Pressan - 14.10.1993, Blaðsíða 24

Pressan - 14.10.1993, Blaðsíða 24
RASSVASAPELAR OG REMBINGUR 24 PRBSSAN Fimmtudagurinn 14. október 1993 Árið hefur verið frekar athafna- samt fyrir rokksveitina HAM. í sumar gáfu þeir út safnplötuna „Saga rokksins 1988-1993" og dvöldu í New York þar sem þeir léku víða í klúbbum og töluðu við útgáfufyrir- tæki. Eitthvað virðist vera að gerast í ^þessum samningaviðræðum því stefnan hefur verið tekin á aðra New York-ferð sem fyrst. HAM hafa spilað í nokkrum framhaldsskólum í haust en annað kvöld halda þeir tónleika á Tungl- inu, hina hálfsárs- legu stórtónleika. Leikin verða öll helstu lög sveitar- innar ásamt nokkr- um nýjum. Til upp- hitunar verða sveit- irnar SSSpan og Moskvítsj, báðar efnilegar og rokk- aðar. En Sigurjón Kjart- ansson og Jóhann Jóhannsson, með- limir í HAM, eru fleira að bauka um þessar mundir. Þeir hafa hönd í bagga með sólóskífu Páls Óskars Hjálmtýs- sonar, semja lögin og útsetja. Þar mun á ferð magnað diskó, en því dæmi verða gerð betri skil seinna. Á tónleikum HAM verður boðin spóla í mjög takmörkuðu upplagi. Þar er á ferð tónleikaupptaka frá leik sveitarinnar í pönkmekkanu fræga CBGB's í sumar. Tunglið verður opnað kl. 22.00, tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 23.00, aldurstakmark verður 18 ár og það kostar þúsundkall inn. TAPPI TÍKARRASS „Ég hef aldrei séö aöra eins frystikistu. Af Dvi É pabbi Gleymdar perlur pönks og nýbylgju fást nú aftur á tvöföldum geisladiski með tónlistinni úr mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Rokki í Reykjavík, sem gerð var árið 1982. Þeir sem vilja endurnýja kynnin af Jonee Jonee, Mogo Homo, Vonbrigðum, Q4U og Bruna BB fá þarna skammtinn sinn innan um stærri nöfnin, Punkinn, Baraflokldnn, Fræbbblana, Egó, Þey og Tappa tílcarrass. Meira að segja Pétur Kristjánsson er þarna með Start og Ragga Gísla með Grýlunum og Gullúrinu. TÓNLIST Varðeldastuð með Árna ÁRNI JOHNSEN VINIROG KUNNINGJAR MILLJÓNAÚTGÁFAN EINIDRANGUR/JAPIS ★ ★1/2 Mér skilst að það hafi þurft mótorhjólaslys og höfuðhögg til að Árni Johnsen færi aftur í útgáfubransann. Hver svo sem ástæðan var geta menn glaðst yfir að Árni skuli aftur vera kominn í poppbransann eftir rúmlega tuttugu ára hlé frá plötuútgáfu. Árni býður upp á troðfúllan disk, sautján lög, og kennir ýmissa grasa; hér er allt ffá harmóníkutón- list upp í stuðrokk, og allt auðvitað á gömlu góðu mannlegu nótunum, a la „Á frívaktinni“. Það er hin sérstaka rödd Árna sem einna helst heldur manni við efnið. Á íslandi hafa löngum tíðkast „sérstak- ir“ söngvarar — Megasi, Ein- ari Erni og Maríu Baldurs skýtur fyrst upp í hugann — og er Árni tvímælalaust í þessum þjóðlega hópi. Árni getur raulað sig fýrirhafnar- laust í gegnum hálft lag og hljómað eins og hver önnur varðeldabytta í hinni árlegu útilegu. Sérstaða þingmanns- ins felst í því að í lögunum miðjum er eins og hann fái sér sopa af rassvasapelanum og æsist allur upp með remb- ingi og þessu