Vísir Sunnudagsblað - 04.08.1940, Qupperneq 4
4
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ
ur Sæmundsson, kennari,
Stokkseyri.
Eyrarbakka- eða Háeyrardeild.
Deildarstj. Einar Jónsson,
kaupm.,Eyrarbakka, Gísli Gísla-
son, bóndi, Ásgautsstöðum, Ól-
afur Árnason, kaupm., Guð-
mundur ísleifsson, kaupm., Há-
eyri, Jón Adólfsson, kaupm.,
Stokkseyri?
Sandvíkurdeild.
Deildarstj. Sigurður Þor-
steinsson, bóndi, Flóagafli,
Guðm. Þorvarðarson, bóndi,
Sandvík, Hannes Magnússon,
bóndi, Sandvík.
Fimm breppar í Árnessýslu,
Biskupstungna, Þingvalla,
Grafnings, Ölfus og Selvogs,
voru aldrei í Stokkseyrarfélag-
inu, að því er scð verður, hvern-
ig sem á þvi hefir staðið, einkum
þó að því er snertir þann fyrst-
um — sem eru því miður frem-
ur ófullkomnar.
Nokkurra fleiri atriða úr sögu
félagsins skal bér getið, eftir því
sem hægt er að ráða af heimild-
um — sem eru fremur ófull-
komnar eins og áður er getið.
Árið 1892 pantaði félagið um
70 tonn af vörum. Tveimur ár-
um siðar liafði þetta aukist svo,
að talið var að skip (60—70
smál?) þyrfti að fara þi’jár ferð-
ir milli landa til að flytja vörur
til félagsins.
1894 skoraði fundur á stjórn
félagsins að láta skip koma til
Vikur i Mýrdal með vörur handa
Skaftfellingum og líklega Ey-
fellingum. Varð stjórnin við
þessari áskorun a. m. k. að ein-
hverju leyti.
Mestur kraftur var í félaginu
meðan sauðasala á fæti var ó-
hindruð til Englands, eða fram
yfir aldamótin. 1892 sendi það
út 1500 sauði frá 12 deildum
(flestir úr Holtum, 407), en
hæst komst sauðaútflutningur-
inn 1894. Það ár sendi félagið út
5550 sauði á fæti til Englands.
Fengu sumardeildirnarþámikla
peninga fyrir sauðina, auk vöru-
úttektar. Þetta ár var á aðal-
fundi úthlutað í peningum til 15
deilda um 18 þús. krónum. Mest
fékk Skaftártungudeild 4.180 kr.
Árið áður var úthlutað rúmum
5.300 kr. til 10 deilda. Hæst var
þá Rangárvalladeild með 1400
kr.. Sauðirnir voru vegnir af
deildarstjóra um leið og hann
veitti þeim móttöku, og máttu
*) Eftir að þetta er skrifaS, hefi
eg séð getið urn Kaupfélag Árnes-
inga í ÞjóSólfi frá 1898. Er því
ekki ólíklegt, aS þessir hreppar,
eöa einhverjir þeirra, hafi haft
einhver verslunarsamtök, og nefnt
þau Kf. Árnesinga.
þeir ekki vera léttari en 96 pund
og eigi þyngri en 130 pund.
(Fyrst máttu þeir þó vera
þyngri, en fáir munu liafa átt
þyngri sauði nema ef til vill
Skaftártungu-, Land- og Holla-
menn). Pundið i lifandi vigt var
áætlað 18 aurar, er frá höfðu
verið dregin 40 pund af þyngd
livers sauðs. Þó var a. m. k. ekki
í fyrstu leyft að panta vörur svo
bátt út á sauði. 1892 var ákveðið
að panta mætti vörur „eftir inn-
kaupsverði“ út á sauði sem svar-
aði 8 kr. út á sauð, 40—50 kr. út
á liross, ull, 50 aura pundið, salt-
fisk (þorsk) 30 kr. skippundið,
og ísu 25 kr. skpd.
Sýnir þetta, að varlega átti að
fara, til að safna elcki skuldum.
