange-fyrirtækinu og var sagt að drífa sig út svo hlutirnir gætu farið að ganga. Orange var reyndar aðallega framleiðandi hljómburðartækja — og í dag eru gamlir magnarar frá þeim vinsælir hjá enskum böndum sem vilja endurvekja glysrokkið — en plötuútgáfan var aukabú- grein hjá þeim. I fýrstu störfuðu Magnús og Jóhann undir nafninu Pal Brothers en þegar á leið smöl- uðu þeir félögum sínum í Eng- landi saman í band og úr varð hljómsveitin Change. Birgir Hrafnsson og Sigurður Karlsson gengu í bandið, en síðar slógust Björgvin Hall- dórsson, Jakob og Tómas í hópinn. Jón Ólafsson Skífu- kóngur — þá framkvæmda- stjóri „Joke“-umboðsskrifstof- unnar — var einnig viðloðandi bandið sem útréttari. Jakob hætti fljótlega en Tómas hélt út, enda búinn að reyna ýmislegt í enska bransanum og því vænt- anlega feginn að komast í hóp íslendinga. Tómas hafði m.a. gengið í hljómsveitina KISS, að vísu ekki þá máluðu, þótt ef- laust hefði Tómas getað rekið út úr sér tunguna eins og Gene Simmons. Á þessum tíma stóð orku- kreppan sem hæst og Orange- fyrirtækið sagði öllum hljóm- sveitum sínum upp nema Change og John Miles Set. Fyr- irtækið lagði nokkra fjármuni í Change og var búist við að pen- ingarnir kæmu „margfalt til baka þegar plöturnar fara að seljast í risaupplögum" — eins og lesa má um í Morgunblaðinu 1974. Félagarnir lögðust í æfing- ar og upptökur og urðu brátt þekktir hjá breskum upptöku- og sessjónmönnum sem „The girls from Iceland" af augljós- um ástæðum. Tónlistin var syk- ursæt sápukúlutónlist og tíðar- andinn glysgjarn svo allt leit út fyrir að piltarnir mundu meik- aða. Loksins kom út tvöfaldur smáskífupakki en viðtökur voru vondar, salan dræm og dómar frekar neikvæðir. Aftur var reynt með breiðskífu (þessari með frosna plötuspilaranum framan á) en allt kom fyrir ekki; Englendingar höfðu bara ekki áhuga — jafnvel þótt Change- menn klæddu sig upp í æðisleg- ustu hljómsveitargalla sem um getur. Ekki bætti úr skák að hljóm- sveitin fékk aldrei tilskilið at- vinnuleyfi til tónleikahalds og var því í hálfgerðri biðstöðu þau tæplega tvö ár sem á ævintýrinu stóð. Þegar ljóst varð hvert stefndi tímdu Orange og Jón „Joke“ ekki lengur að setja pen- inga í fyrirtækið og Change hætti síðla árs 1975. Pelican og sveittu ístru- beigirnir Á meðan „stelpurnar frá íslandi“ skræktu fyrir daufum eyrum á Englandi tryllti Pelic- an æskuna hér heima. Sveitin var Popp FIMMTUDAGUR 1 1 . MARS • Club Wild er nýja nafnið á næturklúbbnum Berlín þetta eina kvöld. Útlit og tónlist staðarins verða í anda þess sem gerðist árið 1970. Það eru Linda Pé og módelsam- tök hennar, Wild, sem standa fyrir uppákomunni. • Vinir vors og blóma spila létt rokk á Plúsnum í kvöld. Þorsteinn Ólafsson annast söng, Birgir Þórsson tromm- ar, Siggeir Pétursson bassar, Njáll Þórðarson slær á hljóm- borðið og Gunnar Eggerts- son plokkargítarinn. • Egill Ólafsson, Magnús Kjartansson & Suðursveitin halda uppi suðrænni sveiflu í tilefni væntanlegrar sumar- komu á Tveimur vinum. Bláa lónið verður á staðnum. • Tómas R. Einarsson, Sig- urður Flosason & Eyþór Gunnarsson mynda tríó sem leikur í kvöld á Óperudjass- hátíðinni á Café Romance í minningu Guðmundar Ing- ólfssonar. • Hermann Ingi trúbador leikurá Feita dvergnum í kvöld og Gammeldansk- kynning verður í hverju horni. • Reggae on lce er eina ís- lenska reggae-sveitin. Fyrir