Nýja dagblaðið - 24.12.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 24.12.1934, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐ IÐ speki sinni, það, sem eftir var æfinnar. Sumum virðist, sem þetta sé að miklu leyti sagan um alla vitringa síðan, ekki eingöngu i'rá Austurlöndum, heldur og frá Vesturlöndum og öllum álf- um jarðar. Þeir hafi veitt kristnum hugsjónum lotning sína, látið í ljós aðdáun sína, en að öðru leyti siglt sinn sjó — sjó stjömuspekinnar eða axmarar speki, er þeim hefir þótt, er til átti að taka, meira um vert. Og á síðari manns- ölch'um hefir orðið áleitnari sá skilningur, að hin jarðneska vizka, þ. e. þekkingarleitin og rannsóknin á náttúrunni gæti ekki átt, og hafi aldrei átt, neina samleið með kristinni trú. Margar bækur hafa verið ritaðar frá ýmsum sjónarmið- um um stríðið milh vísinda og kristindóms. Og þeir, sem fastast haia haidið fram þess- um skilningi, hafa þózt geta gengið það lengst að segja, að Kristur og vitringamir gætu hizt, en aldrei átt samleið. En margt virðist á það benda, að fyrir dyrum standi breyting á þessu efni. Þess sjást víða merki, að vitsmuna- leit mannanna sé að sveigjast til meiri samfylgdar við það, sem markverðast er í krist- inni trú. Hvað er það, sem vér nefn- um spakan mann eða vitran? Það er ekki sama sem gáfaður maður og hæfileikaríkur. Ýmsir menn hafa miklar gáfur án þess að með nokkuru móti verði sagt, að þeir séu spakir menn eða vitrir. Napóleon hafði gáf- ur svo frábærar, að enginn mátti við honum í hans eigin verkahring eða við þau við- fangsefni, er hann beindi huga sínum einkum að. En speking- ur var hann ekki meiri en svo, að hann misskildi öll tímanna tákn, sigldi skipi lífs síns í strand og heimurinn andaði léttara, þegar hann var horfirm af sjónarsviðinu. Spakur er sá maður einn, sem vígt hefir gáfur sínar í eldi lífsins og náð hefir valdi á sínu eigin lífi. En sé þetta rétt, þá er hitt líka rétt, að sjaldan hafi spakur maður lifað í kristnum heimi, sem ekki drógst eins og ósjálf- rátt að Kristi og varð heillað- ur af þeirri mynd, er hann leit augum. .Ýmsir vitrir menn hafa farið allt aðrar leiðir en hann, en naumast nokkur lifað, sem ekki hefir að einhverju leyti fundizt til um persónu- leika hans. Þrátt fyrir þetta verður ekki sagt, að það sé eipkenni á vitr- um mönnum hinna síðari kyn- slóða, að þeir hafi yfirleitt orð- ið fyrir mjög miklum áhrifum frá honum. Það stafar af því, að þeir hafa flestir einangrað sig nokkuð við sérstök verk- svið, þar sem áhrifa hans gætti ekki mikið. Vitrir menn hinna síðari tíma hafa flestir verið það, sem vér nú nefnum vís- indamenn. Þeir hafa stundað það, sem svarar til stjörnu- spekinnar til forna. Þeir hafa farið sínar sérstöku leiðir til þess að reyna að leysa úr gátu lífsins og tilverunnar. Þeir hafa gert frábærlega mikils- verð verk, en þeir hafa líka brugðizt vonum ýmsra í mörgu. Það stafar ef til vill af því, að menn hafa gert sér barnalegar vonir um það, sem þeir ættu að leysa af hendi. Vér höfum ætlazt til þess, að þeir leiddu oss í allan sannleika um al- heiminn. En lífsins gáta er jafnfjarri lausninni og nokkru sinni áður, að því er virðist. En þessii- menn hafa gert annað. Þeir hafa gefið oss nýj- an iieim til þess að lifa í. Þeir hafa sökkt sér niður í að kanna öfl náttúrunnar og þeir hafa með þekking sinni sigrað þau. Þeir hafa lagt undir vald mannanna loft og láð og lög, tossa og vötn. Þeir hafa um- turnað menningu og skapað aðra nýja. Þeir hafa breytt svo mikið lífsskilyrðunum á jörðinni, að nú lifa þar helm- ingi fleiri menn en fyrir öld síðan. Langmest af þessu er árangur af starfi fræðimanna og vísindamanna, sem sumir hafa jafnframt verið spakir menn. Þeir horfa nú yfir verk sitt. Þeim getur ekki dulizt, að það er harla mikið, en þeir sjá jafnframt og sífellt fleiri og íleiri tala um það, að það sé öllu tvísýnna, hvort það sé harla gott. Því hvað sjá