Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 4
Kapphlaup um rústir
Sólarveldisins
Lánadrottnar Smjörlíkis-Sólar hf. stefna að því að selja fyrirtækið fyrir
mánaðamót. Páli Rr. Pálssyni er mikið kappsmál að kaupa það með full-
tingi íjárfesta og lánastofnana en fleiri eru þó ennþá um hituna. Sölu-
verðið nær vart 700 milljónum en gömlu eigendunum var gert að selja
það á 750 milljónir ef þeir ættu að halda sínum hlut. Kanadamaðurinn,
Gunnar Helgason í örvæntingarfullri baráttu við að bjarga íslensku
bergvatni hf. en horfir upp á eigið gjaldþrot að öðrum kosti.
SÓLARVELDI gömlu
eigendanna með
Davíð Scheving
Thorsteinsson í
broddi fylkingar er
nú endanlega fallið í
hendur lánadrottn-
anna: íslandsbanka,
Glitnis, Iðnlánasjóðs
og fleiri aðila. Þeir
stefna að því að
selja fyrirtækið fyrir
mánaðamót og eru í
viðræðum við
nokkra hugsanlega
kaupendur.
Rekstrarfélag Sólar hf. sem er
í eigu stærstu lánadrottna
Smjörlíkis-Sólar hf. steftiir
að því að ganga ffá sölu fyrirtækis-
ins fyrir mánaðamót.
Undanfarna daga og vikur hafa
stífar samningaviðræður verið í
gangi milli Rekstarfélagsins og
hóps sem Páll Kr.Pálsson, fyrrum
framkvæmdastjóri Vífilfells, er í
forsvari fyrir. Enn eru þó fleiri aðil-
ar inni í myndinni og hafa jafn-
ffamt farið ffam viðræður við þá.
Áður hefur verið greint ffá áhuga
heildsölurisanna O. Johnsen &
Kaaber og Nathans & Olsen og
PRESSAN hefur auk þess heimildir
fyrir því að heildsalan Danól
(Daníel ólafsson og Co) sé einnig á
Um skemmdarvarg-
ana á Siglufirði
Fólk talar tnikið um hvað eigi
að gera við drengina sem brut-
ust inn á heimili 86 ára gamall-
ar konu á Siglufirði og lögðu
það alveg í rúst. Ef ég hefði átt
þessa drengi hefði ég beðið
sýslumanninn að flengja þá
opinberlega og bjóða öllu fólki
á Siglufirði, sérstaklega börn-
unum, að horfa á. Máltækið
segir nefnilega: „Enginn verð-
ur óbarinn biskup." Eg er ekki
sjálf hlynnt flengingum í tíma
og ótíma en þær eiga samt
fullan rétt á sér þótt þær hafi
verið of mikið notaðar í gamla
daga. Ég spyr: Hvernig foreldr-
ar eru það sem þessir blessað-
ir ólánsdrengir eiga? Þarf
kannski að flengja þó fyrst?
Auðvitað eiga foreldrarnir
skilyrðislaust að taka íbúð
gömlu konunnar sjálfir í gegn
og borga skemmdirnar eins og
hægt er. En það verður þó
aldrei hægt að bæta allan
þennan skaða og þá persónu-
legu muni sem voru eyðilagðir.
DAVÍÐ SCHEVING THORSTEINSSON er afar ósáttur við þá ákvörð-
un lánadrottnanna að taka fyrirtækið endanlega yfir.
Hann mun fylgjast grannt með því hvort þeir selji fyrirtækið á
lægra verði en gömlu eigendumir þurftu að gera ef þeir áttu að
halda hlutafé sínu. í dag er ekki útlit fyrír að lánadrottnarnir nái
að standa við skilyrðin sem þeir settu sjálfir.
höttunum eftir fyrirtækinu.
Helstu eigendur fyrirtækisins í
dag eru íslandsbanki, Ghtnir og
Iðnlánasjóður og fulltrúi þeirra,
Ami Gunnarsson, sér um dagleg-
an rekstur þess.