það eitt fær hún stóran plús. Hún verður á Gauk á Stöng í kvöld. • Synir Raspútíns hefja langferð sína á Hressó með hádramatískri rokktónlist með erótísku ívafi, seiðandi takti og eggjandi dansi. Þessa lostafullu sveit skipa þeir Kolbeinn Óttarsson Proppé slaggígjuleikari, Krist- inn H. Magnússon Schram baritón, Hafþór Ragnarsson kontratenór, Baldvin A. Bald- vinsson slagverksleikari, Val- ur Logi Einarsson rafgígja og Ólafur Kristinsson djúpgígja. • Guðmundur Rúnar fær sér reiðtúr á Fógetann. • Rúnar Þór og hljómsveit skemmta Seltirningum og nærsveitungum á Rauða Ijóninu. • Tregasveitin verður í öng- um sínum á Plúsnum. Sem fyrr eru það feðgarnir Pétur Tyrfingsson og Guðmundur Pétursson sem spæna upp gítarinn. Aðrir sem koma við sögu eru Sigurður Sigurðs- son, sem vælir og blæs í munnhörpu, Jóhann Hjör- leifsson, sem trommar, og Stefán Ingólfsson, sem gælir við bassann. • Stjórnin hefði betur gefið út plötu á þessu ári. Þau fara sjálfsagt í sumarstuð fljótlega því vorvindarnir eru farnir að blása á Tveimur vinum. • Sif Ragnhildardóttir hleypir nýju blóði í gamla en ódauðlega söngva Marlene Dietrich. Frumflutningur á Ömmu Lú í kvöld. • Hermann Ingi einfari heldur áfram að kyrja söngva og plokka gítarinn á Tveimur vinum. • Reggae on lce heldur áfram að syngja óskiljanlega en seiðandi söngva á Gauk á Stöng. • Björgvin Halldórsson & söguspéið; Halli, Laddi, Lolla og Hjálmar spauga á Hótel Sögu. • Geirmundur Valtýsson skemmtir árshátíðargestum og fleirum til á stórsýningu sinni á Hótel Islandi. • Kandís og sól i heiði með George Grossmann, Dan Cassidy, Kalla og Pétri á Blús- barnum. • Bara tveir eru tveir ein- mana Keflvíkingar sem spila á Fógetanum. LAUGARDAGU R 1 3. MARS • Tregasveitin heldur áfram að væla og gæla við hljóð- færin á Plúsnum. • Sálin hans Jóns míns er nú komin til Hafnarfjarðar í tilefni þess að Fjörðurinn á fjögurra ára afmæli. Nú fer hver að verða síðastur. • Vinir Dóra og allir hinir spila á Tveimur vinum í kvöld. • Hermann Ingi á loka- kvöldinu í bili á Feita dvergn- um. • Björgvin Halidórsson, hljómsveit hans og allir hinir grínistarnirá Hótel Sögu. • Geirmundur Valtýsson er algert sökksess á Hótel Is- landi: Hann er þegar búinn að selja sig fram á mitt sum- ar! • Rúnar Þór og hljómsveit halda áfram á Rauða Ijóninu. • Kandís leikur soul í anda Commitments. Það er mikið fjör á Blúsbarnum þegar þeir eru annars vegar, svo er að minnsta kosti sagt. • Bara tveir verða aftur einir á Fógetanum. SUNNUDAGUR 14. MARS • Magnús Eiríksson & Pálmi Gunnarsson eru gam- alt tvíeyki sem enn heldur velli. Þeir spila á Óperudjass- hátíðinni á Café Romance í kvell. • Magnús Einarsson Fáni fetar í fótspor Hermanns Inga á Feita dvergnum. • Gamla rottan er enn jafn- loðin. Nú er Richard Scobie tekinn við sér. Þeir verða á Gauk á Stöng. • Cats eða Kettir eru dúett en þó enginn kattadúett. Hann verður á Blúsþarnum. • Guðmundur Rúnar verð- urá Fógetanum. Sveitaböll FOSTU DAGUR 1 2. MARS • 1929, Akureyri: Konung- leg tónlist í kvöld með stór- hljómsveitinni Friðriki XII., sem er tólf manna sveit. • Hótel Akranes Trúbador- arnirÞorgeirog Leifvið míkrófóninn íkvöld. LAUGARDAGU R 1 3. MARS • 1929, Akureyri verður aft- ur með tólf manna stórsveit- ina Friðrik XII. • Hótel Akranes. Stjórnin leikur fyrir dansi.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.