Vísir Sunnudagsblað - 15.08.1943, Page 3

Vísir Sunnudagsblað - 15.08.1943, Page 3
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ 3 halda slikri ferðastofu starfandi, er sanngjarnt að hlaupið væri undir baggann af hinu opinbera. Með þessu móti mundi auðvelt fyrir félagið að koma ýmsu í betra horf en nú er um ferðalög víðsvegar um landið og koma samræmi á verðlag, svo að allir mætti vel við una. Þetta gæti orðið fyrsta skrefið til þess, að upp úr þeirri byltingu, sem er að verða á samgöngum í land- inu, geti skapast ferðamenning, sem væri þjóðinni til þroska og sæmdar. Það má teljast köld hæðni ör- laganna, að samtímis því sem þeir, er við ströndina búa, sækja i vaxandi xnæli endurnæringu og gleði til sveitanna og fjall- anna, þá sækja þeir til strandar, sem í sveitunum búa, til þess að öðlast þá gleði í lífinu, sem þeir telja, að fámennið geti ekki veitt þeim. Þetta minnir mig alltaf á söguna um konunginn og ein- setumanninn. Einsetumaðurinn bjó skammt frá höllinni, og það var sagt, að hann hefði hjá sér töfradrykk, sem verndaði hann gegn elli og ógleði. Konungurinn hafði beztu drykkjaföng á borðum hjá sér, en honum fannst lítið til þeirra koma eftir að hann frétti af töfradrykk ein- setumannsins. Hann tapaði gleði sinni af hugsuninni um jrenna drykk, sem annar hafði en hann ekki, og svo fór að lok- um, að hann gekk með allri hirð sinni að bústað einsetu- mannsins og la-afðist törfra- drykkjarins. Einsetumaðurinn gekk með honum að lítilli upp- sprettu og bað hann drekka. Konungurinn leggst niður og drelxkur, en rís skjótt upp og segir: „Þetta er vatn." „Já“, sagði einsetumaðurinn, „þetta er vatn, hið sama. sem rennur framhjá höllinni þinni.“ Þeir, sem úr sveitinni flytja til kaupstaðanna, komast vafa- lausl margir að raun um það fyrr eða siðar, að þeir finna þar ekki alla þá hamingju, sem þeir höfðu búizt við. Þótt starfið við ræktun lands- ins sé erfitt, þá hlýtur kall gróð- urmoldarinnar í blóðinu að vera svo hávært stundum, að hin svo- kölluðu þægindi bæjanna geta ekki fullnægt þörf þeirra, sem vanir eru samvislum við móður- moldina og gert hafa dýrin að félögum sínum og vinum. — Þessi þrá úr fámenninu í fjöl- mennið er skiljanleg, en eg hygg að úr þessu mætti mikið bæta með þvi að gefa fólkinu í sveit- unum betra tækifæri en það hef- ir haft til þess að kynnast land- inu og landsmönnum. Slík kynn- ing og þau ferðalög, sem henni Langisandur viS Akranes. sem eg hefi átt tal við bændur hefir þetta ekki verið fyrsta spurningin, heldur hitt: „Yerð- ur dýrtíðinni haldið í skef jum?“ Þessum mönnum, sem að sjálf- sögðu eiga afkomu sína að mestu leyti undir afurðaverð- inu, virðist ljósara en mörg- um i höfuðstað landsins, að verði dýrtíðinni ekki haldið í skefjum og óstöðvandi verð- bólga kemst á rás, þá skiptir ekki miklu, hversu mikið fæst nú fyrir afurðir eða framleiðslu. Slík verðmæti renna þá eins og þurr sandur gegnum greipamar. Það líður nú brátt að þeirri stundu, að landsmenn verða að eru samfara, sviptir burtu þeirri töfrablæju, sem, einangrunin vefur oft um fjarlæga og ó- þekkta staði. Og menn kunna venjulega að meta betur sin eig- in heimkynni, þegar þeir hafa kynnzt öðrum staðháttum og kjörum annarra á ýmsum stöð- um. Þar að auki mundi þetta vekja tilbreytingu í lífi fólks- ins, sem er mjög æskileg. Þegar svo mikið er talað um flóttann úr sveitunum og nú, þá er hughreystandi að koma í eina sveit, sem hefir aðra sögu að segja. Og hið kynlegasta er það, að þetta er ein afskekktasta sveit landsins, þar sem eru engir veg- ir og engar brýr, en mestu vatns- föll landsins. Þessi sveit er Ör- æfin. Bæirnir eru þar á litlum gróðurstorfum, venjulega nokkrir á hverri. Fvrir framan eru svartir sandarnir, fyrir ofan er ægiskjöldur Vatnajökuls. Ef menn eru þarna spurðir hvort fólkinu fækki ekki, þá er svarið jafnan þetta: „Það fer sumt — en það kemur jafnan aftur.