Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1938, Blaðsíða 4

Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1938, Blaðsíða 4
4 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ Er Sialin grimmari en Neró? EFTIR D. F. WICKETS. Vegna atburöa hinna síðustu tíma eru margir þeirrar skoð- unar, að Josef Vissarionovisk Djugashvili, sein er frægur orð- inn undir nafinu Jósef Stalin, sé knúður til eyðileggingarstarfs síns af einhverju valdi í sálinni, sem hann fær ekki við ráðið. Sú var tíðin, að þessi luralega vaxni einvaldur virtist vilja öll- um hið besta. En sagan segir frá svo mörgum stjórnöndum, sem byrjuðu sem mannvinir, en enduðu skeið sitt sem blóðugir harðstjórar. Hinir blóðugu harðstjórar fyrri tíma létu það jafnan í veðri vaka, er þeir létu lífláta andstaeðinga sína hópum saman, að þeir gerði það til að forða ríki sínu frá voða. Sálfræðingar nútímans eru hins- vegar á þeirri skoðun, að þeir hafi allir verið „fæddir“ sadistar. — Stalin hefir stofnað til blóðstjórn- ar á Rússlandi og „gert upp reikn- ingana“ við hina fyrri vini sína. Hann er grimmari en Neró, en hann var sadisti. I_____________________________I Samtíðarmenn Nerós álitu hann, er hann tók við völdum, hinn efnilegasta mann. Og áður en Tiberius varð geðbilaður, var hann talinn einn af bestu stjórnurum Rómverja. En hvorki Neró né Tiberíus voru með öllum mjalla. Báðir voru brögðóttir og slægir og töldu morð sín nauðsyn fyrir rikið. í fyrstu tóku menn þess- ar afsakanir sem sjálfsagð- ar, en þegar æði þeirra óx, fóru menn að efast um að alt væri með feldu. Það varð Ijóst að báðir þessir menn voru sadistar, voru grimmir vegna grimdarinnar sjálfrar. Gætir sadismans hjá Josef Stalin? Blóðþorsti Nerós og Tíberíus- ar er, að áliti sálfræðinga nú- timans, ekki kominn af illkvitni, heklur hinu að í æsku hefir eitthvað komið fyrir þá, sem hefir sett sálarástand þeirra úr skorðum. En afleiðingarnar þurfa ekki að koma fram fyrri en að f jölmörgum árum liðn- um. En þegar það verður, nær þetta i fari mannsins þeim tök- um á honum, að annara eigin- leika gætir litt. Og ef enginn heftir þetta, þá er voði búinn. Enginn rómverskur keisari né rússneskur hefir verið jafn valdamikill og Stalin. Hann ræður sjöunda hluta heimsins og 170 miljónum manna. Faðir Stalins, Yissarion Dju- gashvili, sem var skósjniður að iðn, var drykkjuóður maður. Eitt sinn, er hann-var óður af víni, barði hann son sinn næst- um þvi til bana. Hann réðist ekki að eins á hann með hnefa- höggum, heldur notaði hann einnig skósmíðaverkfæri sín til að misþyrma honum. Það var að eins með erfiðismunum að móður Stalins tókst að bjarga lífi hans. Barsmíðar föðurins, sem lést í „fylliríi“, skildu eftir miklu varanlegri og dýpri ör í sál Stal- ins, en bólusóttin skildi eftir á andliti hans. Þetta staðfestir einn vina hans og samlandi, Kyrill Kakabadse, sem eitt sinn var þjóðfulltrúi fyrir Georgíu, ættland Stalins. Kakabadse komst i háar stöður í stjórn Sovét-Rússlands og var eitt sinn fulltrúi manganhrings- ins í Berlín, og var þá kallað- ur lieim, en neitaði að hlýða, því að hann vissi livers hann mátti vænta, ef hann sneri aft- ur. Hefir hann síðan búið uían Rússlands, því að liflátsdómur vofir yfir honum þar, og hann segir oft ýmsar sögur um æsku- vin sinn Stalin. Allir aðrir, sem þekkja æsku Stalins eins og hún var i raun og veru, eru annaðhvort dauðir eða i fangelsum. En maður má ekki gleypa það ómelt, sem sagt er um Rúss- land, hvort sem það er með eða móti. Sá er þetta ritar myndi ekki leggja trúnað á söguburð Kakabadses, ef liann kæmi ekki heim við gerðir einvaldans. Sum börn eru gersamlega kúguð af illsku foreldranna. Reynsla Stalins í æsku á þvi sviði gerði hann að þeim manni, sem nafn hans bendir til, að „stálmanninum“. Hún kendi lionum að verjast með lymsku og eira engu. Það losaði hann við þá