Pressan - 22.12.1993, Blaðsíða 8
FR ETT I R
8
PRESSAN
Midvikudagurinn 22. desember 1993
Galluplistinn blásinn af á háannatímanum
STRID MILLI JflPIS OG JONS
ÓLAFSSONAR
Galluplistinn var einungis tveggja mánaða gamall þegar hann var blásinn
af vegna deilna um markmið listans. Jón Ólafsson vildi að einungis
stærstu plötuverslanirnar væru með í úrtakinu. Gallup og fjölmiðlarnir
vildu hins vegar hafa sem flesta, þar á meðal Hagkaup, inni.
Eftir harðar deilur var ákveðið að
hætta að birta Galluplistann svo-
kallaða um sölu á hljómplötum, en
að honum stóðu Samtök hljóm-
plötuframleiðenda, með Jón Olafs-
son og Steinar Berg Isleifsson í
broddi fylkingar, Gallup, Morgun-
blaðið, Rás 2 og Sjónvarpið. Deilan
snerist um hvaða verslanir ættu að
vera með í könnuninni.
ASMUNDURJONSSON
„Samtök hljómplötuframleiðenda stjórnast af eiginhagsmunum stjórnenda
þess.“ Sem fulltrúi Smekkleysu í SHF fékk hann ekkert að vita um gang mála
en vildi sem flestar verslanir.
Hversu stórar þurftu verslan-
ir að vera?
Listinn hóf göngu sína í október.
í samningsdrögum, sem reyndar
voru aldrei undirrituð en unnið var
eftir, segir að leitað skuli eftir því að
sem flestar plötuverslanir taki þátt í
myndun plötulistans en þurfi að
uppfylla ákveðin skilyrði um plötu-
úrval. Þar segir að lágmarksfjöldi á
titlum í boði skuli vera 50 og þar
stendur hnífurinn í kúnni. Jón Ól-
afsson vildi miða við 250 titla, en
aðrir vildu í meginatriðum halda
sig við 50 titla. Til samanburðar má
nefha að útgefnir íslenskir titlar í ár
eru 110 og í Hagkaup er boðið upp
á 60-70 titla.
Rétt er að hafa í huga að Japis
rekur plötuverslanir Hagkaups en
menn eru sammála um að á milli
risanna tveggja, Japis og Jóns Ólafs-
sonar, ríki stríðsástand. Þegar Jón
krafðist þess að Hagkaup og aðrar
smærri og tímabundnar verslanir
færu út hótaði Japis að hætta með
sínar verslanir og því fór sem fór.
Einnig var Jón ósáttur við að
verslanir sem aðeins seldu fyrir jólin
væru teknar með og vildi miða við
heilsársbúðir. Fjölmiðlunum og
Gallup fannst ekki skipta máli hve
lengi salan stæði yfir og höfðu fúll-
tingi Gallup á Bretlandi í því máli.
Jón bendir einnig á að álagið hafi
verið svo mikið í jólaversluninni að
tölur væru eldd áreiðanlegar.
Áreiðanleíki listans
„Það voru mistök að fara af stað
með listann áður en fullkomin sátt
náðist um skilgreiningu á því hvað
væri plötubúð og hvað elcki,“ segir
Ámi MattJúasson hjá Morgutiblað-
inu og bætir við að því fleiri búðir
sem séu með, því betra. Eldd skipti
máli hvort búðin sé opin í 10 mín-
útur eða 10 ár ef plötuúrvalið er
breitt. Þetta er í grófum dráttum
einnig skoðun annarra sem talað
var við, fyrir utan Jón Ólafsson og
hans menn. Hann sagði að hætt
hefði verið við listann „vegna þess
að stefnumótun og frágangur hafi
ekld verið kláraður og álag á versl-
unum hafi verið of mikið til þess að
hægt væri að gefa út tölur“. Hann
viðurkennir þó að deilur hafi verið
um hvort jólamarkaðirnir ættu að
vera inni en þar var mest deilt um
Hagkaup, sem fór inn á lista Gall-
ups í lokin.
