Pressan


Pressan - 21.07.1994, Qupperneq 11

Pressan - 21.07.1994, Qupperneq 11
Ef hann væri skáld Kynkirtlar ígulkera Ljóð eftir Ólaf M. Jóhannesson Þessa stundina er mikið talað um evrópska og norrœna samvinnu. Sú hugsun hvarflar að mörgum að í skjóli Evrópusamstarfsins vaxi bara annað dagpeningakerfi enn stórfenglegra en það sem hefur þróast í kringum Norðurlandasamstarfið. Umræður um útflutning hvers kyns hugverka og annarrar söluvöru svo sem kynkirtla ígulkera eru líka mjög há- vcerar þessa stundina. Kannski væri ráð aðfæra kvótann í ríkara mœli yfir á smábátana? Fréttir ríkisútvarpsins njóta mikilla vinsælda ekki sístafþví að þareru menn afar stundvísir. Menntamálaráðuneytið ætti að annast útgáfu starfsleyfisskírteinis fyrir þettafólk sem situr löngum stundum við hljóðnema. En hvenær sjáum við myndir af sjónvarpsfréttamönnum okkar er lýsa uppgræðslu- og trjáræktarstarfi á erlendri grundu? Einnig mœtti vel senda lítfrá jarðarförum íframtíðinni. Þættir Hemma Gunn eru nokkuð misjafnir. Það er ábyrgðarhluti að senda Kris Kristofferson (sem getur auglýst litla landið okkar) í skokktúr inn með Klepps- vegi. Er ekki markmið fjölmiðlamanna að höfða til hins almenna tnanns eftirþví sem kostur er? Gagnrýnin umræða um listir og menningarstefnu er hér afhinu góða. Já, það ergreinilega erfitt að vera ráðherrafrú. En hvers vegna stendurfólkið þá íþessu? Ljóðlínurnar eru sjálfstæðar setningar úr fjölmiðlagagnrýni Ólafs í Morgunblaðinu síðustu misseri. Verstu mistökin Ertu lummó eða lekker? að er löngu vitað hvað íslend- ingar geta verið fyndnir. Oft- ast er það óvart eins og kemur til dæmis í ljós þegar PRESSUNNI fyrir fimm árum er flett. Þar er út- tekt á því hvað er... ekki inni eða úti, ekki heitt eða þreytt... heldur „lummó“ og „lekkert“. Þetta var árið 1989, í endann á neyslusukktímanum, uppamir voru varla famir að kikna undan greiðslubyrðinni af kaupleigujepp- unum og Jón Óttar var upp á sitt besta. Niðurstaðan er hvort tveggja í senn, sorgleg og hlægileg. Hér er stiklað á stóm og haldið ykkur fast. Við lofum að gera þetta aldrei, aldrei aftur: Lekkert Perrier. Tólfára viskí. Kampavín. Að þekkja Bryndísi og Jón Baldvin. Punktur og pasta og Café Ópera. Lítil matarboð og tveggja tíma heimakokkteilar. Vesturbærinn og nýi miðbærinn. Hundur með ættbók og fá böm. Thailandsferðir. Lidir, svartir sportbílar. Gallabuxur við blazeijakka. Að hafa verið í brúðkaupinu hjá Jóni Óttari og Eifii Gísladóttur. Lummó Að fara á krá Að fara á ball. Partí fram undir morgun. ítölsk vín. Pasta. Bjór. Campari. Að þekkja rithöfunda. Að hafa skoðanir á pólitík. Helgarreisur til Amsterdam og London. Álafossúlpur. Að hafa ekki verið í brúðkaupinu hjá Jóni Óttari og Elfu Gísladóttur. Ofboðslega fallegt eða hörmulegur belgingur? w Isíðasta sunnudagsblaði Morgunblaðsins birtist ljóð eftir Matthías Johannessen, óður til náttúmnnar í sonnettuformi, á heilli opnu ásamt myndum eftir Ragnar Axelsson. Það er ekki oft sem Morgunblaðið leggur svona mikið upp úr ljóðabirtingum, svo PRESSUNNI fannst liggja beint við að spyija: Hvernig fannst þér Ijóðið hjá Matta? Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi: „Þetta er ósköp ljúft og indælt, reglulega sætt. Á meðan maður les það.“ Jóhann Hjálmarsson gagnrýnandi: „Mér fannst það vel ort og það skiptir ekkki verulegu máli hvort hann yrkir í ffjálsu eða óbundnu formi.“ Linda Vilhjálmsdóttir ljóðskáld: „Ljóðið var ofboðslega fallegt, mjög fallegt náttúm- og ástarljóð." Hrafn Jökulsson ljóðskáld: „Þetta var hörmulegur samsetningur. Matthías í sínum versta ham: fullur af skáldleg- um belgingi og innihaldslausu orðskrúði. Það er ótrúlegt að höfundur þessa kvæðis skuli líka hafa ort sum af skárri ljóðum síðustu ára.