Vísir Sunnudagsblað - 29.01.1939, Blaðsíða 8
8
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
ILausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Á 11EIMSSÝNING LJNNI í NEW YORIÍ
verður „model“ af gríðarstórum járnbrautarbyggingum, sem eru samtals 1130 fet á lengd, en úti-
leikliús er tilheyrandi og rúmar það 4000 manns. Þarna verða daglega sýningar, til þess að gefa
mönnum hugmynd um járnbrautaferðalög frá því þau fyrst liófust og alt til vora daga. 27 járn-
brautafélög í Austur-Bandaríkjunum taka þátt í sýningunum og mörg úr Vesturríkjunum, svo og
nokkur járnbrautafélög frá Evrópu.
Bara páfagaukurinn!
Reginald skrifstofustjóri
kemur lieim og heyrir einlivern
gjallanda inni í stofunni. Segir
við þernuna:
— Er konan mín komin
heim nú þegar?
— Nei, herra skrifstofustjóri.
Þetta er nú bara páfagaukur-
inn!
Norðanstormurinn.
Gamall skipstjóri situr við
borðið og drekkur heita romm-
blöndu. Ðóttursonur hans er
kominn i lieimsókn til karls og
kerlingar, liorfir á afa sinn og
spyr: Af hverju er nefið á þér
svona rautt, afi minn? — Og
skipstjórinn svarar: Það er
norðanstorminum að kenna,
góði minn! Hann hefir farið
svona með mig. — Þá segir
húsfreyjan, amma drengsins:
— Já, þeir geta verið nokkuð á-
fengir, þessir norðanvindar!
Ekki blóta!
— Mamma mín — má eg ekki
blóta strákunum, ef þeir
hrekkja mig?
— Nei, væni minn. Lithr
drengir mega eklci blóta.
— En stórir strákar — mega
þeir gera það?
— Nei — ekki heldur.
— En stelpur?
— Nei, börn og unglingar
mega eldki tala Ijótt.
— En fullorðið fólk?
— Nei. Enginn, hvorki ung-
ur né gamall, ætti að blóta. Guð
lieyrir alt, sem við segjum.
— Heyrir hann afskaplega
vel?
— Já.
— Heldurðu að hann heyri til
mín, ef eg blóta í huganum?
— Já, það er áreiðanlegt. Og
svo les liann lika allar okkar
liugrenningar.
— Hvernig fer hann að lesa
þær?
— Eins og við lesum á bók.
— Mamma! Hvað á eg þá að
gera, þegar strákamir sparka í
mig og berja mig og eg þori ekki
til við þá, ef eg má ekki blóta?
— Þá áttu að koma heim til
hennar mömmu þinnar, væni
minn!
HENRY WILCOXON og JOAN WOODBURY.
Þegar þau voru gefin saman íhjónaband, breski kvikmyndaleik-
arinn Henry Wilcoxon (33 ára) og Joan Woodbury (22), var
brúðurin í brúðarkjól móður sinnar. Brúðkaupið fór frarn á af-
mælisdegi brúðarinnar, en það er venja í liennar ætt, að konur
ættarinnar inngangi í heilagt hjónaband á afmælisdegi sínum. —
Meiri líkur.
— Hvers son ertu, drengur
minn ?
— Ekki gott að segja! Eg er
skrifaður hjá Jóni fjósamanni,
en allir segja, að eg sé lifandi
eftirmynd Jóns sauðamanns.. —
— Mér skilst þá, að sam-
kvæmt þessu sé eins og heldur
meiri líkur til, að þú sért Jóns-
son!
Hálfgert ranglæti.
— Bróðir minn varð stein-
blindur af brennivins-þambi,
sagði vínsvelgur nokkur, en eg
sé alt tvöfalt og auk þess ósköp-
in öll af flugum, sem livergi eru
til. Þetta kalla eg liálfgert rang-
læti og þætti eins og viðkunn-
anlegra, að heldur jafnara væri
skift!
Kom ekki dúr á auga.
Presturinn: Það voru meiri
ósköpin, sem á gengu í nótt, frú
Mortensen — þrumur og elding-
ingar og steypiregn! Eg man
varla önnur eins læti.
Frú Mortensen: Og minnist
þér ekki á það, prestur minn!
Svei mér sem eg hélt ekki, að
heimurinn væri að farast. Og
ekki kom mér dúr á auga alla
liðlanga nóttina. En nú er eg
að vona, að eg geti blundað eitt-
livað ofurlítið í kirkjunni í dag!
Ómerkilegt fólk.
— Segðu mér eitt, Lars: Er
það satt, að hún dóttir þin sé
farin úr góðu vistinni í borg-
inni?
— Ójá, ekki ber á öðru!
Þetta var ákaflega ómerkilegt
fólk, þegar til kom. Síðast bar
það upp á hana, aumingjann,
að hún hefði. stohð gullhring
frúarinnar. Það er ekki verandi
hjá svona fólki!
— Þú ert spariklæddur, Lars
Larsen. Hvert á nú að halda?
— Til borgarinnar. Eg kann
sem sé betur við að láta rann-
saka, hvort liring-skrattinn er úr
gulli!
— En hvað þú ert orðinn stór
og fallegur drengur! Og hvað
ertu nú gamall?
— Veit það ekki með neinni
vissu, skal eg segja þér. Mamma
var 29 ára þegar eg fæddist, en
nú er liún ekki nema 27!