Tíminn Sunnudagsblað - 02.05.1965, Blaðsíða 1
Birkið íslenzka er til
mikils fegurðarauka í hlíð-
um og ásum, og það veifir
skjól og hina tryggustu
vörn gegn uppblæstri. Á
óravíðum flæmum hefur
vindurinn sorfið jarðveginn
og sópað honum brott, þeg-
ar birkinu hafði verið eytt.
Stúlkan á myndinni kanrt
sýnilega vel að meta yndi
sumardagsins í Hallorms-
staðarskógi, þar sem veður
eru blíðari en annars stað-
ar í skjóli skógarins.
Senn mun fjöldi ung-
meyja á svipuðu reki og
þessi stúlka, hefja vorvinnu
í Hallormsstaðarskógi, og
hlynna þar að ungum kvíst-
um, er síðar munu verða
að voldugum skógum og
meiri vaxtar en björkin. Á
Hallormsstað var það fyrst
sannað, svo að enginn fær
vefengt, er ekki vill neita
staðreyndum, að lerki og
margar tegundir barrviða
geta náð hér ágætum
þroska á eðlilegum vaxtar-
tíma. Það hafa þúsundir
manna séð með eigin aug-
um. —
Ljósmynd:
Þorsteinn Jósepsson.