Pressan - 21.07.1994, Side 27

Pressan - 21.07.1994, Side 27
Hættur, farinrt: Jón Baldvin biður um hæli i Brussel, 20. júlí. „f fyrsta lagi: það skilur ínig engirrn á íslandi. í öðru lagi: ég verð aldrei forsætisráðherra. í þriðja lagi: loftslagið er betra hér í Brussel. I tjórða lagi: rauðvínið er ódýrara. I fiminta lagi: Jó- hanna Sigurðardóttir er asni,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son snöktandi þegar GP spurði hann af hverju hann hefði ákveðið í vikunni að sækja um hæli hjá Evrópusambandinu sem pólitískur flóttamaður. Samkvæmt heimildum GP sótti Jón Baldvin fyrst um inn- göngu í Evrópusambandið sem einstaklingur fyrir nokkrum vik- um, en breytti umsókninni í þessa veru eftir að hann kom liingað í morgun. Með honurn í för var utanríkisráðuneytið og hálfur þingflokkur Alþýðuflokks- ins. „Það er fyrst núna sem við skiljum livað maðuiinn er alltaf að vilja hingað,“ sagði Jacques Santer nýkjörinn forseti fram- kvæmdastjórnar ESB. „Hann liefur komið hingað á nokkurra vikna fresti til að nudda sér utan í okkur, tala um hvað UlTe sé gðður vinur sinn og svo endar liann alltaf á því að svngja eitt- hvað lag um heilaga Jóhönnu af Örk sem enginn skilur. Mon Di- eu, maðui'inn kann ekki frönsku fyt'ir íimmaura.“ íleldurðu að Jón Baldvin fái hœli sem pólitískurflóttamaður? „Oui, miðað við það sem við höfum heyrt af pólitískum of- sóknum á hendur lionum og hremmingum sem hann hefur lent í á íslandi þykir mér það lík- legt. Þetta er ekki nokkrum manni bjóðandi.“ Yfirlýsing frá útgefanda GULU PRESSUNNAR GP sameinast The European „Vegna lu-æringa á evrópskum blaðamarkaði hafa nú tekist samningar á milli GULU PRESS- UNNAR og The European um sameigiiúega útgáfu," segir í yfirlýsingu sem útgefandi GP hefur sent frá sér. Tvær vikur eru síðan GP kom síðast út og er skýringin langvarandi samn- ingafundir þessara tveggja aðila. „Héðan í frá verða blöðin gefin út sameiginfega, þ.e. l'/ie Eur- opean verður fylgirit GP í viku liveni. Ég dreg enga dul á að þetta eru viðbrögð við fregnum um hugsanlegan samruna lielsta keppinautar okkar, Morgun- blaðsins, og breska dagblaðsins News of the Iforld. Við höfum fyrir því traustar heimildir að Morgunblaðið hyggist færa út kvíarnar með þessum hætti, en jafnvel þótt svo fari eklu viljum við ekki eiga á hættu að sitja uppi einangraðir og áhrifalitlir á ewópskum markaði. Sjálfstæði íslenskra íjölmiðla er í veði,“ segir í yfirlýsingunni. Loks segir: „Það er staðföst skoðun okkar að með evrópskri samvinnu sé lesendum okkar betur þjónað en ella. Þótt ís- lenskt þjóðféfag haf! séð okkur ágætlega fyrir fréttaefni hingað til eru takmörk fyrir því hversu lengi er hægt að skrifa um sömu bjánana. Við treystum jní að Evrópubúar séu engu síðri bján- ar.“ „Landsreisa" Jóhönnu einn stór misskilningur „Látiði mig í friði“ segir Jóhanna uið æstan múginn Ferðin reynist vera þáttur í átakinu „ís- land, sækjum það heim“. Sjá bls. 37 Skýringin á debetkortaklúðrinu Reynast vera jólakort frá Landsbankanum „Fólki er nær að lesa ekki póstinn sinn betur,“ segir Sverrir Hermannsson og yj greiða þeim sem p| tapað hafa milljón- um á því að nota K ^ 1 f 'jPBf j jólakort Landsbank- kS «. W.- iki ' ■ ans í hraðbönkum. K C / . - \ ■ í ’ fj Sjá bls. 68 r Enn fjölgar hneykslismálunum í Þjóðminjasafninu Þór Magnússon er falsaour Hinn raunverulegi þjóðminjavörður hvarf við leit að horfnum munum. Hringbraut, 21. apríl „Það er ósegjanlegur léttir að vera kominn aftur,“ sagði Þór Magnússon |ijóðnúnjavörður í samtali við GP, en í morgun kom í ljós að liann hefur verið horfinn í tíu ár. „Ég fór upp á háalofl tif að skyggnast um eftir tréristum sem liurl'u liéðan sumarið 1984,“ sagði Þór aðspurður um fjaiveru sína. „Ég fann þær, en þá kom í ljós að þær voru úr steini. Þegar ég fann svo gullhálsmen úr kopar og kálf- skinnsbók á ljósritunarpappír sökkú ég mér niður í rannsókn- imar og gleymdi mér alveg. Það var ekki fyrr en ég heyrði undir- gang fyrir ofan mig að ég rankaði við mér. Það vom menn að skipta um Jiakið,“ sagði Þór. Ólafur G. Einarsson mennla- málaráðherra sagðist engar skýr- ingar kunna á hvarfi þjóðminja- varðar og sagðist fui'ða sig á Jiví að enginn hefði saknað hans. „Þetta vom skemmtileg úu ár,“ sagði Hans Pétursson húsvörður þegar hann var leiddur út í lög- reglubíl í morgun, en hann hefur Jióst vera Þór Magnússon frá því lúnn raunverulegi þjóðminjavörð- ur hvaif. „Ég lít ekki þannig á að ég hafi gert neitt af mér,“ sagði IJans. „Hefur einhver tekið efúr því að eittbvað væri að í Þjóð- minjasafiúnu þennan tíma? Mér er sþúm.“ „Ég lúýt að líta á þetta sem að- för að Þjóðminjasafninu, öllum starfsmönnum Jiess fyrr og síðar og fjölskyklum þeirra, vinum, ná- grönnum og briddsfélögum," sagði Þórarinn Eldjárn aðspurð- ur um nýjustu tíðindi af safiúnu. Þór Magnússon framvísar skil- ríkjum um að hann sé hinn eini sanni þjóðminjavörður „Þetta var gaman á meðan á því stóð,“ segir Hans Péturs- son. t FIMMTUDAGURINN 21. JULI 1994 PRESSAN 27

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.