Pressan - 14.10.1993, Page 5
S K I L A BOÐ
Fimmtudagurínn 14. október 1993
PRESSAN 5
±r að var mikill hamagangur í
öskjunni þegar verið var að setja
upp Þrettándu krossferðina í
leikstjórn
Þórhildar
Þorleifsdótt-
ur. í leik-
munadeild
og sviðsdeild
Þjóðleik-
hússins eru
níu fastir
starfsmenn,
auk fjögurra lausamanna, og
unnu þeir í 1.900 tíma síðustu
tíu dagana fyrir frumsýningu.
Þess má geta að Þórhildur Þor-
leifsdóttir var fastráðin sem leik-
stjóri á síðasta leikári og átti að
setja upp annars vegar My Fair
Lady, sem Stefán Baldursson
leikstýrði á endanum, og hins
vegar Þrettándu krossferðina,
sem varð að ffesta vegna pláss-
leysis. Þórhildur varð að hafna
öðrum verkefnum vegna fast-
ráðningarinnar og ákvað því að
hún hefði ekki efni á að fastráða
sig aftur...
I allri umræðunni um jeppa-
bíla hafa ýmsar góðar bílasögur
rifjast upp. Ein er sú að það
vakti athygli
margra þegar
Björn Ingi-
marsson,
fyrrverandi
forstjóri
Miklagarðs
hf., keyrði
burtu frá
Miklagarði á
forstjórajeppanum þegar hann
hætti þar síðasta vetur og
skömmu síðar var fyrirtækið
lýst gjaldþrota. Bjöm hafði haft
Chevrolet Blazer-jeppa árgerð
1991 til umráða og vakti það at-
hygli að hann hélt jeppanum
þótt hann hætti hjá fyrirtækinu.
Það skýrist hins vegar af því að
hann keypti jeppann af verslun-
ardeild Sambandsins á gamlárs-
dag árið 1991, en verslunar-
deildin hafði keypt hann árið
áður. Þess má geta að Bjöm hef-
ur nú selt jeppann...
Jtr að eru fleiri en bankastjórar
>em kaupa sér jeppa þessa dag-
ana. Sést hef-
ur til for-
m a n n s
einkavæð-
ingarnefnd-
ar, Hreins
Loftssonar,
á splunku-
nýjum Ford
Explorer sem
kostar skildinginn. Ekki fylgir
sögunni hvort formennsku í
einkavæðingarnefnd fylgja
sömu kjör og ríkisforstjórar
njóta, en líklegra er talið að lög-
maðurinn hafi pungað út fýrir
bílnum sjálfum...
n
V_J uðmundur Jónsson
hæstaréttarlögmaður hefúr fyrir
hönd danska fyrirtækisins
Bonniers Specialmagasiner A/S
höfðað mál á hendur Sambandi
íslenskra samvinnufélaga. Málið
er sprottið út af viðskiptum með
garn sem danska fyrirtækið átti
við iðnaðardeild SÍS í árslok
1987. Gamið var keypt til kynn-
ingar á vörusýningu Bonniers
Specialmagasiner og voru kaup-
samningar þeir, að Danirnir
gætu að sýningunni lokinni skil-
að því sem ekki seldist. I lok árs-
ins endursendi fýrirtækið megn-
ið af garninu, enda virtist það
ekki hafa fallið í góðan jarðveg
hjá sýningargestum. Forráða-
menn iðnaðardeildar, sem þá
var orðin að Álafossi, vom hins
vegar ekki á þeim buxunum að
endurgreiða vömna, en upphaf-
legt kaupverð garnsins var um
tvær miUjónir króna, nú fjórar
til fimm miUjónir. Þegar hvorki
gekk né rak í málinu afréð
danska fyrirtækið að lögsækja
SÍS og er nú tekist á um það
hvort málið sé fýrnt eða ekki.
