Tíminn Sunnudagsblað - 02.05.1965, Page 19

Tíminn Sunnudagsblað - 02.05.1965, Page 19
Vinstra megin er kjarr á gömlum rústum í Góövonarflrði, hægra megin er Björgmose við rúst þá, sem stæöilegust er, þar sem hann ætlar verið hafa þingstað Vestri-byggðar. DÚMKIRKJA OG ÞINGSTADUR I VESTRIBYGGÐ? I. llasmus Björgmose heitir maður, danskur skólastjóri í Vestribyggð á Grænlandi. Hann hefur mikinn hug á sögu Vestribyggðar og fornminj- um þeim, sem þar eru. Það hefur knúð hann til sjálfstæðra athugana, og hefur hann farið langar ferðir á eyðislóðir á sinn kostnað til þess að reyna að leysa ýmsar gátur. Þetta hefur borið þann árangur, að hann telur sig hafa fundið bæjarústir, sem ekki voru áður þekktar, og það sem meira er: þingstað Vestribyggðar og rúst múraðrar kirkju, sem hann ætl- ar verið hafa næststærsta allra kirkna á Grænlandi og enda dóm kirkja landsins um eitt skeið. Vorið 1963 skrifaði Björgmose grein um firði Vestribyggðár og sendi til Kaupmannahafnar til birt- ingar. Björgmose lýsir þar þeirri skoð- un sinni, að við þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið í Vestribyggð, hafi mönnum hætt við að leggja mæli- kvarða sinnar samtíðar á rannsóknar- efni í stað þess að leitast við að setja sig í spor þeirra, sem uppi voru fyrir níu hundruð áruni. Flest- ar rannsóknarferðirnar hafi líka ver- ið skyndiferðir aðvífandi manna, sem á fáum vikum lögðu leið sína um landsvæði, sem er mörgum sinnum stærra en Danmörk, og urðu því að treysta að mestu leyti á frásagnir annarra. Slíkt sé þó viðsjárvert, ekki sízt í Grænlandi, meðal annars vegna tungunnar. En þar kemur fleira til. Grænlendingar leysa ekki fvá skjóð unni, nema þeir eigi tal við menn, s’em þeir þekkja og treysta og geta talað tungu þeirra. í þokkabót hafa útlendir vísindamenn aíið á ýmsum getgátum um þá. Vitnar hann jtil þess, að Helgi Ingstad haldi því fram í bók sinni, Landið undir leiðar- stjörnu, að „flestar hetjusagnirnar hafi komið upp um miðbik síðustu aldar.“ Skýringin er sú, segir Ing- stad, að allt frá dögum Egedes hafa Norðmenn og Danir, sem til Græn- lands koma, haft hug á því að leysa gátuna um endalok norrænna manna þar í landi. Þeir hafa ferðazt með Grænlendingum um landið, grafið og spurt, og bókstaflega kennt Græn- lendingum aff segja sögur sínar.' Þetta var þeim mun auðsóttara, að Grænlendingar hafa nú mikia hneigð til þess að vera á sama máli og hvítur maður. Og sérstaklega var þeim það auðvelt, er kom að þeirri spurningu, hvort Eskimóar hefðu út- rýmt hvítum mönnum í iandinu, því að það var þeim óskasaga, að for- feður þeirra hefðu borið af Græn- lendingum hinum fornu. Sjálfur segir Björgmose síðan sögu um það, hvernig Grænlendingar eiga til að fleka vísindamennina herfilega. Sagan er á þessa leið, og sögð með orðum grænlenzks manns við Góð- vonarfjörð. Hún gerðist í Újarags- súít fyrir alllöngu í rannsóknarleið- angri, sem Egill Knútur greifi stýrði: „I hóþnum var Grænlendingur frá Kapisígdlít, mikill háðfugl. Dag nokk urn fann hann skammt frá tjöldun- um tálgusteinsbrot, sem eitthvað hafði • verið krotað á, og við, sem vanir vorum að vera vikum saman að heiman á hreindýraveiðum á sumr- in, gátum undir eins sagt okkur, hvers kyns var: Veiðimaður hefur haft langa útivist og er orðinn lang- eygður eftir kvenmanni. Þess vegna hefur honum orðið það að rista V- rÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 379

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.