Pressan - 22.12.1993, Blaðsíða 7
F R ETT I R
Miövikudagurinn 22. desember 1993
pressan 7
Sala ö SR-mjöli hf. vekur upp ágreining ríkis og Landsbanka íslands
LANDSBANKINN HÓT-
AR AÐ GJALDFELLA
MILLJARÐ Á RÍKIÐ
Þegar Síldarverksmiðjum ríkisins var breytt í hlutafélagið SR-mjöl yfirtók nýja félagið skuldir hjá Landsbanka. Bankinn segir að á þeim
sé ríkisábyrgð, en því neitar ríkið. Ekkert er á þetta minnst í útboðsgögnum sem væntanlegir kaupendur SR-mjöls hafa fengið.
Bankinn hótar að gjaldfella lánið og láta ríkið borga.
SICURÐUR B. STEFÁNSSON framkvæmdastjóri Veröbréfamarkaöar íslandsbanka: Veit ekki hvernig málinu er lýst í útboösgögnum.
Ágreiningur er nú uppi á
milli ríkisins og Landsbanka
íslands (LÍ) um hvort ríkis-
ábyrgð er á þeim lánum sem
Landsbankinn veitti Síldar-
verksmiðjum ríkisins (SR) á
sínum tíma. Skuldir SR hjá
Landsbankanum eru um einn
milljarður króna í langtíma-
lánum og er það staðfast álit
Landsbankamanna að á þeim
hvíli ríkisábyrgð, þ.e. að ríkið
ábyrgist greiðslu þeirra ef á
bjátar. Amdís Steinþórsdótt-
ir, stjórnarformaður SR-mjöls
hf. og formaður þriggja-
mannanefndar sem á að fara
yfir væntanleg tilboð í SR-
mjöl hf., segir engan vafa leika
á að Landsbankinn hafi ekki
ríkisábyrgð á lánum veittum
SR og vísar þar til laga um SR
frá 1938. Þar segir að ríkis-
ábyrgð á lánum til SR frá og
með 31. des. 1937 komi aðeins
til hafi Alþingi veitt blessun
sína fyrir viðkomandi láni.
Landsbankamenn segja á móti
að allar lánveitingar til SR sem
ekki hafi farið í gegnum Al-
þingi hafi hlotið meðferð og
fengið uppáskrift hjá sjávarút-
vegs- og fjármálaráðuneyti og
það hljóti að teljast fullnægj-
andi stimpill. Landsbankinn
viðurkennir með öðrum orð-
um ekki að ríkisábyrgð hvíli
ekki á umræddum milljarði
og mun tilbúinn að gjaldfella
skuldina og láta reyna á málið
fyrir dómstólum, verði nýjum
eigendum að SR-mjöli hf.
heimilað að yfirtaka skuldirn-
ar án ríkisábyrgðar.
„SR skuldar okkur meö
ríkisábyrgð“
Halldór Guðbjarnason,
bankastjóri Landsbanka Is-
lands, segir að það séu Síldar-
verksmiðjur ríkisins, SR, sem
skuldi bankanum stórfé, ekki
SR-mjöl hf. „Við lánuðum SR
peninga og það fyrirtæki var í
einkaeigu ríkisins og við lítum
svo á að það sé full ríkisábyrgð
á þeim lánum. Þú getur ekki
selt eigur þínar og félagið og
selt skuldir þínar með nema
með samþykki kröfuhafa. Við
höfum ekki samþykkt SR-
mjöl hf. sem skuldara. Það
breytir engu þó að það séu veð
tekin beint í hluta verksmiðja
SR. Þeir sem við lánum og
skrifa undir sem skuldarar,
þeir eiga að borga, og ef þeir
geta það ekki kemur að því að
þeir gera sig gjaldþrota,“ sagði
Halldór í samtali við PRESS-
UNA. „Það kann vel að vera
að þessar skuldir séu færðar í
bókhald SR-mjöls hf., en SR
geta ekki hlaupið frá sínum
skuldum nema þá að gera sig
gjaldþrota. Ríkið getur auðvit-
að samið svo um að SR-mjöl
hf. verði skuldari að þessum
lánum öllum eða að hluta, svo
ffamarlega að það verði áritað
að það sé ríkisábyrgð á þessum
skuldum. Ef þetta er hugsað
lengra þá er eigandi í dag SR-
mjöl hf., á morgun gæti það til
einföldunar orðið til dæmis
Raufarhafnarhreppur, sem
eðlilega gæti ekki borgað, og
hvað á bankinn að gera þá?“
„SR-mjöl hf. yfirtók
skuldir — engin ríkis-
ábyrgö“
Röksemdir ríkisins hafa ver-
ið þær að í sjöundu grein laga
um SR ffá 1938 segir að ríkis-
sjóður ábyrgist ekki skuldir SR
frá og með 31. desember 1937
nema heimild sé til þess veitt
af Alþingi. Arndís Steinþórs-
dóttir, stjórnarformaður SR-
mjöls hf. og formaður þriggja-
mannanefndar sem á að fara
yfir væntanleg kauptilboð í
SR-mjöl hf., segir engan vafa
leika á að Landsbankinn hafi
ekki ríkisábyrgð á lánum veitt-
um SR og vísar þar til ofan-
greindra laga. „SR var breytt í
hlutafélag frá 1. ágúst sl. með
lögum ffá Alþingi og það gilda
sömu reglur um þetta hlutafé-
lag og önnur, þannig að það
skiptir ekki máli hver eigand-
inn er. Ég er hissa á því ef
Landsbankinn er að gera mál
úr þessu núna. Það segir í lög-
unum um stofnun SR-mjöls
hf. að hið nýja hlutafélag taki
yfir allar eignir og skuldir af
SR,“ sagði Amdís í samtali við
PRESSUNA.
