Pressan - 14.10.1993, Side 15

Pressan - 14.10.1993, Side 15
Fimmtudagurinn 14. október 1993 M E N N I N G Úr þulunni ð samning Viiiiurs er ég bara Rósa Rósa Guðný Þórsdóttir er þekkt meðal almennings sem þula í Sjónvarpinu. Það vita færri að hún er hörkuleikkona og föstudaginn 15. október frumsýnir Leikfélag Akureyrar Afturgöngur eftir Henrik Ibsen. Rósa fer með hlutverk í sýningunni en það er ekki langt síðan hún lék Nóru í Brúðuheimilinu eftir Ibsen. RÓSA GUÐNÝ ÞÓRSDÓTTIR. Hér í hlutverki Regínu Engstrand. „Ædi það sé ekki tilviljun sem ræður því að ég er að leika með þetta stuttu millibili í Ibsen-sýningum. Það hefur væntanlega meira með það að gera að Ibsen er nútímalegt skáld en að ég sé að verða einhver Ibsen-leikkona.“ Rósa hefur leikið víða eftir að hún út- skrifaðist úr Leiklistarskóla íslands árið 1985. Hvað skyldi standa upp úr? „Það er alltaf erfltt að segja til um það. Það hlutverk sem maður er að vinna hverju sinni er manni alltaf efst í huga og í mestu eftirlæti þá stundina. En vissulega má nefna nokkrar sýningar sem eru minnisstæðar: Brúðuheimilið er minnisstætt og Dalur hinna blindu með Þíbilju og Hræðileg hamingja með Alþýðuleikhúsinu eru einnig minnisstæðar sýningar. Þá hef ég trú á Afturgöngunum, en þar fer ég með hlutverk Regínu Engstrand.“ Það er ekki oft sem það ber upp að sama leikritið er á dagskrá tveggja leik- húsa á sama leikárinu. Árið 1989 var Hús Bernörðu Alba til sýningar bœði hjá LA og Þjóðleikhúsinu ognúer Leik- húsið Frú Emilía einnig með Aftur- göngur á sinni efnisskrá. „í íýrstu fannst mér það skrítin tilfinn- ing að önnur leikkona væri að fást við sama hlutverk og ég á sama tíma. En auðvitað er það geysilega forvitnilegt. Það er engin von til þess — og það er þáttur í töfium leikhússins — að tvær manneskjur leiki sama hlutverkið á sama hátt. Það er spennandi að vita af sama leikritinu á öðrum stað. Þetta eru ábyggilega ólíkar sýn- ingar og ég ætla mér að sjá uppfærsluna í Reykjavík með tíð og tíma. Að öðru leyti hefur þetta engin áhrif. En að þetta leikrit skuli vera til sýningar á tveimur stöðum á Is- landi núna er ekki eins einkennilegt og það hljómar, því Ibsen er í tísku og Afturgöngur eru á efhisskrá víða um heim. Enda á leikritið erindi við nútíma- manninn. Þar er kom- ið inn á marga hluti sem eyu ofarlega á baugi í dag; siðferði, ónefndur banvænn sjúkdómur og sifja- spell, svo eitthvað sé nefht.“ Þó að Rósa hafi farið með mörg hlutverk í gegnum tíðina er þetta í fyrsta skipti sem hún erjastráðin við leikhús. „Eg get ekki talað af mikilli reynslu um fastráðningar, ég hef bara verið á samningi í tvo mán- uði. Manni eru tryggð hlutverk við þessi skilyrði og þetta er ekki eins mik- ið hark fyrir vikið. Ég veit hvað er ffamundan og bý við meira fjárhags- legt öryggi. Þó að kaupið sé lítið, þá er þó kaup, sem ekki er nú alltaf þegar frjálsir leikhópar eiga í hlut. Hvort þetta kreppir að mér listrænt séð þá er það eitthvað sem ég finn ekki fyrir ennþá. Ég renni ekki blint út í þetta heldur vissi að hverju ég gekk.