Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Page 7

Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Page 7
ÞÓRARINN FRÁ STEINTÚNI: . I • s- . ... ... FERD í SKÓLA í marzmánuði árið 1919 fórum við Jón G. Valdemarsson, hreppstjóri $keggjastaðahreppi, allsögulega ferð. Lagt var upp frá Höfn í Bakkafirði, og ætlunin var að taka próf við gagnfræðaskólannn á Akureyri þá Um vorið. Ekkl voru samgöngumálin þá í stríðs lokin betri en svo, að um beinar ferð- ir var ekki að ræða. Fyrst varð með einhverju móti að komast til Seyðis- fjarðar og freista þess svo, að ferð félli þaðan til Akureyrar, þótt allt væri í óvissu með það. Landleiðin frá Höfn í Bakkafirði til Seyðisfjarðar mun vera um fjór- ar dagleiðir miðað við lestagang. Ekki var um annað að ræða en leggja í þetta, þótt um sinn yrði að halda í öfuga átt við væntanlegan ákvörð- unarstað. Fyrsta daginn var farið gangandi yfir Sandvíkurheiði til Vopnafjarðar, sem er átta stunda ferð. Við fengum slæmt veður og þunga færð á heiðinni. Allt gekk þó slysalaust. Daginn eftir var svo hald- ið til Seyðisfjarðar með litlum vél- báti, sem hét Aldan. Skipstjórinn var Norðmaður, Kristensen að nafni. Hann annaðist þá að miklu leyti vöru- og fólksflutninga á svæðinu frá Seyðisfirði til Langaness. Skipshöfn- in var fámenn: Kristensen var stund um einn, en þó oftar, að ég held, einhver með honum. Báturinn var afarbreiður en stuttur. Aldrei hlekkt- ist honum á, svo ég viti, og lenti hann þó oft á vetrum í aftakaveðr- um Stundum fréttist ekki af hon- um svo dögum skipti. Það var hald manna að Aldan gæti ekki sokkið hjá Kristensen. Víst er um það, að gamli maðurinn var hörkutói og afburða sjómaður. Auk okkar Jóns var þriðji farþeg- inn Árni Jónsson frá Múla. Hann var þá verzlunarstjóri á Vopnafirði. Ekki hefði nú aðbúðin þótt góð nú til dags. Við lágum allir í skonsu fremst í bátnum, og mátti ekki þrengra vera. Þetta var eina vistar- veran á strandferðaskipinu. Þegar til Seyðisfjarðar kom, var setzt að í veitingahúsi. Ekki var álit- legt með ferðina. Fljótlega fréttum við af 70 lesta fiskibáti, sem ætlaði til Akureyrar, en var þarna í ein- hverri aðgerð. Vilyrði fengum við fyr ir því að fljóta með, en ekki var alveg komið að því. Við biðum hálfan mánuð, þar til lagt var af stað. Meðan við dvöldumst á Seyðisfirði var þar stór bruni. Læknishúsið brann og úr því var engu bjargað, að ég held. Auk þess brunnu tvær búðir: Nýjabúð og Nílsensbúð. Reynt var að bjarga vörum úr búðunum, en ekki var um annað að gera en henda öllu út í snjóinn. Veður var hvasst af norðri eða norðaustri og mikið hríð með frosti. Um tíma leit út fyrir, að þarna brynni heilt bæj- arhverfi. Aðstæður allar voru mjög erfiðar. Næstu húsin var reynt að verja með seglum og snjó, sem kast- að var á þau. Einhver slökkvitæki voru til, en allt var það í ólagi. Sagt var, að frosið væri í slöngunum. Ari Arnalds sýslumaður stjórnaði þarna öllum aðgerðum með miklum skörungsskap og átti sjálfsagt drjúg- an þátt í að ekki fór verr en varð. Ég gleymi aldrei þessari nóttu og sé enn allt fyrir mér eins og það hefði gerzt í gær. — Seyðisfjörður er ekki ólíkur kistu, sem þó hefur ein- hverra hluta vegna gleymzt að setja lokið á. En þó er vinalegt, þar, þegar allt er með felldu. Eldtungurnar teygðu sig hærra og hærra, unz eld- súluna bar við efstu tinda fjallanna, sem eins og þeystust að og urðu svo nálæg í flöktandi bjarmanum. Bjólf- ur og Strandatindur eru hrikalegir um daga, og sem