Nýja dagblaðið - 24.12.1934, Blaðsíða 7

Nýja dagblaðið - 24.12.1934, Blaðsíða 7
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 7 Konunglegi brúðkaup i London Líklega hefir enginn atburð- ur gerst á Englandi síðustu ár, sem sá, er nú er nýlega af- staðinn. En það var brúðkaup þeirra hertogans af Kent og MarinU Grikkjaprmsessu, er i'ram fór um síðustu mánaða- mót. Þegar kvöldið áður en athöfn- in skyldi fara fram, safnaðist múgur manns í götur þær, sem brúðhjónin ætluðu að aka um daginn eftir frá konungshöll- inni til kirkjunnar Westminster Abbey. Þar beið fólkið alla nóttina, í súld og slyddu og fram á næsta dag. Við alla glugga þeirra húsa, sem að götunum lá, er brúðarfylgdin ók eftir, hafði fólk' leigt sér pláss til að standa við og sjá út um. Var hvert stæði leigt á 300 krónur, en við ýms torg, þar sem komið hafði verið fyrir bekkjum t'yrir gesti, kostaði sætið 250 kr. Mátti það teljast dálítið dýrt augnagaman, en þó vildu fleiri en fengu. Fjórum dögum fyrir brúð- kaupið kom óvænt og óþæg'- lég frétt til hefðarkvenna þeirra, sem boðnar voru í gild- ið. Sá boðskapur ba'rst frá drottningu Englands, gegnum skrifstofur Lord Chamberlain, og var á þá leið, að kjólar þeir, er tízkuhús stói'borgar- innar höfðu dag og nótt keppst við að sauma og vóru skósíðir, en sumir með slóða, skyldu eklci notaðir við brúðkaupið, heldur önnur gerð og styttrí. Sömuleiðis var tilkynnt, að ekki mætti bera loðskinnskápur ? brúðkaupinu, en á því höfðu vöruhúsin glæpst, að gera fyr- ir þetta einstaka tækifæri stór innkaup á dýrustu skinnavöru. En hér voru orð drottning- aiánnar lög. 70 boðsgestir voru í. veizl- unni, þar á meðal konungs- hjónin í Danmörku og Noregi. Á efri myndinni sjást brúðhjónin til vinstri, út frá þeim eru, í tveim röðum prins- essur 'frá ýmsum löndum, tengdar brúðhjónunum. Að neðan, sitt til hvorrar handar, eru gjafir brúðgumans til {'.•'.VííáíS::® ■ " /V'- s '■* 'y>v ý ■ i-V': 1 ;'rí 'j i::': i ■ * ■ ’ konuefnisins, og í miðju sézt málverk af brúðinni. Þrátt fyrir myndirnar af hinu konunglega fóilki, mun flestum verða starsýnast á köku þá hina miklu, sem sést á neðri myndinni. Er það brúðkaups- kakan og heldur en ekki vöxtu- leg. Hún er rösk hálf önnur mannhæð eða 9 feta há og svarar sér vel. 1 vinstra homi myndarinnar efst, sézt móðir brúðinnar, sú með blómin, og ýmsar prins- essur. Hinsvegar eru nokkur stórmenni kirkjunnar í fullum skrúða. Neðst til vinstri er brúðguminn, hertoginn af 'Kent, þá gjafir margháttaðar og neðst til hægri klukkuturn- inn mikli á þinghúsinu með „Big, Ben“ stundaklukkunni stóru, sem útvarpsnotendur hér heyra oft í gegnum við- tæki sín. Umhverfis turninn eru reistir útsýnispallar fyrir þetta heldur en ekki hátíðlega tækifæri. 2K jóíunum f©rtr 90 drum O O OIO Jólin eru hátíð gjafanna. Seinustu aurunum er varið til Jæss að gleðja aðra. Móðirin leggur oft á sig mikið erfiði til þess að gefa baminu sínu jóla- gjöf. Menn eru óvenju fórn- fúsir og samúðarríkir um jólin. Jólasagan, sem alltaf er sögð á jólunum, gerðist fyrir 1900 árum. Hún er frásögn um fæðingu þess manns, sem af mestri einlægni og eldmóði hef- ir flutt boðskap kærleikans og friðarins. Kenning hans er sú veglegasta gjöf, sem mannkyn- inu hefir hlotnazt, ef það kynni að hagnýta sér. hana réttilega. Þess vegna undrar engan, þó.jólin séu orðin fyrst og fremst hátíð gjafanna. Jólasagan, sem gerðist fyrir 1900 árum verður sögð af svo mörgum, að hér gerist engin þörf að segja, hana. 1 stað þess langar mig til að segja aðra jólasögu, sem gerðist fyrir 90 árum. Iðnbyltingin var þá hafin. Vélarnar voru teknar til notk- | unar í stað mannaflsins. ! Hundruð og þúsundir verka- manna misstuj atvinnuna. Iðju- höldarnir hagnýttu sér hið mikla framboQ vinnunnar til þess að halda kaupgjaldinu lágu og hafa vinnutímann lang- an. Kjör verkamannastéttarinn- ar hafa oft verið örðug, en aldrei hafa erfiðleikamir verið jafn stórvaxnir og ægilegir og á þeim tímum. Fjöldi verkamanna vann hina erfið- ustu vinnu mestan hluta sólar- hringsins. Á kvöldin var farið heim í köld og dimm húsa- kynni. Kona og böm voru klæð- lítil og fæðið lélegt. Bækur voru fáséðar. Engir möguleik- ar til að afla börnunum mennt- unar. Skortur brýnustu lífs- nauðsynja og menningarleysi, var hlutskifti verkamanna- fjölskyldunnar. Þannig var ástandið í Roch- dale, smábæ skammt frá Man- ehester, en þar gerist sagan, sem ég ætla að segja. Kvöld eitt í desembemián- uði 1843 komu nokkrir vefar- ar við baðmullarverksmiðjum- ar þar saman á fund og ráðg- uðust um hvað. gera skyldi. V erkalaun þeirra voru lág, vöruverðið hátt. Þeir voru komnir í miklar skuldir hjá kaupmönnunum og urðu að kaupa hjá þeim hvað eftir annað vonda og svikna vöru með okurverði. Lengi ræddu vefaramir mál sitt. Loks urðu þeir ásáttir um þá ákvörðun, að þeir skyldu aura saman í sjóð og gera sameiginleg vörukaup. Þannig fengu þeir vönina ódýr- ari og höfðu líka tryggingu l'yrir því að fá betri vöm. Það varð hægra sagt en gert að mynda þennan sjóð. Vinnulaunin hrukku naumast til hnífs og skeiðar. I heilt ár voru þeir að safna hinu á- kveðna stofnframlagi, einu sterlingspundi á mann. Það tókst. Rétt fyrir næstu jól, 21. desember 1844 var opnuð verzlun Rochdalevefar- anna, fyrsta kaupfélagsverzl- unin í heiminum. Sú stofnun spáði ekkí mik- illi framtið. Verzlunin var í einu litlu, óvönduðu herbergi.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.