“ Rósa starfaði við Sjónvarpið á sjötta ár en hverfur nú til starfa við leikhús norð- an heiða. Þulan sem fer á fastan satnn- ing? „Því skyldi þula ekki fara á fastan samning eins og aðrir, það er að segja ef hún er leikkona fyrir? Ég hef aldrei fundið neitt tiltakanlega fyrir því að vera þekkt andlit. Kannski er allt ann- að „lúkk“ á skjánum en á öðrum vett- vangi, ég veit það ekki. Að minnsta kosti bjó ég mér ekki til neinn karakter í þulustarfinu. Það er sjálfsagt hægt að nýta þetta tækifæri til að vera með skemmtiatriði eða eitthvað í þeim dúr þó að ég hafi ekki kosið það. En eins og þetta horfir við mér er eins og þjóð- in kunni að höndla þetta. Sumir þekkja mig sem þulu, aðrir sem leik- konu. Það fer bara eftir því hverju hver og einn veitir athygli. Annars er ég bara Rósa.“ Viðar Eggertsson er mjög lukkulegur með að hafa krœkt í Rósu og nefndi að hennar biði gott hlutverk í jólaleikriti LA: „Ekkert sem heitir - átakasaga“. „Já, það er nokkuð um spennandi hlutverk ffamundan og mér líst vel á efnisskrá LA í vetur. Hvað tekur við effir þetta leikár er óvíst, en það er ver- ið að skoða ýmsa möguleika.“ Hafa einhverjir heimsfrægir leikstjórar sett sig í samband við þig? „Já,já.“ Og þau mál eru væntanlega á við- kvæmu stigi núna? „Já.“________________________________ Jakob Bjarnar Grétarsson LEIKLIST Gœsirt kemst þangað líka „Ég hafði á tilfinningunni að ég vœri búinn að sjá þetta allt saman áður, annaðhvort í leikritum Tjékovs eða í hinum Ibsen. Láttu migfá mávinn eða villiöndina, ég hefenga lyst á gæs- inni. “ ELÍN HELENA BORGARLEIKHÚSIÐ ★ Elín Helena eftir Árna Ib- sen er saga um sannleika, svik, framhjáhald, tómleika og þögn. í grundvallaratriðum er þetta klassískt verk um örlög Elínar Helenu, þrítugrar konu sem grúskar í fortíðinni í leit að sannleikanum um foreldra sína. En ofin inn í leikritið eru ýmis önnur atriði, stundum táknræn eða absúrd eða jafh- vel draugaleg, sem gefa sög- unni óvenjulegt yflrbragð. Leikurinn er oftast sterkur, leikstjórnin nákvæm, leik- myndin passlega drungaleg við þetta efni og tónlistin ágæt. En fyrir utan nokkrar vel samdar og vel leiknar senur fannst mér Elín Helena alls ekki sérstakt leikrit. Án þess að lýsa atburðarásinni leyfi ég mér að segja að sagan sjálf sé langt ffá því að vera merkileg og uppbygging hennar bæði fyrirsjáanleg og langdregin. Nöfnin á aðalpersónunum gera manni strax ljóst um hvað málið snýst og endirinn kemur ekki á óvart. Eina manneskjan sem þykist vera hissa á þessu öllu (en er samt alls ekki hissa) er sjálf Elín He- lena. Við hin leystum gátuna löngu fyrr. Um ákvörðunina sem Elín Helena tekur undir lokin er hægt að segja að hún sé siðferðislega óhjákvæmileg, en litið annað. Eftir að hafa séð Skjaldbak- an kemst þangað lika, Afsakið hlé og Fiska á þurru landi bjóst ég við meiru en þessu ffá Áma Ibsen. Díalóginn, sem er ágædega saminn, bjargar ekki þessum einfalda söguþræði og einfaldleikinn drepur niður nánast alla spennu. Ekki skildi ég heldur hvað þessar löngu heimspekilegu pælingar um Víetnamstríðið voru að gera í þessum fjölskylduharmleik, nema til að undirstrika geð- veiki Rikka. Orð Rikka um Víetnam, „dæmt til að mis- takast“, eiga vel við þetta stríð en ekki við persónumar hér, og það er einmitt það sem skaðar leikritið; merkilegar og ómerkilegar pælingar standa hlið við hlið en það vantar tengsl á milli þeirra. Gæsin (sem fellur niður á sviðið í upphafi leikritsins) er gott dæmi þess. Hún á að vera táknræn fyrir leyndarmálið sem Elín Helena fær að vita, en virkar hálffáránlega. Ég hafði á tílfinningunni að ég væri búinn að sjá þetta allt saman áður, annaðhvort í leikritum Tjékovs eða í hin- um Ibsen. Láttu mig fá mávinn eða villiöndina,ig hef enga