Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Side 7

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Side 7
 Lagarfl|ótsbrúin nýsmfðuð Hún var mikíð mannvirkl á sinni tíð. þeir, sem ríðandi komu. En þar sem við vorum austan fljóts en hestar okkar vestan, héldum við yfir brúna, og var þar óslitin röð af fólki. Rétt þegar við nálg- uðumst brúna, gerði snarpa vind- hviðu, og brey-ttist veðurblíðan snögglega í suðvestanrok. Vildi svo til, að sá, sem gekk á undan mér, missti hattinn, og fauk hann langt út á fljót. Maðurinn rak upp óp mikið, og við það leit sá næsti um öxl, og sagan endurtók sig. Enn leit sá þriðji um öxl, og þarna flutu þrír hattar, sem sigldu með glæsi- brag út fljótið. Hvort þá rak seinna á fjörur Héraðsbúa, veit ég ekki. Við bjuggum okkur nú til ferð- ar svo fljótt sem við gátum, því að við, sem ætluðum á hestum, vor- um farnir að óttast um vélbátinn. Við vorum þrír bræður saman, auk margra annarra úr Fellum og Fljótsdal. Veðrið var nú orðið rokhvasst, að við urðum að halla okkur fram á makkann á hestun- um til þess að hafa á móti. Höfuð- föt og annað lauslegt var vand- lega frágengið í hnakktöskunum eða þá innan klæða, því að veðr- ið hefði tekið allt, sem losnað gat, svo var veðurofsinn ægilegur. Urð- um við alvarlega hræddir um þát- inn, því að aldan á Lagarfljóti er mjög kröpp í svona veðri og brýt- ur í hverja báru. Svo var fljótið yfir að líta sem það væri aUf einn ógurlegur brotsjór. Það jók ótta Okkar bræðra, að á bátnum voru foreldrar okkar og fjögur systkini, auk margra vina og frænda. Keyrðum við hestana sem mest við máttum, enda vorum við léttir strákar á milli ferming- ar og tvítugs, en hestarnir röskir og þolgóðir. Miðaði okkur þvt vel áfram, þrátt fyrir veðurofsann beint í fangið. Myrkur var skollið á, svo að von- laust var að sjá nokkuð tii báts- ins, enda svo langt um liðið, að hann átti að vera kominn að Brekku fyrir löngu, ef allt hefði gengið skaplega. Þegar við komum á móts við Skeggjastaði, sáum við einhverja þúst rétt ofan við veginn. Við nán- ari athugun reyndist þetta vera flokkur gangandi fólks á leið heim að bænum. Var þarna komið fólk- ið af bátnum, og sagði það þau tíðindi, að nauðlent hafði verið í Iítilli vík og bátinn rekið aftur á bak svo langt upp í flæðarmálið að fólkið komst þurrum fótum á land. Ekkert slys hafði orðið á mönnum, og báturinn var óskemmdur. Þótti þetta ganga kraftaverki næst I ofsa roki og náttmyrkri. Vík ég nú -óg- unni að sjálfri bátsferðinni og styðst þar við frásögn konu minn- ar, sem var meðal farþega á bátn- um, þá sextán ára gömul. Lagt var af stað frá brúnni í bezta veðri og raðað í bátinn eins mörgum farþegum og fært þótti. Gekk allt vel upp að Vallanesi, en þar fór í land hópur Skriðdælinga og Vallamanna. Eftir urðu Fljóts- dælingar og Jökuldælingar, sem komið höfðu með bátnum frá Brekku um morguninn, alls upp undir þrjátíu farþegar, mest rosk- in hjón með börn sín. Varla var báturinn laus frá landi, þegar hvessa tók af suðvestri, og skall á svipstundu á aftakarok. Tók þá bátstjórinn þá ákvörðun að leita yfir undir vesturbakka fljótsins, ef veðrið skyldi vera vægara þar. Eins og^ áður var sagt var Tryggvi Ólafsson bátstjóri, og skyldi aðstoðarmaður hans stýra, þegar Tryggvi var sjálfur tepptur við vélina. Veitti Tryggvi-því eft- irtekt, að stýrimaður var eitthvað ótryggur við stjórnvölinn, en sjálf- ur komst hann ekki frá vélinni. Kallaði hann þá til Halldórs Bene- diktssonar, bónda á Skriðuklaustri, og bað hann taka við stýrinu. Mátti það ekki seinna vera, því að mað- urinn valt niður í bátinn og svaf þar svefni hinna réttlátu allt á leið- arenda. Halldór stýrði nú, og var haldið sem næst beint í ölduna, en þó reynt að nálgast vesturbakkann, eftir því sem unnt var. Veðrið smá- harðnaði, og ganghraði bátsins minnkaði. Þegar komið var á móts við Hrafnsgerði, hætti bát- urinn að hafa á móti. Tók hann að reka undan veðrinu, og var þá ekki um annað að gera en halda honum upp í ölduna og láta hann berast þannig undan. Kallaði Iíall- dór á dóttur sína, sem sat frammi í bátnum, og bað hana að koma til sín. Munu flestir, sem inn- an borðs voru, hafa gert sér grein fyrir því, að engu siátti muna, ef björgun átti að takast. Enginn mælti æðruorð, en gleðskapur all- ur féll niður af sjálfu sér. Sátu menn hljóðir og biðu þess, íem verða vildi. Myrkur var dottið á, og var því örðugt að finna stað, þar sem lendandi væri. Halldór var þarna kunnugur frá gamalli tíð, og vissi hann af lítilli sandvík niður af T í M I N N — SUNNUDAGSBLAf) 535

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.