Jón Reynir Magnússon,
framkvæmdastjóri SR-mjöls,
segir að það hafi oft verið leit-
að beint tU fagráðuneytis SR,
þ.e. sjávarútvegsráðuneytis, og
svo fjármálaráðuneytis þegar
kom að lánveitingum „vegna
þess að það hafí verið hrað-
virkara en að bíða eftir af-
greiðslu Alþingis". Halldór
vísar til þessara uppáskrifta
ráðuneytanna og segir að
Landsbankinn álíti það full-
nægjandi um staðfestingu á
ábyrgð ríkisins. Á það hefur
lika verið bent að Alþingi hef-
ur í gegnum árin samþykkt
reUminga SR og að olíufélög,
útgerðir og önnur fýrirtæki,
sem hafa átt viðskipti við SR á
tímum sem hafa verið fýrir-
tækinu mjög erfiðir, hafi gert
það í góðri trú um að ríkis-
ábyrgð hafi verið á lánum fýr-
irtækisins og því ekki hætta á
að þau hafi þurft að afskrifa
viðskiptaskuldir sínar.
Ekki rætt í upplýsingum
til útboösgjafa
Sigurður B. Stefánsson,
ffamkvæmdastjóri Verðbréfa-
markaðar Islandsbanka, sem
sér um útboð á hlutabréfum í
SR-mjöli, segir að nýtt fyrir-
tæki verði vanalegt hlutafélag
og lán þess verði ekki með rík-
isábyrgð. Sagðist hann vera að
heyra í fýrsta sinn að það væri
möguleiki að Landsbankinn
gjaldfelldi lán SR ef ríkis-
ábyrgð fengist ekki áfram,
þegar og ef lánin verða flutt yf-
ir á nýtt fýrirtæki. Aðspurður
um hvernig þessum málum
væri lýst í þeim gögnum sem
lögð væru ffam fýrir væntan-
lega kaupendur sagðist Sig-
urður ekki vita hvernig það
væri.
„Ég get ekki greint frá því
sérstaklega hvað er í þeim
upplýsingum sem við látum
væntanlega útbjóðendur fá,
nema það að mér er ekki sér-
staklega kunnugt um þetta
mál,“ sagði Sigurður í samtali
við PRESSUNA. Sagðist Sig-
urður ekki vilja gera of mikið
úr þessum þætti, því SR-mjöl
hf. væri með miög sterka fjár-
hagsstöðu og miklar eignir og
ef núverandi viðskiptabanki
kysi að segja upp viðskiptun-
um reiknaði hann með að fýr-
irtækið gæti komið sér í við-
skipti annars staðar. Annars
sagði hann að það væru
ákveðnir angar varðandi SR-
mjöl sem hann hefði „næstum
gætt mín á að vita ekki um og
ég hef reynt að einbeita okkur
að okkar þætti í málinu. Þetta
er bara mál milli núverandi
eiganda SR-mjöls og Lands-
bankans annars vegar og síðan
milli núverandi eiganda og
nýs eiganda hins vegar“.
Eftir því sem PRESSAN
kemst næst er hvergi vikið að
þessu atriði í útboðsgögnum
sem væntanlegum kaupend-
um hlutafjár í SR-mjöli hafa
verið afhent.
SR-mjöl hvergi í banka-
viðskiptum?
Haraldur Haraldsson í
Andra, einn þeirra sem lýst
hafa hug á að kaupa hlutafé í
SR-mjöli, sagðist hafa spurst
fýrir um málið og fengið þau
svör að það væru ekki ríkis-
ábyrgðir á lánum í Lands-
bankanum. „Ég hef hins vegar
litið svo á að það væru ríkis-
ábyrgðir á þessum lánum hjá
SR. Ég held að SR-mjöl hf. sé
ekki með formleg viðskipti í
Landsbankanum, að SR séu
enn skuldari við bankann. Ef
þetta er rétt er SR-mjöl hf.
raunverulega hvergi formlega í
bankaviðskiptum. Ríkið og
banki eiga þá eftir að semja
um framhaldið,“ sagði Har-
aldur.
Miðað við afstöðu ríkisins í
málinu má telja ólíklegt að
það veiti væntanlegum kaup-
endum, einkaaðilum, ríkis-
ábyrgð á skuldunum — ríkis-
ábyrgð sem það segir ekki vera
til staðar eins og er. Fyrir sitt
leyti getur bankinn varla sam-
þykkt að nýtt fyrirtæki taki
skuldirnar yfir án þess að jafh-
góðar tryggingar komi í stað
hinnar meintu ríkisábyrgðc
(að frágengnum þeim kosti a
nýir eigendur borgi láni
upp). Án slíkrar tryggingar £
óvissa um hvort bankinn tel<
ur nýjan eiganda í viðskipi
eða hvort hann gjaldfellir lán
in sem hann álítur ríki'
standa í ábyrgðum fýrir.
Páll H. Hannesso
HALLDÓR GUÐBJARNASON bankastjóri Landsbanka: Ríkiö getur
ekki selt eigur sínar og skuldir meö án þess aö tala viö kröfu-
hafa. SR skuldar okkur og geti þeir ekki borgaö gera þeir sig
gjaldþrota.