Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Síða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 05.12.1965, Síða 10
blasir við hugarsjónum mínum torf- bær í þýfðu túni með fjöil að baki, en fram undan lítill fjörður. Bærinn heitir ' Lambeyri og stendur við Tálknafjörð. Þangað fluttist amma mín, áður en hún fyllti fyrsta áratuginn, til Moníku Magnúsdóttur og manns hennar, Jóns Jónssonar. Þar dvaldist hún til átján ára aldurs, er Moníka, föðursystir hennar, dó, og ýmsir munu hafa láð henni ,að vera ekki lengur, því að víst bauðst henni að taka mann og bú „i arf“ eftir frænku sína. Hvílíkt kostaboð fyrir unga og efnalausa stúlku: Búið blómlegt og bóndi í miklu áliti í sveit sinni. En ömmu mun hafa fund- izt það öryggi fulldýru verði keypt, enda hafði hún frekar litið á Jón gamla sem föður en væntanlegt mannsefni, enda ald- ursmunur nær fjörutíu ár„ Hún kaus því heldur fátæktina og frelsið og fór af heimilinu, og mun aldrei hafa iðrazt þeirrar ráða- breytni. En margs hafði hún að minnast #rá uppvaxtarárum sínum á þessu stóra heimili, sem í flestu var ólíkt foreldrahúsum hennar á ísafirði. Þar hafði hún notið ástar og umhyggju í ríkum mæli, en fátækt og sjúk- dómar stýrðu ferð hennar þaðan að Lambeyri, og þó að með skyldum væri að skipta, þá fann hún það í flestu, að á henni hafði verið gustuk gerð. Það var ekki í tízku þá að gera gælur við tökubörnin. Hún hafði því skamma stund dvalizt þar, er tími þótti til þess kominn að kenna henni að taka bandið í gegnum lykkj- una. Upp frá því mátti hún sjaldan prjónana við sig skilja, væri ekki önnur verk fyrir hendi. Það þótti svo sem ekki nema sjálfsagt að halda á prjónum í smalamennskum eða ef eitthvað þurfti að ganga úti við. Eng- in stund mátti fara til ónýtis hjá ungum né gömlum, enda varð vinn- an svo ríkur vani, að eldra fólkið leið þrautir, ef eitthvað svipti það vinnu um stundarsakir. Til dæmis þótti ekki tilhlýðilegt að vinna há- heilagan jóladag. Gamall maður var á Lambeyri þessi árin, sem Jón hét, og var kalláðúr gamli til aðgreiningar frá húsbónd- anum. Gat hann aldrei fellt verk- úr hendi. Hann tók það því til bragðs á jólum að vinna og spinna úr hross- hári tátiljur á allt heimilisfólkið, en að hátíðinni liðinni rakti hann þetta verk sitt allt upp aftur með þeim ummælum, að hann treysti guði til þess að fyrirgefa sér þetta helgidags- brot, ef hann eyðilegði vinnuna, svo að enginn nyti hennar. Svo einlægri barnatrú verður maður að bera virð- ingu fyrir ' Þessi Jón var eitt af mörgum gam- almennum, sem dvöldust á Lambeyri síðustu æviár sín meðan amma var þar. Húsbændurnir vildu ekki vamm sitt vita og vísuðu engum burtu, þótt ellin eyddi kröftum þeirra og vinnu- þoli eftir langa þjónustu í þeirra þágu. Slíkt þótti ekki heldur sæmd- arauki, en þekktist þó. Æðimargir voru á þeim árum, sem aldrei^komust hærra í heiminum en vera vinnuhjú hjá öðrum, og ekki var kaupið svo hátt, að það safnaði auði — eða eifistyrk. Það voru ekki heldur öll heimili fær um að brauð- fæða fleira fólk en vinnandi var, enda mátti sulturinn heita heimilis- fastur hjá mörgum, að minnsta kosti ef sjórinn brást til búdrýginda, því að skepnur voru fáar á flestum kot- anna og þær fremur kvaldar en aldar, svo algengt sem var að setja á guð og gaddinn. Á Lambeyri gátu hús- bændur valið úr fólki eins og ^önnur þau heimili, sem höfðu efni og vilja til þess að seðja hungur hjúa sinna. Gamli maðurinn fyrrnefndi með hrosshárið var gæðakarl og greindur vel. Hjá honum komst amma í sér- stakt uppáhald vegna þess, er nú skal greina: Það var siður á Lamb- eyri sem víða annars staðar, að einn læsi sögur eða kvæði rímur á kvöld vökum. f fásinni þeirra tíma vakti það ánægju og fæddi af sér þann samhug meðal heimilismanna, sem nú tímafólk fær vart