Og formenn félagsins brýndu
það oft og rækilega fyrir deild-
arstjórum að gæta þess vel, að
leyfa mönnum ekki að panta
meira en þeir voru menn til að
borga. í fundargerð frá 1893
segir svo t. d.: „Formaður (Páll
Briem) áminti deildarstjóra al-
varlega um að hata það liugfast,
að koinast ekki i skuld við félag-
ið.“
Þetta geklc þó ekki vel. Strax
á fyrsta ári lconist félagið í tals-
verða skuld við Zöllner. Lagði
Eyjólfur í Hvannni þá til á aðal-
fundi, að félagið hætti störfum í
eitt ár, borgaði skuldina, safnaði
kröftum, og kappkostaði í fram-
tíðinni, „að eiga heldur til góða
en skulda“. Ekki vildu fundar-
menn fallast á tillögu Eyjólfs,
og var samþykt að félagið héldi
áfram.
Oftast átti félagið í baráttu
við skuldirnar, og stundum t. d.
d. árið 1900, komust þær á ann-
an tug þúsunda.
Varasjóði reyndi félagið að
koma upp með ýmsu móti, eins
og áður er getið, en held-
ur gekk það seint. Fyrst var
ákveðið að hver félagsdeild
greiddi í varasjóð „1% af inn-
lendum vörum deildarinnar“,
svo átti varasjóður að fá þann
hluta „af varasjóði pöntunar-
félags Árnesinga sem sumar
deildir fél. eiga tilkall til“. En
treglega mun liafa gengið að fá
þetta greitt. Er svo að sjá, sem
bér liafi verið Um að ræða upp-
liæð er nam 225 kr., „enn Kaup-
félag Árnesinga gat eigi borgað
þetta út að svo stöddu af
því, að deild Ölvesinga stóð í
skuld við félagið.“ 1898 var á-
kveðið að leggja „2% af inn-
kaupsverði erlendra vara í vara-
sjóð.“ Árið 1900 var sjóðurinn
talinn að vera 800 krónur.
¥
Til þess að inæta „almennum
kostnaði“ var 1893 samþykt að
leggja „aukreitis“ 20 aura gjald
á spritt (pottinn), en liann kost-
aði 29 aura í innkaupi, og 1 kr.
og 15 aura í útsölu. Ekki voru
allir deildararstjórarnir ánægðir
með þennan „aukreitis“ toll á
þessari vöru. Tvivegis reyndu
þeir að afnema liann. 1 fvrra
skiftið lagði Jón í Hemru til að
tollurinn væri niður feldur, en
tillagan var feld með eins al-
kvæðis mun. I síðara skiftið
kom tillagan fráKjartani í Þúfu.
Hún var einnig feld þá, en með
litlum atkvæðamun. Þess skal
getið að hvorugur tillögumanna
var drykkjumaður, en í deildum
þeirra og fleiri, hefir þessi 20
aura hækkun á spíritus verið ó-
vinsæl.
Tvívegis mættu formenn fé-
lagsins „á sambandsfundi kaup-
félaganna í Rvk.“. Páll Briem
1894 og séra Skúli i Odda 1895.
Á síðari fundinum var ákveðið
„að gefa út tímarit um verslun-
armálefni“ og tæki félagið „þátt
í kostnaði tímaritsins“. 1897
vildi Ólafur Árnason fá félagið
til að leggja fram nokkra fjár-
upphæð til þess að „fá lagðan
veg, af hinum væntanlega ak-
vegi frá Ölfusárbrúnni niður á
Eyrarbakka, fyrir ofan Hrauns-
hverfið og austur að Hraunsá“,
því þessi vegarlagning „væri
brýn nauðsýn“. Ekki vildi félag-
ið sinna þessu, en líklega er hér
í fyrsta skifti hreyft þessari
vagarlagningu, sem var svo
nauðsynleg fyrir Stokkseyri og
umhverfi hennar. Árið 1899
reyndi Þórður í Hala að fá
sýslunefnd Rangárvallasýslu til
þess að veita styrk til þessa veg-
ar, en hún neitaði því með öllu.
1893 keypti félagið liús á
Stokkseyri, er Grímur Gíslason
bóndi i Óseyrarnesi hafði bygt
þar. Var það mikið timburhús
18. álna langt, tvilyft. Þaðan
voru erlendar vörur afhentar,
og tekið á móti innlendum. Um
tíma hafði félagið opna búð í
því bæði haust og vor, meðan að-
di’áttarferðir bænda stóðu yfir.
