Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Side 16

Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Side 16
> > r ■ ■ IPíet Helai: JÖFNUR Er syndaflóðið kom til Sahara — er syndaflóðið kom til SAHARA — er SYNDAFLÓÐIÐ kom til Sahara — hin örþjáða eyðimörk svalg. Þúsundir steiktra funandi fermílna drukku sér veig dettifossa, sval-kalt hreint vatn. Hjarðirnar þömbuðu, gróðurinn saug, vinjarnar teyguðu, sandauðnin drakk, og gulur smá froskur varð fuliur svo hann sprakk — er syndaflóðið kom til Sahara. Þú ungmær í förum hvern annríkisdag sem ólgandi vaxandi flóð og nýtur þíns blessaða nærandi svefns í nótt undir stjarnanna glóð! Þú heldur að teyga timann sé allt og taka hvað aðrir þér fá, að hver sá er brennur af þorsta sem þú jafn þorstlátur gangi þér hjá. Ert grunlaus um það, eins og þenkjast má, að þegar þú komst — er þú KOMST — er ÞÚ komst — þá var það slík allsherjar viðreisn sem þá er syndaflóðið kom til Sahara Páll H. Jónsson þýddi. naumindum aftur, særðu af bræðrabiti. Þessi yrðlingur komst jsvo aftur á kreik og varð heimalningur á bænum. Leikur þessa kvikindis við hunda og ketti, menn og skepnur, er ógleymanlegur. Uppá- i finningarnar hjá þessu greyi voru alveg dæmalausar. Ég leyfi mér að mótmæla þeirri skoðun, að gáfna- ! far sé óþekkt með dýrum. Fáir, , sem ég hef þekkt, hafa verið jafn fyndnir og sniðugir sem þessi yrðl- ] ingur. Hann þóttist sofa, þar sem fólk sat og rabbaði saman, og svo var hann skyndilega stokkinn upp á höfuðið á einhverjum bara til þess að gera sprell. Ég held, að tófan og hrafninn séu snjallari en mörg gáfnaljósin. — Það er máski eina ráðið fyrir bændur til varnar tófunni að taka hana heim til sín og gera hana að húsdýri. — Það mætti reyna það, en ekki vil ég mæla með því, að bændur taki minkinn í fóstur. En úr því að ég hef minnzt á minkinn, verð ég að fara nokkrum orðum um svartbakinn og hettu- máfinn. Minkurinn er sagður mik- ill skaðvaldur íslenzku fuglalífi, og það er hann efalaust, en ég held, að svartbakurinn og hettu- máfurinn séu engu betri. Mergðin er orðin svo gífurleg af þessum tveimur fuglategundum, að jafn- vægi náttúrunnar hefur raskazt. Ef ekki verður gripið í taumana og komið á jafnvægi, mun svart- bakurinn og hettumáfurinn verða yfirgnæfandi í íslenzku fuglaríki og hrekja margt annað líf í burtu. Svartbakurinn veldur mestu tjóni í æðarvarpi, og það stoðar ekki neitt að labba sig út með byssu og drepa tvo eða þrjá varga. Það verð ur að stöðva tímgunina. — Hvernig má það verða? — Ég held, að eina ráðið sé að gera eggin ónýt, ófrjó, og láta fugl- inn liggja á þeim. Séu eggin tek- in úr hreiðrinu, eru önnur ný kom in eftir viku. Fuglinn verpir bara aftur. En hér geta menn ekki orðið samtaka um nokkurn hlut, og of- fjölgun svartbaks og hettumáfs er að verða alvarlegt vandamál, því mikil röskun er komin í fuglalífið hér á landi, einkum þó í grennd við borgir og bæi. Fjöldinn er svo gífurlegur og ætisþörfin svo mikil, að fuglarnir leggjast á fleira en sitt venjulega fæði. Svartbakuirnn leiitar á sínar gömlu stöðvar til að verpa, og oft á dag fer hann í her- ferðir upp með ánum, upp eftir dölunum, og hirðir hvert líf, sem hann sér. Sérhvert egg, sérhvert ungviði. Þetta er til dæmis algengt í Þjórsárdal og víðar. Á ákveðnum tíma dags fer svartbakurinn í skipulegar ránsferðir og eyðir öllu lífi, sem fyrir verður. — Og enginn étur svartbakinn? — Nei, því er nú verr og mið- ur. Hann er öruggur fyrir öðrum fuglum. Eina ráðið er sem sagt að stöðva tímgunina. — En hefur nokkur íslendingur á kafi í víxlum og verðbréfum áhuga á náttúrunni? — Það er þá hlutverk náttúru- fræðinga og náttúruverndarráðs að vekja þennan áhuga. Mér þykir náttúrufræðingar annars of mikið gefnir fyrir bókina. Ég' er ekki aS hallmæla vísindaritgerðum, rann- sóknum og öðru slíku, en mér þykir meginhlutverk náttúrufræð- inga vera það að kenna fólki að njóta náttúrunnar og virða hana. Náttúran sjálf á sinn rétt, sem Framhald á 454. síðu. 448 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.