skilið. En baðstof- an á Lambeyri var löng, átján áln- ir, því að fólkið var margt, og í flest- um rúmum hvíldu tveir. Annar endi hennar var afþiljaður handa hús- bændunum, og þar svaf einnig fóst- ursonur þeirra, Einar Magnússon, sem var Moníku jafnskyldur og amma, en fyrr tekinn á heimilið en hún. Sjálf voru þau Moníka og Jón barnlaus. í dyrastaf þessa afhýsis var bezta lýsislampanum krækt, og á kofforti þar við stafinn hafði sögu- maður sæti sitt. En þótt hann væri raddmikill, vildi heyrnardaufum gam almennum í hinum enda baðstof- unnar ganga illa að fylgjast með lestrinum, því að kambaurg og rokk- hljóð í baðstofunni yfirgnæfði. Amma átti gott með að skilja, hve mikils þetta fólk fór á mis, svo sólgin sem hún sjálf var í sögur og fróðleik. Hún tók það því upp hjá sjálfri sér, er lestri lauk á kvöldin og mjalta- konur fóru í fjósið, en aðrar að hugsa um kvöldskattinn, að hún fór yfir í endann til gamalmennanna og sagði þeim efni þess er lesið hafði verið. Minni hennar var svo skýrt, að margt gat hún næstum því þulið orð- rétt upp úr sér. Fyrir þetta fékk hún margar blessunaróskir, sem hún síðar taldi, að hefðu hrinið á sér. Þegar Jón gamli sá hana koma, sagði hann oft, seinmæltur og sérkenni- legur í tali: „O, o — kemur þú nú, blessuð, hérna er sæti“ — og rýmdi til á kistli við rúmstokkinn sinn. Ömmu veitti ekki af þeim hlýyrð- um, sem vandalausir viku að henni, því að lengi bjó henni söknuður i sinni vegna viðskilnaðarins við for- eldra sína og bræður, og þó að Mon- ika, frænka hennar, væri ættrækin oa sómakær kona, þá var hún víst ekkl blíðlynd. Ekkert sagði amma, að hefði hjálp- að sér eins vel til þess að sigrast á óyndinu og skepnurnar. Hún var í eðli sínu mikill dýravinur, og á Lambeyri naut hún margra ánægju stunda við snúninga kringum búféð og gæzlu ‘ kvíánna frammi á Smæl- ingjadal. Þaðan af dalbrúninni var líka oft fagurt að líta yfir fjörðinn á sólhlýjum sumardögum, þegar hafræn an ýfði himinbláar bárurnar í fjarð- armynninu, en fyrir innan Oddann, sem gengur langt fram í fjörðinn frá landinu norðan megin, var sjór- inn eins og skyggður spegill, sem sólin varpaði á gullnum geislum sín- um, en gráir klettar og grænir bakk- ar stóðu hér og þar á höfði uppi við landið. Sveitin varð ömmu brátt hjartfólgin með fegurð sína og fjöl- breytni í riki náttúrunnar. Hún eign- aðisf líka strax góða vinstúlku þar á heimilinu, á sama aldri og hún sjálf. Eiginlega var þetta mannmarga heimili eins og heill heimur út af fyrir sig, sem lítið þurfti til ann- arra að sækja. Aðeins ein kaupstað- arferð var farin á ári, og þá á Geirs- eyri við Patreksfjörð. Fáar voru þær, nauðsynjavörurnar, sem þangað þurfti að sækja og enn minna af munaðarvöru. Karlmenn smíðuðu heima áhöld öll úr tré eða járni, en konur unnu fatnað á fólkið, jafnt yzt sem innst. En annars var störfum ýmislega skipt, eftir því sem bezt þótti henta. Oft gerðust kátleg atvik, sem krakkarnir gátu lengi skemmt sér yf- ir, eins og þegar húsmóðirin var eitt sinn um mitt sumar úti í skemmu að setja mjólkina úr kvíaánum. Þá var skilvindan ekki komin til sög- unnar. Mjólkin var látin standa eitt til tvö dægur í grunnum trogum, svo að rjóminn settist ofan á, en síðan var mjólkinni rennt undan og stutt við rjómaskánina með sleif. í þetta skipti var Moníka ekki hálfnuð með verkið, er hún hentist æpandi út úr skemmunni. Það af heimilisfólkinu, sem nálægt var, hópaðist að, þvi að slíku atferli húsmóðurinnar var það ekki vant, svo köld og róleg sem hún að jafnaði var. En í þetta sinn var henni illa brugðið. Hún var ofsa- lega hrædd við mýs, og nú sagði hún, að það væri lifandi mús í mjólkinni. Einhver hugrakkur náungi hætti sér inn í skemmuna til þess að skoða 1114 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.