Forráðamenn SÍS líta svo á að
fjögurra ára fyrningartími þess
sé þegar liðinn, en sækjandi tel-
ur hann hins vegar hafa byrjað
ári eftir gjalddag kröfu, þ.e. fyrst
í árslok 1989, og því fýrnist mál-
ið ekki fyrr en um næstu ára-
mót...
næstu vikum verður
opnuð í Laugardalslauginni að-
staða þar sem boðið verður upp
á leirböð með nuddi, ljósum og
hvUdaraðstöðu. Leyfi hefur þeg-
ar fengist, en það er Ásgeir
Leifsson hagvérkfræðingur sem
sér um reksturinn. Um er að
ræða upphituð baðker úr trefja-
plasti sem Ástráður S. Guð-
mundsson hefur hannað og í
þeim verður hveraleir og jafnvel
kísilvökvi tU að ná ffam svipuð-
um áhrifum og í Bláa lóninu. I
upphafi verða þarna tvö baðker,
en Ásgeir hyggst auka starfsem-
ina smám saman og telur mikla
möguleika fýrir hendi. Reiknað
er með að fimm starfsmenn
komi til með að vinna við verk-
efnið...
ykjavíkurborg hefúr sam-
þykkt að veita Jóni Hjaltalín
Magnússyni eina milljón króna
í styrk tU út-
flutnings á
tækjabúnaði
fyrir álver.
Um er að
ræða vél-
menni sem
leysa manns-
höndina af
hólmi og koma því í veg fyrir
slysagildrur og auka öryggi. Við-
tökur erlendis hafa verið mjög
góðar og er talið að hér sé um
framtíðarverkefni að ræða.
Vegna bágrar stöðu í álheimin-
um var hins vegar ákveðið að
hjálpa Jóni í gegnum erfiðasta
hjallann...
Leið-
rétting
I umfjöllun PRESSUNNAR í
síðustu viku um launakjör ým-
issa þjóðþekktra manna voru
tvær leiðar villur þar sem fjallað
var um Guðlaug Bergmann. I
fyrsta lagi var sagt frá heimili
hans á Sólbraut 3 en birt mynd
af röngu húsi. Hins vegar mis-
ritaðist nafn eiginkonu hans.
Hún heitir Guðrún en ekki
Guðlaug. Er beðist velvirðingar
á þessum leiðu mistökum.
Þú geturvalið um
lægsta verðið
eða besta búnaðinn
Wauva vict, r m :Asr
1 486SX/25 MHz 486DSX/33 MHz Bravo LC-2 486SX/25MHZ
innifalið í verði: innifalið í verði: innifalið í verði:
r • 4MB innra minni ' J • 4MB innra minni ] • 4MB innra minni
• 130MB harður diskur • 107MB harður diskur < 15ms • 120MB harður diskur < 15ms
• Cirrus skjákort, 1MB • Local Bus Cirrus skjákort,1MB • Local Bus Cirrus skjákort, 1MB
(einnig Local Bus) • 14" 1024x768 NI.72HZ, • AST14" 1024x768 Nl, 72Hz,
• 14" 1024x768 Nl, 72Hz, lággeislaskjár, flöktlaus lággeislaskjár, flöktlaus
lággeislaskjár, flöktlaus • 3.5" disklingadrif • 3.5" disklingadrif
• 3.5" disklingadrif • Hljóðlát vifta • Hljóðlát vifta, 238 pinna PGA sökkull
• Hljóðlát vifta • 1 árs ábyrgð • 3ja ára ábyrgð
• 1 árs ábyrgð
Kynningarverð
-117.874.-
kr. stgr.
^ 136.859." kr.stgr. ^ 148.903." kr.stgr.
I
♦
I
Microsoft Word 2.0 og Excel 4.0
á tilboðsverði með hverri tölvu
kr.39.900.-
og meiri ábyrgð
ef þú vilt
Komdu í verslun okkar eða hringdu í sölumenn
og fáðu nánari upplýsingar
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík Sími 63 3000
Greiðsluskilmálar Glitnis,