Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 23
BÍÓIN í BORGINNI
Þunn mynd um hefnd
THECROW
★
Sýnd i Laugarásbiói
Par sem er é leiðinni að gifta sig daginn eftir,
er myrt af fjórum vangefnum og bandbrjáluð-
um illmennum. Ári síðar ris eiginmaður órot-
inn úr gröf sinni með hjálp yfirnáttúrlegrar
kráku, meikar sig eins og hann sé genginn i
hljómsveitina Kiss og hvað heidurðu, drepur
alla vondu kallana með hinum ýmsu aðferð-
um á milli þess sem hann æfir sig á raf-
magnsgitar uppi á húsþaki. Þetta er ná-
kvæmlega söguþráður Krákunnar og maður
veit innan tiu mínútna hverjir drepast i mynd-
inni. Sem sagt, hér er á ferð mjög hefðbundin
klisjumynd — „hefndarmynd”, sem sést hef-
ur í hundrað útgáfum áður.
Brandon Lee leikur góða kallinn. Hann lést af
slysaskoti á meðan tökur stóðu yfir og þvi
þurfti að klessa honum i nokkur atriði með
hjálp tölvutækninnar. Umgjörð myndarinnar
er nokkuð flott Sagan gerist i myrkri stór-
borg þar sem endalaust rignir. Eftir á að
hyggja er eins og öll myndin hafi verið tekin í
myrkri. En... það má fyllilega taka undir það
sem einn bíógesturinn sagði þegar hann
gekk út ,Leiðinlegt að svona flott mynd skuli
vera með svona hrikalega þunnan sögu-
þráð."
Eddie Superman
Beverly Hills Cop III
Sýnd i Sambíóunum og Háskólabíói
Sjálfur Eddie Murphy er ekki siðri i þessari
mynd en hinum tveimur en öllu má nú of-
gera. Þessi mynd verður að teljast heldur ýkt
en þeir sem fíla Eddie ættu samt sem áður
ekki að láta myndina fram hjá sér fara.
Þetta er svo sannarlega ævintýramynd, enda
gerist stór hluti hennar í barnaskemmtigarði
nokkrum og flest atriði þykja harla ólíkleg.
Eddie lifir af hina ótrúlegustu skotbardaga og
verður nokkurs konar Superman þar sem
hann bjargar einu og öllu. Húmor hans er þó
í góðu lagi og alltaf er hægt að hlægja að vit-
leysunni, enda náunginn með eindæmum
fyndinn. Það má því segja að hann brjóti upp
allt þetta ævintýrahjal með klúri sínu og
fyndni og maður fer þokkalega sáttur heim.
Aðrar helstu myndir
Sambióin:
Maverick
Léttlynd kábojmynd með Mel Gibson og
Judie Foster.
Reality Bites
Winona Ryder i unglingamynd sem gefur sig
út fyrir að vera gáfumannsleg.
Bíódagar*
Falleg mynd um voðalega lítið.
Angie
Geena Davis alltaf jafn sæt og nú er hún líka
ólétt. Kannski það sé nýjasta trendið í Holly-
wood: „Óléttumyndir”?
Police Academy7
Þynnra gerist það varla, botninum náð.
Blank Check
Disney mynd um auðan tékka.
Hostile Hostage
Svört grinmynd.
ThunderJack
Krókódíla Dundee reynir að græða á fornri
frægð með gamanvestra.
Beverly Hillbillies
Grín um bóndadurga sem verða snögglega
auðugir. Sami leikstjóri og gerði Wayne's
World númer eitt
Stjörnubíó
Bíódagar *
Röð af nostalgiuatriðum og þegar myndin er
búin situr fátt eftir nema tómleikatilfinning og
svolitil hlýja gagnvart nokkrum atriðum þar
sem Friðriki Þór og Einari Má tekst að hitta
áhorfandann í hjartað.
My Girl 2
Fjölskyldumynd. Fjármagnið nægði ekkitil að
Hómalón- strákurinn væri aftur með.
Guarding Tess
Nicolas Cage passar Shirley MacLaine.
Háskólabíó
Wayne's World II ★★
Rokkaulamir Wayne og Garth aftur komnir á
ferð með svipaðan húmor og síðast. Það má
vel hafa gaman af þessu — sérstaklega ef
maður er unglingur og í góðu stuði.