Hús þetta brann að síðustu í
stórbruna er varð á Stokkseyri
á þriðja tug þessarar aldar.
Hér eru fjögur sýnishorn af
því, livernig eitt og annað var
metið á síðasta tug 19. aldar:
Fyrir að reka hross til Reykja-
víkur úr Rangárvallasýslu voru
greiddir 78 aurar á st. frá Hemlu
í Landeyjum, en 58 aurar frá
Þjórsárbrú. — Deildarstjóri
Mýrdalsdeildar þurfti einu sinni
að gera sér ferð út að Hala fyrir
deild sína. Á aðalfundi næsta á
eftir fór hann fram á að félagið
greiddi sér 16 kr. fyrir ferðina,
— en því var synjað. Á þeirri
tíð var þeíta varla minna en 5
daga ferð til og frá, með tvo
liesa, og yfir mörg og stór vatns-
föll að fara, öll óbrúuð. —-
Fyrir aðalfundarliald í Hala
er stóð í tvo daga voru greiddar
75 krónur. Fundinn sátu 19
menn. Þeir fengu gott fæði, gist-
ingu í tvær nætur, og hey handa
ca. 30 hestum. i tvo sólarhringa
a. m. k. fyrir uppliæðina.
— Eitt sinn var haldinn deildar-
stjórafundur á Stokkseyri.
Deildarstjórarnir fengu tvær
krónur hver „fvrir uppihaldið
á staðnum meðan fundurinn
stendur yfir“ — og annað ekki.
Eins og áður er vikið að, stóð
félagið með mestum blóma með-
an sauðaútfhitningur til Eng-
lands var óhindraður.En nokkru
fyrir aldamótin fóru að verða
örðugleikar á sauðasölunni til
Englands, sem altaf urðu meiri
og meiri, uns bún var bönnuð.
Fór þá að draga úr félaginu, en
þó hélt það áfram starfsemi til
1915 a .111. k. Síðast mun það
bafa fengið skip með vörur frá
L. Zöllner það ár, og var Eggert
i Laugardælum þá tekinn við
formenskunni af Þórði í Hala.
Félagið mun þá hafa átt tals-
verðar eignir. Hætti það svo að
starfa siðari ófriðarárin. En
1919 eða 1920 byrjaði það aftur,
og ætlaði þá að fá vörur frá
Rvík sjóleiðina, en varð við það
fyrir svo stórfeldum skaða, að
eignir þess hrukku varla fyrir
tapinu, og voru dagar þess þar
með taldir að fullu og öllu.
Að síðustu er hér verð á nokk-
urum vörutegundum er félagið
seldi 1898, bæði innkaupsverð
og útsöluverð, og er dálítið
gaman að bera það saman við
vöruverð nú á tímum.
Innkaupsv. Útsöluv.
Kr. Kr.
Rúgur 100 pd. 5-70 7.84
Rúgmjöl 100 pd. 5.80 7.9Ó
Hrísgrjón 100 pd. 7.88 10.46
Klofnar baunir 125 pd. 8.78 1179
Bankabygg 125 pd. 8.22 11.12
Haframjöl 125 pd. 12.15 15-83
Hviti nr. 2 125 pd. 8-55 ii-5i
Hviti nr. 1 pundiö 0.15
Kaffibaunir pd. 0-33 0.50
Export pd. 0.24ýá 0.39^
Kandíssykur 36 pd. ks. 5.10 7.92
Topmelis pundið 0.22
Högginn rnelis pd. 0.20
Rúsínur pd. 0.13% 0.17
Rjól pd. 0-53 0.99
Rulla pd. 0.90 i-43
Reyktóbak (Mosrose)
pd. 0-57 1.04
Spritt (160) pottur 0.29 i-i5
Rom (12°) pottur 0.32 1.04
5 þm. naglar þúsundiö 3-°4 3-65
4 þm. naglar þús. i-52 1.83
2 þm. naglar þús. 0-43 0.52
1 þm. naglar þús. 0.18 0.22
Hóffjaörir þús. 2-55 3.06
Stangajárn pd. 0.13
Girði pd. 0.17 og 0.25