Pressan - 21.07.1994, Blaðsíða 25
LífLð
Á sunnudag
Egg á Tunglinu
Fyrir tæplega hálfum mánuði
hélt Smekkleysa útgáfutón-
leika vegna plötunnar
„Smekkleysa í hálfa öld“. Á föstu-
dagskvöldið verða haldnir aðrir
útgáfutónleikar, nú vegna safn-
plötunnar „Egg ’94“ og í Tunglinu.
Á Egginu hljómar það nýjasta og
ferskasta sem er að gerast í dans-
tónlistinni svokölluðu á Islandi í
dag. Fjöldi hljómsveita, sem sumar
eru aðeins skipaðar einum með-
limi, koma fram: T-World, Und-
erground Family, Kusur, Space-
mann Spliff, Plastic og Bix. Á plöt-
unni eru einnig Ajax, Oscillator,
D.E.W., Hydema og Biogen.
Hljómsveitunum til halds og
trausts eru svo snúðamir Þossi og
Maggi Legó.
Til stendur að halda út stans-
lausri svitakeyrslu frá miðnætti ná-
kvæmlega. Hljómsveitin Scope,
sem er vinsælasta dansband lands-
ins um þessar mundir, mun ríða á
vaðið á slaginu tólf. Svo munu
hljómsveitimar sex gera sína
gjöminga út kvöldið og helst ekki
hætta fyrr en Zarcus og félagar á
Egg-geimskipinu mæta á staðinn.
Þá mun geimið halda áfram á ann-
arri plánetu.
...sundi í Hveragerði. Ekki
á Hótel Örk heldur í litlu kósí
sundlauginni sem er vel falin
rétt fyrir ofan bæinn. Þetta
er eitt best varðveitta sund-
laugarleyndarmál Suður-
lands. Á leiðinni í bæinn er
svo nauðsynlegt að fá sér
kaffisopa með trökkdræver-
unum í Litlu kaffistofunni og
fræðast um það sem þessir
alvöru karlmenn em að
hugsa eða þegja bara
þunnu hljóði og skoða á
þeim húðflúrin.
.. .Skúlptúr/Skúlp-
túr/Skúlptúr íslensk sam-
tímalist á Listahátíð 1994 á
Kjarvalsstöðum, en þetta
mun vera síðasta sýningar-
vikan. Þar em sýnd verk 29
íslenskra myndlistarmanna,
sem flestir komu fram á eftir
SÚM kynslóðinni.
...fjölskylduferðum um
Öskjuhlíð. Ég segi það satt,
Öskjuhlíð er morandi í kan-
ínum og þær em ótrúlega
gæfar. Það væri því aldeilis
tilvalið fyrir fjölskylduna að
búa sig út
með nesti
og nóg af
gulrótum
og þvæl-
ast um
þessa náttúmparadís í kan-
ínuleit. Að gefa öndunum er
úti, nýjasta trendið er að
gefa kanínunum í Öskjuhlíð-
inni.
Marsipan:
Átak gegn heyrnarleysi
fáum inn, aö
fáeinum vinum undanskildum. Þar af leiðandi stóð Hinrik Ólafs-
son ásamt fleiri fastagestum í röðinni og komst ekki inn. Bæði
föstudags- og laugardagskvöld sást til Hár- gengisins enda er
þeim klappað lof I lófa eftir hverja sýningu og því skiljanlegt að
þau leiti allra leiða til að ná sér niður.
í Tunglinu voru meðal annars Pétur Sæm, Þossi og Raggi
gúrka.
Á Rósenberg hélt Filippía næturdrottning uppá afmæli sitt
ásamt Alex kærasta sínum. Þar var margt um manninn einsog
svo oft en þar voru Rut Róberts, Þorvaldur Bjarni og Bjarni Sæm
arm i arm, Svenni Ijósmyndari ásamt Sylvíu, Guðrún Eyjólfsdótt-
ir, Eggert Boga iþróttatröll, Svala Björgvins hin unga söngkona
hljómsveitarinnar Scope, Súsanna sminkdrottning og Þórunn
Högna. Hálfur poppbransinn var mættur á Rosenberg að venju
en þar má nefna Dos Pilas, Lipstick Lovers, Stripshow gengið og
Rúnar í Skífunni.
I villtu partíi hjá Möggu Rós var nokkuö mikið um „týpur".
Þar voru samankomin Steinunn Ólína, Baltasar Kormákur, Einar Snorri „týpa númer eitt',
Frikki á Kaffibarnum og Ámi Kaldal.
Meðal gesta á Ingólfscafé voru þeir Les og Alex, konulausir að þessu sinni, Dóri Bach-
mann Þórsmerkurfari með meiru og Sara Guðmundsdóttir Ijósmyndafyrirsæta Reykjavíkur
ásamt Þóru vinkonu sinni. Fyrir utan staðinn hélt Berglind Ómarsdóttir skemmtanahrellir
uppi stuði ásamt vel stilltum Eyjapeyjum og konum.
