Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Blaðsíða 7
eyri var farinn að renna vonaraugu til smáfisks þessa, og var það þó ekki karl, sem Iaut að því, sem lítilfjörlegt taldist. ísafjörður var einnig mikill mektarstaður óg litiu fámenari en sjálf Akureyri, enda var þá með talin útborgin Krókur, þar sem nú var risin Pétursborg, niðursuðu- verksmiðja Péturs M. Bjarnasonar, er verða skyldi eitt mesta fyrir- tæki landsins og veita þrjátíu til fjörutíu manns atvinnu þegar í stað. Var þó áður hvergi flutt jafn- mikið af vöru á skip sem á ísa- firði, að Reykjavík einni undanskil- inni. Þar var heimsborgarbragur á flestu. Þaðan var siglt með fisk beint til Spánar, og þar fengust ekki einungis „ágætustu vindlar, sem konungar og keisarar reykja,“ hjá Bjarna Sigurðssyni í Skipagötu, heldur einnig „hin heimsfræga, þurrkaða mjólk, sem mest ihefur veið talað um í útlendum blöð- um“. Og þarna var vagga vélbáta- útgerðarinnar, mesti vélbátafloti landsins og fyrsta vélaverkstæðið, sem komið var á fót. Hús sín nefndu ísfirðingar eftir stórborg- um utan lands. Hét til dæmis eitt Rómaborg, og var um það kveðin vísa. Bygging ein við bæjartorg breiðan skrýðir sjónarhring: Rölulglituð Rómaborg, reist af Jóni Geiteying. Færöerne.“ En einmitt þetta ár fluttist Pétur alfarinn brott frá Bíldudal og stofnaði Milljónafé- lagið sællar minningar. Og svo er til fólk, sem heldur, að það hafi aldrei heyrzt milljón nefnd 1 land- inu fyrr en með síðustu tungl- komu. Hugði Pétur á togaraútgerð meðal annars, og renndu þó fleiri hýru auga til slíkra veiðiskipa: Togararnir Jón forseti, sem Alli- ance lét smíða, og Marz, sem hluta- félagið ísland keypti, komu til landsins þetta sama ár. Á Austfjörðum var Seyðisfjörð- ur mestur staður. Þar var hefðar- bragur á hinum gildari bæjar- þegnum og talsvert af norsku ívafi, og var það arfur frá þeim tíma, er norskir síldveiðimenn þyrptust til Austfjarða. Þar var kvenna- blað fyrst gefið út á landi hér, nokkru fyrir aldamótin, og kvenna skóli var þar rekinn tvo vetur. Heilum aldarfjórðungi fyrr hafði þó verið kvennaskóli á Eskifirði, stofnaður ári síðar en kvennaskól- inn í Reykjavik. I Alþingisrímunum gömlu er þetta erindi: Uppi 1 hlíðinni utan við Krók- inn bjó kraftajötunninn Sólon Guð- mundsson í Slunkaríki — sá, er lét sig ekki muna um það að seil- ast með annarri hendi í kenginn á steininum mikla í Bolungavík- urmölum og bera hann þrjár lengd ir sínar jafnléttilega og vatnsskjóla væri. Þegar aldur færðist á hann, tók hann að yrkja, og er þetta vísu korn um hið stórbrotna athafna- líf á Vestfjörðum, eftir hann: Fjögur þúsund svertingjar starfa af feiknamóði. Nær þá kolareykurinn upp til hárra fjalla. Annar fremdarstaður á Vest- fjörðum var Bíldudalur, þar sem Pétur Thorsteinsson hafði útveg sinn. Saltfiskur frá Bíldudal varð svo frægur á mörkuðum í útland- inu að danskir fiskkaupmenn aug- lýstu jafnvel .Bildal-Klipfisk fra Sexæringurinn Stanley, eign Árna Gislasonar, fyrsta fleyta með aflvél i eigu íslendinga. TÍHINN - SUNNUDAGSBLAÐ 439

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.