tilfinningu, sem sársauki og lítilsvirðing höfðu skapað honum, að hann stæði öllum að baki. Ef þetta væri alt og sumt, gæti Rússar verið rólegir. Lymska og liarðfylgi geta verið góðir eiginleikar hjá stjórn- málamanni, en hinir síðustu at- burðir í Rússlandi sanna þann grun, sem sprottið hefir upp hjá mönnum, að Stalin fórni hagsmunum lands sins og fyrri grundvallarskoðunum, til þess að geta svalað ástriðum sínum. Það er erfitt að leiða hjá sér þá staðreynd, að Stalin, likt og aðrir einvaldar, hefir gaman af því að beita kænsku sinni og grimd. Hann lætur sér ekki nægja að drepa, heldur leikur hann sér að fórnarlömbum sínum eins og köttur að mús. Hann. lætur setja f jandmenn sina í fangelsi, lætur þá síðan lausa aftur, en næsta dag eru þeir svo settir i „steininn" á nýjan leik. Og áð- ur en hann lætur að lokum taka þá af lífi, neyðir hann þá til að lítillækka sig opinberlega og lofsama þann mann, Stalin, sem lætur drepa þá. Sumir ætla að skósveinar Stalins noti ýms lyf til að sljóvga fangana og fá þá til að játa, hvað sem á þá er borið. Pólitíska leynilögreglan, Ogpu, er ásökuð fyrir að nota hinar ægilegustu pyndingar, sem not- aðar voru á tímum trúarofsókn- anna á miðöldum og þeim sé beitt þangað til viljaþrek fang- ans er brotið á bak aftur. En takist það ekki, er fangan- um lofað frelsi, ef hann vill skrifa játningu sina, eða liótað er að drepa konu hans eða nán- ustu ættingja. Þeir, sem enn þrjóskast deyja í fangelsi. Hinir undirrita játningar, sem allar eru eins orðaðar — samdar af Stalin sjálfum. Jafnvel vinir Stalins játa, að hann sé hefnigjarn og gleymi aldrei þvi, sem gert er á hluta hans. Alt þetta — og þótt menn vilji ekki trúa öllu — bendir ó- tvirætt til þess, að Stalin sé sad- isti. Freud segir, að sadisminn sé „löngunin til að lifa“, en maso- chisminn „löngunin til að> deyja“. Masochisminn beinist að mannmum sjálfum, sem hann býr i, en sadisminn bein- ist út á við eða að öðrum. Til allrar hamingju er það svo með flesta sadista, að þeir verða ekki morðingjar. Ilins- vegar er það algengt með al- gerðum einvöldum, að þeir láta. engin takmörk hefta sig. Þeir- eru þó svo kænir, að hafa jafn- an „góðar og gildar“ ástæður fyrir grimdaræði sínu, t: d. að ríkinu sé liælta búin. Það gerðu bæði Neró, Caligula og Tiberíus.. — Eg á enga fjandmenn,. sagði einn liarðstjóri, Porfiria Diaz. — Hversvegna ekki? — Þeir eru allir dauðir. — Ef eg léti ekki háls- höggva þegna mína sagði sam- landi Stalins, Ivar grimmi, við sendiherra Prússa — þá myndu þeir liálsliöggva mig. Þessu lík myndi afsökun Stal- ins vera. Er það tilviljun ein, sem ræður þvi, að Stalin býr f sömu ibúð í Kreml og Ivan grimmi á sínum líma? Fyrir andlát sitt varaði Lenin kommúnistaflokkinn við Stalin. Þegar Trotski las upp þann boð- skap hins látna leiðtoga fyrir miðstjórn flokksins, ypti Stalin öxlum og sagði, að Lenin hefðí ekki verið með réttu ráði, er hann ritaði hann. En hann reiddist og allir þeir, sem vbru þá á öndverðum meiði við liann, eru nú annaðhvort dauðir eða í útlegð. Drepa — drepa — drepa — það eitt virðist vaka fyrir hon- um. Lenin lést í tæka tíð. -— Ef maðurinn minn hefði ekki dáið þá, sagði Krupskaja —- hefði Stalin einnig látð drepa hann. Trotski, Zinovieff, Kameneff, Bukharin, Radek, Rykoff, Tom- ski, foringjar vinstri og liægri armanna hafa verið drepnir, settir i fangelsi eða reknir í iit- legð. Átta hershöfðingjar í rauða hernum, þ. á. m. Tukat- jevski marskálkur, hafa farið sömu leiðina. Stjórnartími Stalins er röð af Bartholomeusmessu-nóttum. í Ukrainu, meðal Kósakkanna, í Kákasus, alstaðar mætti hann mótspyrnu og alstaðar voru það byssukúlur, er þögguðu niður í gagnrýnendunum. En maðurinn, sem allir Rúss- ar óttast, er sjálfur hræddur. IJvar sem liann er, fylgir hon- um margfaldur lífvörður.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.