“ Það kemur aftur. Maður fer ó- sjálfrátt í huga sér að leita að orsök þess, að fólkið kemur aft- ur i þessa afskekktu sveit. Á báðar hliðar eru beljandi jökul- ár, fyrir ofan er jökullinn, fyrir framan er sandorpin, brimsoll- in ströndin. Eg sagði við sjálfan mig: „Það hlýtur að vera þessi tignarlega, sterka náttúra, sem fólkið(er alið upp við, er á svo máttug ítök í hugum þess og dregur það aftur til æskustöðv- anna. Hvergi annarsstaðar finn- ur það þann frið, sem þar er að fá, þótt erfiðleikarnir séu mikl- ir og lífsbaráttan hörð. En ein- mitt þessi lífsbarátta gefur fólk- inu manndóm, sem ekki getur sætt sig við að leggja árar í bát og yfirgefa gróðurinn, ér ekki hefir látið hugast, þótt hann sé umkringdur af sandi, ís og vötn- um. Öræfin gætu verið öðrum sveitum landsins til fyrirmynd- ar um átthagatryggð, þrátt fyr- ir erfið náttúruskilyrði. Þjóðin gæti öruggari horft fram á leið, ef hægt væri að segja í hverju byggðarlagi: „Það fer sumt — en það kemur jafnan aftur.“ Islenzka þjóðin er ekki á leið til hagsældar, ef hún flytur frá gróðri sveitanna og setzt að við sjóinn i atvinnuleit. Þótt sjór- inn gefi þjóðinni fjárhagsleg verðmæti árlega — miklu meiri en moldin, þá hlýtur þó ræktun jarðarinnar og sú andlega heil- brigði, sem þvi fylgir, að verða lcjölfesta þjóðarinnar í nútíð og framtíð. Þvi betri aðstöðu sem sveitirnar hafa til að veita fólk- inu viðunandi lífsskilyrði, því smærri verður öreigahópurnn við sjóinn. Úr því eg er farinn að minn- ast á fólksekluna í sveitunum, get eg ekki varist að minnast á annað í því sambandi. Bændurn- ir kvarta nú mjög, sem vonlegt er, um erfiðleika að fá verka- fólk. Munu margir horfa fram á það, að þurfa að farga meira af bústofni sínum í haust en æskilegt væri. Væri þvi ekki nema eðlilegt, að efst væri á baugi hjá þeim, hvað afurða- verðið verður í haust. En hvar standa andspænis þeim vanda að velja hvort þeir vilja halda verðbólgunni i skefjum eða gefa henni lausan tauminn. Hvort- tveggja er framkvæmanlegt. En það er nú önnur saga. Fyrir aldai'fjórðungi, þegar fyrst var hafizt handa að nokkru ráði að lxvetja almenning til að kynnast landinu og þó einkum óbyggðum, þótti það viðburður, ef einhver ferðaðist til Hvera- valla eða gekk á Langjökxil. Þetta minnir einnig á þá tíma, er það þótti löng gönguferð i Reykjavik að ganga inn að Rauðarárlæk, sem þá var nokk- uð fyrir utan sjálfan bæinn. Nú eru tímarnir breyttir. Nú ganga lconur og karlar á jökla. Óbyggð- irnar standa öllum opnar og eru flestum færar. Fjarlægðirnar hafa horfið fyi'ir hraðskreiðum farartækjum og hinar ímynd- uðu, ævintýralegu ógnir óbyggð- anna liafa að engu orðið fyrir í-eynslu og bættum útbúnaði. Það ei’ menning fyrir sig að kunna að ferðast Þeirri menn- ingu hefir farið stórum fram á síðustu tveim áratugum. Hér á landi hefir virðingarléysi ferða- mannsins fyrir náttúrunni ver- ið almennur löstur. Og það er helzt á síðari árum, með þeirri i

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.