þeir? Þeir sjá mannmergð á jörðinni, rikdóm, risavaxin verk, haf- skip og' himinháar byggingar og hallir. En með litlu milhbili lýstur geigvænlegum sköruin ai' þessari mannmergð saman í ófriði og styrjaldir. Hvorki á friðartímum né ófriðar er rík- dómi jarðarinnar varið til þess að efla farsæld og þroska, held- ur til einhvers alls annars. Þeir sjá, að hvorki í höllum né hreysum búa vitrir menn nó góðir menn, heldur meira og minna sligaðir menn. Þeir sjá með öðrum orðum, að vald mannanna yfir sjálfum sér hefir ekki farið fram neitt í áttina við vald þeirra yfir tækjunum, sem vísindin hafa gefið þeim. Það er nærri því ótrúlegt, hvað þessi hugsun hefir fest sig djúpt 1 mörgum hinum vitrustu mönnum vorra tíma. En um það er ekki að villast, því að hvert vandað tímarit ber þess merki, og önnur hver alvarleg bók fjallar um ein- hverja hlið þessa máls. Þess hefir verið getið, að flestir spakir menn hefðu ávait i'undið til þess, að þeir hefðu eitthvað dásamlegt og eitthvað einstætt fyrir augum, þar sem Jesús var. En þeir hafa að mjög miklu leyti staðnæmst við það eitt að horfa á þetta stórfellda fyrirbrigði lífsins. Aðdráttarafl yndisþokkans hef- ir heillað þá, en það hefir ekki haft verulega djúptæk áhrif á hugsanaafl þeirra. En nú virð- ist, sem hugsun ýmsra þeirra sé að beinast miklu ákveðnara í þessa átt en nokkuru sinni áður. Og þeir undrast hve margii' þeirra mætast hér á sama stað. Því að þeir hafa gert þá uppgötvun, að þegar lesnar eru ofan í kjölinn þær meinsemdir, sem mest þjá mennina í dag og valda því að þeir verða eins og stjórnlaus fley í boðum þjóðfélagsaflanna og sinna eigin ástríðna, þá keniur það í ljós, að það er sammerkt um það allt saman, að þar er farið í öfuga átt við það líf, senr hófst með svo óveglegum hætti í fjárhúsinu forðum. Hinir spöku menn nú- tímans vita að vísu, að mönn- unum verður ekki breytt með prédikun kristninnar svo að komi að nokkuru haldi, og þeir vita að beita verður alveg sér- stökum aðferðum þekkingarinn- ar til þess að ná hér nokkurum varanlegum ái-angri, en það haggar ekki hinu, að sjálfa mannhugsjónina sjá þeir greinilegast þar, sem maðurinn frá Nazaret er. Flestum mönnum, sem numið hafa í æsku æfintýrasöguna um vitringana frá Austurlönd- um, lrefir líklega einhvern tíma komið til hugar, að mjög hafi þeir menn verið gæfusamir, sem forsjónin hafi verið svo liugulsöm við, að þeir fengu að . vita fyrirfram um hin miklu tíðindi og fengu tækifæri til þess að votta æðstu mannveru aldanna lotningu sína. Sú til- í'inning er eðlileg. Það hvíiir slík birta yfir æfi Jesú, að oss finnst önnur gæfa vart hugsan- leg meiri en að hafa fepgið að njóta hennar. Enda hafði það svo mikil áhrif á sumaþámenn, er þess áttu kost, að þeir hrundu af stað hreyfingu, er markverðust hefir verið 1 heimi. En oss hættir við að gleyma því, að þessi birta hvílir enn yfir jarðlífinu. Menn verða hennar einungis misjafnlega mikið varir. Æfintýrið foma lætur vitringana hafa þann andlega næmleika að finna á sér í framandi landi, að hin Sfc J ó L • • • <8? Bumbur .liljóma og' borgin ljómar. Bjarmann leggur á rökkur sjó. Burt úr straumnum og borgargiaumnum þau berast tvö ein í kvöldsins ró. Hún er lúin, en betur búín — og báðum úthýst á kaldan skóg. Þau ganga hljóð og ]>au greina slóðir bg' guði treysta, sem lífið reit. I fjarska loga, í breiðum boga hin björtu ljós eins og stjömusveit. Svo hvíslar óttinn, er nálgast nóttin. — — Loks ná þau hjarðsvein með fc á beit. í fjárhúskofa hún fékk að sofa, og' frelsara heimsins ól. En englar vaka og vonir kvaka og verma líf, sem kól. Lviricjur Ijóma ög klukkur hljóma, — í kvöld eru heilÖg jol. í jötu lága, hún lagði smáa ljósfagra drenginn sinn. En kotin hækka og heimar stækka, því hann varð meistarinn, með eldinn bjarta og ást í hjai’ta, sem opnaði himininn. / Friðrik Hansen. miklu tíðindi eru í aðsigi. Það var í raun og veru þeirra mikla