Páll Kr. vill kaupa þrátt fyrir
ákvæði í starfslokasamningi
við Vífilfell sem meinar hon-
um það
PRESSAN hefur staðfestar heim-
ildir fyrir því að Páll Kr. Pálsson,
sem lét af störfum sem ffam-
kvæmdastjóri VífilfeUs, hafi fjár-
magn á bak við sig til að kaupa fyr-
irtækið. Þar er einkum um að ræða
hjónin Geir G. Geirsson eggja-
bónda á Vallá á Kjalarnesi og Hjör-
dísi Gissurardóttur gullsmið og
fyrrum eiganda Benetton- verslun-
arkeðjunnar hér á landi. Þá hefur
hann verið í viðræðum við fleiri
einstaklinga og leitað til sjóða og
lánastofnana um fyrirgreiðslu. Geir
vildi hvorki játa né neita hvort
hann hyggðist fjárfesta í fyrirtæk-
inu. „En maður veit aldrei hvert at-
burðirnir leiða mann,“ sagði hann.
Páh Kr. mun vera mikið kapps-
mál að taka við rekstri Sólar, enda
eru flestir sammála um að fyrir-
tækið eigi ffamtíð fyrir sér þrátt
fyrir ógöngumar sem það lenti í
eftir vatnsævintýri fymim eigenda
þess. PRESSAN hefur vitneskju um
að PáU Kr. hafi sýnt áhuga sinn
þremur til fjórum vikum áður en
hann lét af störfum hjá VífilfeUi,
eða fyrir um það bil tveimur mán-
uðum.
PáU er hins vegar í vandræðum
vegna ákvæðis sem er að finna í
starfslokasamningi hans við Vífil-
feU, en þar segir að hann megi ekki
ráða sig til starfa hjá fyrirtæki í
samkeppni við VífilfeU í einhver
misseri. Kunnugir segja hins vegar
að hægur vandi sé að finna króka-
leiðir framhjá þessu og sjálfur lítur
Páll svo á að Sól og VífilfeU eigi
ekki í samkeppni. En í hinum fá-
menna forstjóraklúbbi íslensks við-
skiptaheims þykir mönnum slæmt
að ganga á bak orða sinna með
þeim hætti því að það getur komið
í bakið á þeim síðar. Auk þess gæti
Vífilfell höfðað mál á hendur Páli
og stöðvað greiðslur til hans uns
dómur er faUinn.
Það eru því fleiri fyrirtæki undir
smásjánni hjá Páli, ein sjö eða átta.
Annars vegar er hann að skoða til-
boð um að gerast meðeigandi í fyr-
irtækjum og taka við stjóm þeirra
og hins vegar eru fleiri fyrirtæki en
Smjörlíki-Sól sem hann hefur fjár-
magn á bak við sig til að kaupa í
heilu lagi. Samkvæmt öruggum
heimildum PRESSUNNAR er
nokkur hópur, þeirra á meðal Geir
og Hjördís, sem er nánast til í
leggja fjármagn í hvaða fyrirtæki
sem Páli hugnast að kaupa. Það
sýnir stöðu hans á forstjóramark-
aðnum í dag.
Eftir sem áður stendur hugur
hans helst tfl þess að kaupa Smjör-
líki-Sól.
Davíð Scheving sett skilyrði
sem lánadrottnarnir eiga
sjátfir erfitt með að
standa við
Smjörlíki-Sól hf. gekk til nauða-
samninga við lánadrottna sína í
október á síðasta ári og voru þeir
staðfestir af Héraðsdómi' Reykja-
víkur. Þeir kváðu á um að eigendur
fyrirtækisins greiddu 15% al-
mennra, óverðtryggðra skulda fyrir
lok síðasta árs og önnur 15% fyrir
29. mars síðasthðinn. Auk þess
gerðu lánadrottnamir þá kröfu að
hlutafé yrði aukið um 120 milljónir
króna og tóku í raun yfir rekstur
fyrirtækisins með stofnun Rekstr-
arfélags Sólar hf.
Staðið var við fyrri gjalddagann
án þess að aukið hlutafé kæmi til
og útlit var fyrir að einnig tækist að
standa við þann seinni. Davíð
Scheving reri öhum árum að því að
safna hlutafé en það tókst ekki.
Þegar sýnt var að hann og aðrir eig-
endur fyrirtækisins gætu ekki stað-
ið við skilyrði nauðasamninga,
hvað þá aukið hlutaféð sem tryggði
lánadrottnunum greiðslur, vom
þeim settir úrshtakostir. Ef þeim
tækist að selja fyrirtækið fyrir 750
mflljónir króna myndu þeir halda
60 miUjóna króna hlut sínum í fyr-
irtækinu. Að öðrum kosti misstu
þeir aUt sitt. Þegar Davíð Scheving
tókst það ekki, vom gömlu eigend-
umir keyptir endanlega út úr fyrir-
tækinu og fengu þeir samtals 3
miUjónir króna í sinn hlut, eða 5%
af eignarhlut sínum. Fyrr í vikunni
tóku svo lánadrottnar fyrirtækisins
formlega við eignum Smjörlíkis-
Sólar.