Hafsteinn Már Einarsson, sem
sá um listann fyrir Gallup, segir að
best hafi verið að hætta þegar menn
urðu ósammála um listann. Hljóm-
plötumarkaðinn hér á landi sé sér-
stakur og bendir hann t.d. á að Japis
sé ekki í SHF. Vegna sérstöðu
markaðarins sé erfiðara að ná ffarn
óháðum lista og því verði að skil-
greina markmið hans út í ystu æsar.
Deilur hjá Samtökum hljóm-
plötuframleiðenda
I samtökum hljómplötuframleið-
enda eru Skifan, Spor, Geimsteinn,
Smekkleysa og Stöðin, sem er í eigu
Axels Kristjánssonar, og þar fer at-
kvæðavægi eftir markaðshlutdeild
fyrirtækjanna. Stjórn félagsins skipa
Geisládiskar og
geisladrif !
í samvinnu við Eltech Research í Bandaríkjunum
býður Hugver nú á ótrúlegu verði tölvuna sem lekk
liest Buy umsögn í tímaritinu PC-World nú í
Desember 1993. Þessi vél er hradvirkari í
Windows en 66 megariða tölvur sem kosta
tugþúsundum meira. Lýsirig:
66 MIIz 486 örgförvi, 128kcache, 4Mb RAM,
reiknihraðall, Local Bus 1 Mb skjákort nieð
Cirrus hraðli, Local Bus diskstýring, 250 Mb
H-7) 12ms harður diskur, tumkassi, MS samhœfð
mús, 102 lykla lyklaborð, 14" lággeisla( MPR II)
skjárfrá TVM: 144.860,-
Uppfœrsla á eldri vélunu
Við emm með móðurborð á
frábæra verði, m.a. úr 486/66
verðlaunavélinni á kr 38 þús. !
Allir íhlutir og ísetning.
Föst tilboð.
Kannaðu málið !
Hugver
Laugavegi 168
s. 91-620707
STEINAR BERG ÍSLEIFSSON
Aðalsamningamaður SHF
hreyfði engum mótmælum við
því að verslanir þyrftu aðeins
að bjóða upp á 50 titla.
ÁRNIMATTHÍASSON
„Því fleiri búðir, því betra. Það
skiptir ekki máli hvort verslun
er opin í 10 mínútur eða 10 ár
ef hún er með breitt úrval af
plöturn."
Bókin Utan marka réttlætis fjallar um
einstaklinga og fjölskyldur sem hafa lent
í erfiðri viðureign við stjórnvöld um for-
sjá barna sinna eða umgengni við þau.
Hér er fjallað um sjö mál sem hvert með
sínum hætti lýsir því hve berskjaldaðar
íslenskar fjölskyldur eru gagnvart af-
skiptum barnaverndaryfirvalda. Sum
þessara mála vöktu mikla athygli á sín-
um tíma vegna harkalegra aðgerða
stjórnvalda.
Fjölskyldur í hlekkjum barnavernd-
arkerfis.
I eftirmála fjallar höfundurinn, Pétur
Gunnlaugsson lögfræðingur, um þær
ástæður sem liggja að baki því að fjöl-
skyldur lenda í fjötrum barnaverndar-
kerfisins. Eftirmálinn er fersk og bein-
skeytt ádeila á ástand þessara mála. Að
lokum er nafnaskrá yfir þá sem koma
við sögu í bókinni.
★ Ung móðir flýr Fæðingarheimilið af ótta við
yfirvöld og fer í felur með nýfætt barn sitt.
★ Átakanleg reynsla eyðnismitaðrar konu af
miskunnarleysi samfélagsins og örvæntingar-
full barátta hennar fyrir forsjá dóttur sinnar.
★ Ung hjón leita læknismeðferðar fyrir son sinn
en uppgötva sér til skelfingar að yfirvöld
hyggjast taka af þeim öll börnin.
★ Barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar kemur
stúlkubarni í fóstur þar sem hún er kynferðis-
lega misnotuð.
★ Kona segir frá sjö ára stíði við yfirvöld sem
stefndu að því að taka dótturson hennar af
heimilinu með valdi.
★ Réttleysi níu ára stúlku gagnvart valdbeiting-
aráformum stjórnvalda sem hugðust flytja
hana nauðuga til Spánar.
★ Faðir berst árangurslaust í heilan áratug við
stjórnvöld fyrir eðlilegri umgengni við einka-
dóttur sína.
JÓN ÓLAFSSON
Krafðist þess að
jólamarkaðir væru
ekki á listanum og
að fiöldi titla mið-
aðist við 250.
þeir Jón Ólafsson, sem er formaður,
Steinar Berg ísleifsson, sem er vara-
formaður, og Rúnar Júlíusson hjá
Geimsteini, meðstjórnandi. I vara-
stjórn sitja Helga Hilmarsdóttir,
eiginkona Jóns, sem jafnframt er
gjaldkeri, og Jón Trausti Leifsson,
íjármálastjóri Skífunnar. Skífan á
helminginn í Spori hf. á móti Stein-
ari Berg.
Innan SHF hafa verið nokkrar
deilur og hefur Jón verið sakaður
um einræði þar. Japis, sem er hinn
stóri aðilinn á markaðnum, fékk
ekld inngöngu þegar þeir sóttu um.
„Sjónarmið sem komast að innan
félagsins eru ekl<i endilega félagsleg,
þau eru svolítið máluð af eiginhags-
munum þeirra aðila sem stjórna
því,“ segir Ásmundur Jónsson hjá
Japis, sem jafnframt er fyrir hönd
Smekkleysu í SHF. Hann er einnig
óánægður með að Gallup-málið
skuli ekkert hafa verið kynnt félags-
mönnum og þar ráði stjórin öllu.
Ásakanir um svik og svínarí
Hinir svokölluðu óháðu útgef-
endur hafa kvartað undan Skífunni
og Spori í fjölmiðlum og má þar
neína Hörð Torfason, Rafn Jóns-
son, KK, Sigríði Beinteinsdóttur
og Pál Óskar Hjálmtýsson. Þar
hafa komið fram ásakanir um
óheiðarlega viðskiptahætti; titlar
séu faldir á bak við borð, sagt að
þeir séu uppseldir eða þeir einfald-
lega ekki í boði. Forsvarsmenn fyr-
irtækjanna hafa hins vegar neitað
þessum ásökunum og telur Jón að
Einar Örn Benediktsson hjá
Smekkleysu standi á bak við „þessa
undirróðurs- og hryðjuverkastarf-
semi“. Hörður Torfason hefur það
hins vegar eftir Steinari Berg að það
sé „yfirlýst stefha fyrirtækis síns að
leggja enga áherslu á vörur frá Jap-
is“. Þessar ásakanir tengjast þó ekki
lista-deilunum nema á mjög
óbeinan hátt og segir Haf-
steinn Már hjá Gallup að þeir
hafi aldrei ætlað að skipta sér
af því hvað ákveðnar búðir
seldu og hvað ekld.
Einnig nefndu margir við-
mælendur PRESSUNNAR að
búðirnar væru einfaldlega
ekki nógu tæknilega full-
komnar til að áreiðanleg
könnun gæti átt sér stað.
Hörður talar um svindl og
svik við gerð listans og fleiri
tóku í sama streng. í samn-
ingsdrögunum sem unnið var
eftir átti Gallup að fá „óskert-
an aðgang að sölutölum versl-
ana“, hvenær sem þess væri
óskað.
Þrátt fyrir margháttuð
ágreiningsmál vonuðu allir
aðilar að eftir áramót yrði
hægt að setjast niður og semja
reglur sem allir gætu sætt sig
við, þannig að listinn yrði eins
og hann átti að vera — áreið-
anlegur.__________________
Pálmi Jónasson