Greedy
Gamanmynd um græögi. Kirk Douglas leikur
gamla kallinn sem á peningana sem allirvilja
erfa.
Naked Gun 331/3
Brandaramynd.
Laugarásbíó
Serial Mum ★★★★
Öfgaperrinn John Waters með sína frábær-
ustu mynd i mörg ár. Raðmamman, som
Kathleen Turner leikur glæsilega, er hin
vemdandi móðir I þúsundusta veldi og kálar
öllum sem flækjast fyrir hamingjuímynd fjöl-
skyldunnar. Gálgahúmor i hæsta gæðaflokki.
Above the Rim
Körfuboltamynd fyrir krakkana.
Sirens
Áströlsk erótik.
Regnboginn
Les Visiteurs ★★
Hraður franskur farsi um tvo miðaldamenn
sem villast inn i nútímann. Hin þokkalegasta
skemmtun.
SugarHill
Wesley Snipes kannar undirheima New York
borgar.
Needful Things
Skrattinn sest að í bandarískum smábæ.
Tryllir gerður eftir sögu Stephen King.
Piano ★★★★ og Kryddlegin hjörtu *★★
Þessar ganga og ganga. Listrænt bíó.
KOKKTEIU I SUMAR
FÖSTUDAGSKVÖED
PÁLL ÓSKAR
LAUGARDAGSKVOED
DISKÓTEK MEÐ KOKKTEIL A F S U Ð RÆ N N I
O G FJÖLBREYTTRI TÓNLIST T I L K L 03.00
Borðapantanir í síma 689-686
Afmæli,
en ekkert
an rekstur, enda telja þeir lágmark-
ið 2-3 milljónir íbúa og mikinn
ferðamannastraum.
Þess vegna get ég núna gortað
óspart og um leið prísað mig sælan
af því að hafa fengið staðinn á sín-
um tíma, enda skýt ég gjarnan að
þeim að það ætti að vera Hard
Rock Café „in every major city in
the world“. En það er bara gaman
að þessu núna því í dag væri
Reykjavík ekki inní myndinni hjá
þessum mönnum.
Enn eykst bjórúrval-
ið í Rikinu. Nú
hefur bæst við enn einn
eðalbjórinn, hinn hol-
lenski Amstel. Þetta er
gamalkunnur bjór,
fimm prósent að styrk-
leika, og er að sögn
fimmti mest seldi bjór-
inn í Evrópu. Hann er
nokkuð bragðmikill og
vel þess virði að prófa
hann. Amstel er seldur
hér í hálfs lítra dósum á
1130 krónur kippan, en
fæst ekki nema í Heið-
rúnu, Kringlunni, á
Eiðistorgi og Akureyri.
Á Eöstudag
...Hard Rock Café þar sem
alltaf er líf og fjör í kringum
allt og alla og starfsfólk virð-
ist aldrei fá nóg af
látunum þarna inni.
Afmælishátíð þeirra
stendur yfir þessa
helgi og það er ekki
leiðinlegra að hafa
miss og ungfrú eitt-
hvað alls staðar í
kringum sig að uppfarta.
...innliti í nýja listasafnið í
Kópavogi hvað sem það
heitir nú aftur. Það tók hálf-
an mannsaldur að koma því
upp og það er í alla staði
stórglæsilegt. Kaffið og
bakkelsið er líka hræbillegt,
en að vísu ekki jafn billegt
og kaffið sem hægt er að
snapa ókeypis í banka-
stofnunum og bakkelsið
sem stundum er boðið upp
á í bakaríunum. En þá miss-
ir maður líka af stórkostlegu
umhverfi, eins og því sem
hægt er að láta umlykja sig í
listasafninu, æi hvað heitir
það, þama fyrir neðan
Kópavogskirkju.
...Eggtónleikum íTungl-
inu. Hér
gefst sjald-
gæft tæki-
færi til að sjá
marga af
efnilegustu
tölvupoppur- <
um landsins koma fram.