PRESSUNNI er kunnugt um að
Davíð Scheving er ákaflega ósáttur
við þessi málalok. Hann mun
væntanlega fylgjast náið með því á
hvaða verði lánadrottnamir selja
fyrirtækið. Eins og dæmið lítur út
er þeim vart stætt á að selja það á
lægra verði en gömlu eigendunum
var gert, eða 750 milljónir króna.
Þær tölur sem em uppi á borð-
inu núna í samningum við hugsan-
lega kaupendur ná hins vegar ekki
700 mUljónum samkvæmt heim-
Udum PRESSUNNAR.
Róið að því öllum árum að
forða íslensku bergvatni frá
gjaldþroti
Það er einkum tvennt sem reið
Smjörlíki-Sól hf. að fullu. Annars
vegar var það misheppnuð gos-
drykkjaframleiðsla sem leiddi til
þess að blómatíð fyrirtækisins var á
enda. StórfeUdar fjárfestingar í
tengslum við vatnsævintýrið gerðu
svo útslagið.
Davíð Scheving hefúr í fjölmiðl-
um undanfarið í raun kennt
Gunnari Helgasyni um hvemig
fór. Gunnar er auðugur Kanada-
maður af íslensku bergi brotinn og
átti helminginn í íslensku berg-
vatni hf. á móti Smjörlíki-Sól.
Samningar við hann tryggja hon-
um einkarétt „að eilífu“ á sölu
vatnsins annars staðar en hér á
landi, í Færeyjum og Bretlandi í
nafiii Great Icelandic Water Corp.,
sem hann á stóran hlut í ásamt við-
skiptafélaga sínum Maurice Rol-
PÁLL KR. PÁLSSON er búinn að tryggja sér stuðning fjársterkra
aðila til að kaupa Smjörlíki-Sól og miklar líkur eru á því að geng-
ið verði frá kaupunum á næstu tveimur vikum. Enn eru þó fleirí
inni í myndinni.
HJÓNIN GEIR G. GEIRSSON OG HJÖRDÍS GISSURARDÓTTIR eru til-
búin til að bakka Pál Kr. upp og leggja verulegt fjármagn í kaupin
á Smjörlíki-Sól ef samningar nást.
lins. Þeir tveir áttu þetta dreifingar-
fyrirtæki í sameiningu í upphafi en
settu 36% hlutabréfa á markað í
Kanada þar sem þau seldust á háu
verði.
Langmestar vonir vom bundnar
við markaðinn í Bandaríkjunum
og eigendur Smjörlíkis-Sólar höfðu
tröllatrú á Gunnari. Hann lagði
ffam stórhuga áætlanir og neitaði
að hefja útflutning fyrr en búið var
að fjárfesta í vélum og tækjum í
samræmi við þær. Þegar til kom
tókst honum hins vegar ekki að
selja nema 2% af því magni sem
áætlanimar hljóðuðu upp á og fjár-
festingamar miðuðust við.
Islenskt bergvatn er komið í
gjaldþrotaskipti eii samkvæmt
traustum heimildum er Gunnar
enn að reyna að bjarga fyrirtækinu
með svokölluðum nauðasamning-
um innan réttar.
Að öðmm kosti stendur hann
ffammi fyrir því að að Great Ice-
landic Water Corp. verði gjald-
þrota og hann persónulega um
leið.
Hvort þessar björgunartilraunir
takast á að koma í ljós í næstu viku.
Ekki em allir jafn ánægðir með
þessar tihaunir og svo gæti farið að
áhugasamir kaupendur að Smjör-
líki-Sól verði afhuga kaupum ef
þær takast Ástæðan er sú að þá
sitja þeir að öllum líkindum uppi
með Gunnar og samninginn við
hann. Eins og einn þeirra orðaði
það: „Þegar maður fer út í svona
kaup verður aUt að vera á kristal-
tæra og það er ekki hægt að dragn-
ast með drauga úr fortíðinni með
r u
ser.
Styrmir Guðlaugsson
4 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ1994