Árna Johnsen- íska gaulstílbrigði sem erfitt er að lýsa nema vera móðg- andi og minnast á stofnun í Kópavogi. I sumum lögum telcst honum að halda aftur af stuðrembingnum en sem betur fer loðir þetta vöru- merld við flest lögin. Ég hef aldrei komið til Vestmannaeyja en mér sldlst að þar gerist varðeldastuðið einna magnaðast á landinu. Árni er náttúrlega helsti stuð- bolti eyjanna og hann og hin- ir lundabaggarnir hafa eflaust átt margar fjörnætur við söng og gítarspil. Á svona sam- kundum tíðkast að syngja hin einu og sönnu Vestmanna- eyjalög; snoturt vísnapopp sem allir ráða við, með text- um fullum af þrám og róm- antískum útlistunum á ágæti þessara fögru eyja. Platan verður eflaust metsöluplata í „Sérstaða þing- mannsinsfelst í því að í lögunum miðjum er eins og hann fái sér sopa afrassvasapelan- umogœsist allur upp með rembingi ogþessuÁrna Johnsen-íska gaul- stílbrigði sem erf- itt er að lýsa nema vera móðgandi og minnast á stofnun íKópavogi.u Vestmannaeyjum enda hlað- in löngu kunnum varðelda- smellum, m.a. nokkrum eftir Ása í Bæ, Mr. Vestmannaeyj- ar himself. Auk þess að syngja og slá kassagítarinn semur Árni nokkur lög og ljóð. Lög hans við „Vísur um heiðina“ og „Stríðið“ eftir Indriða G. og Laxness eru snyrtilega samin og falla vel að ljóðunum. Ljóð Árna fjalla að sjálfsögðu mestmegnis um böll og ævin- týri samfara þeim, hið ágæt- asta föndur, en ég sakna ab- súrdhúmorsins sem Árni sannaði að hann hefur til- finningu fýrir með þingræð- unni súrrealísku sem hann flutti í Hrafns-málinu. Einna næst því að vera óskiljanlegur kemst hann í „Þykkvabæjar- rokkinu“. Textinn fjallar að ég held um myglaðar kartöfl- ur úr „kartöflugarðinum heima — svona einn komma sextíu kílómetra ffá sænum“. Lagið er eftir Huddie Led- better og var gert vinsælt af Creedence Clearwater Revi- val, en hér heima af Lúdó og Stefáni sem sungu einnig um kartöflur í sinni versjón. Út- færsla Árna er þó toppurinn á frægðarferli þessa lags, enda textinn geggjað rugl og stuð- rembingurinn í Árna á suðu- punkti. Árni Johnsen er sannfær- andi gleðinagli og það má sannarlega hafa lúmskt gam- an af þessum fjörpakka — jafnvel þó að maður sé ekki úr Vestmannaeyjum. POPP FIMMTU DAG U R I N N 14. OKTÓBER • Black Out reynir að koma vitinu fyrir fólk á Tveimur vinum með nýja söngkonu sér til skrauts. Sú heitir Jona de Groot. Þeir sem eldri eru bera nöfnin Andri Black, Leifur Hammer, Steb Stefáns- son og Gunnar Einars- son. Það er vonandi að einhver muni eftir þeim. • Bone China verður í návígi á villimannaverts- húsinu Grand Rokk. • Cats er dúett skipaður tveimur útlendingum sem leika fimlega á Cancun. Mín kisa dansar tangó. • Vinir vors og blóma fá gott í kroppinn á Hressó með nýlendu- þýska pornóbandinu. Hefjast tónleikarnir ná- kvæmlega klukkan 23.07. • Indie-kvöld á veitinga- húsinu 22. Sem fyrr verð- ur úrval laga hljómsveita á borð við The Fall, Sonic Youth og talsvert af inn- lendu efni. Nú. • Klang og Kompaní