umgerð þessa log- andi vítis voru þeir tröllslegir. Loks var haldið af stað, og var ætlunin að fara beint til Akureyrar. Ekkert bar til tíðenda fyrr en komið var norður undir Langanes. Þá stöðv- aðist vélin, og hvernig sem farið var að henni, varð engu tauti við hana komið. Þetta var algert verkfall. Nú var ekki gott í efni. Þá var ekki búið að uppgötva Torfa og þaðan af siður, að komnir væru gerðardómar, svo yfirleitt var sjaldan annað til úr- ræða en bíta á jaxlinn og bölva i hljóði, ef menn voru þá ekki þvi betur þenkjandi. Ástæðan fyrir þessari innanskömm í vélinni, var sú, samkvæmt úrskurði kunnáttumanna, að olían, sem þeir fengu á Seyðisfirði, hefði verið þann- ig samansett, að hún hentaði vélinni álíka vel og matarolían, sem Alsírbú- ar voru trakteraðir á sællar minning- ar, hentaði þeim. Veður var kyrrt en mikil alda Ekki var um annað að ræða en láta bátinn reka og bíða þess, sem verða vildi. Engir möguleikar á að gera neitt vart við sig og engin tæki til þá til þeirra hluta. Hver varð að sjá um sig sjálfur. Þarna var þvælzt á annan sólarhring. Þá hvessti í suðaustan, og nú var tekið til segla og haldið til Húsavíkur. Þar var skipt um olíu. Nú virtist allt í lagi, og hugðum við okkur nú senn komna á leiðarenda. Revndin var þó önnur. Þegar við nálguðumst mynni Eyja- fjarðar gekk í iðulausa stórhríð af norðaustri. Einhvern veginn var þó draslað inn á Grenivík. Þar var svo legið á annað dægur og þá loks farið til Akureyrar. Ekkert símasamband náðist milli Grenivíkur og Akureyrar og var þvl tvisvar búið að telja bát- inn af. Að leiðarlokum vorum við strák- arnir ekki orðnir upp á marga fiska og ég held, að við hefðum sálazt úr vesaldóm, ef matsveinninn, Sigurður Sædal, hefði ekki gengið úr rúmi fyrir okkur og annast okktir eins og« hvítvoðunga alla leiðina. í maílok var svo lagt af stað heím. En það var eins og fyrri daginn: Ekki var álitlegt með farkostinn. Nú bættist Jósef Thorlacíus, bróðir minn, hópinn, svo að við urðum þrír. Ég fékk snert af brjósthimnu- bólgu um vorið og lá um tíma. Lækn- irinn, Valdimar Steffensen, leyfði mér þó að fara, ef ég gætti þess að blotna ekki í fætur og varaðist áreynslu. En þetta fór nú á annan veg. Far- kosturinn var 15—20 lesta vélbátur, sem annaðist flutninga þarna í ná- grenninu. Endastöðin var Kópasker. Hann var yfirfullur af farþegum, og lágum við lengst af undir segli á þilfarinu, svo að ekki var vistin nota- leg. Við komumst í Efrihóla um kveld- ið og áttum þar góða nótt hjá Frið- riki Sæmundssyni bónda. Hann gerði það ekki endasleppt. Hanti dró upp kort af heiðinni, sem við ætluðum að fara, en það er Hóla- og Öxar- fjarðarheiði. Og þegar við kvöddum, fékk hann okkur broddstaf til öryggis. Nú voru fullar þrjár dagleiðir heim. Veður var sæmilegt um morg- uninn. Ætlunin var að koma við í Hrauntanga, sem var býli á heiðinni, og hvílast þar. Við vorum þó ekki meira en hálfnaðir á þeirri leið, þeg- ar komin var krapahríð. Bæði vorum við ókunnugir, enda ekki vel ratljóst, þótt nokkuð rofaði til öðru hverju. Betur tókst svo ekki til en það, að við fórum yfir ána, sem rennur austan við Hrauntanga, á jakastíflu án þess að vita, að það væri hún. Þegar við svo fundum bæinn, var áin orðin milli okkar og hans — Ég efa, að hún hafi verið reið, og engan sá- um við manninn. Nú var því ekki um annað að gera en halda áfram. Öðru T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 1111

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.