gæfa. Sá hæfileiki var þeirra veglegasta einkenni. Og hann er ekki bundinn við vitringa neinna landa, heldur sameigin- leg- eign þeirra manna, sem hann vilja rækta og að honum vilja hlúa. Og fyrir þá sök er það, að hugsun sú, er við jólin er bundin, er sífeldlega ung og ný og í eðli sínu eilíf, því að aldrei mun þrjóta tækifæri til þess að færa því sínar dýrustu gjafir — hæfileika, þrek og uppheimsþrá — er vitringamir frá Austurlöndum hylltu með gulli, reykelsi og myrru. S IZE 0 j© „Marga gleði myrkrið fói inanni vökuleiðum; seinfœr ertu óttu-sól austan af Bjarmaheiðum. Kom þú sól með sannleik þinn sinntu tóruin mínum, þau eru að lirópa i austrið inn eftir geislum þínum." Jón porsteinsson Arnarvatni I dag eru vetrarsólhvörf. Jörðin hefir náð yzt í sporbaug sinn og snýr aftur í sólnánd. Hátíð ljóssins stendur fyrir dyrúm. Engar andstæður eru táknrænni um allar hugar- kendir okkar heldur en ljós og niyrkur. Ekkert er það í fari okkar, hneigðum okkar, störf- j um okkar og' allri breytni, sem ekld verður rakið í ætt til þessara tveggja höfuðand- stæðna, sem hafa frá öndverðu teflt sitt mikla örlagatafl um ltfið og um dauðan. Gangurinn er erfiður fyrri hluta vetrar einkum þeim, sem1 komnir eru af æskuskeiði, jafnvel þótt halli undan fæti niður í dalbotn skammdegisins. Við höfum séð vetrarnætum- ar brotna inn yfir austurfjöll- in, hverja annari hærri. Myrkr- ið hefir brimað eins og vaxandi sær yfir frosið land og fönnum þakið. Og það hefir þyngst fyrir fæti; það hefir orðið eins og versnandi ófærð. En nú stendur hátíð ljóssins fyrir dyrum. Það tekur að birta. Gangurinn verður létt- ari, þótt í fangið sé, þegar myrkrið tekur að grynna. Við klífum léttilega jafnvel erfið- ustu brekkur móti ungum degi, sem er að vaxa bak við fjöllin í austri. Og hinn ungi dagur vex og verður einráður, þegar sumra tekur yfir lýð og landi. Og ljós hans flæðir með auknu magni gegnum fjallskörð og yfir roðaða tinda. Þegar Jörðin hefir náð yzt í sporbauginn verða einnig vetr- arsólhvörf í sálum okkar. Dap- urleiki hinna löngu nótta þok- ar um set fyrir meðvitundinni um það, að dagurinn er tekinn að vaxa. f fornum sið höfðu forfeður okkar jóla- og miðs- vetrarblót. Þá blótuðu þeir til gróðrar. Þau blót voru hátíðir til fagnaðar hækkandi sól og vaxandi degi. Jólahald kristinna þjóða er að vísu í orði kveðnu helgað höfundi kristinnar trúar. Þó mun mega færa rök að því, að jólahald okkar, eigi síður en forfeðranna, er fagnaður móti ljósi komandi daga. Þú veizt, lesari góður, hvað í vændum er, þegar ljósið tekur að flæða eftir vorjafndægrin. Þú hefir svo oft fagnað mjúk- látum loforðum sólbráðinnar á vorin. Þú hefir komizt í kynni við fasmikla vorhlákuna, þegar hún þeysir yfir firnindi lands- ins. Þú hefir hvílt augun í Ijósri þoku þeirra kyrru nótta, sem eru að breytast í dag og hlustað á vorregnið falla hljóð- látlega eins og skímarlaug yf- ir gróandann. Og þú hefir heyrt hvemig niður þungra vatna og fjarlægra þeyvinda ymur bak við fagnaðarraddir lífsins á jörðinni. Nú er þetta allt í vændum og við höfum náð merkustu leiðarmörkum ársins; yfir þyngsta áfanga þess. Og þótt við enn um stund munum taka undir með Jóni Þorsteinssyni og „hrópum inn í austrið“ eft- ir líknsemd sólarinnar, þá hefir nú þegar í dag skift um hugarhorf okkar, við það að Jörðin hefir náð yzt á spor- baug og er snúin aftur í sól- nánd. Myrkfælnin dvínar í hug- um manna, en lífsgleði, starfs- lögnuður og sigurvissa hækk- ar undir aðfall vaxandi sólfars. Ég vildi í dag láta í ljós þessa gleði mína af því hún er þáttur í jólagleði minni, er hefir enn að nýju laugað huga minn fögnuði síungra vona, gefið mér að nýju tilhlökkun vorsins yfir hávœrum bama- hlátrum, þungum starfsldið, þróttmiklum fögnuði lífsins á jörðunni; yfir suðrænum and- vara og' ilm úr grasi. Um vetrarsólhvörf 1934. Jónas Þorbergsson.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.