Eyjólfur Kristjánsson sat í rólegheitum á sunnu-
dagskvöldið inná Kofa Tómasar frænda en þar voru
einnig i rólegheitunum Glódis Gunnarsdóttir, útvarps-
dama á FM og ívar Guðmundsson. Á föstudagskvöldinu
var þar Guðni Bergsson ásamt eiginkonu, Róbert
Spanó og Óttar Páls, Erla súpermódel ásamt maka sin-
um Konráði Ólafssyni, Suðurlandsdrottningin Ingunn
Vilhjálmsdóttir og Óli Örn og sama kvöld skaut Óli Ty-
nes þar nefinu inn. Á laugardagskvöldinu hélt þar stór-
tónleika gitarsnillingur að nafni Jason Ólafsson en viðstaddir tóku vel undir og Páll Þórólfs-
son þandi raddböndin og aðstoðaði vin sinn við sönginn.
Sjáið:
Ariel ★★★ Ariel á KÚV á
fimmtudagskvöld. Innkaupa-
deild Ríkissjónvarpsins hefur
greinilega gert magninnkaup af
myndum finnska þunglyndis-
meistarans Aki Kaurismaki og er
það vel. Þó bömmerinn ríki í
myndum hans er alltaf allt ntor-
andi í svörtum húmor sem gerir myndirnar glettilega góð-
ar. Þessi er ffá 1988 og fjallar um sveitamann sem kemur
til Helsinki til að freista gæfunnar. Hann lendir í hinum
ýmsu vandræðum en finnur loks ljósan punkt í tilverunni.
Við höfúm valdið ★★★ We’vc got the powcr á RÚV á fostudagskvöld. MI-
DEM-verðlaunuð heimildarmynd um alþýðutónlist Suður-Afríku. Hér er allt
vaðandi í tónlist: mbaqanga, poppi, rappi og gospel, með jafn ólíkum flytjendum
og Kamazu, Pat Shange, Manjaro og Yvonne Chaka Chaka. Áhugamenn um (-
heimsjlónlist eru hér í góðum málum.
Pavarotti, Domingo og Carreras ★★★ The Three Tenors 1994 á Stöð 2 á laug-
ardagskvöld. Þrír ffægustu tenórar heimsins belgja sig út og baula yfir 60 þúsund
manns í Los Angeles. Pottþétt fyrir óperuáhugafólk en það er annars óskiljanlegt
hversvegna hinn heimsfrsegi Jóhannsson er ekki þama á milli hinna stórlaxanna
Sonur árinnar ★★★ Hijo
del rio í RÚV á sunnudags-
kvtild. Argentisk verðlauna-
mynd frá 1990 um 18 ára
dreng sem flytur af vemdar-
svæði indjána til Buenos
Aires, þar sem lendir hann í
félagsskap með glæpagengi. Fyrsta mynd Ciro Cappellari,
sem þekkir undirheimalífið af eigin raun.
M M——J|—Eintóm vandræði 9 Nothing but Troublc Stöð 2 á
VdliðH fimmtudagskvöld. Fyrsta verkefhi Dan Aykroyd scm leik-
stjóra og handritshöfundar. Það vantar ekki stjömumar:
John Candy, Chevy Chase, Demi Moore og leikstjórinn sjálfur með tvö kíló af
meiki framan í sér, flækjast hér hvert fyrir öðm í hörmulega misheppnaðri grín-
hrollvekju — leikmyndin er þó ffekar flott.
Paul McCartney ★ Paul McCartney. Movin’ On í RÚV á föstudagskvöld.
Hjólastólapopp bannað innan 40 ára. Paul tjáir sig um undirbúning, upptökur og
myndbandagerð vegna plötunnar „Off the Ground“. Einnig er sýnt frá tónleikum
og þar fer kerlingatuskan hún Linda á kostum á tambórínunni.
í fullu fjöri V Satisfaction á Stöð 2 á laugardag. Eins og allar myndir (nema
The Commitments) sem segja ffá „hressum krökkum sem ákveða að stofna sam-
an rokldiljómsveit“ tottar þessi allíþyrmilega.
Kauðu skómir V Thc Red Shoe
Diaries á Stöð 2 á laugardagskvöid.
Erótískur stuttmyndaflokkur — er-
ótískur stuttmyndaflokkur?! Jafh er-
ótískur og gömul sviðasulta sem
staðið hefur mánuðum saman á
ofríi! Hér er vaselíninu smurt á lins-
una og fólk talar eins og það sé að
gefa upp öndina. Þeir sem vaka effir
þcssu til að sjá glitta í einstöku geir-
vörtu eiga bágt. Þá var nú meira fútt
í merkjamyndunum hans Jóns Ótt-
ars.
skáld. Útsetningamar eru svo auð-
vitað í höndum allra sveitarmeð-
lima.“
Geturðu gefið mér dœmi um
textainnihald?