lyst á gæsinni. Góður íslend- ingur BÝR ÍSLENDINGUR HÉR? ÍSLENSKA LEIKHÚSIÐ ★★★ Ég verð að viðurkenna að mig langaði alls ekki á þessa sýningu um daginn. I fyrsta lagi hélt ég að ég vissi alveg nóg um ástandið í útrýming- arbúðum nasista og í öðru lagi sá ég enga ástæðu til þess að blanda íslendingum í mál- in, þar sem aðeins einn mað- ur frá íslandi lenti í þessum voða og þá fyrir tilviljun. En eftir að hafa séð sýninguna verð ég að viðurkenna að þessir fordómar mínir voru alveg ástæðulausir. Eftir nokkurra ára dvöl í helvíti kemur Leifur Muller heim til íslands, aleinn, með minningar sem hann mun aldrei losna við en getur samt ekki útskýrt fyrir öðrum. I stað þess að drukkna í sjálfs- vorkunn byrjar hann upp á nýtt og öðlast aftur sjálfsvirð- ingu. Leikgerðin eftir Þórarin Eyfjörð er einföld en samt sláandi. Sviðið er nánast tómt; einn maður fer með söguna sína um þessa lifandi martröð sem hann þurffi að ganga í gegnum. Frásögn Pét- urs Einarssonar var stundum bæði gölluð og hikandi en oftast sterk og áJtrifamikil og maður þess vegna tilbúinn að fyrirgefa honum ýmislegt. Það er alltaf vafasamt verkefni að breyta bók af þessu tagi í leikrit, þar sem einræðan tek- ur gjörsamlega mið af ramm- anum í kringum sig. í flestum tilfellum gengur það ekki upp og verður bæði þreytandi og ódramatískt, en efnið í þessu verki er það sterkt að mér varð fljótlega alveg sama um formið. Þegar ég fór lieim var mér helst í huga mikil eftírsjá eftir Leifí Muller, sem mér fannst ég hafa kynnst vel þar á sviði. Þessi sýning er ekki fyrir alla, en samt fyrir fleiri en hafa lesið samnefnda met- sölubók og sérstaklega fyrir þá sem eru jafnfordómafúllir og ég var áður en ég fór. LEIKHUS FIMMTUDAGURINN 14. OKTÓBER • Standandi pína. ★★★ Er það ekki einmiff það sem litlu leikhúsin hafa stundum fram yfir þau stóru, að geta leyft sér að koma aðeins nær áhorfendum og draga þá betur inn í atburðarásina og andrúmsloftið? Spenn- andi og athyglisverð sýning, segir Martin Regal í leik- dómi. Frjálsi leikhópurinn. Tjamarbiói kl. 20. • Draumur á Jónsmessu- nótt. Nemendaleikhúsið sýnir verk Williams Shake- speare í leikstjóm Guðjóns Pedersen. Leikendur eru Guðlaug Elísabet Ólafsdótt- ir, Hilmir Snær Guðnason, Sigrún Ólafsdóttir, Þórhallur Gunnarsson, Katrín Þorkels- dóttir, Benedikt Erlingsson, Halla Margrét Jóhannesdótt- ir og Margrét Vilhjálmsdóttir. Lindarbæ kl. 20. • Elín Helena. Leikverk Áma Ibsen í leikstjórn Ing- unnar Ásdísardóttur. Átaka- mikið verk sem segir frá uppgjöri ungrar konu við for- tíðina. Leikendur eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Hanna María Karlsdóttir og Þor- steinn Gunnarsson. Borgar- leikhúsinu, litla sviðinu, kl. 20. • Spanskflugan. ® Ég vona að sýningin batni veru- lega sem fyrst svo að ein- hverjir geti haft gaman af þessu, en ég efast samt um að Spanskflugan eigi eftir að lifa mjög lengi, segir Martin Regal í leikdómi. Borgarleik- húsinu kl. 20. • Þrettánda krossferðin. ★★ Perlurnar eru margar, en bandið á milli þeirra er allt of langt. Á þessari löngu sýningu missti ég þó sjaldan áhuga og aldrei þolinmæð- ina, segir Martin Regal í leik- dómi. Þjóðleikhúsinu kl. 20. • Ástarbréf. Tvíleikur A.R. Gumeys í leikstjóm Andrés- ar Sigurvinssonar. Sögð er áhrifamikil ástarsaga tveggja einstaklinga, eins og hún birtist í ævilöngum bréfa- skiptum þeirra. Leikendur eru Herdís