Tíminn Sunnudagsblað - 28.08.1966, Qupperneq 13
Græniand — nýtt íbúðarhverfi i Þórshöfn, þar sem götur eru breiðari en í gamla bænum.
inn, þar til skipið héldi áfram för
sinni klukkan átta. Þeir ætluðu að
halda áfram með skipinu. Við byrj-
uðum á því að skoða Skansinn. Þar
uppi eru merkar fornminjar frá 16.
öld, fallbyssur úr eir. Færeyingurinn
Magnús Heinason lét setja þær upp til
þess að verjast sjóræningjum, sem
oft herjuðu á eyjarnar á þessum tím-
um. Magnúsi tókst að friða eyjarnar,
en endalok hans urðu dapurleg, því
að hann var hálshöggvinn á Gamla-
torgi í Kaupmannahöfn árið 1589.
Hann er í Færeyjum talinn þjóðhetja.
Þess má geta, að hann var af íslenzku
bergi brotinn.
Þegar ferðafélagar okkar voru aft-
ur komnir um borð í Heklu, tókum
við Pétur bifreið á leigu og héldum
til Kirkjubæjar. Þetta var skyndiferð
og viðstaðan stutt, enda ætlaði ég að
fara þangað síðar. Mun ég víkja nán-
ar að Kirkjubæ seinna. í þetta sinn
sá ég þó kráku, sem ég hafði aldrei
séð fyrr. Var hún hin spakasta og
kom alveg til okkar og goggaði í
okkur og gargaði mikið: jra-kra. Voru
hljóðin ekki ósvipuð og í hrafnin-
um, enda skyldleiki með þeim. Síð-
an héldum við til Þórshafnar og Pét-
ur tók sér far til Klakksvíkur á fund
heitkonunnar.
Þegar ég skildi við Pétur, lagði ég
af stað upp í bæinn til að skoða
hann. Þórshöfn er afar snyrtilegur
bær, þegar gott er veður, eins og
var þennan fyrsta dag minn þar. Flest
allar göturnar eru malbikaðar og
hreinlegar, en margar þröngar og
gangstéttalausar. Trjágarðar eru víða
við hús, og virtist mér trjágróður
vera hávaxnari þar en í görðum
heima.
Þegar ég var búinn að verja góð-
um tíma í að skoða bæinn, fór ég
að hitta Sigurð Joensen, lögþingsmann
og lögfræðing i Þórshöfn, í skrif-
stofu hans. Áður en ég fór í þessa
för, hafði vinnufélagi minn, Stefán
Ögmundsson, sem fyrir nokkrum ár-
um dvaldist í Færeyjum og vann þar
í prentsmiðju, skrifað Sigurði og beð-
ið hansn að vera mér hjálplegur Sig
urður var það sannarlega, því að
hann gerði mér dvölina í Færeyjum
miklu ánægjulegri og gagnlegri en
ég hafði nokkurn tíma búizt við hún
yrði.
Á þriðjudag var hvassviðri og rign-
ing. Samt fór ég í gönguferð um
bæinn. Eftir hádegi fór ég á fund
Sigurðar Joensens og ákvað í sanj-
ráði við hann ferð til Eiðis, smá-
bæjar nyrzt á Austurey. Síðan kvaddi
ég hann og hélt til Hótel Hafnia,
þar sem ég gisti, því að nú var veðr-
Lagt af stað upp á Koll á Austurey.
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ
733