Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Qupperneq 13

Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Qupperneq 13
Á fyrsta hlýindadegi Reykjavík- urvorsins sat ég í skonsu að Óð- insgötu 2 og ræddi við Magnús Jóhannsson útvarpsvirkja og . . . Ja, nú veit ég ekki, hvað nefna skal. Sumir heiðra Magnús með titlinum arnarsérfræðingur. Aðrir segja hann vera kvikmyndatöku- mann eða kvikmyndaliöfund. Og til eru þeir, sem nefna hann blátt áfram Magnús. Ég renni grun í, að Magnúsi falli bezt við „Magnúsar-titilinn,11 og því verður honum haldið í þessari grein. Hvað um það. í upphafi birt- um við æviágrip Magnúsar, en hann er alinn upp við ísafjarðar- djúp, nánar til tekið á Skjaldfönn' í Skjaldfannardal. Skjaldfannardal ur er hliðstæður sunnanvert við Kaldalón, hið fornfræga arnarset- ur, og liggur upp að Drangajökli. Nú er Magnús búsettur í Reykja- vík og starfar sem útvarpsvirki. Þar með ætti æviágripinu að vera lokið, eða svo segir Magnús, þar sem lrann situr gegnt mér í skons- unni, en í trássi við hinn ætla ég að auka við nokkrum setniugum. Magnús varði mörgum stundum í friðsæld vestfirzkra óbyggða og lagði þá ástfóstur við náttúru lands ins, lifandi og dauða. Ekki urðu vinslit, þegar hann hélt til Reykja- víkur. Nær allar frístundir hefur hann nýtt til könnunarferða um grasvænar byggðir og hrjóstrug fjöll og jökla, kynnt sér og kvik- myndað líf og háttu fugla og fieiri dýra. Einkum hefur Magnús átt vingott við íslenzka örninn. I-Iann hefur samið stórmerka kvikmynd um þessa fágætu fuglategund (hún var sýnd fyrir stuttu í íslenzka sjónvarpinu), og má ineð sanni segja, að Magnús þekki örn- inn flestum betur. Þá læt ég ágripinu lokið. Næsti hluti er nokkur formálsorð. Við sátum lengi í skonsunni og ræddum um kynni Magnúsar af kvikmyndavélum, fuglum og dyr- um. Einkanlega sagði Magnús mér frá erninum og arnarkvikmyndinni en margt fleira bar á góma, og er það ekki síður forvitnilegt. Hef ég því ákveðið að greina viðtal okk ar í tvo þætti, og mun hinn síðari fjalla um örninn einan, en þessi þáttur um . .. Hann skýrir sig sjálfur. — Og við skulum rifja upp liðna daga, Magnús. Hvenær eign- ast þú fyrstu tökuvélina — Ef við eigum að ræða um myndatökur af fuglum og fleiru, er líklega rétt að byrja söguna í kringum nítján hundruð og fimm- tíu. Á þvi ári, eða kannski einu ári fyrr, fékk ég mína fyrstu kvik- myndavél. Áður hafði ég fúskað svolítið með ljósmyndavél. En ef til vill má nefna upphafið, þegar ég uppgötvaði, hvað kvik- mynd er í raun og veru, og gerði mér ljóst, hversu mikið fræðslu- gildi kvikmynd getur haft. Það var, þegar ég vann að hljóðupp- Rætt við Magnús Jóhannsson útvarpsvirkja Fyrri hluti: Náttúruskoðun og kvikmyndatökur T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 445

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.