Vísir Sunnudagsblað - 10.09.1939, Blaðsíða 7

Vísir Sunnudagsblað - 10.09.1939, Blaðsíða 7
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 7 ulleðju, sem hefir að visu gert hásléttuna afar mishæðótta, en jafnframt ágætlega frjósama. Árnar og lældrnir hafa á árþús- undum grafið dali og gert milli- landið enn ósléttara. Stærsta á- in, sem fellur yfir hásléttunni, er Aare, og Cr hún mun stærri en Rín, þar sem þær koma sam- an. — Á hásléttunni eru mestu ávaxta- héruð Mið-EVrópu. Hásléttan er langsamlega frjósamasti og þéttbýlasti hluti Sviss. Ef maður horfir yfir hana ofan af hárri fjallsbrún, þá blas- ir liið frjósama land við, með ökrum og grasgrundum, með borgum, þorpum og býlum, víðáttumiklum vötnum, djúp- um straumþungum fljótum og dinnnum gx-eliiskógum. Árið 1920 voru þar 165 íbúar á hvern ferkílómetra, og iðnaður, korn- rækt, aldinrækt og kvikfjár- rækt þar í miklum blóma. Milli landinu er skift i þrjá megin- hluta: austur-, mið- og vestur- hásléttu. Á austur-hásléttunni er úrkomusamt og loftslag sval- ara en á hinum hlutum lie'nnar, þess vegna er tiltölulega lítið kornyrkja þar, en aftur á móti mikill iðnaður og mikil ávaxta- rækt. Þar er mesti iðnaður Svisslendinga, mest utanrílds- verslun, þéttast járnbrautarnet, mest þéttbýli og framleiðslu- möguleikarnir því á allan hátt fjölþættastir og þroskaðastir. Þar eru og einhver frjósömustu og uppske’rumestu ávaxtahéruð Mið-Evrópu, og er undurfögur sjón að liorfa yfir víðáttumikil landflæmi, sem virðast vera einn óslitinn aldingarður í hvit- um, gulleitum og fjólubláum vorskrúða. Á austur-hásléttunni er stærsta borgin í Sviss, Ziirich með 350.000 íbúa, háskólaborg með tvo fræga háskóla, iðnað- ar- og verslunarborg, og eVróp- isk samgöngumiðstöð milli Þýskalands og Italíu, Austur- ríkis og Frakklands. Aðrar helstu borgir eru St. Gallen með 65.000 og Winterthur með 55.000 íbúa, hvorttveggja iðn- aðar- og verslunarborgir. Miðhluti hásléttunnar e!r að mestu leyti akurlendi, en minna um kvikfjárrækt og iðnað, og jafnframt strjálbýlli en austur- hluti hennar. Stærstu borgir eru Bern, liöfuðhorgin í Sviss, með 110.000 ibúum. Ber hún mest merki stjórnmálalífs, erlendra sendiherra, embættismanna og aðstoðarmanna þeirra. Þar er háskóh og auk þess alþjóða- skrifstofur pósts- og símamála. Luzern með 50.000 íbúum ligg- ur við Yierwaldstattervatnið og er umfram alt ferðamannaborg. Smærri borgir eru Thun með 17000 og Solothurn með 14000 íbúum. Á suðvesturhluta hásléttunn- ar er lcvikfjárrækt og akur- yrkja stunduð nokkuð jöfnum höndum; þar er sykurrófna- rækt nokkur. Við Genfarvatnið, sem liggur mun lægra en há- sléttan sjálf, er Miðjarðarhafs- loftslag, og þroskast þar ágæt- lega vínviður og suðrænn gróð- ur. Hélstu borgir eru: Genf með 130.000 ibúa, háskólaborg, verslunar- og ferðamannaborg; auk þess aðseturstaður Þjóða- bandalagsins. Lausanne, versl- unar- og liáskólaborg með 75000 ibúa, Veve'v með 13000 og Montreaux með 19000 íbúa eru ferðamannabæir, Freiburg er háskólabær með 22000 íbú- um. Andstæður í veðráttu. Loftslag er afar hreytilegt í Sviss; fari maður t. d. í úrhell- isrigningu úr Norður-Sviss og suður fyrir Alpafjöll, er ekkert líklegra en það, að þar sé heið- ur og skýlaus liiminn; en þefta getur líka verið öfugt, þannig að sunnan fjallanna sé regn en bjartviðri og sólskin norðan þeirra. Alpafjöllin eru ekki að- eins veðramörk, heldur aðskilja þau einnig að mestu, Miðjarðar- hafs- og Miðevrópuloftslagið. Þetta sést á því, að í borginni Zurich, sem er norðan Alpanna, er meðalárshiti 8,5° C., en í Bellinzona, sem er rétt fyrir sunnan þau, er meðalárshitinn 12°. Norðan fjallanna er skýj- aður himinn % hluta ársins að meðaltali, en sunnan þeirra ekki nema hálft árið. Snjór ligg- ur að meðaltali 41—46 daga á ári á hásléttunni, 24 daga sunn- an Alpafjalla, en 192 daga, eða meir en helming ársins, í fjalla- dalnum Eugadin í Austur-Sviss, er liggur í ca. 1800 m. hæð yfir sjó. Þar eru heldur ekki liitar nema 6—7 vikur á ári. En loft- lagsbreytingar eiga sér ekki einungis stað í Alpafjöllunum, heldur e'innig á hásléttunni. Við Genfarvatnið er t. d. Miðjarðar- hafsloftslag, en við Boden-vatn- ið, sem liggur í næstum sömu hæð, er svipað loftslag og í Mið- eða jafnvel Norður-Þýskalandi. Fjórtán metra djúpur snjór. Sem vænta má, bæði rignir og snjóar mikið i Sviss eins og öðrum háfjallalöndum. Mesta fannkoma, sem sögur fara af, var árið 1893; þá lilóð sumstað- ar niður 14 m. djúpum snjó. I Júrafjöllum falla oft svo miklir snjóar, að samgöngur teppast; ganga þó snjóplógar víðast hvar á undan járnbrautunum og ryðja snjónum af veginum. Meðal ársúrkoma hefir mælst mest á Monte Moro-skarðinu, yfir 400 cm., en minst í Wallis- ardölunum, eða aðeins 50—60 cm., svo að munurinn á úrkom- unni er gífurlegur. 1 Zurich eru árlega 166 úrlcomudagar að meðaltali, en ekki nema 61 í Sitten í Wallis. UM 8TRIÐ. Stríð orsakast af siðleysi. Napoleon. Eitthvað það liræðilegasta sem hugsast getur er töpuð or- usta, en næst hræðilegast er unnin orusta. Wellington. Eg veit nú ,að það er ekki hægt að útrýma stríðum með stríði. Henry Ford. Það ætti að útrýma tindátum. — Það þarf að afvopna barna- uppeldið. Dr. Paulina Luisi. Styrjaldir munu hverfa eins og risaeðlurnar, þegar róttækar breytingar á kringumstæðunum í heiminum hafa eyðilagt til- verurétt þeirra. Robert Andrews Millikan. Það er ldutverk kirkjunnar að gera mig og mína stéttar- hræður atvinnulausa. Field Marshal Earl Haig. ELDUR I GLERBORGINNI. Eldur kom upp í miðhluta „glerborgarinnar“ á Heimssýningarsvæðinu i New York og nam tjón- ið 10.000 dollurum. Meðal áhorfenda, er slökkviliðið var að kæfa eldinn, var LaGuardia borgar- stjórí (í svörtum frakka með li ian hatt).

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.