Þorvaldsdóttir og Gunnar Eyjólfsson. Þjóðleik- húsinu, litla sviðinu, kl. 20.30. • Júlía og Mánafólkið. Leikhópurinn Augnabiik sýn- ir bama- og fjölskylduleikrit eftir Karl Aspelund og Friðrik Erlingsson. Leikstjóri er Ásta Arnardóttir en leikendur Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Bjöm Ingi Hilmarsson, Erling Jóhannesson, Harpa Amar- dóttir og Kristín Guðmunds- dóttir .Héðinshúsinu kl. 10. •Fiskar á þurru landi. ★★★ Skondið og vel sniðið leikrit. Annar leiksigur Árna Ibsen og Andrésar Sigur- vinssonar. Missið ekki af þessu. Nú eru síðustu for- vöð, segir Martin Regal í leikdómi. íslensku óperunni kl. 20.30. PRESSAN 15 • Afturgöngur. Leikfélag Akureyrar frumsýnir verk Henriks Ibsen í leikstjórn Sveins Einarssonar. Leik- endur eru Sigurður Karls- son, Sunna Borg, Kristján Franklín Magnús, Þráinn Karlsson og Rósa Guðný Þórsdóttir. Akureyri kl. 20.30. • Þrettánda krossferðin. ★★ Þjóðleikhúsinu kl. 20. • Afturgöngur. Leikhúsið Frú Emilía sýnir verk Hen- riks Ibsen í leikstjóm Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Leikendur eru Margrét Áka- dóttir, Ari Matthíasson, Þröstur Guðbjartsson, Sig- urður Skúlason og Jóna Guðrún Jónsdóttir. Héðins- húsinu kl. 20. • Spanskfiugan. 9 Borg- arleikhúsinu kl. 20. • Elín Helena. Borgarleik- húsinu, litla sviðinu, kl. 20. LAUGAR DAG U RI N N 1 6. OKTÓBER • Býr íslendingur hér? ís- lenska leikhúsið sýnir leik- gerð Þórarins Eyfjörð eftir samnefndri bók Garðars Sverrissonar. Leikstjóri er Þórarinn Eyfjörð en leikend- ur Pétur Einarsson og Hall- dór Björnsson. Tjamarbíói kl.20. • Kjaftagangur. Gaman- leikur Neils Simon. Leikstjóri er Asko Sarkola en meðal helstu leikenda eru Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Öm Ámason, Tinna Gunnlaugs- dóttir og Pálmi Gestsson. Þjóðleikhúsinu kl. 20. • Ástarbréf. Þjóðleikhús- inu, litla sviðinu, kl. 20.30. • Afturgöngur. Leikhúsið frú Emilía. Héðinshúsinu kl. 20. • Spanskflugan. ® Borg- arleikhúsinu kl. 20. • Elín Helena. Borgarleik- húsinu, litla sviðinu, kl. 20. • Afturgöngur. Leikfélag Akureyrar. Akureyri kl. 20.30. • Dýrin í Hálsaskógi. Sýn- ingar hafnar að nýju á bamaleíkriti Thorbjöms Egn- er. Leikstjóri er Sigrún Val- bergsdóttir en með aðalhlut- verk fara Sigurður Siguijóns- son og Öm Ámason. Þjóð- leikhúsinu kl. 14 og 17. • Ferðalok. ★★★ Þrátt fyrir nokkra galla finnst mér þessi sýning mjög athyglisverð. Leikritið er sterkt og tilfinn- ingaríkt, snjallt í uppbygg- ingu og fullt af skemmtileg- um atriðum. Mæli með, hik- laust, segir Martin Regal í leikdómi. Þjóðleikhúsinu, smíðaverkstæöi, kl. 20.30. • Ronja ræningjadóttir. Sýningar byrja að nýju á bamaleikriti Astrid Lindgren. Leikstjóri er Ásdís Skúladótt- ir en með aðalhlutverk fara Sigrún Edda Bjömsdóttir og Gunnar Helgason. Borgar- leikhúsinu kl. 14. • Spanskflugan. ★ Borgar- leikhúsinu kl. 20. • Elín Helena. Borgarleik- húsinu.Jitla sviðinu, kl. 20. • Býr íslendingur hér? ís- lenska leikhúsið. Tjamarbíói kl. 20. • Draumur á Jónsmessu- nótt. Nemendaleikhúsið. Lindarbæ kl. 20. • Ferðin til Panama. Leik- félag Akureyrar sýnir bama- leikrit byggt á sögum eftir þýska bamabókahöfundínn Janosch. Leikstjóri er Ingunn Jensdóttir. Leikendur eru Aðalsteinn Bergdal, Sigur- þór Albert Heimisson, Dofri Hermannsson og Ama Mar- ía Gunnarsdóttir. Samkomu- húsinu Akureyri kl. 14og16.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.