Þeir grúfa sig yfir tækin sín,
ýta á takka og koma salnum
í gott grúf.
teygj
Hard Rock Café fagnar
nú sjöunda starfsári
sínu með tilheyrandi
látum og hefst hátíðin
fimmtudaginn 21.júlí.
Hún mun standa í fimm
daga og lýkur á mánu-
daginn með pomp og
prakt þegar meðlimir
hljómsveitarinnar SSSól
stíga á svið og halda
stórdansleik þar innan-
dyra.
Tómas Tómasson eigandi
Hard Rock sat hvorki á
svörum né sögum þegar
Pressan hafði samband við hann.
Ljóst er að Hard Rock Café er ein
umsvifamesta veitingakeðja heims-
ins en nú eru komnir yfir 40 Hard
Rock staðir í heiminum en ekki
voru nema þrir árið 1984. Þess má
geta að Tommi var ellefti í röðinni
til þess að opna slíkan stað.
Hvernig verður afmcelishátíðinni
háttað?
„Hard Rock Café á sinn eigin-
lega afmælisdag mánudaginn 25.
júlí en við höfiim alltaf haft það
fyrir sið að halda fjögurra til fimm
daga afmælishátíð og á því verður
engin undantekning nú. Við bjóð-
um upp á íjóra til fimm rétti á
„gamla verðinu“ og ætlurn svo að
enda hátíðina með tónleikum
SSSól, þar sem meiningin er að
fylla staðinn enda aðgangur ókeyp-
Hvað með teygjustökk í tilefni af-
mœlisins?
„Það gerði ég á 5 ára hátíðinni
og ég ætla ekki að stökkva aftur
fyrr en við verðum 10 ára. Þá ætla
ég að stökkva teygjulaust...en ég
hef ennþá þrjú ár til þess að finna
út hvernig ég á að koma því við!“
Stendur til að setja upp fleiri staði
hérlendis?
„Nei, það er af og ffá. Þegar ég
hitti stofnendur staðarins í New
York árið 1984 vissu þeir ekki hvert
stefndi með Hard Rock Café því
það gekk ekki nógu vel hjá þeim.
Nú er tíðin önnur og þeir eiga í
vandræðum með að finna borgir
sem eru nægilega stórar fyrir þenn-
Meiri
Vídeóleiga á
Tveir ungir iðnrekstrarfræði-
nemar hafa innréttað sendi-
ferðabíl sem vídeóleigu og má nú
sjá Vídeóbílinn þeysast um götur
bæjarins að þjóna þeim sem hafa
hug á að panta spólurnar heim til
sín og fá þær sóttar daginn eftir.
„Við hjálpum fólki með að velja
spólur ef það er í einhverjum vand-
ræðum og ffamtíðarhugsunin er sú
að gefa út bækling þar sem bestu
spólurnar hverju sinni verða til
sýnis“ sagði Sigurður Frosti Þórð-
arson sem rekur Vídeóbílínn
ásamt félaga sínum Jóhanni Gunn-
arssyni. Þeir hafa báðir starfað á
vídeóleigum og kunnu því vel til
verka þegar velja þurfti videóspólur
til údána í bílnum. „Við erum með
gott úrval af spólum sem við völd-
um úr góðurn kjarna. Við höfúm
þurff að vanda valið enda erum við
með það lítið pláss.“
Vídeóbíllinn býður upp á um
1000 titía en auk þess er í bílnum
selt gos, sælgæti og tóbak. Spólan
kostar 590 en séu pantaðar tvær í
einu, fæst sú seinni á 390 krónur,
sem er undir meðalverði. Strákarn-
ir ætía að einblína á stór Reykjavík-
ursvæðið en síminn hjá þeim er
644646 og verða þeir við símann
allan sólarhringinn.
Sigurður Frosti og
Jóhann fyrir utan
Vídeóbílinn.
vífarar
Ljósmyndarinn Einar Snorri er flottasta týpa landsins, eins og
PRESSAN opinberaði í síðustu viku. Tvífari hans, HM-hund-
urinn „Striker“ er aldeilis ekki síðri týpa. Eins og sjá má er
mjög sterkur svipur með týpunum og ef þetta væri auglýsing myndi
hún klikkja út með: „Það er nefið“...
bjór
FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ 1994 PRESSAN 23