Tíminn Sunnudagsblað - 28.08.1966, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 28.08.1966, Blaðsíða 16
>' > ur á fjórum fótum, fremur en maður gengi. Mig furðaði satt að segja á því, hversu lítið ég varð var við loft- hræðslu, því að stundum var farið tæpt. Þegar upp úr skorningnum kom, tók við allbreiður grasigróinn hjalli. Þarna uppi var dásamlegt útsýni. Vest an við sundið blasti við Tjörnuvík á Straumey. Inni í botni víkurinnar er samnefnt þorp, nyrzta byggð á eynni. Þar fyrir norðan sást Stakk- ur, klettur mikill, sem helzt minnti mig á burt með torþaki á íslenzk- um bóndabæ. Nú var komið að lokaáfanganum upp á fjallið, geysibröttum grasbrekk- um. Þarna var orðið svo bratt, að ég fór ekki nema nokkur skref í senn, því að ég mæddist svo. Töluvert hafði hvesst, og ég hagnýtti mér storminn til að létta mér uppgönguna, því að hann stóð beint í bakið. Feginn var ég, þegar komið var upp. Þar var slétt undir fæti. Nú vorum við stadd- ir nyrzt á fjallinu og þarna fyrir neðan okkur risu úr sjó tveir geysi- stórir drangar, Risinn (75 m) og Kérlingin eitthvað lægri. Má með sanni segja, að þessi sýn borgaði allt erfiðið. Norðan við Koll er Litli- Kollur áfastur fjallinu rétt ofan við sjávarmál og er nærri jafnhár. Þar var mikið fuglalíf og gróður utan í honum. Ég ætla nú að reyna að lýsa lítil- lega útsýninu í austurátt. Niðri und- an fjallinu var Eiði og Mölin. Rétt þar austan við féll hár, en ekki ýkja vatnsmikill foss 1 sjó frán), Þar austur af eru NÖvin, Hvalsryggur og Rifs- tangl og enn austar Sátan. Sunnar er Gráfell (857 m) og þar suður af Slættaratindur. Að austanverðu er Kollur aflíð- andi og hugsaði ég með mér, að miklu auðveldara hefði verið að ganga á hann þeim megin, en auð- vitað var hin leiðin miklu tilkomu- meiri og Heini valið því hana. Við héldum nú niður fjallið. Þegar komið var niður undir jafnsléttu, var kom- ið á móbergskletta. Sást vel, hvernig skriðjöklar höfðu sorfið bergið fyrir langa löngu. - Færeyirigar segja, að þetta minni þá faelzt á grindavöðu, enda var engu líkara en horft væri yfir hop af hvölum. Þegar við komum niður í þorpið, fórum við heim með Heina og drukk- um hjá honum kaffi. Harin sagði mér um kirkjuna þarna á staðnum, sem er steinkirkja, að hún hefði verið flutt frá Danmörku og átt að flytjast tll fslands, en hafði hafnað þarna af einhverjum ástæðum. Áður en ég skll við Eiði, verð ég að minnast á Niels Kruse, sem var einn af brautryðjendum málaralistar- innar i Færeyjum og bjó mestan hluta ævinnar hér á Eiði, þessari sér- kennilegu litlu fjallabyggð. Héðan eru flestar fyrirmyndirnar að olíumálverk um hans. Nú var bíllinn kominn, sem ég ætl- aði með að Oyri. Ég kvaddi Heina og ferðafélaga okkar og ók gf Frá Oyri var ég ferjaður ul Hvá*Vp> ur og þaðan lá leiðín t(l Þörsháftþ ar og kém ég þangað klukkan atfá um kvöldið. Ferð til Klakksvíkur. Nú var fimmtudagur. Þennan dag ætlaði ég að skreppa til KÍakksvik* ur, því að ekkl fannst mér annall fært en að sjá þennan bæ, sem fyrir nokkrum árum varð (frægur vegna læknadeilunnar, sem þar reis upp, Að auki er þetta annar stærsti bær í Færeyjum og mikill og vaxandi afc- hafnabær. Klukkan tólf á hádegi fór ég um borð í „Pride,“ en svo heitir skipið, sem heldur uppi ferðum til Norður- eyjanna. Siglt var fyrir Sundin, norð- ur með Austurey fyrir Lambavík og Götuvík og austur fyrir Kalsoy. Fyrir austan Kunoy (Konuey) var siglt inn á Klakksvík, þar sem samnefndur kaupstaður stendur. Skipið stóð þar aðeins við í tvær klukkustundir, svo að tíminn var naumur, sem ég hafði til að skoða mig um í bænum. Ég heimsótti Stíg Rasmussen, prentsmiðjustjóra, í prent smiðju hans. Rétt eftjr styrjaldarlok- in vann hann hér á landi, í ísafoldar- prentsmiðju, og var nýlega hættur þar, þegar ég réðist þangað. Ég átti að bera honum kveðjur frá fyrrí vinnufélögum hans, því að hann hafði áunnið sér miklar vinsældir meðan hann vann hér. Hann tók mér vel T f M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ Smábó+ar á höfninni í Þórshöfn. Færeyingar eiga margar fleytur. 736

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.