Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 31.01.1965, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 31.01.1965, Qupperneq 10
var tjóðru'ð á heimabeilinum og beit hana. Stakkals dýrið varð svo rædd, að hún hljóp svo stríkkaði á tjóðrið. Og þegar ég kom að, var hún dauð. Hafði hengt sig.“ Ég hlýddi sögunni og gamli mað- urinn hélt áfram: „Ég varð víst alveg örur af reiði, þvj, að ég hljóp beint til Morteinsens og sagði, að hann yrði að borga gráu kúna, sem strákarnir hans hefðu lát- ið hundinn drepa. Ég var svo reiður, að ég kalla þá lorta. Og það hefur honum þótt sem von var. Kaupmað- urinn rak mig út, og allar bæturnar, sem ég fékk fyrir þessa deiligu kú, voru þær, að hann fór að kalla mig gráu kúna. Og svo náttúrlega tóku allir það upp eftir honum. En þetta máttu engum segja, því að þá fæ ég ekki lengur að bera mó í hús- in þeirra, og þá taka þeir náttúr- lega af mér tjörnina líka. A-jú — maður verður að fara varlega í verð- ini. En mér er engin stríðni í því, þó að ég sé kallaður sama og blessuð skepnan, því að hún var svo góð og hjálpaði okkur meira en allir menn til samans. Nei, mér er sama, þó allir uppnefni mig — bara, að Hansa og börnin geri það ekki.“ „Þau gera það nú varla,“ segi ég. „Ekki minn munnur í helft,“ anz- aði hann. „Og hvað gerirðu svo með ijörn- ina?“ spurði ég. „Það skal ég segja þér, gamli," sagði nú karlinn og lifnaði allur við. „Síðan ég fór að verða gamall og gat ekki lengur farið í fjallið til þess að sækja ísinn, þá er svo gott að (hafa tjörnina, ef guð gefur frost á veturna. Þá er fína pengar at tæna á tjörninni. Stundum hef ég fengið af henni 12 sentna paa en gang. og það eru þrjár krónur. Og þetta er svo kortur vegur að bera frá tjörn- inni niður í íshúsið — margar, marg- ar ferðir á dag og nóg tóbak í píp- una, tí at Jógvan Morteinsen er ikki sínkur að gefa í pípuna.“ Ég vissi, hvað hann var að fara. Það var siður í Færeyjum, að kassi með reyktóbaki stæði á búðarborð- inu, að minnsta kosti í öllum meiri háttar verzlunum. Þetta var kannski ekki dýrasta og bezta tegund tóbaks, en þarna máttu allir fá sér ókeypis í pípuna sína. ,,En maður er nú misúnt, af því að hafa tjörnina," hélt hann áfram. „Þegar frost er hart á veturna, er þar fína pengar at tæna. Eitt árið var svo mikið frost, að pótatóurnar eyðilögðust alls staðar í Færeyjum. Þann vetur fékk ég sextíu krónur fyrir ís.“ „Hvað færðu mikið fyrir að bera torfhlaup héðan og inn á Tvöroyri?“ spurði ég. „Fem og tyve öre,“ var svarið. „A- já, þá var gásasteik á jólunum og knettir í mangan gang“, bætti gamli maðurinn við og var enn í minning- unum frá þessum blessaða frosta- vetri og alla þá velgengni, sem hon- um fylgdi. „Ferð þú aldrei út að rógva?“ spyr ég-. ,A-nei-nei, ekki nema á sæ hérna í firðinum, en þá ræ ég bara fyrir hina, því að ég á enga tráðu.“ Særinn, sem hann talaði um, var smáufsi, seiði, og stöngin, sem notuð er við þennan veiðiskap nefnist tráða. ,,Hvaðan færðu þá fisik í soðið?“ spyr ég. „Hansína saumar fyrir menn, og þeir gefa henni oft í soðið, oe svo má ég hirða eins mikið af hausum og ég get þegar farið er út að rógva.“ „Áttir þú mörg börn með kon- unni, gamli?“ spyr ég. ,Ekki nema hann Jakob inn, sem var giftur henni Hansínu. Hann var fjarskagóður maður og vildi allt fyrir mig gera. En svo tók Harrin hann frá okkur, einu sinni þegar hann fór út að rógva. Þá var svo slæmt veður — þann dag, ó-já. Þá doyði margur maður.“ „Hlakkar þú nú ekki lil að koma heim og hvíla þig, þegar þú ert orð- inn svona lúinn? Nú færðu kannski knetti hjá tengdadótturinni." Eg var að reyna að veiða karlinn, hafði heyrt, að tengdadóttirin væri ónotaleg við hann. „Maður er hættur að hlakka til, þegar maður er orðinn svona gam- all,“ sagði hann. Tilgátunni um knettina svaraði hann ekki. Við vorum nú komnir inn fyrir kirkjuna, þar sem tjörnin var. Kirkj- an var úr höggnum steini, stórt og veglegt hús. Stórlaxinn á Tvöroyri hafði látið byggja hana algerlega á sinn kostnað og gefið svo sókninni hana með öllum búnaði. Ég gat ekki varizt þeirri hugsun, að vafa- samt væri, hvort guði hefði verið gjöfin þóknanlegri heldur en þótt hann hefði bætt eigandanum gráu kúna, sem strákarnir hans létu hund- inn sálga. „Og tætta er nú tjörnin," sagði gamli maðurinn og benti mér á poll, á að geta tíu eða tólf fermetra að flatármáli. Nú var pollurinn ísilagð- ur, og andlitið á gamla manninum ijómaði af ánægju. „Nú gefur hún fína pengar í moren dag — guð vel- signi hann.“ „Eigum við ekki að hvíla okkur hérna?“ spurði ég. „Ég skal lyfta á þig laupnum aftur.“ Við settumst nú niður. Þai var Hann var orðinn gamall og átti örðugt með að rísa á fætur með þungan laup á bakinu, þó að hann seíglaðist við að bera, þegar hann var staðlnn upp. 82 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.