hafa það betra en nokkur annar á fimmtudegi á Gauki á Stöng. Engin bjórhátíð. • Die Fidelen Múnchen- er eru enn að jóðla á Októberhátíð. í kvöld eru viðkomustaðirnir bæði Berlín og Naustkráin. • Nýdönsk, Kolrassa krókríðandi, Spoon og Tjalz-Gizur taka allar höndum saman um að fá fólkið úr miðbænum til að skemmta sér í íþróttahús- inu í Digranesi. Það hús mun eiga að gera að miklu skemmtihúsi fyrir ungt fólk sem vill fara í dansvímu í stað áfengis- vímu. Stefnt er að stórum rokktónleikum í húsinu 18. desember. • Mannakorn ætla að bæta líðan Hafnfirðinga í Firðinum með þeim Magnúsi og Pálma. Nill- inn opinn með diskó og vodka. • Örkin hans Nóa gerir út frá Café Amsterdam í kvöld. * • Mickey Jupp og KK- band spila taktfasta tón- list sem er í miklu uppá- haldi hjá Árna Þórarins og fleirum á Tveimur vin- um. Sagt er að Jupp sé feikigóður. • Lipstick Lovers eru nýkomnir frá mikilli tónlist- arhátíð í Nuuk á Græn- landi. Að þeirra sögn var mikið gaman. • Reggae on lce er eina (slenska reggaehljóm- sveitin. Hún er með ekta Jamaica-mann fremstan í flokki og ískalda íslend- inga. Þeir verða á Gauki á Stöng. • Die Fidelen Múnchen- er verða á Sólon íslandus sem og undankeppni f bjórþambi. • Mannakorn reyna enn og aftur að ná sér niðri á Hafnfirðingum í Firðinum. Diskóbarinn Nilli ávallt opinn. • Örkin hans Nóa held- ur aðra útgerðarveislu á Café Amsterdam. • Ný-danskir fara hvað úr hverju að halda útgáfu- tónleika. Þangað til mjatla þeir eitt og eitt lag ofan í landsmenn og nú á Tveimur vinum. • Lipstick Lovers enn ferskir á Cancun. • Reggae on lce yljar gestum Gauks á Stöng. • Die Fidelen Múnchen- er á lokadrykkjuhófi bjór- hátíðarinnar. Að öllum lík- indum verður slegið upp tjaldi í Hressógarðinum þótt enginn sé verri þótt hann vökni. Úrslit verða í bjórþambi, leynigestur opinberar sig. Mætið með nefklemmu. • Combo Ellenar, eins og bandið heitir réttilega, verður á Cancun. • Sniglabandið hefur væntanlega eitthvað nýtt fram að færa á Gauknum. SVEITABÖLL • Telið, Akranesi Micky Jupp og KK-band. • Sjallinn, ísafirði Vinir Dóra spila sjálfsagt ekki fyrir neina fimmhundruð- þúsund manns eins og þeir gerðu í Chicago en kannski fleiri mikilmenni. • Sjallinn, ísafirði Vinir Dóra þéttir. • Höfðinn, Vestmanna- eyjum Gildran er komin úr fríi með House of the Rising Sun. • Þotan, Keflavík lætur ekki að sér hæða fremur en fyrri daginn. Þar skemmta Todmobile, sem eru um þessar mundir að leggja síðustu hönd á væntanlegan kveðjudisk. • Sjallinn, ísafirði Hinn breski Mickey Jupp og KK-band lofa Vestfirðing- um góðum dansleik. • Matborg, Patreksfirði Vinir Dóra gleðja land- ann. Og líður vel. • Höfðinn, Vestmanna- eyjum Gildran leggur snörurnar. • Bíóhöllin, Akranesi Bubbi bestaskinn verður einn á kassagftar með Orra Harðarson sem upp- hitara. • Vagninn, Flateyri er útgáfustaður KK-bands- ins, sem er þar í fylgd ekki minni tónlistarmanns en Mickeys Jupp.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.