„Æ, æ. Textamir em allir á ís-
lensku enda nauðsynlegt að við-
halda íslenskri textagerð. Dæmi
segirðu... nei, ég held ekki. Fólk
verður bara að mæta og hlusta á.“
Á svo að koma þessu efni út?
„Ég tel það afar ólíklegt þar sem
þetta em tilvalin tónleikalög. En
við emm auðvitað opnir fyrir öll-
um tilboðum.“
Af hverju spiliði svona stutt og
byrjiðsvona snemma?
„Þetta er alþjóðlegur marsipan-
dagur og á þessi mikli „matur“ var
einmitt uppgötvaður á þessum
tíma sólarhringsins. Auk þess er
hljómsveitin andvíg löngum tón-
leikum. Menn skaddast á hlustun-
arfærum á lengri tónleikum. Því
viljum við hlífa aðdáendahópi okk-
ar til þess að þeir geti mætt oftar.“
Barði Jóhannsson er gaukur
sem alltaf er eitthvað að
bauka í tónlistinni. Hann
og Láms Magnússon gerðu út Opp
Jors dúóið sem kom út 3 spólum
og sló rækilega í gegn á Húsavík og
tróð reglulega upp á karaoki í bæn-
um. Nú hefúr Barði bundið trúss
sitt við fjóra af fimm meðlimum
hljómsveitarinnar Wool í nýju
bandi sem nefhist Marsipan. Sæta-
brauðsdrengimir ætla að koma
ffam í fyrsta skipti á Tveimur vin-
um annaðkvöld, föstudagskvöldið
22. Tímasetning tónleikana er af-
brigðileg: þeir hefjast stundvíslega
kl. 22.30 og enda klukkutíma síðar.
Það er að sjálfsögðu ókeypis inn.
„Ég vil taka það ffarn að Opp
Jors er starfandi ennþá en sú
hljómsveit er eingöngu stúdíó-
hljómsveit sem spilar ekki nema á
þriggja ára fresti,“ segir Barði.
„Marsipan varð til eftir að ég og
söngvari Wool, Höskuldur, unn-
um saman í stúdíói. Upp úr þessu
stilltust hugir okkar saman og
ákveðið var að setja saman sveit til
tónleikahalds. Wool er þó ennþá í
miklu stuði og nú hljóðrita þeir af
kappi fyrir hljóðverstímana sem
þeir hlutu fyrir annað sætið í
Músiktilraunum.“
Hvemig músikflytur Marsipan?
„Það er popprokk með hippa-
rokkslegu ívafi.“
Og þú semur öll lögin?
„Nei, Halli píanóleikari hjálpar
mér stöku sinnum og er það vel
enda er hann hæfileikaríkt tón-
Marsipan mínus Halli
Valdi Kaldi á Valholl kíkti inná Sólon Islandus um
helgina en þar létu einnig sjá sig Jóhanna Guðmunds og
Sissa Ijósmyndarar.
Meðal þeirra sem
sátu sem tastast fyrir
framan skjáinn á Glaum-
bar að horfa á heimsmeistarakeppnina i fótbolta var krúvið
frá Eintaki, Eiríkur Jónsson á Stöð 2, Ooddi hjá Bilasölu
Reykjavíkur ásamt Hilla rótara í Pláhnetunni en Stjörnu- og
Framstrákarnir reyndu að læra sitthvað af HM leikmönnum
ásamt því að staupa sig saman.
FM - gengið var þama saman-
komiö, Ágeir Kolbeins, Giódís
Gunnarsdóttir, Jóhanncs Skúla-
son, Ragnar Már og Harpu „Ital-
íu-lover". Að ógleymdu var á
Glaumbar samankomin áhöfn danska strandgæsluskipsins Tri-
ton, en þeir kappar láta sjá sig þar reglulega á fjögurra mánaða
fresti. Traustir kappar þar á ferð!
Meðleigjandi óskast ★★★ Single White Female á
Stöð 2 á laugardagskvöld. Spennumynd um þær
Bridget Fonda og Jennifer lason leigh sem leigja sam-
! an. önnur er geðvcik og eftir mikla gcðshræringu
kemur að uppgjörinu. Sú geðveika rís nokkrum sinn-
um upp frá dauðum til að magna upp spennuna en
hrapar að lokum ofan í lyftugrunn, eða eitthvað í þá
áttina. Miðað við klisju-
myndir HoUywood er þessi í finu meðaUagi.
Hvítatjaldið ★★★ endursýnt í RÚV á sunnudag.
Valgerður Matthíasdóttir hefur fengið vinnu við
kynna það nýjasta sem bíóin bjóða upp á og eru
þættimir sýndir aðra hverja viku á þriðjudögum en
endursýndir á sunnudögum. Vala er jafn vel inni í
bíóunum og öllu öðru og gerir þetta óþyrmilega vel.
FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ1994 PRESSAN 25