“ PRESSULIÐ óskabarna þjóðarinnar Hástökkvarinn Björk Guðmundsdóttir hefur upplifað allt ffá fyrirlitningu til aðdáunar. I dag elska allir íslendingar stjömuna eftir að hún fór í heljarstökkum upp erlenda vin- sældalista. Sérkennileg ffamkoma hennar breyttist í hugum landa hennar úr því að vera óþolandi rugl í barnslega einlægni. Sennilega mættu fleiri á tónleikana í Laugar- dalshöllina en samanlagður fjöldi allra þeirra íslendinga sem séð höfðu Björk áður á tónleikum. Forsetinn mætti líka þannig að Björk hlýtur að fá fálkaorðuna á nýjárs- dag. Sleggjukastarinn I gegnum tíðina hefur Kristján Jóhannsson hamrað á því að hann sé heimsffægur og aðeins tímaspursmál hvenær hann ryðji hinni heilögu tenóraþrenningu úr vegi og taki við kyndlinum sem mesti hetjutenór heims. Fram á síðustu ár hafa íslendingar trúað honum en samanburðurinn við Björk hefur valdið því að skuggi hefur fallið á frægðina. Þegar Islendingar eignuðust raunverulega alþjóðlega stjörnu áttuðu þeir sig um leið á því hve frægð Kristján er mikið í ætt við orðstír Garðars Hólm. Kristján er þó tvímælalaust í liði óskabarna þjóðarinnar — ennþá. En effir fimm ár gæti hann verið kominn á varamannabekkinn ef hann nær ekki að standa við stóru orðin. Hindrunarhlauparinn Sú þverstæða sem býr með íslensku þjóðinni að elska að hata óskabörnin sín kem- ur hvergi betur ffam en í afstöðunni til Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Sony-forstjóra og rithöfundar. Þjóðin dáist að því hvemig hann lagði viðskiptaheiminn að fótum sér og bókmenntaheiminn á eftir og drekkur í sig allt sem hann segir og sagt er um hann. Hann er hins vegar grunsamlega flekklaus og góður drengur sem fer í taugarn- ar á sumum. Og þótt erlendir gagnrýnendur hrósi honum flestir fyrir Fyrirgefhingu syndanna þótti flestum skemmtilegt hvemig íslenskir gagnrýnendur reyndu að slátra honum hver á effir öðmm. Tugþrautarkappinn Hemmi Gunn er tengdasonur þjóðarinnar. Hann hefur heillað allar mæður sem dreymir um að þeirra tengdasynir væm jafh yndislegir. Hemmi hefur ekki þurft að gera stórkostlega hluti eða öðlast ffægð fyrir utan landsteinana til að halda stöðu sinni. Hann er einnig samnefhari fyrir mannlegan breyskleika sem allir skilja, týpan sem er fyrirgefið allt. Hann snéri uppákomunni effir páskana, þegar hann mætti ekki í þáttinn sinn, í persónulegan sigur með því að viðurkenna vanmátt sinn. Allir elska Hemma og Hemmi elskar þá. Boðhlauparinn Páll Óskar Hjálmtýsson er fyrsti homminn sem þjóðin hefur tekið almennilega í sátt. Hörður Torfa hljóp fyrsta sprettinn í réttindabaráttunni þegar hann kom fyrst- ur íslenskra homma úr felum opinberlega á áttunda áratugnum. Hann og aðrir hommar sem á eftir fylgdu þurftu að þola fýrirlitningu og smán en létu ekki deigan síga. Með baráttuglöðum hlaupurum hafa þeir aukið sigurlíkur sínar. Páll Óskar hef- ur nú tekið við keflinu og hlaupastíll hans hefur vakið aðdáun. Hommar hafa þurff að beijast við þá fordóma að þeir séu óeðlilegir en engum finnst neitt óeðlilegt við Pál Óskar. Fánaberinn Sigrún Huld Hrafnsdóttir væri óskabarn hverrar þjóðar sem væri. Hún er falleg og einlæg og hefur unnið fleiri sigra á alþjóðlegum stórmótum í íþróttagrein sinni, sundi fadaðra, en íslendingar eiga að venjast með afreksmenn sína. Kætin og gleðin sem skin úr andlitinu smitar alla. Sigrún er fánaberi liðsins. Fararstjórinn Skáldjöfurinn á Gljúfrasteini, Halldór Laxness, er sennilega sá íslendingur sem mestrar virðingar nýtur. Valinkunnur hópur manna valdi hann áhrifamesta íslend- ing lýðveldistímans eins og ffarn kom í þjóðhátíðarblaði PRESSUNNAR. Hann hefur lagt pennann á hilluna en er sjálfkjörinn fararstjóri liðsins. Varamennirnir Amór Guðjohnsen á enn möguleika á því að komast í lið óskabamanna en þó að- eins um skamma hríð ef hann og sonur hans ná því takmarki að leika saman í ís- lenska landsliðinu í knattspymu. Eiður Smári kemst þá líka í liðið en það fer effir því hvort hann rís undir vænting- unum sem gerðar eru til hans um heimsffægð hvort hann haldi sæti sínu. Linda Pétursdóttir var dáð af allri þjóðinni þegar hún var alheimsfegurðardrottning og á enn aðdáun allra kynþroska karlmanna. Nektarmyndir af henni og vinna fyrir Playboy varð hins vegar til þess að mæður þessa lands kröfðust þess að hún yrði sett út úr liðinu. Karlpeningurinn stendur þó vörð um hana þannig að hún fær að sitja á bekknum. RMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ1994 PRESSAN 11

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.